Morgunblaðið - 22.05.1974, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1974
Fjör og baráttugleði
á kosningaskemmtunum unga fólksins í Regkjavík
skemmtunum barvott um mikinn
sóknarhug, og fór vart á milli
mála, að nú er verulega tekið að
hitna í kolunum í kosningabarátt-
unni, og unga fólkið a.m.k. ætlar
ekki að láta sitt eftir liggja til að
tryggja áframhaldandi samhenta
og trausta stjórn Sjálfstæðis-
flokksins á málefnum borgarinn-
ar.
Bessí, Davíð og Markús fluttu
ávörp og hvatningarorð á
skemmtununum og fjölluðu m.a.
um viðhorf sin til borgarmála og
stöðuna í íslenzkum stjórnmálum.
Einnig komu fram skemmti-
kraftarnir Ómar Ragnarsson, Jör-
undur Þorsteinsson, rokkparið
Sæmi og Didda og Henný og örn,
sem sýndu satnkvæmisdansa. Þá
var sýning á vortlzkunni, sem
blómstrar í verzlunum borgarinn-
ar um þessar mundir, en þá er
ótalið það skemmtiatriðið sem
hvað mestan fögnuð vakti með
viðstöddum, en það var söngtríóið
Þrjú á toppi, sem stjórnaði fjölda-
söng.
Þrjú á toppi skipuðu þau, sem
til samkomunnar boðuðu, Bessí,
Davíð og Markús. Hleypti þetta
atriði miklu fjöri i samkomuna,
og var reyndar eitt það bezt
heppnaða á dagskránni.
I Sigtúni var undirleikari triós-
ins enginn annar en Birgir Is-
leifur Gunnarsson borgarstjóri.
Stóð hann sig með stakri prýði og
vakti mikinn fögnuð samkomu-
gestanna.
Halldór Kristinsson stjórnaði
báðum skemmtununum af mikl-
um skörungsskap svo sem vænta
mátti.
Blaðamenn Mbl. voru nær-
staddir, og tóku við þetta tæki-
færi stutt viðtöl við nokkra gesti.
S.I. fimmtudagskvöld
gengust ungir frambjóð-
endur á lista Sjálfstæðis-
flokksins til borgarstjórn-
arkosninganna, þau Bessi
Jóhannsdóttir, Davíð Odds-
son og Markús Örn Antons-
son fyrir skemmtikvöldi að
Hótel Sögu, og síðan í Sig-
túni hinu nýja s.l. sunnu-
dagskvöld.
Húsfyllir var í bæði skiptin, og
taldist mönnum til að milli sjö og
átta hundruð manns hefðu verið á
Hótel Sögu og um níu hundruð í
Sigtúni. Slíkar skemmtanir hafa
áður verið haldnar fyrir kosning-
ar, en þessar skemmtanir unga
fólksins eru tvímælalaust þær
fjölmennustu hingað til.
Andrúmsloftið á báðum þessum
Arni Hreiðar og Guðný.
Stendur sig bezt
VIÐ hittum Guðna Þór Guð-
mundsson, sem vinnur hjá John-
son og Kaaber. Hann er að kjósa í
fyrsta skipti, og við spurðum
hann hvort hann væri búinn að
ákveða sig.
— Nei, ég er ekki alveg ákveð-
inn ennþá.
— Hvernig leggjast kosningarn-
ar í þig og viltu spá einhverjú um
úrslitin?
— Ég held að Sjálfstæðis-
flokkurinn bæti við sig fylgi.
Þá gerðum við áhlaup á Árna
Hreiðar Þorsteinsson, starfs-
félaga Guðna.
— Hefur þú kosið áður, Árni?
— Já, einu sinni í alþingiskosn-
ingum.
— Og hvernig finnst þér útlitið
núna?
— Mér finnst Sjálfstæðis-
flokkurinn standa sig bezt af
þessu öllu og ég held, að hann
hljóti að auka við fylgi sitt núna.
Guðný Sigurðardóttir tók í
sama streng. Hún er húsmóðir og
kýs nú í fyrsta skipti, og sagðist
hún vera löngu búin að ákveða
hvað hún ætlaði að kjósa.
Olaffa og Kðsa.
„Kýs réttan flokk”
Ólafía Kristjánsdóttir
vinnur hjá Almennum
tryggingum og er nú að
kjósa í fyrsta skipti.
— Ertu búin að ákveða hvað þú
ætlar að kjósa, Ölafía?
— Já eiginlega er ég nú búin að
því, en ég býst við, að ungt fólk sé
nú miklu óákveðnara en oftast
áður.
— Hvernig lízt þér á stjórn-
málaástandið um þessar mundir?
— Ég held, að það sem hefur
gerzt nýlega á þjóðmálasviðinu
hljóti a'ð hafa talsverð áhrif á
úrslit kosninganna á sunnudag-
inn kemur, — og það verður
sýnishorn af því, sem á eftir að
gerast.
Ölafía var í fylgd með vinkonu
sinni, Rósu Stefánsdóttur, sem
starfar hjá Bílaleigunni Fali:
— Ég held, að ég sé hér á rétt-
um stað, sagðí Rósa þegar við
spurðum hana hvers vegna hún
sækti þessa kosningaskemmtun
ungra frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins.
— Ertu þá búin að ákveða hvað
þú ætlar að kjósa?
— Ég kýs réttan flokk, sagði
Rósa, en frekari yfirlýsingar vildi
hún ekki gefa.
Hallmundur, Friðrik, Esther, Eyjólfur og Guðný.
„Atkvæðið bezt geymt
hjá Sjálfstæðisflokknum”
Guðný Karlsdóttir, sem vinnur
hjá Krómhúsgögnum, ogEyjóIfur
Ólafsson sfmvirki, en þau eru
reyndar kærustupar, skemmtu
sér af lífi og sál.
Við spurðum Eyjólf hvort hann
væri búinn að ákveða atkvæði
sínu samastað í borgarstjórnar-
kosningunum, og kvað hann það
vera bezt geymt hjá Sjálfstæðis-
flokknum, — annars væri hann
varla á þessa skemmtun kominn.
Hljóðið í honum var gott hvað
snertir úrslit kosninganna, og
sagðist hann ekki halda, að
ástæða væri til annars en mikillar
bjartsýni.
Þá tókum við tali Hallmund
Guðmundsson sjómann, sem var í
slagtogi með Guðnýju og Eyjólfi,
auk Friðriks Gíssurarsonar og
Estherar Sveinsdóttur.
— Ég er ákveðinn í »ð kjósa
þremenningana hérna, sagði Hall-
mundur, en ég er ekki eins ákveð-
inn hvað ég geri í alþingiskosn-
ingunum.
Eitt vinsælasta skemmtiatriöið var rokksýning Að skemmta sér og
þeirra Diddu og Sæma. öðrum.
Stemningin f hápunkti — Markús, Davfð og Bessf stjórna f jöldasöng hátfðargesta.