Morgunblaðið - 25.05.1974, Side 27

Morgunblaðið - 25.05.1974, Side 27
MORUUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAI 1974 27 ■ Staldrað við í Niarðvíkum Tæplega 1 700 manns búa í Njarðvikum, en oft á tiðum gera aðkomumenn á Suður- nesjum litinn greinarmun á Keflavík og Njarðvikum. Er það að sumu leyti ekki undarlegt, því byggðirnar liggja saman sem ein væri og eru engir tveir byggðakjarnar á íslandi i eins nánu sambýli. Njarðvik hefur þó sitt eigið hreppasamfélag og löngum hafa verið þar ýmis tilþrif i athafna- og félagslifi. Við stöldruðum þar við fyrir skömmu og röbbuðum við Aka Gránz hreppsnefndarfulltrúa og Birgi Olsen æskulýðsfull- trúa. í haust var tekin i notkun ný iþróttahöll i hreppnum, en iþróttasalurinn er yfir sund- lauginni, sem er í kjallara húss- ins. Salurinn er 1 8x33 metrar að stærð, en byggingin er teiknuð af Jes Þorsteinssyni. í kjallara hússins eru einnig gufuböð, tvær kennslustofur og litill leikfimisalur. Aðstaða til útiíþrótta erágæt i Njarðvíkum, því þar eru tveir knattspyrnu- vellir, grasvöllur og malarvöll- ur, auk þess sem þar er mal- bikaður handboltavöllur. Unnið er að ræktun og fegrun um- hverfisins við vellina. Áki kvað Njarðvikurhrepp frá fyrstu tið hafa sýnt æskulýðn- um mikla umhyggju, sem m.a. sýndi sig i ýmsum framkvæmd- um í þágu æskunnar. Þá má nefna Krossinn, en kvenfélagið í hreppnum og Ungmennafélagið gáfu Njarð- víkurhrepp Krossinn til æsku- lýðsstarfa. Ungt fólk i Njarðvik- um breytti húsinu á s.l. ári og standsetti við sitt hæfi undir leiðsögn Birgis Olsen æsku- lýðsfulltrúa. í Krossinum hefur Hjálparsveit skáta aðstöðu, Siglingaklúbbur með 30 með- limum, skátar og fl. Þar eru leiktæki, stór danssalur, leik- klúbbur með um 40 meðlimum hefur haft aðstöðu þar, vél- hjólaklúbbur, taflaðstaða er þar og sitthvað, sem hentar tóm- stundastörfum ungs fólks. Fyrir yngstu borgarana er stórt og skemmtilegt dagheim- ili, byggt af Kvenfélaginu Gimli í Njarðvikum. Konurnar sjá um rekstur dagheimilisins ásamt hreppsfélaginu. Þá er hið kunna félagsheimili Stapi i Njarðvik og einnig má nefna, að íþróttamenn Njarðvíkinga keppa margir með Keflvík- ingum. Birgir kvað mikinn áhuga fyrir hinum ýmsu störfum unga Áki Granz og Birgir Olsen. fólksins og margt fólk sækti Krossinn að staðaldri Stór útisundlaug er fyrirhug- uð fyrir ofan iþróttavellina og er hún með í skipulagsupp- drætti, sem var samþykktur s.l. haust. Þessi framfaramál, sem hér hefur verið getið að frarnan, hafa verið baráttumál sjálf- stæðismanna í Njarðvikur- hreppi, en þeir hafa lengstum stjórnað Njarðvikurhreppi. Vinstri menn hafa þó haft meirihluta þar s.l. kjörtimabil, en sjálfstæðismenn hafa gagn- rýnt þá harðlega fyrir sinnu- leysi á öllum sviðum og stefna að því, að sjálfstæðismenn fá meirihluta og aðstöðu til að stjórna bæjarmálum af rögg- semi og áræði. Sjálfstæðis- rnenn hafa alltaf verið leiðandi afl i byggðarlaginu. Hér hafa verið tekin nokkur atriði úr bæjarlifi og athöfnum Njarðvikinga og i lokin er ekki úr vegi að geta þess, að ákveð- ið er, að i framtíðinni njóti Njarðvikingar hitaveitu frá Svartsengi. -á.j. Úr andyri sundlaugarinnar. Litið inn i dagheimilið. Úr Krossinum Frá æskulýðssamkomu i Krossinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.