Morgunblaðið - 22.05.1974, Síða 35

Morgunblaðið - 22.05.1974, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MAl 1974 35 — Jurtasmjörlíki Framhald af bls. 3 um, blikna á samanburði við þessa breytingu nú. Ekki fer hjá þvi að þessar auknu niðurgreiðslur á dilkakjöti muni hafa þau áhrif, að neyzla á því stóreykst, en einnig má búast við þvi, að neyzla á öðrum kjötvör- um detti að miklu leyti niður. Þá má og búast víð því, að niður- greiðslurnar á smjöri hafi mjög alvarleg áhrif á framleiðslu smjörlikis i landinu, þar sem smjör er nú orðið svo miklu ódýrara en jurtasmjörliki. — Eðlisávísun Framhald af bls. 2 ibúðarhúsanna Holtsmúla I og II og taldi Sigurður það hafa bjarg- að hinu íbúðarhúsinu, að blanka- logn var þarna um nóttina. Hefði eldurinn hins vegar komizt í Holtsmúla II hefðu fjós og hlaða farið þar um leið. Sigurður og fjölskylda hans tóku við Holtsmúla I núna í vor, og hefur fjölskyldan þvi orðið þarna fyrir verulegu tjóni. Húsið var að vísu vátryggt en innbúið ekki. Sagði Sigurður, að það væru raunar mistök, að húsið var ekki að fullu vátryggt, því að hann hefði haldið, að allar vátrygging- ar væru i lagi, er hann tók við býlinu. Sigurður sagði, að sveit- ungar sinir hefðu þegar hlaupið undir bagga með þeim og fjölskylda hans nú fengið inni í samkomuhúsinu að Brúarlandi. „Það væsir ekki um okkur þar,“ sagði hann, „en við þurfum að visu að fara íöluvert langa leið til gegninga." Sigurður virtist ekki ætla að leggja árar í bát vegna þessa áfalls. „Það er ekki um annað að gera en byggja aftur," sagði hann. „Ég hafði að vísu ætlað að byggja fjós á undan en nú verður íbúðar- húsið að hafa forgang." — Almenningur Framhald af bls. 2 að selja það í dag á kr. 183 i smásölu. Smjör kostaði hins vegar fyrir helgi kr. 429.60 í heildsölu en kostar nú f smásölu 200 krón- ur, þannig að þar verður kaup- maðurinn að taka á sig 229.60 kr. af hverju kflói smjörs. Hins vegar er ekki óalgengt, að verzlanir séu með 100—200 kg. af smöri í birgð- um, og er þvi ljóst, að tjónið er geysilegt í þessari einu vöru- tegund. Magnús sagði, að kaupmenn hefðu ekkert á móti því í sjálfu sér þótt vöruverð væri lækkað á helztu nauðsynjavörum né heldur að gripið væri til raunhæfra að- gerða i efnahagsmálum. Hins vegar teldu kaupmenn það víta- vert hvernig að þessum ráð- stöfunum var staðið — þar eð þeir yrðu að taka á sig verulegt tjón af völdum þeirra, ekki aðeins nú þegar heldur einnig er fram i sækti vegna minnkandi eftir- spurnar. Benti hann á i því sam- bandi, að almenningur virtist gera sér vel ljóst að þessar niður- greiðslur væru í raun skammtíma kosningavíxill og þvi væri nú rokið til og reynt að birgja sig upp meðan hið lága vöruverð héldist. Einnig sagði hann, að heyrzt hefði ávæningur að því, að reynt yrði að bæta kaupmönnum á einhvern hátt upp núverandi tjón við næstu verðákvörðun sexmanna- nefndar, en það hefði eðlilega í för með sér enn stórkostlegri verðhækkun, sem aftur leiddi af sér minnkandi eftirspurn. — Þverbrot Framhald af bls. 36 samninganna og ákvæði þeirra um tryggingu launa. 2. Þetta hefur lengi verið matsatriði. Hins vegar sé ég ekki tilgang þess að setja þetta í bráðabirgðalög, og tel að það eigi þar ekki heima, þvi vísital- an er fest við 1. marz. 3. Hvað varðar þetta atriði, hef ég íbúðarlán sérstaklega í huga. I vetur stóð ég að sam- þykkt um byggingu íbúða á fé- lagslegum grundvelli. Ég teldi það ákaflega slæmt, ef sá hluti íbúðarlána, sem ætlað er að verða þeim fátækustu að liði, yrði vísitölubundinn.'1 Guðmundur Garðarsson for- maður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur sagði.: „Ég tel allar aðgerðir núver- andi ríkisstjórnar til lausnar á erfiðleikum atvinnuveganna, og til að slá á verðbólguna hreint kák. Þær vekja aðeins falskar vonir hjá almenningi. Með öllum tiltækum ráðum leit- ast þessir herrar við að sneiða hjá kjarna málsins, og forðast að segja fólkinu sannleikann um það i hvert óefni stjórnleysi Ólafs JóhannesSonar forsætis- ráðherra og ofrfki kommúnista- ráðherranna tveggja hefur leitt íslenzku þjóðina." — Fréttapunktar Framhald af bls. 16 unnar, sem hvert barn ætti að fá að upplifa. Amma gamíá eða afi, sem miðlar litlum hnokka af reynslu sinni, er ein hjart- fólgnasta mynd mannlegs lífs. Allt miðar þó að því að rjúfa þessi tengsl. Gamla fólkinu er plantað á elliheimili. Mæðurnar drifnar út í atvinnulífið. Börn- unum hrúgað eins og sauðfé á barnaheimili. Tengsl kynslóð- anna rofin. — Hver skal kúra með sínum aldursflokki, innan um sina líka. — Vogaskólamál Framhald af bls. 2 Timans gefur í skyn. Hins vegar vissu fræðsluráðsmenn, þegar þetta mál var til umræðu og von- andi einnig fulltrúi Framsóknar- flokksins, að fyrir Alþingi lá grunnskólafrumvarpið sem nú er orðið að iögum. Samkvæmt þeim lögum starfa framvegis í landinu grunnskólar fyrir börn og ungi- inga til 15 ára aldurs. Núverandi fjórði bekkur gagnfræðaskóla fellur því niður en í staðinn taka við fjölbrautaskólar. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa þá framsýni, sem framsókn- arfulltrúann virðist skorta, og gera ráð fyrirslikumskólum i sem flestum hverfum borgarinnar. Meðal annars af þeirri ástæðu er full þörf að kanna til hlítar þá möguleika, sem kunna að vera fyrir hendi um nýtingu hluta Vogaskóla til mennaskólahalds og væntanlegs fjölbrautasköla fyrir Vogahverfi í framtíðinni. Sú hugmynd hefur komið fram, að grunnskólinn fyrir Vogahverf- ið starfi áfram á sínum stað í Vogaskólanum. En hver sem end- anleg ákvörðun verður, er óhætt að fullyrða, að skólasókn nem- enda úr Langholts- og Vogahverfi verður auðveldari framvegis, ef kominn verður í hverfið mennta- skóli eða fjölbrautaskóli auk þeirra skóla, sem þegar eru þar fyrir. En það eru álíka vandamál og þessi, sem nú eru í alvarlegri at- hugun að því er varðar hin ýmsu skólahverfi i borginni og eru bein afleiðing af lögunum um grunn- skóla. Ef framsóknarfulltrúanum finnst „leiðindapukur" hafa verið um þetta mál getur það varla staf að af öðru en því, aö hann hafi hreinlega ekki fylgzt með þvi, sem verið hefur að gerast i fræðslumálum borgarinnar og landsins i heild á undanförnum mánuðum,'1 sagði Baldvin Tryggvason. Nýjar ráðstafanir Framhald af bls. 1 verðlags, sém þessum aöilum sýndist áður en þessi bráða- birgðalög voru sett. Hér fara á eftir bráðabirgðalög- in í heild ásamt formála, er skýrir nauðsyn setningar þeirra: Svohljóðandi bráðabirgðalög voru gefin út i dag: „Forseti íslands gjörir kunnugt: Forsætisráðherra hefur tjáð mér, að verði eigi gripið til gagn- ráðstafana sé fyrirsjáanleg veru- leg hækkun verðlags og kaup- gjalds, sem stefna muni afkomu atvinnuvega, atvinnuöryggi, við- skiptastöðu landsins út á við og þar með hag allra landsmanna í hættu; jafnframt hafi komið i ljós, að fjárfestingarlánasjóðir geti ekki að óbreyttum útlána- skjörum nýtt það fjármagn, sem um hafi samizt, að þeir fengju frá lifeyrissjóðum á þessu ári. Beri því brýna nauðsyn til að grípa án tafar til tímabundinna ráðstafana til viðnáms gegn verðbólgu og til þess að tryggja fjárhagsstöðu fjárfestingarlánasjóða, þannig að betra færi verði en ella til varan- legri lausna að afstöðnum alþingiskosningum þeim, sem í hönd fara. Fyrir því eru hér með sett bráðabirgðalög samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar á þessa leið: 1. gr. Fram til 31. ágúst má ekki hækka verð, vöru eða þjónustu eða endurgjald fyrir afnot af fasteign eða lausafé frá því, sem var 22. maí 1974, nema að fengnu samþykki réttra yfirvalda og skulu þau ekki leyfa neina hækkun nema þau telji hana óhjákvæmilega. Leyfi til hækkunar tekur þó ekki gildi fyrr en það hefur hlotið staðfestingu ríkisstjórnarinnar. A því tímabili, er greinir í 1. mgr., má ekki hækka hundraðs- hluta álagningar á vöru i heild- sölu, smásölu eða öðrum viðskipt- um frá því, sem var 22. mai 1974, nema að fengnu samþykki réttra yfirvalda og staðfestingu rikis- stjórnarinnar, sbr. 1. mgr. Gildir þetta einnig um hvers konar um- boðslaun vegna sölu vöru eða þjónustu og um hvers konar álagningu, sem ákveðin er sem hundraðshluti á selda vöru eða þjónustu, þar með vinnu. Ákvæði 1. og 2. mgr. taka einnig til verðs hvers konar vöru og þjónustu, sem riki, sveitarfélög, stofnanir þessara aðila eða aðrir opinberir aðilar látá i té gegn gjaldi. Rikisstjórnin getur ákveðið lækkun á verði vöru eða þjónustu telji hún til þess gilda ástæðu eða brýna nauðsyn. 2. gr. Verðlagsuppbót á laun skal haldast óbreytt fram til 31. ágúst 1974, sú sem gildi tók 1. marz 1974 samkvæmt kjarasamningum. Hagstofa íslands skal upplýsa i opinberri greinargerð, hver kaup- greiðsluvisitala 1. júni 1974 hefði orðið miðað við óbreytt fyrirmæli kjarsamninga og laga um út- reikning hennar, svo og miðað við það, að eigi sé tekið tillit til þeirrar hækkunar á liðnum „eigin bifreið" i framfærsluvísi- tölu, er orðið hefur á tímabilinu frá 1. nóvember 1973 til 1. mai 1974. Hafi niðurgreiðsla vöru- verðs verið aukin fyrir 1. júní 1974 frá því, sem hún var i mai- byrjun 1974, skal og miða út- reikning þennan við smásöluverð á viðkomandi vöru eða vörum, að frádreginni verðlækkun, er slík niðurgreiðsluaukning veldur. 3. gr. Laun bónda og verkafólks hans í verðlagsgrundvelli landbú.iaðar- vöru, sbr. lög nr. 101/1966 um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu o.fl., skulu haldast til 31. ágúst 1974 eins og þau voru ákveðin frá og með 1. marz 1974. 4. gr. Almennt fiskverð, annað en verð skarkola, humars og rækju, skal haldast til 31. ágúst 1974 eins og það var ákveðið um siðastliðin áramót, sbr. tilkynningu Verð- lagsráðs sjávarútvegsins nr. ' 1/- 1974, enda tryggir ríkisstjórnin, að verð á brennsluolíum til is- lenzkra fiskiskipa, er landa afla sínum og taka olíu hérlendis, haldist á meðan óbreytt eins og það var i nóvembermánuði 1973. 5. gr. Fjárfestingarlánasjóðir þeir, er fá til ráðstöfunar fjármagn af út- gáfu verðtryggðra skuldabréfa, er lifeyrissjóðir kaupa samkvæmt samningi eða af verðtryggðu spariskírteinafé, endurláni þetta fé með sambærilegum skilmálum. Heimilt er að ákveða lánskjör þessara sjóða þannig, að verð- trygging nái til ákveðins hluta hvers láns i tilteknum lánaflokk- um, er ákvarðist af þvi, hve stór hluti verðtryggt fé er af heildar- ráðstöfunarfé sjóðanna. Ríkisstjórnin tekur endanlega ákvörðun um lánskjör fjárfesting- arlánasjóða i samræmi við ákvæði L málsgr. að fengnum tillögum Seðlabanka íslands og Fram- kvæmdastofnunar ríkisins, og kemur sú ákvörðun i stað laga- ákvæða og reglna þeirra, sem nú gild um þetta efni. 6. gr. Mál út af brotum á lögum þess- um fara að hætti opinberra mála. 7. gr. Forsætisráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. 8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. — Dæmið okkur af verkunum Framhald af bls. 36 að byggja menntaskóla í Reykja- vík. Þetta verkefni hefur verið svo gjörsamlega vanrækt á undanförnum árum, að i fullt óefni er komið. Hefur þó staðið til boða lóð undir nýjan menntaskóla i mörg ár á einum bezta stað í borginni. Nú er eina ráð rikisins það að koma til borgarstjórnar Reykjavíkur og biðja borgina um að láta af hendi einhvern af þeim skólum borgarinnar, sem nú hafa verið að grisjast vegna flutninga í ný borgarhverfi. Þessi saman- burður er sláandi. Þegar vinstri forystan, forysta Framsóknar, Alþýðubandalags og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, hefur gjörsamlega brugðizt í menntaskólamálum Reykvíkinga, þá er eina úrræðið það að koma til borgarstjórnar, undir stjórn sjálf- stæðismanna, og biðja um ásjá. Og svo tala þeir digurbarkalega hér í kvöld um framkvæmdaleysi á sviði skólamála. Margklofnir og sundurleitir Vinstri flokkarnir i Reykjavik sækja nú mjög hart að meírihluta sjálfstæðismanna í borgarstjórn og gera allt, sem þeir geta til að fella hann. Þeir sækja þó ekki gegn okkur i breiðri órofa fylk- ingu, heldur margklofnir og sund- urleitir, og nýir klofningshópar birtast á degi hverjum. Þeir láta að visu líta svo út, sem þeir geti unnið saman eftir kosningar. Þeim tókst þó ekki, þrátt fyrir tilraunir, að koma sér saman um sameiginlegt framboð né um sam- eiginlegt borgarstjóraefni, en til þess reyndu þeir mikið. Það ætlum við að leysa e f t i r kosn- ingar, segja þeir við kjósendur nú. Þeir láta að visu sem þeir hafi málefnalega samstöðu. Sú mál- efnalega samstaða er fyrst og fremst fólgin i því að birta fallega orðaðar tillögur og stefnuskrár, svona eins og málefnasamningur ríkisstjórnarinnar var. Það tók vinstri flokkana í ríkisstjórn örfáa daga að setja hann saman, en vandræðin og sundurlyndið hófst fyrst, þegar til framkvæmd- anna kom. Þannig mun það verða í reynd, ef vinstri öflin fá sam- eiginlega meirihluta hér í borg- inni. Það þekkja Reykvíkingar nú af eigin raun eftir fall rfkisstjórn- arinnar fyrir eigin sundurlyndi. Styrk stjórn Það, sem skorið hefur úr um þær miklu framfarir og fram- kvæmdir, sem hér hafa verið i Reykjavfk, er einkum tvennt: Annars vegar að við stjórnvölinn hafa setið samhentir menn, sem hafa veitt borginni styrka stjórn. Hafa ekki eytt tíma sínum í inn- byrðis sundurlyndi eða hrossa- kaup, en hafa gengið að því að leysa verkefni borgarinnar með framtfðarmarkmið fyrir augum — og hafa haft styrk til þess í borgarstjórn að fylgja sinum ákvörðunum eftir. Hins vegar hafa grundvallarhugsjónir okkar sjálfstæðismanna verið þær, að það er okkur ekkert undrunar- efni, eins og það virðist vera vinstri mönnum, miðað við blaða- skrif þeirra, þótt margt af þvf bezta, sem gert er f borginni, sé gert fyrir framtak annarra en borgaryfirvalda. Þannig á það að vera. Borgaryfirvöld eiga ekki að sitja yfir hvers manns hlút og ráðskast i öllu. Þau eiga t.d. ekki að eiga eða jafnvel reka allar verzlanir í nýjum hverfum, eins og prédikað er í Þjóðviljanum nú þessa dagana. Borgin á vissulega að hafa forystu um margt, en hún á ekki siður að haga forystu sinni þannig, að einstaklingarnir í borginni fái að njóta sin — og framkvæmdahugur þeirra og dugnaður geti nýtzt þeim sjálfum og borgarheildinni til góðs. Og við undrumst ekkert, — heldur þvert á móti fögnum því, að stjórnin á málefnum Reykjavíkur hefur gert borgurunum kleyft að leysa úr læðingi þau öfl framfara og framkvæmda, sem í þeim býr. Mannúðleg félagsmála- stefna Framkvæmdir eru þó ekki ein- hlftar. Við sjálfstæðismenn höf- um því einnig lagt áherzlu á mannúðlega félagsmálastefnu. Við höfum þvf beitt okkur fyrir grundvallarbreytingu í öllu fé- lagsmálastarfi borgarinnar og leggjum nú sérstaka áherzlu á tvö atriði: Meira starf í þágu aldaðra, m.a. með byggingu vistrýma fyrir aldrað fólk, og dagvistunarmálin, en þar hefur mikið verið gert á undanförnum árum, þótt en sé margt ógert og ekki fullnægt eft- irspurn. Við sjálfstæðismenn förum þess á leit við Reykvíkinga, að þeir tryggi áframhaldandi meirihluta okkar f borgarstjórn. Af fram- boðslista okkar hverfa nú reyndir og dugmiklir borgarfulltrúar, en nýtt fólk með nýjar og ferskar hugmyndir kemur í staðinn. Á þann hátt tryggjum við nú eins og áður nauðsynlega endurnýjun í borgarstjórn, þegar vinstri flokk- arnir bjóða upp á sama liðið í aðalsætum og sat i borgarstjárn fyrir þá á sfðasta kjörtímabili. Þessa dagana lofa vinstri flokk- arnir öllum öllu og helzt eiga hlut- irnir ekkert að kosta. Það gerði vinstri stjórnin einnig f upphafi síns valdatímabils. Við sjálf- stæðismenn höfum að vísu djarf- huga áætlanir í ýmsum málum. sem við munum framkvæma, ef við fáum áfram traust ykkar Reykvíkinga. En umfram allt von- umst við þó til að verða dæmdir af verkum okkar — og þeim dómi kvfðum við ekki. — 10 flokksbrot Framhald af bls. 1 lausnarástand má ekki flytja inn í borgar- stjórn Reykjavíkur. Þetta verður að forðast Frammi fyrir vinstri öflum, sem klofin eru í 10 mismunandi stóra parta, stendur Sjálfstæðisflokkurinn einn, samhentur, traustur, sterkur. Missi Sjálfstæðisflokk- urinn meirihluta sinn í borgarstjórn Reykjavíkur mun nð öngþveiti og upp- lausnarástand, 'em nú fer dagvaxandi í röðum vinstri manna, lama alla stjórn höf- uðborgarinnar. Þetta verður að forðast. Reykviskir kjósendur, hvar í flokki sem þeir standa, þegar kosið er til þings, verða að sameinast um að tryggja samhentan meirihluta i Reykjavík. Sjálfstæðisflokkur- inn einn getur tryggt slíkan meirihluta. Reykvíkingar þekkja sjálfstæðismenn af verkum þeirra í höfuðborginni. Með at- beina allra þeirra, sem vilja sterka stjórn í stað upplausnar og öngþveitis, er hægt að tryggja Sjálfstæðisflokknum 8 borgarfull- trúa — en þá verður hver og einn að leggja sitt af mörkum. Úrslitin eru svo tvísýn, að þau geta oltið á örfáum atkvæðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.