Morgunblaðið - 25.05.1974, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1974
1
félögin ekki upp á fæturna, þegar
svona er. En því er til að svara, að
hér er um að ræða þjónustugrein,
sem tryggingafélögin hafa með
höndum og um leið innbyrðis
samkeppnisgrein. Og að mínu
áliti eiga hinir tryggðu fullan rétt
á slíkri samkeppni.
AhugamAlin sitja
AHAKANUM
— Hvenær hófust þín afskipti
af stjórnmálum Ólafur?
— Áhugi minn á stjórnmálum
hófst snemma. Áður en ég tók
sæti í borgarstjórn árið 1970 hafði
ég tekið mikinn þátt f störfum
ungra sjálfstæðismanna, einkum
á Háskólaárunum, meðal annars
var ég formaður Vöku á sfnum
tíma. Árið 1966 hóf ég aftur af-
skipti af stjórnmálum en þá var
ég kosinn formaður Heimdallar,
og það var upphafið af þessum
kafla lífs míns.
— En hvernig fer það saman að
vinna við stjórnun stórs fyrir-
tækis og taka þátt í stjórn borg-
arinnar?
Það er oft erfitt, þvf óhjá-
kvæmilega taka borgarmálin mik-
inn tíma, en ég hef notið mikils
skilnings samstarfsmanna minna,
svo þetta hefur blessazt. Hitt er
svo annað mál, að þegar maður er
í viðskiptastörfum og stundar
pólitík í þeim mæli, sem ég geri,
þá tekur það þann tíma, sem mað-
ur getur sinnt sínum áhugamál-
í stofunni á Hagamel 6, frá
vinstri Hilinar, Jórunn og
Olafur.
Ljósm. IV! 1)1.: Ól.K.M.
um og verið með fjölskyldunni.
Min áhugamál eru nú helzt að
lesa góða bók eða hlusta á góða
tónlist. Yfir sumartímann reyn-
um við svo að komast í góða loftið
og vera úti í náttúrunni. Förum
við þá oftast á Þingvöll, þar sem
móðir mín á sumarbústað og þá
einkum um helgar. Þá tekur sjón-
varpið oft tíma af manni, þegar
maður kemur heim á kvöldin.
— En er ekki oft erfitt að sinna
fjölskyldunni, vegna stjórnmál-
anna?
— Ekki er hægt að neita því,
Jóhanna, konan mín, hefur reynd-
ar einnig brennandi áhuga á
stjórnmálum og er t.d. í stjórn
Hvatar. Ég tel það heppilegt þeg-
ar annað hvort hjóna hefur af-
skipti af stjórnmálum, að hitt
fylgist einnig vel með á því sviði.
Staðreyndin er sú, að þær konur,
sem giftast mönnum, sem eru á
kafi í stjórnmálum, gjalda þess
oft, þegar mennirnir eru í vinnu
allan daginn og á fundum á kvöld-
in. Þannig verður það, að maður
verður minna heima en maður
hefði óskað sér.
— Annars tel ég, sagði Ólafur,
að það sé gott um ákveðinn tfma
fyrir hvern mann að fara út í
stjórnmál, eins og t.d. sveitar-
stjórnarmál. Því það er ákaflega
þroskandi og kemur manni til að
meta sitt umhverfi. Störf í sveit-
arstjórn og borgarstjórn þurfa
ekki endilega að vera upphaf af
stórpólitískum ferli. Fyrst og
fremst tel ég þessi störf vera
borgaralega skyldu. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur oft skipt um
fólk í borgarstjórn á sínum langa
valdaferli. Það tryggir, að ekki
verður stöðnun þar og ólík sjónar-
mið eiga þar greiðan aðgang að
stefnumótunum flokksins. Hrein-
ir atvinnustjórnmálamenn ráða
því aldrei stefnu flokksins í hvi-
vetna, venjulegir borgarar koma
alltaf mikið við sögu, þar sem þeir
sitja um ákveðinn tíma í trúnað-
arstöðum flokksins og hverfa síð-
an til sinna starfa á ný, og nýir
taka við.
-Þ.Ó.
— En ef við vfkjum að þínu
aðalstarfi Olafur, hvernig er að
vinna hjá tryggingafélagi?
— Ég hef unnið hjá Almennum
tryggingum frá því ég lauk prófi
frá Háskólanum 1963. Fyrstu átta
árin var ég deildarstjóri í bíla-
deildinni, en starfa nú sem fram-
kvæmdastjóri. Ég hef kunnað
ákaflega vel við að starfa hjá
tryggingafélagi. Þarna eru alltaf
einhver vandamál á ferðinni, en
það er eðli þess að starfa hjá
tryggingafélagi, að ýmis vanda-
mál komi upp, sem gera starfið
fjöibreytt.
— Það hefur oft verið rætt um,
að tryggingafélög, starfandi á ís-
landí væru of mörg, hvert er álit
þitt á þessu máli?
ingafélögunum, og er það von
allra að hún reynist sem bezt í
framkvæmd. Annars er það svo,
að almenningur hefur á siðustu
árum sýnt meiri skilning á starfi
tryggingafélaganna, og til þess, að
svo verði áfram, þurfa trygginga-
félögin að starfa þannig, að ekki
þurfi að skapast tortryggni hjá
hinum tryggðu, og vonandi hættir
einnig sú tortryggni með nýju
tryggingalöggjöfina sem gætt hef-
ur í garð tryggingafélaganna við
iðgjaldabreytingar.
— Nú deilir fólk sífellt á bíla-
tryggingarnar, og margir telja, að
iðgjöld þessarar tryggingagreinar
séu alltof há. Hverjar eru aðal-
ástæðurnar fyrir þessum háu ið-
gjöldum?
Það er rétt, að lengi hefur verið
mikið deilt á bílatryggingarnar,
en þetta er líka erfiðasta trygg-
ingagreinin, sem félögin fást við.
Bílatryggingarnar eru mjög næm-
ar fyrir öllum breytingum verð-
lagsins, eins og t.d. á varahlutum,
gengisbreytingum og kaupi
iðnaðarmanna og síðan koma
slysabæturnar, sem byggjast á
kaupgjaldi hverju sinni. — Því
miður er það staðreynd, að þessi
tryggingagrein er búin að vera
dragbítur á tryggingafélögunum
undanfarin ár. Aðrar greinar
tryggingastarfseminnar hafa bor-
ið hana uppi. Menn spyrja þá
kannski. Af hverju rísa trygginga-
— Ég hef alltaf átt heima mjög
miðsvæðis í Reykjavík, sagði Ólaf-
ur, þegar við ræddum við hann,
fyrst átti ég heima á Fríkirkju-
veginum, síðan á Fjólugötu 7 og
svo höfum við búið á þremur stöð-
um í Vesturbænum. 1 stuttu máli
voru bernskuár min þannig, að
frá 11 ára aldri var ég í sveit í
Gunnarsholti á Rangárvöllum og í
skólum á veturna. Eftir því sem
maður þroskaðist meira fór
maður að vinna vandasamari
störf, og á menntaskólaárunum
vann ég á sumrin á síldarradíóinu
á Hjalteyri. Á þessum árum barst
því miður lítii síld til Hjalteyrar,
en engu að síður var þetta mjög
ánægjulegur tími. Afskipti mín af
íþróttum urðu aldrei mikil i
æsku, en engu að síður lagði ég
nokkra stund á knattspyrnu og
Víkingur er ég, en með því félagi
keppti ég i yngri flokkunum.
Olafur vid storf á skrif-
stofu Alinennra trygginga
í Pósthússtræti.
r
Rætt við Olaf B. Thors, sem skipar
3. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins
Ólafur B. Thors framkvæmda-
stjórí skipar að þessu sinni 3. sæt-
ið á lista Sjálfstæðisflokksins við
borgarstjórnarkosningarnar, en í
kosningunum 1970 var hann í 8.
sæti og skipaði þar með baráttu-
sæti listans. Síðan hefur Ólafur
tekið mikinn þátt í stjórn borg-
arinnar og fáir borgarfulltrúar
hafa verið atkvæðameiri en hann,
hvort sem er í borgarstjórn eða
borgarráði, en þar hefur Ólafur
setið allt frá því að hann var
kjörinn borgarfulltrúi fyrir 4
árum. Aðalstarf Ólafs er þó hjá
Almennum tryggingum, og hann
er nú framkvæmdastjóri þar. Hjá
Almennum, eins og fyrirtækið er
kallað í daglegu tali, hefur hann
unnið síðan hann lauk lögfræði-
prófi 1963. — Ólafur er fæddur og
uppalinn í Reykjavík. Hann fædd-
ist á Fríkirkjuvegi 11 árið 1937,
sonur hjónanna Hilmars Thors og
Elísabetar Ólafsdóttur, en hún
var dóttir Ólafs Björnssonar ann-
ars stofnenda Morgunblaðsins.
Eiginkona Ólafs er Jóhanna Jór-
unn Einarsdóttir Baldvins Guð-
mundssonar hæstaréttarlög-
manns. Þau hjón búa nú að Haga-
mel 6 í fallegri íbúð ásamt syni
sínum Hilmari.
FÉLÖGIN FÆRRI,
EN STÆRRI
— Mín skoðun er sú, að íslenzk
tryggingafélög séu of mörg, og að
þróunin hljóti að verða sú, að
þeim fækki og að þau verði stærri
t.d. með sameiningu. íslenzki
tryggingamarkaðurínn er ákaf-
lega lítill og því hafa íslenzku
trygginjgafélogin farið meira og
meira ut í þaðað taka meiri þátt í
alþjóðlegu starfi, sem er fólgið í
endurtryggingum. Almennar
tryggingar hafa tekið þátt í þessu
starfi í vaxandi mæli og tryggir
fyrirtækið nú fyrir ýmsa aðila úti
um allan heim. Á degi hverjum
berst okkur fjöldi tilboða um
endurtryggingu víðs vegar að úr
heiminum. Það reynir þvi á þá,
sem við endurtrygginguna starfa,
að vega og meta hvað hagkvæm-
ast er að tryggja í hverju tilfelli.
Um þessar mundir er búið að
setja fram nýja tryggingalöggjöf,
sem hefur verið fagnað af trygg-
Þátttaka í stjórnmál-
um borgaraleg skylda