Morgunblaðið - 21.07.1974, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JULt 1974
® 22 022
RAUDARÁRSTÍG 31
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
m
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGAN
VfelEYSIR
CAR RENTAL
A24460
í HVERJUM BÍL
PIONŒŒn
ÚTVARPOG STEREO
KASSETTUTÆKI
Bilaleiga
CAR RENTAL
Sendum
14*41660-42902
Ferðabílar hf.
BilaleigaS—81260
5 manna Citroen G.S fólks og
stationbílar 1 1 manna Chervolet
8—22 manna Mercedes-Benz
hópferðabilar (með bilstjórn)
Leiguflug - þjónustuflug-
vöruf lug - sjúkraf lug -
útsýnisflug
INNANLANDS OG UTAN
Sverrir Þóroddsson
Gamlaflugturninum
Reykjavikurflugvelli
Simi28420 Allan sálarhringinn
Sovétfréttir
Stundum virðast „austur“ og
„vestur“ ósættanlegir fjendur,
sem ávallt sjá allt hið versta
hvor hjá öðrum, en gleyma
hinu, sem gleður og bætir.
Svo langt gengur þessi for-
dómafulla afstaða, að pólitísk
blöð og blaðamenn með lituð
gleraugu, glámskyggni, skamm-
sýni og þröngsýni, sjá aðeins
hið versta eða minnast ekki á
annað.
Nú hefur mánuðum saman
verið hamrað á Watergatemál-
inu og Spiro Agnew-hneyksli,
sem auðvitað eru sízt til að
skapa virðingu vestan hafs, en
sýna þó hins vegar frelsi —
ritfrelsi, skoðanafrelsi og jöfn-
uð — því að þarna eru einmitt
sakir æðstu manna og ákærur á
það, sem allt snýst um.
I austrinu virðist svo ekkert
gerast nema útlegð og ofsóknir
á Solzhenitsyn, ofsóknir á
hendur Gyðingum og pyndanir
á saklausu fólki í fangelsum.
Sjálfsagt er þetta þvf miður
sannleikur á báðum stöðum eða
í báðum áttum. En — ekki allur
sannleikurinn, það er eitthvað
betra og bjartara til á báðum
stöðunum.
Við þekkjum raunar
Ameríku betur og vitum, að
hvergi hefur frelsið komizt á
hærra stig og stjórnmálamenn
orðið öllu heiðarlegri og hug-
sjónir bjartari, hvernig sem nú
virðist komið.
Við vitum líka, að fáir hafa
tekið fram þeim Tolstoy og
Krapotkin, sem hófu söngva
sósíalisma og mannréttinda í
veraldarsögunni, þótt á slfkt sé
nú sjaldan minnzt.
Fýrir nokkrum dögum rakst
ég á nokkrar greinar og sem
betur fór og bezt var í amerísku
tímariti. Þær voru einmitt um
það, hve sovézkir vísindamenn
standa framarlega í rannsókn-
um og uppgötvunum í læknis-
dómum, lífeðlisfræði og raf-
eindatækni. Virðist svo sem
þarna standi rússneskir læknar
þrepi ofar öllum öðrum þjóð-
um.
Hér skal örfáum orðum farið
um hið helzta, sem þarna var
fjallað um. Sérstaklega skal það
gert til að gefa annan tón í
fréttaflutningi en nú tfðkast f
pólitískt lituðum fordómum og
með það eitt í huga að vekja
öfgafulla undrun, hrylling eða
skelfingu. En þannig virðast
valdar flestar fréttir fjölmiðla.
Nýjustu rannsóknir f lffeðlis-
fræði sanna, að líkamsfrum-
urnar sjálfar sendast á þráð-
lausum skeytum með ultra-
geislum.
Rannsóknir þessar gætu lagt
grunn að vörnum gegn veirum,
bakterium og eitrunum bæði af
geislavirkni og sýklum.
Heilaskurður, þar sem æxli
eru numin brott meira að segja
úr miðheila, er orðinn litlu
hættulegri en botnlangaupp-
skurður í höndum lækna í Len-
ingrad.
Svona mætti lengur telja með
sönnunum óteljandi skýrslna
og skriffinna með tölvur og
tæki.
Þá eru framfarir í uppeldi
mikið miðaðar við vinnu barna
í görðum og gróðurreitum, þar
sem þau í fjölbreyttu starfi þró-
ast til fræðistarfa og vísinda-
mennsku í alls konar ræktun,
fegrun og verndun umhverfis,
auk þess sem þau sjálf fá að
njóta ávaxta iðju sinnar með
því að annast sölu og dreifingu
þeirra plantna, ávaxta og
blóma, sem þau rækta.
Mætti nefna þetta starfsnám
á breiðum vettvangi, þar sem
ungmennið vex með náminu.
beint inn í raðir iðnaðar, rækt-
unar, verzlunar og framleiðslu
síns héraðs. Sérstök áherzla er
lögð á, að ungmennið finni
hvernig allt íífið er ein þúsund-
þætt heild.
Síðasta fréttin frá Sovétrfkj-
unum, sem hér skal sögð, er um
fjarstýrðar jarðýtur til notk-
unar við námugröft.
Víða í námum er að sjálf-
sögðu bæði erfitt og hættulegt
mönnum og gefur að skilja, hve
gott er þá að geta beitt þar
mannlausum vélum, sem
stjórnað er úr margra metra
fjarlægð, þar sem stjórnandinn
er fyllilega öruggur um líf og
limi, þótt vélin vinni fullum
krafti á hættusvæðinu.
Sannarlega mættu Bretar og
vafalaust margir fleiri, sem
námagröft stunda, veita slfkum
jarðýtum verðskuldaða athygli.
Og að síðustu væri ánægju-
legt, ef fjölmiðlar, bæði blöð og
útvarp, vildu hefja og móta þá
stefnu að segja frá því bezta,
því fagra og góða beggja aðila,
sem eru sjaldan sammála um
neitt. Engum er alls varnað og
sízt heilum þjóðum, þótt ýmsu
sé ábótavant.
Sífelldar frásagnir af sorg-
um, slysum, glæpum, mann-
drápum, kúgunum, fölsunum,
lygum, vömmum og skömmum
gera hugsanir hlustenda og
horfenda myrkar og beizkar,
hjartalagið kærulaust, börn og
vanþroska fólk samdauna og
sljó gagnvart morðum og
hryðjuverkum, mannvonzku,
hatri og heimsku.
Leyfið hinu fagra að fljóta
með, svo fordómarnir víki.
„Austrið“ og „vestrið" eiga líka
sitt sólskin.
Utsýn í stærra húsnæði
FERÐASKRIFSTOFAN Utsýn jók nýlega stórlega við húsnæði sitt f Austurstræti 17.
— Var þá bætt við tveimur skrifstofuherbergjum á 2. hæð, þar sem skrifstofan hefur
verið, en einnig er rúmgóð afgreiðsla á götuhæðinni. — Meðfylgjandi mynd var nýlega
tekin af Ingólfi Guðbrandssyni forstjóra Utsýnar og starfsfólki ferðaskrifstofunnar.
Borgarstjórn:
Björgvin og Albert
vilja nýjan togara
Á fundi borgarstjórnar sl.
fimmtudag var samþykkt að vfsa
til útgerðarráðs tillögu Björgvins
Guðmundssonar um kaup á skut-
togara til Reykjavfkur. Samþykkt
var að vfsa tillögunni til um-
sagnar útgerðarráðs með 8
atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins gegn 3 atkvæðum
Björgvins Guðmundssonar,
Alberts Guðmundssonar og
Alfreðs Þorsteinssonar.
Björgvin Guðmundsson mælti
fyrir tillögunni, sem er svo-
hljóðandi: Borgarstjórn Reykja-
víkur telur æskilegt, að annar
þeirra tveggja nýju skuttogara,
sem eru að koma til landsins frá
Spáni, verði gerður út frá Reykja-
vík. — Borgarstjórn samþykkir að
taka upp viðræður við ríkisstjórn-
ina um leiðir til þess að tryggja
útgerð togarans frá Reykjavík. —
Borgarstjórn telur æskilegt, að
skipið verði gert út af Bæjarút-
gerð Reykjavíkur. Telur borgar-
stjórn, að ríkið eigi að- veita
Reykjavfkurborg sérstaka fjár-
hagsaðstoð til þess að kaupa
skipið og reka það.
Birgir Isleifur Gunnarsson,
borgarstjóri, sagðist ekki geta
fallizt á það að svo stöddu, að nýr
togari yrði keyptur f þvf skyni að
hann yrði gerður út á vegum
Bæjarútgerðarinnar. Nauðsyn-
legt væri, að gagnger úttekt færi
fram á rekstri og fjárhagslegri
stöðu fyrirtækisins áður en slíkar
ákvarðanir yrðu teknar m.a.
vegna þess, hve illa útgerð nýju
togaranna hefði gengið. Á þessu
stigi væri þvf ekki unnt að sam-
þykkja tillögu sem þessa. Lagði
borgarstjóri síðan til, að tillög-
unni yrði vísað til útgerðarráðs.
Albert Guðmundsson sagði, að
sér hefði verið falið ásamt
Björgvin Guðmundssyni að gera
tillögur varðandi rekstur Bæjar-
útgerðarinnar. Þeir hefðu lagt til
að keyptur yrði nýr togari. Til-
lagan hefði hins vegar ekki
fengizt afgreidd í kerfinu. Það
væri það minnsta, sem unnt væri
að gera, að slík mál kæmu til
afgreiðslu. Albert sagðist hafa
lagt til að togari yrði keyptur frá
Spáni og hann hefði ekki skipt
um skoðun í því sambandi. Þá tók
hann sérstaklega fram, að ekkert
væri athugavert við að samþykkja
einnig þessa tillögu Björgvins
Guðmundssonar.
Birgir Isleifur Gunnarsson,
borgarstjóri, ftrekaði þá skoðun
sína, að á þessu stigi væri rétt að
fresta afgreiðslu málsins, þar sem
að sínu mati þyrfti að fara fram
úttekt á fjárhagsstöðu Bæjarút-
gerðarinnar. Hann sagðist því
halda fast við þá tillögu sína að
vísa málinu til umsagnar
útgerðarráðs.
Tillaga borgarstjóra var síðan
samþykkt eins og áður segir með
8 atkvæðum gegn 3.