Morgunblaðið - 22.05.1974, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1974
Jón Lýösson, verk-
stjóri — Minningarorð
F. 12. mafl890
D. 14. maí 1974
VERTU trúr allt til dauða og ég
mun gefa þér lífsins kórónu.
Það var vor í lofti 15. október
1921, þegar hugir þeirra Jóns
Lýðssonar og Guðrúnar Gísla-
dóttur frá Kiðjabergi mættust og
brúðkaup var haldið í húsi Páls
Árnasonar, lögregluþjóns, við
t
Maðurinn minn
ÞÓRARINN
GUNNLAUGSSON,
Vatnsstíg 9,
andaðist i Borgarspítalanum 20
maí
Skólavörðustíg, þótt á köldum
haustdegi væri. Brúðhjónin voru
full af áhuga og bjartsýni fyrir
lífinu og æskutími þeirra var i
fegursta blóma. Vonirnar voru
margar og bjartar, svo sem til
heyrir æskuskeiði og lífið var
dásamlegt. Þau hétu hvort öðru
trúnaði meðan lífið entist og við
það hafa þau staðið.
En veraldarauðurinn var smár,
en hvað gerir það til, þegar lifið
og manndómsárin eru að byrja.
Mætur maður sagði eitt sinn við
fátækan, ungan bónda, sem átti í
hugarstriði út af fátæktinni: „Það
gerir ekkert til, þótt ungu hjónin
byrji smátt og eigi lítið til. bara ef
þeim kemur saman.“ Já, bara ef
þeim kemur saman, og það gerði
þeim Jóni og Guðrúnu i sann-
leika. Og líf þeirra og sambúð var
öðrum til fyrirmyndar og eftir-
breytni öll þau 52 ár, sem þau
áttu samleið.
Þau hjónin eignuðust 5 börn.
Þau eru: Soffía, gift Sigurði
Kristjánssyni, húsasmiða-
meistara. Kristinn, bílstjóri,
kvæntur Bryndisi Emilsdóttur.
Sigríður, gift Öskari Jónssyni,
húsasmíðameistara. Bragi, raf-
virkjameistari, kvæntur Ingigerði
Gottskálksdóttur. Árni, kaup-
maður, kvæntur Margit f.
Henriksen frá Danmörku.
Eina dóttur, Jóhönnu, hafði Jón
eignast áður. Hún var gift Erlendi
Kristinssyni, sem nú er látinn.
Barnabörn Þeirra Jóns og
Guðrúnar eru nú 26 talsins.
Jón Lýðsson var fæddur að
Hjallanesi á Landi, var einn af 12
systkinum. Foreldrar hans voru
Lýður Árnason og Sigriður Sig-
urðardóttir. Af börnum þeirra
eru nú aðeins 4 á lifi.
Jón byrjaði starf við sjó-
mennsku hér i Reykjavík og var
t
Þökkum innilega samúð og vin-
semd við andlát og jarðarför föð-
ur okkar, tengdaföður, fósturföð-
ur, afa og langafa,
MAGNÚSAR
MAGNÚSSONAR,
Hvitingaveg 10,
Vestmannaeyjum.
Sveinn Magnússon,
Sigriður Steinsdóttir,
Bergþóra Magnúsdóttir,
Ólafur Önundsson,
Guðríður Magnúsdóttir,
Lilja Sveinsdóttir,
Hjörtur Einarsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÓLAFÍU ANDRÉSDÓTTUR,
Laugabóli.
Hreinn Ólafsson,
Herdís Gunnlaugsdóttir,
Andrés Ólafsson,
Valgerður Valgeirsdóttir,
Erlingur Ólafsson,
Helga Kristjánsdóttir
og barnabörn.
t
Hjartanlega þökkum við öllum
þeim, sem sýndu okkur vinsemd
og samúð við andlát og útför
eiginmanns mlns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
LÚTHERS JÓNSSONAR,
frá Bergsholti.
Kristin Th. Pétursdóttir,
Jón Lúthersson,
Ragnheiður Jónsdóttir,
Óli B. Lúthersson,
Svana Svanþórsdóttir,
Pétur B. Lúthersson,
Brigitte Lúthersson,
Fjóla Lúthersdóttir,
Gísli Jóhannesson,
Svafa Lúthersdóttir,
Ásthildur Lúthersdóttir,
Petrea Lúthersdóttir.
árum saman togarasjómaður I
fremstu röð. Hann vissi, að það
gaf nokkuð meira í aðra hönd en
landvinnan, og við sjómennsku
starfaði hann fram á árið 1925. Þá
réðst hann til starfs við hafnar-
vinnu hér og starfaði óslitið við
hana í 39 ár, lengst af sem flokks-
stjóri.
Jóni Lýðssyni samdi vel við alla
þá, sem hann umgekkst, vinnu-
veitendur sem aðra, og átti hann
margar ljúfar endurminningar
frá hinum langa starfsdegi sínum,
sem hann minntist oft með skiln-
ingi og þakklæti til allra manna.
Eins og áður er að vikið, var
sambúð þeirra hjóna, Jóns og
Guðrúnar, fögur og öðrum til
fyrirmyndar. Þau ólu upp börn
sín i guðsótta og góðum siðum og
voru mjög samhent í öllu, sem
þeim gat orðið til heilla og bless-
unar.
Jón Lýðsson var vel meðal-
maður á hæð og vel á sig kominn
og fríður sinum. Hann var trú-
maður og studdi kirkju og kristni
eftir megni. Nú hefur hann lagt
frá landi og við horfum á eftir
honum með söknuði. 1 öllu gætti
hann hófsemdar og sanngirni, í
öllu vildi hann vel og I öllu
ástundaði hann einlægni og trú-
mennsku.
Með innilegri samúð til konu
hans, barna og annarra skyldra og
vandalausra vina hans kveð ég
hann með sálmaversinu fagra,
sem honum sjálfum þótti vænt
um og hafði oft yfir:
Nú legg ég augun aftur,
ó, guð, þinn náðarkraftur
min veri vörn i nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
J.Gunnl.
Ekki kveikja menn heldur
ljós og setja það undir
mæliker, heldur á ljósastik-
una og þá lýsir það öllum,
sem eru í húsinu —
Matteus 5—15.
Hinn 14. maí s.l. lést Jón Lýðs-
son, verkstjóri, á sjúkrahúsi eftir
langvarandi veikindi og legu ým-
ist á sjúkrahúsum eða á heimili
sínu Grettisgötu 73.
Jón var fæddur að Hjallanesi í
Landsveit þann 12. maí 1890 og
var því réttra 84 ára er hann lést.
Jón var sonur merkishjónanna
Lýðs Árnasonar og Sigrfðar
Sigurðardóttur, sem bjuggu að
Hjallanesi. Jón var þriðja elsta
barn þeirra hjóna, en þau komu
upp stórum og myndarlegum
barnahópi, alls 12 börnum, 10 son-
um og2 dætrum.
Ætt Jóns rek ég ekki, en get
þess, að rætur hennar eru sterkar
svo og ættareinkenni, en Jón mun
hafa borið nafn hins þekkta eld-
klerks Jóns Steingrimssonar.
Jón gekk að eiga eftirlifandi
konu sína Guðrúnu Gísladóttur
þann 15. október 1921, mikla
ágætis konu, sem verið hefur
hans stoð og stytta í yfir 50 ár.
Áður en Jón gekk að eiga
Guðrúnu eignaðist hann eina
dóttur, en þeim Guðrúnu varð
fimm barna auðið, öll eru börnin
gift og er barnabarnahópurinn
orðinn stór og samheldni þeirra
allra og nærgætni við Jón og
Guðrúnu á tímum veikinda er
iofsverð.
Foreldrar Jóns, Lýður og
Sigríður, voru ekki auðug talin á
landsvísu, en þau áttu þann auð,
sem mölur og ryð fá ekki grand-
að og barnalán þeirra var mikið,
þótt nú séu stór skörð komin I
þennan stóra og myndarlega hóp,
þvi eftir lifa nú tvær systur og
tveir bræður.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og útför
HANSTHORVALD
HENRY HANSEN,
framreiðslumanns,
Stóragerði 38.
Jóhanna Hansen,
Povl Hansen,
Brynhildur G. Hansen
og sonarbörn.
Ég man hvað stoltur ég var af
þessum föðursystkinum mínum, á
ungum aldri, og það stolt hefur
ekki minnkað þótt aldurinn færð-
ist yfir mig og oft verður mér
hugsað til þeirra og annarra, sem
hófu lífsstarf sitt á svipuðum tíma
og þau.
Engin kynslóð mun hafa lifað
svo breytilega tima og það er hún,
sem lagði hornstein og byggði
grunnmúra þeirrar velmegunar,
sem við búum við í dag, hún hefur
staðið af sér tvær heimsstyrjaldir,
breytt hreysum I hallir, kotum I
stórbýli, þolað kreppur og góðæri
en haldið þó jafnvægi sinu og
sálarró.
Þessir vormenn Islands báru
fram til sigurs frelsi og framtak
og hafa arfleitt okkur að þvi,
hvernig sem til tekst með varð-
veislu þessa arfs.
Þegar Jón og systkini hans i
Hjallanesi uxu úr grasi leituðu
þau sér vinnu utan heimilis og
gerðu þau það með ýmsum hætti,
en hvaða störf, sem þau völdu sér,
gerðust þau dugandi og vel metin,
vegna dugnaðar og trúmennsku.
Jón heitinn stundaði lengi vel
sjómennsku á togurum i Kanada
og víðar, en lengst vann hann sem
verkstjóri við grjótnám Reykja-
víkurhafnar.
Ég held, að Jóni hafi fallið vel
glíman við grásteinsklöppina,
klöppin var sterk og traust, eins
og kann sjálfur og hann naut þess
að geta sprengt hana og klofið i
haganleg björg, sem féllu vel í
hleðslu hafnarmannvirkjanna, en
þessi glíma endaði þó þannig, að
hann féll fyrir þeim sjúkdómi,
sem leiddi hann til dauða, en
dauðastríðið varð langt og erfitt,
þvi lífsorka Jóns var með ein-
dæmum og mörgum atrennum
dauðans hrinti hann frá sér, áður
en yfir lauk.
I þessum veikindum Jóns var
kona hans honum hin styrka stoð,
enda þótt hún væri ekki heil
heilsu sjálf, en Guðrún er gædd
einstökum dugnaði og hún annað-
ist eiginmann og heimili af þeirri
alúð og glaðlyndi, sem einkennt
hafa hana alla tíð.
En þau hjón voru ekki ein og
yfirgefin, því börn þeirra, tengda-
börn og barnabörn slógu verndar-
hring um þau, aðstoðuðu og
glöddu á þessum erfiðu timum.
Ég minnist þeirra tíma þegar ég
ungur maður fluttist til Reykja-
víkur og varð heimagangur á
heimili Jóns um margra ára skeið,
naut þar umhyggju og .alúðar,
eins og ég væri eitt barna þeirra
hjóna.
Hjá þeim var ávallt opið hús fyrir
þá, sem að garði bar og þeir voru
margir, einkum aðkomufólk úr
sveitunum austan Hellisheiðar.
Oft var þröngt þótt húsakynni
væru góð, en gestrisni og hjarta-
rúm skorti aldrei.
Jón var einhver sá traustasti
maður, sem ég hefi kynnst, ekki
orðmargur né afskiptasamur, en
hjálpsamur, ráðhollur og vina-
fastur.
Hann var sterkur maður and-
lega og líkamlega, svo hann
minnti á bjargið, sem ekki bifast
þótt holskeflur gangi yfir. Störf
sín öll rækti hann á hljóðlátan
hátt en af dugnaði og elju meðan
heilsan entist.
Þér Guðrún vil ég flytja sam-
úðarkveðjur vegna missis eigin-
manns, sem svo lengi hefir verið
förunautur þinn í gleði og sorg
daganna, megi minningin ylja þér
og gleðstu yfir því, að hann er nú
lausvið allar þjáningar.
Megi góður guð styrkja þig
ásamt börnum þínum og fjöl-
skyldum þeirra.
Bergsteinn Sigurðsson
frá Hjallanesi.
t
Þökkum auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför eiginmanns
míns og bróður,
GÍSLA SIGJÓNSSONAR,
er lézt að Hrafnistu 20 apríl
Fyrir mína hönd og systkina,
Guðrún Guðmundsdóttir.
Ólafía Sigurjónsdóttir.
t
Hjartkær eigmmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
DAGBJARTUR BJARNASON,
Barónsstfg 59,
andaðist 20 mai
Aðalheiður Tryggvadóttir,
Bjarni Dagbjartsson,
Hjálmtýr Dagbjartsson, Hjördfs Bogadóttir,
Jón S. Dagbjartsson og barnabörn.
t
Hugheilar þakkir til allra þeirra, er vottuðu mér, börnunum og
fjölskyldum okkar samúð slna og vinarhug, við andlát og útför.
EDVARDS ÁSMUNDSSONAR,
flugvirkja
Fyrir hönd vandamanna
Erna Jóhannsdóttir og börn,
Kristín Edvardsdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við öllum, sem auðsýndu okkur vinsemd og
samúð við andlát og jarðarför
ÓLAFÍU HÁKONARDÓTTUR
Guðmundur Marteinsson,
Guðrún Marteinsson,
Katrín Guðmundsdóttir,
Guðni Oddsson,
Guðmundur Guðnason.
t
Þökkum innílega auðsýnda samúð og kveðjur við andlát og útför
MAGNÚSAR KRISTJÁNSSONAR
frá Múla
Sesselja Sveinsdóttir
Bjarki Magnússon.
t
Öllum þeim, fjær og nær, sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför ástkærs sonar okkar og bróður
SIGURÐAR KÁRA SAMÚELSSONAR
viljum við þakka, og biðjum guð að blessa ykkur.
Fjóla Sigurðardóttir.
Samúel Ólafsson
Linda Samúelsdóttir
Ólöf Samúelsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför,
FRIÐRIKS SIGURÐSSONAR,
Hrisateig 33.
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Borgarspítalans fyrir
góða umönnun
Guðrún M. Árnadóttir,
Kristján Friðriksson, Stefanía Sveinsdóttir,
Guðni K. Friðriksson, Hrafnhildur Guðjónsdðttir,
Friða Friðriksdóttir, Jóhann G. Möller,
Ólöf S. Friðriksdóttir, . Sigurður Tryggvason,
Örn Friðriksson, Ólöf Helgadóttir
og barnabörn.