Morgunblaðið - 25.05.1974, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1974
Höggmynd Asmundar
sett á Bæjarháls
46 hestar nauðlentu á NATO-velli
Iscargo keypti nýja flutningavél
Islenzka álfélagið mun í tilefni
þjóðhátíðar láta gera höggmymi
Asmundar Sveinssonar mynd-
höggvara, sem nefnist „Undir
friöar- og landnámssór*. Oskaði
þjóðhátíðarnefnd 1974
ákvörðunar Reykjavfkurborgar
um, hvar henni skyldi valinn
staður í borgini.
Hefur verið fjallað um málið af
A flokksstjórnarfundi Alþýðu-
flokksins fyrir nokkru voru eftir-
taldar tillögur samþykktar sam-
hljóða:
1. Flokksstjórn Alþýðuflokks-
ins harmar, að framkvæmda-
stjórn Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna skuli hafa horfið
frá fyrri stefnu samtakanna um
að hafa samvinnu við Alþýðu-
flokkinn um sameiningu ís-
i KVÖLD, kl. 21.00, verður sýnt
vegna fjölda áskorana leikritið
„Höfum við gengið til góðs?“ en
það er flutt af nemendum Voga-
skólans. Leikritið er samið af
kennurum og nemendum skólans
og var sýnt á nýafstaðinni skóla-
hátíð við góðar undirtektir. Leik-
urinn gerist bæði í fortíðog nútíð
f'vrriinarnefnd borgarinnar sem
lagði til, aö myndinni yrði valinn
staður á Bæjarhálsi, þar sem
Bæjarháls og Vesturlandsvegur
koma saman, eða hægra megin
þegar komið er upp Artúnsbrekk-
una. Mun myndin gnæfa þar hátt
og blasa vel við vegfarendum.
Borgarráð samþykkti tillögu
fegrunarnefndar.
lenzkra jafnaðarmanna í einn
flokk.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
telur, að ákvörðun framkvæmda-
stjórnar samtakanna um að
hverfa frá samstarfi við Alþýðu-
flokkinn og gera kosningabanda-
lag við fámennan' hóp óánægðra
framsóknarmanna sé spor aftur á
bak í baráttu fyrir eflingu frjáls-
lyndra umbótaafla og jafnaðar-
stefnu á íslandi. I stað samein-
og fjallar um ýmsar breytingar,
sem orðið hafa í þjóðlífinu frá því
að land byggðist. Eins og áður
segir hefst sýningin kl. 9.00 i
kvöld og eru allir velkomnir, þó
sérstaklega foreldrar nemenda í
Vogaskóla. Aðgangseyrir er kr.
150,00.
46 írskir hestar í flugvél frá
tscargo urðu að lenda á NATO-
flugvelli nálægt Sheffield í Mið-
Englandi á þriðjudag vegna
vélarbilunar. Iscargo-vélin var að
flytja hestana frá Dublin til
Esbjerg og var veður og skyggni
slæmt, þegar vélarbilunin varð.
Þegar vélin var lent komu
menn frá Scotland Yard á vett-
vang til þess að kanna. hvort um
skemmdarverk gæti verið að
ræða.
Þetta er I fjórða skiptið á stutt-
um tíma, sem óhöpp henda flug-
vélar í hrossaflutningum á þess-
ari leið og leikur grunur á, að
einhverjir, sem eru á móti út-
flutningi hrossa á þessum slóð-
um, skipuleggi skemmdarverk.
Niðurstaða liggur ekki f.vrir í at-
hugun lögreglunnar.
Hverju er ver-
ið að fagna?
VERKAMAÐUR hafði samband
við Morgunblaðið í gær og óskaði
eftir því, að þeirri fyrirspurn yrði
komið á framfæri í blaðinu, til
hvers framsóknarmenn og komm-
únistar væru að efna til kosninga-
hátfða þeirra, sem Framsóknar-
flokkurinn hélt í Háskólabíói í
gærkvöldi og kommúnistar efna
til í dag, — hvort það væri
kannski til þess að fagna þvf, að
t ramsóknarflokknum og Alþýðu-
bandalaginu hefði nú tekizt að
leggja kjarasamninga verkalýðs-
félaganna í rúst með afnámi
kaupgjaldsvísitöluhækkunarinn-
ar, sem koma átti á laun 1. júní
n.k. Þessari fyrirspurn er hér
með komið á framfæri.
ingar hefur nú aukizt sundrung í
íslenzkum stjórnmálum.
Þrátt fyrir þessa atburði er Al-
þýðuflokkurinn sem fyrr reiðubú-
inn til samstarfs við þá aðila, sem
af heilum hug vilja vinna áfram
að samstarfi og sameiningu ís-
ienzkra jafnaðarmanna.
Flokksstjórn Alþýðuflokksins
beinir því til kjördæmisráða
flokksins um land allt að leita
samstarfs við slíka aðila og taka
sem fyrst ákvarðanir um framboð
við alþingiskosningarnar.
2. Þótt Alþýðuflokkurinn hafi
ekki náð samstöðu við Samtök
frjálslyndra og vinstri manna um
framboð til Alþingis, lýsir flokks-
stjórn Alþýðuflokksins yfir því,
að hún styður jafn heilshugar
eftir sem áður það samstarf, sem
Alþýðuflokksmenn víða um land
eiga við aðra aðila um framboð til
sveitarstjórna.
Þjóðhátíðar-
hljómleikar
Karlakórs
Reykjavíkur
I TILEFNI þjóðhátfðar efnir
Karlakór Reykjavíkur til hljóm-
Jeika í Laugardalshöllinni f
kvöld, 25. maf kl. 17.
Stjórnandi er Páll Pampiehler
Pálsson, en hann hefur nú stjórn-
að kórnum í 10 ár. Einsöngvarar
eru Guðmundur Jónsson og Frið-
björn G. Jónsson, en undirleik á
hljóðfæri annast Guðrún Kristins-
dóttir og nokkrir hljóðfæraleikar-
ar úr Sinfóniuhljómsveit íslands.
Hljómleikarnir eru fyrir styrkt-
arfélaga kórsins og aðra velunn-
ara, en einnig verða aðgöngumið-
ar seldir við innganginn.
Kóndi nálægt flugvellinum
bauð hestunum heim og þar eru
þeir nú á beit.
Iscargo fær í dag afhenta nýja
flugvél til flutninga, en félagið
VEGNA fréttar Morgunblaðsins
um ómannúðlega meðferð á
hrossum hafði Viðar Einarsson
lögregluþjónn frá Akranesi, er
stöðvaði flutningabifreiðina, sam-
band við Morgunblaðið og sagði,
að í fréttinni væri tekið full djúpt
í árinni, sérstaklega hvað snerti
viðbrögð mannanna, sem dýrin
fluttu.
Viðar sagði, að að vísu hefði
aðkoman verið ljót og aðbúnaður
hrossanna í bifreiðinni óverjandi.
Hins vegar taldi hann fráleitt, að
hesturinn hefði dregizt jafn langt
með bifreiðinni og segir í frétt-
anni. Hesturinn hefði ekki verið
eins illa farinn og heimildarmað-
ur Morgunblaðsins hélt fram.
Hann hefði verið í andarslitrun-
um, en þó reynt að bera fyrir sig
kaupir þá vél í Noregi. Er það
DC-6 vél með sérstakri vöruflutn-
ingahurð. Þessi nýja vél hefur
fengið leyfi til þess fyrir milli-
göngu utanríkisráðuneytisins að
lenda á NATO-vellinum og taka
hestana áfram til Esbjerg.
framfæturna, svo að þeir hefðu
því verið á skeppnunni, þegar bif-
reiðin var stöðvuð. Hins vegar
hefðu fæturnir verið brotnir og
mikið hruflaðir og eins höfuðið.
Þá sagði Viðar, að hrossið hefði
ekki gefið frá sér nein hljóð, eins
og sagt var í fréttinni.
Viðar kvað hesteigendurna
hafa vérið mjög miður sín yfir
því, sem gerzt hafði, en þeir hefðu
borið því við, að þeir væru algjör-
ir nýgræðingar í hrossaflutning-
um að þessu tagi og ekki vitað, að
neinar reglur giltu um þá. Kvaðst
Viðar ekki hafa orðið var við, að
mennirnir börmuðu sér yfir tjóni
sínu, eins og staðhæft var í frétt-
inni, né hefðu þeir haft við orð, að
bezt væri að hirða hræið til matar.
Þessi mynd var tekin meðan uppsetning leikritsins fór fram í
Vogaskóla.
Kammermúsik á Dalvík og Akureyri
ISLENZKIR kammersólistar fara með List um landið þann 25. maí til
Dalvíkur og Akureyrar. Dagana 16. og 17. júnl fara tónlistarmennirnir
til Olafsvíkur og Akraness. Leikin verða verk eftir Mozart, Beethoven,
Maros, Piston og Villa Lobos.
Islenzkir kammersólistar eru nýr hópur tónlistarmanna, sem mun
standa fyrir reglulegum kammermúsiktónleikum. Þátttakendur í þess-
ari tónlistarferð eru: Manuela Wiesler (flauta), Sigurður Snorrason
(klarinetta), Duncan Campbell (óbó), Hafsteinn Guðmundsson (fag-
ott), Robert Jennings (fiðla), Ásdís Þorsteinsdóttir (fíðla), Brian
Carlile (lágfiðla), Gisela Depkat (knéfiðla). Flestir eru sólistarnir
meðlimir í Sinfóníuhljómsveit íslands.
Um næstu mánaðamót fer Marteinn Hunger með organtónleika víðs
vegar um landið. Önnur kammerhljómsveit undirbýr nú tónleikaferða-
lag um Austurland í lok júnímánaðar.
(Frá Menntamálaráði.)
Alþýðuflokkurinn: Samstarf SFV Og
Möðruvellinga spor aftur á bak
Höfum við gengið til góðs...?
Leikrit Vogaskólans sýnt í kvöld
Alþingiskonurnar fjórar: Auður, Hildur, Geirþrúður Hildur og
Ragnhildur.
Fjórar konur á Alþingi
ÞEGAR Alþingi lauk sátu fjórar konur á þinga fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Þær voru Reykjavíkurþingmennirnir Auður Auðuns og
Ragnhildur Helgadóttir og varaþingmennirnir Geirþrúður Hildur
Bernhöft og Hildur Einarsdóttir frá Bolungarvfk, sem höfðu tekið
sæti vegna forfalla þingmanna 1 Reykjavík og á Vestf jörðum. Hefur
hlutur kvenna Ifklega ekki áður verið meiri í röðum sjálfstæðis-
manna á þingi.
Of djúpt í árinni tekið