Morgunblaðið - 25.05.1974, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAl 1974
Saksóknari sá ekki
ástæðu til að rannsaka
íjárreiður Dagsbrúnar
ÞANN 23. marz sl. fór Böóvar
Indriðason Asvallagötu 16
Reykjavík þess á leit við Saka-
dóm Reykjavíkur, að fram færi
opinber rannsókn á fjárreiðum
Verkamannafólagsins Dagsbrún-
ar. Sakadómur sendi málið áfram
til saksóknara ríkisins. Kvað sak-
sóknari upp þann úrskurð 29.
marz, að skjöl þau sem Böðvar lét
fylgja beiðni sinni, vektu ekki
grun um refsiverða meðferð fjár-
muna Dagsbrúnar. og þvf væri af
ákæruvaldsins hálfu ekki gerð
krafa um opinbera rannsókn.
í bréfi sínu til sakadóms segir
Böðvar, sem er félagsmaður í
Dagsbrún, að hann hafi á aðal-
fundi 1973 gert fyrirspurnir um
atriði á reikningi félagsins 1972,
en eigi fengið viðhlítandi svör.
Segir hann, að sérstaklega sé
rannsóknar þörf á rekstursreikn-
ingi 1972, kostnaður við fundi,
kosningar og ASÍ þing sé
ósundurliðaður, krónur
173.142,20 kostnaður við kaffi-
stofu krónur 52.242,30, minnis-
bækur fyrir trúnaðarmenn krón-
ur 40.000,00 og bifreiðastyrkur sé
ótilgreindur kr. 60.000,00.
Þá fer Böðvar fram á athugun á
eignunum Lindarbæ og Lindar-
götu 9. Eigendaskipti á Lindar-
götu 9 hafi ekki verið borin undir
félagsfund, og ritari húsnefndar
ekki boðaður á fundi nefndarinn-
ar síðustu árin. Enginn reksturs-
reikningur hafi verið yfir hús-
eignina Lindargötu 9, og engar
húsaleigutekjur taldar, þótt þar
hefi verið leigjendur.
i sambandi við styrktarsjóð
Dagsbrúnar fór Böðvar fram á, að
eftirfarandi yrði athugað: Ótil-
greindur kostnaður 930.505,00
krónur. Tap á rekstri Lindargötu
9 og Lindarbæjar kr. 132.435,40,
án þess reikningar liggi fyrir.
Óinnheimt iðgjöld kr.
4.887.458,00. Einnig kostnaður við
bókasafn kr. 60.912,00.
Þá segir Böðvar í niðurlagi
bréfsins, að bráðnauðsynlegt sé
að upplýsa rekstur lífeyrissjóðs
Dagsbrúnar. Þar hafi sér vitan-
lega aldrei verið kosin stjórn, boó-
aður aðalfundur né lagðir fram
reikningar.
Mbl. sneri sér til Böóvars
Indriðasonar vegna framan-
greindra málaloka á erindi hans
til sakadóms. Böðvar sagði: ,,Ég
get ómögulega skilið þetta. i bréf-
inu bendi ég á svo mörg vafasöm
atriði, að rannsóknar hlýtur að
vera þörf. Annars vil ég ekki
meira um málið segja á þessu
stigi."
Þá sneri Mbl. sér til Eðvarðs
Sigurðssonar formanns Dags-
brúnar, og innti eftir áliti hans.
Eðvarð sagði: „Þetta eru tilefnis-
lausar árásir á félagið, gerðar
þvíaugnamiði aðsvertaþað í aug
Um almennings. Umræddir reikn
ingar voru samþykktir fyrir ár
síðan, enda hafði saksóknar
aðeins haft málið til meðferðar
einn dag, er hann tók þá ákvörð
un að rannsókn væri alveg ónauð
synleg. Þá er þáttur Ríkisútvarps
ins í þessu máli alveg einstakur.
Böðvar kom með bréf sitt til
fréttastofu útvarpsins sama dag
og hann sendi það sakadómi. Var
það ekki birt strax, en síðan að
ákvörðun útvarpsstjóra, birt frétt
um málið í kvöldfréttatíma, eftir
að Böðvar hafði rekið á eftir því
við útvarpsstjóra. Var ekkert
samband haft við Dagsbrún og
leitað eftir áliti forsvarsmanna
félagsins. Þessi framkoma er al-
veg einstök.“
Þegar þú kýst..
15 heilrœði til ungra kjósenda
# Þú mátt kjósa, ef þú ert 20 ára 26. maf 1974, á kjördag.
# Þú kýst á þeim sfaö, sem þú áttir lögheimili á 1. desember sl.
# Þú kýst í skólanum í þínu hverfi.
# Þú kýst í þeirri skólastofu, þar sem kjördeild þinnar götu er.
# Þú segir fyrst heimilisfang þitt og síðan til nafns, þegar þú kemur
inn í kjördeildina.
# Þú færð kjörseðilinn afhentan af kjörstjórn.
# Þú greiðir atkvæði þitt inni í öðrum hvorum kjörklefanum í stof-
unni.
# Þú setur x framan við bókstaf þess lista, sem þú ætlar að styðja.
# Þú mátt breýta röð frambjóðenda á þínum lista með því að setja
tölustafina 1, 2, 3 ... fyrir framan nöfn þeirra.
# Þú mátt strika yfir einn eða fleiri frambjóðendur á þínum lista.
# Þú skalt ekki strika yfir nafn á einum lista og setja x á annan, með
því ógildir þú atkvæði þitt.
# Þú brýtur seðil þinn einu sinni saman og setur hann í innsiglaðan
kjörkassann.
# Þú færð allar frekari upplýsingar hjá kosningaskrifstofum stjórn-
Imálaflokkanna.
# Þú skalt neyta atkvæðisréttar þíns, því þannig hefur þú áhrif á
stjórn málefna byggðar þinnar.
# Þú skalt kjósa þann stjórnmálaflokk, sem tryggir örugga framtfð
þína og þinna.
Tilboð
óskast í veitingaaðstöðu í Laugardalshöll á
þjóðhátíðarsýningunni 25. júlí — 11. ágúst.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri sýningar-
innar, Agnar Guðnason í síma 1 9200.
Tilboð merkt „Þróun 1974" sé skilað fyrir 10.
júní í pósthólf 7080, Reykjavík.
Ibúðarhús óskast,
vandað og miðlungi stórt, sunnan Reykjavíkur,
t.d. á Flötunum eða í Silfurtúni. Leiga í eitt ár
frá 1 . ágúst gæti komið til greina. Hringið í
síma 1 81 06 kl. 1 7 — 1 9 í dag eða á morgun.
Til sölu
Bedford vöruflutningabifreið, árg. 1966 með
2ja ára Leiland vél og drifi.
Mjög góður flutningakassi er á bílnum. Uppl. í
sima 41511 eftir kl. 7 á kvöldin.
Byggingasam vinnufélag símamanna.
Fundarboð.
Aðalfundur Byggingarsamvinnufélags síma-
manna verður haldinn fimmtudaginn 30. maí
1974 kl. 17.00 í fundarsalnum á VI. hæð í
Landssímahúsinu v/Kirkjustræti.
Dagskrá:
1 . Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Kynningarsamkoma
Gideon félagar á íslandi halda kynningarsam-
komu í Filadelfiu, Hátúni 2, Reykjavik, sunnu-
daginn 26. mai kl. 20.
Jack Swickard, umdæmisstjóri Gideon félag-
anna tekur þátt í samkomunni ásamt íslenzkum
Gideon félögum.
Filadelfiukórinn undir stjórn Árna Arinbjarna-
sonar syngur. Einsöngvari Svavar Guðmunds-
son. Allir velkomnir.
Gideon félagar á íslandi.
VINSÆLAR ORLOFSFERÐIR
í sumar og haust til Möftu — sólskinseyjar Miöjaröarhafsins
Brottför: 15. júni, 6. júli, 3. 17 og 31. ágúst og 14. september.
MALTA ER PARADÍS FERÐAMANNSINS
Malta hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðamanninn:
Milt og þægilegt loftslag — góð hótel, þjónustu og viðkunna gestrisni — gæði i mat og drykk — baðstrendur
lausar við alla mengun — glaðværð og skemmtanir við allra hæfi — hagstætt verðlag.
Til Agadir i suður-Marokkó á vesturströnd Afríku.
Önnur hópferð okkar á þessar vinsælu ferðamannaslóðir Afriku, þar sem
sumar rikir allt árið, verður farin 6. október.
Skipuleggjum ferðir um allan heim fyrir hópa jafnt sem
einstaklinga.
Ferðamiöstöðin hf.
Aðalstræti 9 — Simar i 1 255 og 1 2940