Morgunblaðið - 08.06.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JUNI 1974
7
—i : \ "JFi-----
vs-s?<y
íSS& THE OBSERVER
'' .4N.V-v' *.
Eftir
Lajos
Lederer
\ \ cster/
V'j '
THE OBSERVER
kjósi einn mann úr sínum hópi tíl
að taka wið af Tltó. Er gengið út
frá þvi sem vlsu. að Edward
Kardelj verði fyrir valinu. Hann er
nú 63 ára, og hefur verið einn
nánasti samstarfsmaður Tltós
undanfarna þrjá áratugi.
Athyglisverðasta yfirlýsing
Titós á flokksþinginu varðaði
stöðu Júgóslaviu gagnvart Sovét-
rikjunum. Visaði hann á bug þeirri
hugmynd. að Júgóslavia. sem rauf
tengslin við Moskvu árið 1948,
ætti eftir að færast inn á áhrifa-
svæði Sovétríkjanna. Fulltrúarnir
á þinginu hylltu forsetann ákaft,
er hann sagði: „Undirstaða utan-
rikisstefnu Júgóslaviu verður
áfram algert hlutleysi.” Með öðr-
Tító marskálkur í ræöustól
Hvað tekur
við af Tító?
TÍUNDA landsþingi júgóslavneska kommúnistaflokksins
lauk í Belgrad fyrir síðustu helgi, og eins og búizt hafði
verið við, veitti það Tító forseta fullt umboð til að viðhalda
og vernda einingu flokksins og þjóðarinnar. Þar til fyrir
stuttu virtist þessi eining í hættu.
Tító tókst — að minnsta kosti til bráðabirgða — að
tryggja sér og flokknum algera yfirstjórn í landinu. Erfið-
leikar þeir, sem gengu yfir landið fyrir þremur árum, þegar
Tító varð að grípa til hörkuaðgerða gegn uppreisnarsinnuð-
um Króötum, virðast nú úr sögunni, en þeim var ekki rutt
úr vegi að kostnaðarlausu.
Umbótasinnarnir, sem margir
hverjir gegndu háum embættum
og voru nánir vinir Títós, misstu
ekki aðeins stöður sinar, heldur
voru nokkrir þeirra einnig reknir
úr flokknum. Mér er sagt, að Tító
hafi ekki likað þessa alls kostar
vel, og þar sem ég þekki mar-
skálkinn persónulega, þykir mér
það mjög trúlegt. Titó hefur
áreiðanlega sárnað á fyrsta degi
landsþingsins að líta yfir þingsal-
inn og sakna þaðan svo margra
gamalla félaga og vina. Það er
mér hins vegar ánægja að taka
fram, að margir þessara manna,
sem fallnir eru i ónáð, hafa það
gott og ganga lausir; þeir eru
komnir á eftirlaun; sumir hafa
jafnvel fengið ný störf utan flokks-
ins og stjórnmálanna.
Eitt helzta verkefni flokksþings-
ins var að skipuleggja framtiðar-
stjórn landsins eftir að Titó
marskálkur — sem varð 82 ára
25. mai — fellur frá. Sá undirbún-
ingur hófst á níunda flokksþinginu
árið 1969, og var þá gert ráð fyrir
sameiginlegri yfirstjórn 14 manna
frá sex lýðveldum og tveimur sjálf-
stjórnarhéruðum Júgóslaviu, en
þetta skipulag féll um sjálft sig
þegar þessi yfirstjórn átti við sinn
fyrsta vanda að stríða — uppreisn
i Króatiu fyrir þremur árum.
Margs konar breytingar hafa
verið gerðar á áætlununum um
það hvað við á að taka. Enn lifir
hugmyndin um sameiginlega yfir-
stjórn, en fulltrúum I henni hefur
verið fækkað i níu, að Titó sjálfum
meðtöldum, en hann hefur verið
kjörinn forseti landsins og flokks-
ins til æviloka. Fáir hafa trú á þvi,
að þessi sameiginlega yfirsjón
verði starfhæf eftir að Titó er lið-
inn. Liklegasta lausnin er að hún
Edward Kardelj er tal-
inn líklegastur til aó
taka við af Tító
um orðum. þótt Belgradstjórnin
hafi nýlega átt samleið með
Moskvu I innanrikis- og flokksmál-
um, þýðir það ekki, að landið ger-
ist aðili að Varsjárbandalaginu.
Þessi itrekun Titós á stöðu
Júgóslaviu hefur vakið nýtt traust
og létti hjá þjóðinni, sem litur á
sjálfstæði landsins sem höfuðskil-
yrði fyrir framtið þess. Reyndar er
talið, að óeirðir i ýmsum héruðum
Júgóslaviu á undanförnum árum
hafi að miklu leyti stafað af ótta
við, að bætt sambúð við Sovétrik-
in gæti í framtiðinni haft skaðleg
áhrif á sjálfstæði landsins.
Myntsafnarar
Óska eftir tilboðum i gullpening
sem gefinn var út i tilefni að
heimsmeistaramótinu i skák.
Uppfí i sima 96-12451, eftir kl. 8
á kvöldin.
Páfagaukar
ásamt búri til sölu.
Upplýsingar í síma 18872.
Óskum eftir
2—4 herb. ibúð i 6 —12 mán.
Upplýsingar í sima 33585 i dag
og næstu daga.
Ungt reglusamt par
óskar eftir vinnu á sama stað.
Margt kemur til greina. Æskilegt
að húsnæði og fæði sé á staðnum.
Enskukunnátta. Uppl. i sima 93-
1578.
M eiraprófsbilstjóri
og fóstra óska eftir vinnu úti á
landi, allt kemur til greina.
Upplýsingar i síma 41 264 eftir kl.
18.
Eigandi bátsins Lark
er vinsamlega beðinn að hringja i
síma 531 49.
Sveit
Piltur eða stúlka 13 — 16 ára
óskast í sveit á Suðurlandi. Æski-
legt að þau séu vön hestum. Til-
boð sendist Mbl. fyrir 13. þ.m.
merkt 1084.
Sumarbústaður
til sölu i nágrenni Reykjavikur.
Upplýsingar i dag og á morgun i
sima 86090.
Til leigu
Rúmgóð 3ja herb. íbúð í Breið-
holti til leigu frá 1. júli. Tilboð
ásamt uppl. um fjölskyldustærð,
sendist afgr. Mbl. fyrir 14. júní,
merkt: 1 068.
Mold
Gróðurmold til sölu, heimkeyrð.
Uppl. i sima 51468 og 50973.
Pennavinir
Sérstæð einstaklings kynningar-
þjónusta um allan heim. Mynd-
skreytt alþjóða pennavinatimarit.
Víkkið sjóndeildahring yðar.
Ókeypis uppl. Skrifið i dag: Five
Continents Ltd., Waitakere, New
Zealand.
Til sölu
Mercury Comet '73, 6 cyl,
sjálfsk., powerstýri. Ekinn 11.
þús. km. Einnig VOLVO FB — 88
67 á nýjum dekkjum. Upp-
lýsingar i sima 73507.
Stór tbúð
eða einbýlishús óskast til leigu í
nokkra mánuði í Kópavogi.
Upplýsingar í sima 42482.
Til sölu
5 tonna bátur i mjög góðu standi.
Upplýsingar gefur Hörður Gils-
berg i sima 93-6235.
Citroen G .S 1972
í toppstandi, með rafmagnsskipt-
ingu, ekinn 22.000 km, til sölu.
Upplýsingar i simum 72803 og
92-2351.
Atvinna
Óskum að ráða lærling eða að-
stoðarmann til starfa.
VALGEIRSBAKARÍ,
Vtri-N jarðvík.
Sími 2630—1Ö37.
Ytri-Njarðvík
Vantar stúlku nú þegar til af-
greiðslustarfa hálfan daginn.
VALGEIRSBAKARÍ,
simi 2630 og 1037.
Glerisetningar, glersala
Tek að mér allskonar glersetningar
stuttur afgreiðslufrestur á tvöföldu
gleri. Upplýsingar i simum 85099
og 85884 um helgar og eftir kl. 6
á kvöldin.
Mold
Gróðurmold til sölu.
Upplýsinga i sima 401 99.
Gerum við
kaldavatnskrana og WC-kassa.
VATNSVEITA REYKJAVÍKUR,
Simi 27522.
Volvo til sölu
Volvo árg. '73 144, hvitur með
rauðu áklæði. Uppl. i sima 92-
2485.
Fullorðin kona
eða unglingur
óskast til að vera til staðar á
heimili fyrir rólegan sjö ára
dreng frá 9—5 á virkum dögum.
Uppl. i sima 1 7052, eða á Freyju-
götu 32, kj. fyrir hádegi eða eftir
kl. 7 á kvöldin.
Listahátíð í Reykjavík
Háskólabíó
sunnudag 9. júní kl. 21.00
EINLEIKUR
A
PÍANÓ
Daniel Barenboim
ssssssssssssssssssssssss