Morgunblaðið - 18.07.1974, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
126. tbl. 61. árg.
FIMMTUDAGUR 18. JULl 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Lögreglan hefur ekki látið upp-
skátt um, hverja hún telur bera
ábyrgð á þessu hryðjuverki, en
margir gruna IRA um aðild. IRA
hefur fyrr staðið fyrir sprengju-
tilræðum I London, meðal annars
I þinghúsinu. Talsmenn þeirra
hafa þó stundum tilkynnt fyrir-
fram hvað til stæði, svo að unnt
hefur verið að forða fólki af
staðnum. Engin sllk tilkynning
barst nú.
Talsmenn Scotland Yard segja,
að sézt hafi til tveggja ungmenna
sem hlupu frá Tower rétt áður en
sprengjan sprakk og bandarfsk
stúlka, sem var að taka myndir
rétt hjá, segist hafa séð ungan
mann hlaupa frá byggingunni,
rétt áður en ósköpin dundu yfir.
Ný stjórn
í Portúgal
Lissabon 17. júlí NTB
ANTONIO De Spinola, for-
seti Portúgal, kunngjörði í
kvöld, að Vasco Goncalves
hefði myndað nýja stjórn
og ættu sæti f henni sautj-
án ráðherrar, þar af eru 6
herforingjar og auk þess
er forsætisráðherrann
sjálfur hershöfðingi.
Meðal ráðherranna eru nokkrir,
sem stóðu að byltingunni I april.
Mario Soares, leiðtogi sósialista,
er áfram utanríkisráðherra og Al-
varo Cunhal, foringi kommúnista,
er áfram ráðherra án ráðuneytis.
„Nýja ríkisstjórnin á að fylgja
fram þeirri stefnu, sem mörkuð
var með byltingunni, og lögð ^r
áherzla á að skapa traust á millj
ríkisstjórnarinnar og þjóðarinn-
ar,“ sagði forsetinn í sjónvarps-
ávarpi, þegar hann tilkynnti um
stjórnarmyndunina.
Makarios erkibiskup og forseti Kýpur kom til Bretlands I morgun og gekk skömmu sfðar á fund Harolds
Wilson forsætisráðherra til að ræða við hann um ástand og horfur á Kýpur. Þeir sjást hér heilsast úti
fyrir bústað Wilsons við Downingstræti 10. Þar var samankominn allmikill mannfjöldi og hyllti
Makarios.
Hrvðiuverkið í Tower of London:
A.m.k. 40 slösuðust, flestir alvarlega og einn lézt í gærkvöldi
Lögregla og björgunarlið að störfum f hvfta turnin-
um f Tower of London skömmu eftir sprenginguna
ægilegu í gær.
London 17. júlf AP. NTB.
it Ljðst er nú, að yfir fjörutfu manns slösuðust, þar af tfu alvarlega og einn er
látinn, þegar mikil sprenging varð f hinni sögufrægu byggingu „Tower of London“
um miðjan dag. Um tuttugu börn voru meðal hinna slösuðu. Læknar á St.
Bartholomeusjúkrahúsinu, en þangað voru hinir slösuðu fluttir, sögðu f kvöld, að
óttazt væri um lff allmargra. Þeir sögðu einnig, að nauðsynlegt yrði að taka hendur
eða fætur af sumum hinna slösuðu til að freista þess að bjarga lffi þeirra.
Sprengingin varð f kjallara Tower. Þá voru um 80 manns inni f byggingunni en
um eitt þúsund stóðu í biðröð eftir að komast inn. Flestir, sem inni voru, eru
ferðamenn frá Danmörku, Bandarfkjunum, Þýzkalandi, Sviss og Nýja-Sjálandi.
Lögreglan sló hring um svæðið
og björgunarsveitir komu þegar á
vettvang. Þar ríkti þó hin mesta
ringulreið i fyrstu, en fljótlega
varð séð, að engar teljandi
skemmdir höfðu orðið á Tower.
Sjónarvottar segja, að ástandið
hafi verið ömurlegra en þeir geti
með orðum lýst. Einn af þeim,
sem komst af, staulaðist grátandi
út og sagði: „Þetta voru flest lítil
börn ... ég sá dreng, kannski sex
ára ... ég sá ekki betur en hann
færi I marga hluta ...“ Ungur
Dani sagði: „Eg sá unga konu
koma þjótandi og blóðið rann nið-
ur andlitið á henni. Hún var að
leita að barninu sínu ... hún
hafði misst sjónar á því, þegar
sprengingin varð ...“ Annar
sagði: „Aldrei hef ég upplifað
annað eins víti . .. ég sá sundur-
tættan barnsfót skammt frá þeim
stað, sem sprengingin varð ...“
Tower of London er ein fræg-
asta bygging borgarinnar og var
reist fyrir nlu hundruð árum. Þar
var síðan illræmt og rammgert
fangelsi á timum Tudorættarinn-
ar. Nú eru þar varðveittir ýmsir
veldisgripir brezku konungsfjöl-
skyldunnar, ýmsir aðrir sögulegir
dýrgripir, auk mikils og merks
vopnasafns. Fleiri ferðamenn
koma árlega til Tower en flestra
annarra staða í London.
safnazt þar saman og hyllti
Kýpurforseta er hann kom til
fundarins. Hann fer til New York
á morgun, fimmtudag.
★ Frá Briissel barst þær fréttir,
að öll rfki Atlantshafsbandalags-
ins nema Grikkland séu þvf
fylgjandi, að Makariosi verði gert
kleift að hverfa aftur til Kýpur og
grfskir herforingjar f þjóðvarðlið-
Loft lævi blandið í grennd við Kýpur
og óttast menn átök Grikkja og Tyrkja
London, Ankara, Nikosia,
Aþenu, S.Þ., Brtissel,
17. júlí AP. NTB.
★ „Þjóðvarðliðið hóf geysilega
skothrfð á forsetahöllina. Ég
reyndi að fylgjast með gangi
mála og sá, að höllin var ekki
alveg umkringd og komst út um
leynidyr. Ég fór einn mfns liðs,
en skömmu sfðar tókst einnig
starfsliði mfnu að komast frá
höllinni." Þetta mælti Makarios
erkibiskup og forseti Kýpur við
blaðamenn f Lundúnum f dag, en
þangað kom hann frá Möltu.
Hann bætti við, að hann hefði
komizt óséður f munkaklaustur
skammt frá höllinni og sfðan
hefði honum tekizt að komast til
fæðingarbæjar sfns, Paphos, og
þaðan hefði hann eins fljótt og
honum var auðið sent út
orðsendingar um útvarpsstöð til
þjóðar sinnar.
if Eftir komuna til London hélt |
Makarios til fundar við Harold
Wilson forsætisráðherra f bústað
hans. Hafði allmikill mannfjöldi
Olíufundur
London 17. júlf NTB
BP-FYRIRTÆKIÐ hefur
fundið all mikil olfulög á 185
metra dýpi norðaustur af
Hjaltlandseyjum, en ekki er
unnt að segja um það fyrr en
að ftarlegri rannsóknum lokn-
um, hvort borgar sig að hefja
boranir á þessum stað. Svæði
þetta hefur hlotið nafnið
„Magnús“ og f kvöld var BP
ófáanlegt að segja nákvæm-
lega til um, hvar það er. östað-
festar heimildir hermdu, að
það væri fyrir norðan Thistle
og Dunlinolfusvæðin.
Verðbréf BP hækkuðu um
12% er fréttist um olfufund-
inn.
Makarios ræddi
Wilson í London
„Aldrei upplifað
annað eins víti...”
við
í gær
inu verði látnir vfkja. Fastráð
bandalagsins ræddi ástandið á
Kýpur á fundi f dag.
I kvöld bárust þær fréttir frá
Aþenu, að stjórnin hefði skipað
her landsins að vera við öllu
búinn og Tyrkir voru einnig að
draga saman mikið lið á
Miðjarðarhafsströnd Tyrklands.
Framhald á bls. 18