Morgunblaðið - 19.05.1974, Side 16

Morgunblaðið - 19.05.1974, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. MAl 1974 Leiðsögn í að spila gamia Nða. Ingunn horfir á. — Heimsókn til borgarstjóra Framhald af hls. 1 málefni og ég hef aldrei orðið var við, að þær bæru keim af persónu- legum skætingi, hvað þá svívirð- ingum. Deilt er af fullri kurteisi á báða bóga á málefnalegum grund- velli. Sú skoðun gerir æði oft vart við sig hjá almenningi, að stjórn- "THálamenn geri ekki annað en rff- ast. Það er mesti misskilningur. Komi upp ágreiningsmál er reynt að taka þau fyrir og einangra þau. Það tekst ekki alltaf og deiluefnið kemur síðan upp á opinberum vettvangi, þ.e. f borgarstjórn og þaðan flyzt það í blöð og oft er gert meira úr en efni stóðu til. Mér er reyndar ekki grunlaust um, að blaðaleysið hafi haft sín áhrif á fundi borgarstjórnar að undanförnu, bætir hann við og brosir. — Það hefur hvarflað að manni, að sumt af þessu sé sett á svið, alténd hafa fundirnir upp á síðkastið verið mun styttri en þeg- ar borgarfulltrúarnir geta gert sér vonir um, að orð þeirra séu flutt kjósendum gegnum blöðin. — Koma oft áheyrendur og fylgjast með borgarstjórnarfund- um? — Ekki oft. En ef á dagskrá eru einhver afmörkuð mál, sem snerta tiltekna hagsmunahópa, þá fyllast pallarnir stöku sinnum. Kannski stafar þetta i og með af því, að borgarstjórnarfundir eru aðeins einu sinni í hálfum mánuði og ekki auglýstir eins og skyldi. Því að þarna er auðvitað margt og mikið rætt, sem samborgurunum ætti að vera ávinningur í að fylgj- ast með. Ég man aðeins þrisvar eftir því á þessu kjörtímabili, að áheyrandapallar hafi fyllzt. Þegar hundamálið var á dagskrá; þegar rædd var tillaga um dagvistunar- mál og er úthlutun Stóragerðis- lóðanna fór fram. — Frambjóðandi og borgarfull- trúi Alþýðubandalagsins, Adda Bára Sigfúsdóttir sagði i viðtali í Þjóðviljanum á dögunum, að þú værir „geðþekkur rnaður". Lít- urðu á það sem gullhamra, eða hvernig tekurðu þau orð? — Eigum við ekki bara að segja það. Svona að vissu leyti, segir borgarstjóri og brosir við. — Ég veit að vísu ekki nákvæmlega, hvað í orðum hennar felst. En ég held ég geti sagt með nokkrum rétti, að ég hef alltaf reynt að hafa gott og jákvætt samstarf ekk- ert síður við minnihlutann en meirihluta í borgarstjórn og hef freistað þess að sýna fulla sann- girni. Oft eru skoðanir okkar skiptar, eins og ég sagði, borgar- mál vilja oft verða pólitísk og flokkarnir nálgast málin á ólík- um grundvelli. Við getum tek- ið sem dæmi opinberan rekstur og afstöðu okkar til hans. Við sjálfstæðismenn viljum, að borgin hafi sem minnst afskipti af slíku, en efla einstaklingsframtakið. Vinstri flokkarnir hafa á þessu aðra skoðun. Þetta er eitt dæmi um grundvallarágreining, sem birtist í mörgu. En ég ítreka, að deilur í borgarstjórn eru menn- ingarlegar og kali milli borgar- fulltrú-a — hversu ólíkar sem þjóðmála- og borgarmálaskoðanir þeirra eru — held ég ekki að sé fyrir hendi. — Hvað hefurðu til málanna að leggja um þann ágreining, sem gefið hefur verið í skyn að ríkti innan borgarstjórnarflokks Sjálf- stæðisflokksins? — Við bendum á og leggjum áherzlu á, að í Reykjavikurborg ríki samhentur og styrkur meiri- hluti. I ríkisstjórn, í minnihluta borgarstjórnar er glundroði. I okkar hópi er auðvitað hver og einn sjálfstæður einstaklingur með ákveðnar skoðanir á þvi, hvernig eigi að leysa hin ýmsu vandamál. Það væri sannarlega skritin hjörð, sem alltaf væri sam- mála um allt. En það, sem úr sker — og það er kjarni málsins — er, að í meginatriðum og í þvi, sem máli skiptir, eru borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sammála og þeir hafa aðstöðu til, i krafti síns meirihluta, að framkvæma það, sem gera þarf án þess að allt fari i togstreitu og deilur. En eðlilegt er, að sumir minnihlutahópar skilji ekki þetta skoðanafrelsi. • — Geir Hallgrimsson var vin- sæll borgarstjóri. Hefur verið erf- itt að taka við? — Ég neita þvi ekki, að ég hafði vissar áhyggjur. Og sjálfsagt var ýmsum svo farið. Einhver vantrú á mér og efasemdir, það er eðli- legt. Sumir töldu, að ég væri of ungur og erfitt myndi reynast að fylla upp í skarðið. En það hjálp- aði mér, að við höfðum unnið mik- ið saman, ég og Geir Hallgrims- son, ég hafði lengi setið i borgar- ráði, eða frá því ég var fyrst kjör- inn í borgarstjórn 1962 og fékk þar með árunum ágæta yfirsýn yfir mörg og mikilvæg mál. En hvernig mér hefur tekizt að gegna þessu starfi, treysti ég mér nú ekki til að kveða upp úr með eða dæma um. — Stundum höfum við heyrt þær raddir, að rismiklir stjórn- málaleiðtogar vilji halda öllum þráðum valdsins í sinni hendi og gæti þess ekki að hafa aðra svo nána samstarfsmenn sína, að þeir geti tekið við, þegar á þarf að halda. Nú var einnig sagt, að all- lengi hefði það verið ljóst, að þér hefði verið ætlað — fyrr eða siðar — að taka við borgarstjórastarf- inu og að þú værir beinlínis alinn upp til þess. Það var þá líka gagn- rýnt í bak og fyrir. Hvað viltu segja um þetta? — Það er margt til í þessu. En hitt get ég sagt með sanni að það kom aldrei til tals milli mín og Geirs Hallgrímssonar, að ég tæki við borgarstjórastarfinu fyrr en þremur vikum áður en borgar- stjórn féllst á lausnarbeiðni hans og ég var kosinn. Min störf miðuð- ust þvi ekki við, að ég yrði borgar- stjóri. En mikil og góð samvinna okkar var mér mikils virði — hvort sem ég hefði orðið borgar- stjóri eða ekki. Það er líka rétt sjónarmið, að stjórn- málaflokkarnir eigi að hlúa að hverri nýrri kynslóð og gefa henni tækifæri. Það er nauðsyn- legt, að kynslóðirnar vinni saman, svo að þéir yngri geti gripið inn i, þegar þörf krefur. I sumum flokk- um verður misbrestur á því og það er áreiðanlega ekki vænlegt. — Stígur það til höfuðs ungum manni að verða borgarstjóri í Reykjavík? — Ég held ekki, að maður hafi tima til að láta titilinn stiga sér til höfuðs i þessu starfi. Og á það ber að líta, sem margir virðast gleyma jafnóðum, að þrír fyrirrennarar mínir urðu allir ungir borgar- stjórar, Bjarni heitinn Benedikts- son, Gunnar Thoroddsen og Geir Hallgrímsson. Þeir voru ámóta að aldri eða jafnvel yngri. Kannski má segja það hefð hjá Sjálfstæðis- flokknum að hafa ungan mann borgarstjóra. — Finnst þér ekki fullmikii endurnýjum í aðalborgarfulltrúa- flokki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik, að fjórir skuli hverfa á braut? — Ég neita því ekki, að endur- nýjunin er óvenju mikil. En ef við athúgum ástæður hvers fyrir sig þá skil ég mætavel forsendur þeirra Geirs Hallgrimssonar og Gisla Halldórssonai; þær verða að teljast fullkomlega eðlilegar, enda h?fa þeir báðir lengi starfað að borgarmálum. Kristján J. Gunnarsson hvarf úr borgar- stjórnarflokknum í fyrra, er hann tók við starfi sem ekki samrýmist borgarfulltrúastöðu. Ég hefði kos- ið, að Sigurlaug Bjarnadóttir hefði gefið kost á sér áfram, þar sem hún hefur öðlazt mikla reynslu og góður árangur verið af starfi hennar í borgarstjórn. En af per- sónulegum ástæðum kaus hún að draga sig í hlé. Ég tel þessa end- urnýjun nú vera hámark. En á hinn bóginn finnst mér að fari sami flokkur svona lengi með stjórn, hljóti að vera nauðsynlegt, að nýir menn komi til sögunnar, nýir menn með ferskar hugmynd- ir, þá er engin hætta á stöðnun. Ýmsir, sem koma nú inn, hafa reynslu á sviði borgarmála. En auðvitað kostar það mikla vinnu að setja sig inn í alla málaflokk- ana, sem við er að fást, og starf hvers borgarfulltrúa er orðið mjög umfangsmikið. — Af hverju eru ekki fleiri konur á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik en raun ber vitni? — Þrátt fyrir allt tal kvenna um jafnrétti og aukna þátttöku í opin- berum störfum, þá er furðu erfitt að fá þær til að taka þátt í stjórn- málum. Þar á ég við konur, sem treysta sér til að vera á oddinum. Þær eru reiðubúnar til að vinna í ýmsum nefndum og félögum og inna þar gott og mikið starf af hendi. En þegar að því kemur að ganga fram fyrir skjöldu, standa í eldlinunni, er eins og þær hopi. Ég lit svo á reyndar, að það sé ösköp takmarkaður ávinningur að setja konur á listana, rétt til upp- fyllingar, þar sem þær hafa enga möguleika á öruggum sætum. Ef við lítum t.d. á lista Alþýðubanda- lagsins, þar sem er álitlegur hóp- ur kvenna, þá sýnist mér sem þar séu margar, sem hafa getið sér gott orð í störfum sínum, en fæst- ar látið til sin taka á þjóðmála- sviðinu og þvi út af fyrir sig tómt mál að telja það lista til gildis að hafa á honum margar konur, ef þær eru aðeins til skrauts eða uppfyllingar. — Hvernig lízt þér á það tiltæki 9. manns á lista Sjálfstæðisflokks- ins, frænda Þórðar Breiðfjörðs, að efna til rabbfunda á götum úti? — Þetta er nýtt hér. Og skemmtilegt. Þetta er talsvert iðk- að í Skandinavíu. Ég var í Dan- mörku, þegar kosningar fóru þar fram i marz og varð var við, að margir frambjóðendur gerðu þetta. Mér finnst það vera til- hlökkunarefni að fá ungan og lífs- glaðan mann eins og Davið til starfa í borgarstjórnarflokknum. Fjör og kæti 1 rólunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.