Morgunblaðið - 25.05.1974, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1974
j ÍÞRðTTAFBÉTTIR MBBCBBIBLAÐSII^S
Skíðavertíðinni að ljúka
UM hvítasunnuna verður haldið
síðasta stórmót skíöamanna þetta
keppnistímabil. Er þaó hið árlega
Skarðsmót. sem haldið verður á
Siglufirði. Með þessu móti lýkur
bikarkeppni SKI í alpagreinum.
en staðan í þeirri keppni fyrir
Skarðsmótiö er mjög jöfn. sér-
staklega í karlagreinum þar sem
nokkrir fremstu keppendur eiga
allir möguleika á sigri. I kvenna-
flokki hefur Margrét Baldvins-
dóttir frá Ak. sýnt nokkra yfir-
burði og hefur hún þegar trvggt
sér sigur í þessari keppni, en sig-
urvegari er sá. sem náö hefur
beztum samanlögðum árangrí í 6
af 12 punktamótum vetrarins.
Staða fremstu manna fyrir
Skarðsmót er:
Karlaflokkur:
1. Arni Óðinsson Ak.
2. Hafsteinn Sigurðsson. I.
2. Tómas Leifsson. Ak.
4. Gunnar Jónsson. I.
5. Valur Jónatansson, I.
Guðmundur með þrennu, er
Blikarnir unnu Selfoss
Guðmundur Þörðárson. eini
Breiöabliksmaóurinn. sem leikið
hefur í landsliöi. virðist vera að
komast í sitt gamla form. í leikj-
um keppnistímabilsins hefur
Þotukeppnin
á Hvaleyri
Hin árlega þotukeppni Flug-
félags Islands fer fram hjá Golf-
klúbbnum Keili á Hvale.vrarvelli í
dag og á morgun. Leiknar verða
18 holur hvorn dag eins og á
undanförnum árum. en þá hefur
þotukeppnin verið eitt fjöl-
mennasta golfmót, sem hér er
haldið. Segja má, að Hvale.vrar-
völlur sé nú orðinn eins og að
sumri til en þó verður í þessari
keppni le.vft að hre.vfa innan fer-
fets á braut og uin „púttershaus”
á flötum. Þotukeppnin er fyrsta
opna golfmótið á árinu. sem gefur
stig til landsliðs, og niá af þeim
sökum búast við mikilli þátttöku.
Keppnin hefst klukkan 8.30,
keppnisstjóri verður Þorvaldur
Ásgeirsson og verður keppt með
og án forgjafar.
hann þegar skorað 7 mörk, en allt
síðasta keppnistímabil gerði hann
aðeins þrjú mörk. Guðmundur
var á skotskónum í leik Breiða-
bliks og Selfoss i fyrrakvöld og
gerði þá þau þrjú mörk, sem
skoruð voru i leiknum.
í nokkuð jöfnum fyrri hálfleik
gerði Guðmundur eina markið,
hann fékk sendingu inn í vítateig
Selfoss og sendi knöttinn aftur
f.vrir sig, yfir Jón Sveinsson
hinn nýja markvörð Selfyssinga. I
síðari hálfleiknum b.vrjuðu Sel-
fyssingar af nokkrum krafti, en
eftir 15 mínútna leik sneru
Blikarnir dæminu við,
Guðmundur var enn á ferðinni og
skoraði annað mark sitt. Var þar
um fallegt einkaframtak
Guðmundar að ræða. Hann óð í
gegnum vörn Selfyssinga og
skoraði með glæsilegu skoti.
Síðasta markið átti svo Óiafur
Friðriksson, sem ekki hafði
heppnina með sér í þessum leik.
Ólafur skaut góðu skoti að marki,
en Jón varði vel, hélt þó ekki
knettinum, Guðmundur fylgdi vel
eftir og skilaði knettinum auð-
veldlega í netið. Þetta var síðasta
mark leiksins og úrslitín urðu því
3:0 heimamönnum í vil.
Fyrsti leikurinn í
Eyjum eftir að gosi lauk
ÞRÍR leikir fara fram í fyrstu
deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu í dag. Leikiö verður á
grasinu í Laugardal og fyrsti
opinberi knattspyrnuleíkurinn
eftir gos fer fram í Vestmanna-
eyjum i dag, sá leikur fer nánar
tiltekíð fram á grasvellinum við
Hástein.
KR-ingar mæta Keflvíkingum í
Laugardalnum og hefst leikurinn
klukkan 14.00. Á Akranesi leika
heimamenn gegn Akureyringum
og i Vestmannaeyjum leiða saman
hesta sína liö IBV og Vals. Víking-
ur og Fram eiga frí um helgina og
er það samkvæmt ósk Víkinga,
sem eiga fjóra menn i ungiinga-
landsliðinu, sem dvelur í Svíþjóð
um þessar mundir.
Hinum kunna knattspyrnu-
manni úr KR, Baldvin Baldvins-
syni, var vísað af leikvellí i leik
KR og Víkings í 1. flokki síðastlið-
inn fimmtudag. Þetta var nokkuð
strangur dómur en hegðun
Baldvins eftir að honum var vikiö
af velli er alls óverjandi. Hann
réðst á dómarann, sló til hans og
sparkaði og lét ýmis miður falleg
orð falla í hans garð. Það var ekki
Meistaramót
í frjálsum
íþróttum
MEISTARAMÓT Islands í frjáls-
um íþróttum, fyrsli hluti, fer
fram 11. og 12. júní. Keppt verður
í tugþraut. 4 x 800 m hlaupi karla,
10 þús. m hlaupi. Þátttökutil-
kynningar þurfa að berast til
Jóhanns Jóhannssonar, Blöndu-
hlíð 12, ásamt 50 kr. þátttöku-
gjaldi fyrir hverja grein, fyrir 7.
júní.
Stofna
íþróttafélag
STÓFNFUNDUR íþróttafélags
fatlaðra verður haldinn í Vinnu-
og dvalarheimili Sjálfsbjargar að
Hátúni 12, 2. hæð, fimmtudaginn
20. maí og hefst klukkan 20.30. Að
stofnun félagsins standa félög og
styrktarfélög örvrkja í Reykjavík
og ÍSÍ.
fyrr en Tony Knapp þjálfari KR-
inga kom og gekk á milli, að látun-
um linnti.
Dómari í þessum leik var
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson og
spurðum við hann í gær, hvort
hann hygðist gera eitthvað meira
í þéssu máli. — Ég er skyldugur
að senda KSÍ skýrslu um þennan
atburð og það hef ég þegar gert,
sagði Vilhjálmur. Ég sé ekki
ástæðu til að ræða opinberlega
það, sem ég sagði í skýrslunni, en
ég segi þar frá þessum atburði
eins og hann kom mér fyrir sjón-
ir. Framkoma eins og þessi er
algjörlega óverjandi og dómarar
þurftu að vera líftryggðir ef þeir
eiga von á svona árásum í leikj-
um. Þetta kom mér svo á óvart, að
ég reyndi ekki einu sinni að verja
mig. — Ég get ekki fallizt á, að
brottvísunin hafi verið vafasamur
dómur, Baldvin / sló markvörð
Víkings og í knattspyrnulögunum
segir, að ef leikmaður slái til
annars leikmanns skuli víkja hon-
um af leikvelli. Ég tel mig aðeins
hafa verið að framfylgja knatt-
spyrnulögunurn, sagði Vilhjálmur
að lokum.
Leikmaður ræðst á dómara
Fyrsta mótið lofar
góðu um árangurinn
FYRSTA meiri háttar frjáls-
íþróttamót sumarsins, vormót ÍR,
lofar góðu um árangur frjáls-
íþróttafólksins í sumar. í nær öll-
um keppnisgreinum náðist góður
árangur, enda veður með betra
móti, nær logn framan af og hlýtt
i veðri.
Beztu afrek mótsins unnu þeir
Hreinn Halldórsson, HSS, sem
kastaði kringlu 50.60 metra og
kúlu 17.48 m, Karl West Fredrik
sen, UMSK, sem stökk 2.01 m í
hástökki, og Bjarni Stefánsson,
KR, sem hljóp 100 metra á 10.7
sek.
Urslit i einstökum greinum
urðu þessi:
100 m hlaup:
Bjarni Stefánsson, KR, 10.7
110 m grindahlaup:
Stefán Hallgrímsson, KR, 15.5
Hástökk
Karl West Fredriksen, UMSK
2.01
200 m hlaup kvenna:
Ingunn Einarsdóttir, ÍR, 26.1
3000 m hlaup:
Gunnar Snorrason, UMSK, 9.45.4
800 m hlaup:
Gunnar Páll Jóakimsson, ÍR,
2.00.8
Langstökk kvenna:
Hafdís Ingimarsdóttir, UMSK,
4.94
Kúluvarp:
Hreinn Halldórsson, HSS, 17.48
Kringlukast:
Hreinn Halldórsson, HSS, 50.60
800 m hlaup kvenna:
Ragnhildur Pálsdóttir, UMSK,
2.21.4
100 m hlaup telpna:
Ásta B. Gunnlaugsdóttir, ÍR, 13.3
400 m hlaup sveina:
Einar P. Guömundsson, FH, 57.4
Nánar verður sagt frá mótinu í
blaðinu síðar.
Kvikmynd um knattspymu
Knattspyrnuunnendum
gefst í dag kostur á að sjá 90
mínútna knattspyrnukvik-
mynd í Nýja bíói. Það er félag-
ið Germanía, sem gengst fyrir
þessari sýningu, hefst hún
klukkan 14.00 og er öllum
heimill ókeypis aðgangur.
Mynd þessi fjallar um sögu
knattspyrnunnar og er víöa
komið við sögu. Fjallað er um
eftirminnilega sigra, einstakar
stjörnur, gleði, sorg og sigra
knattspyrnunnar fyrr og síöar.
Myndin fjallar um fyrstu daga
knattspyrnunnar og nær allt
fram á okkar daga, fram að
undirbúningi Þjóðverja fyrir
heimsmeistarakeppnina, sem
fram fer í V-Þýzkalandi í sum-
ar.
Af einstökum atriðum mynd-
arinnar má nefna austuríska
undraliðið, stjörnuna Puskas
og leik hans með Ungverjum
og Spánverjum, Real Madrid
og sigurgöngu þess, 16:0 sigur
Þjóðverja gegn Sovétmönnum
1912 og svo framvegis.
V-þýzki snillingurinn Gerd Múller sést í knattspvrnukvikm.vnd
inni, sem sýnd verður í Nýja bíói í dag. Meðf.vlgjandi m.vnd var
tekin af „Der Bomber", er hann skoraöi annað tveggja marká
sinna í síðari úrslitaleik Kayern Múnehen og Athletico Madrid,
sem lauk 4:0, ekki vantar tilþrifin hjá kappanum.
6. Guðjón I. Sverriss. R.
7. Arnór Magnússon, I.
8. Einar Hreinsson, I.
Kvennaflokkur:
1. Margrét Baldvinsdóttir, Ak.
2. Jórunn Viggósdóttir, R.
3. Áslaug Sigurðardóttir, R.
4. Sigrún Grímsdóttir, I.
5. Margrét Vilhelmsdóttir, Ak.
Haukur Jóhannsson, Ak., bikar-
meistarínn frá sl. ári á smá mögu-
leika á sigri ef honum gengur vel
á Skarðsmótinu, en hann var
nokkuð frá keppni f.vrri hluta
vetrar vegna meiðsla.
Næsta stórverkefni skíðamanna
er þátttaka í vetrarólympíuleik-
um, sem fram fara í Innsbruek í
Austurríki í febr. 1976. Undir-
búningur undir væntanlega þátt-
töku er þegar hafinn og m.a. fer
hópur skíðafólks á vegum SRR í
þjálfunarferð til Frakklands um
miðjan júní n.k.
Hreinn Halidórsson er iíkiegur til afreka í kúluvarpinu í sumar,
meðfylgjandi mvnd er tekin af honum á vormóti ÍR (Ljósm Rax)