Morgunblaðið - 15.08.1974, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. AGUST 1974
Rannsóknir fyrir
fiskiðnað hefjast á
ísafirði í vetur
Norður-frsku börnin ásamt fararstjðrum og framkvæmdastjóra Hjálparstofnunarinnar.
21 barn frá Norður-
írlandi til dvalar hér
Akveðið hefur verið að koma
upp útibúi Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins á Isafirði og undir-
búningur á lokastigi, að þvi er dr.
Björn Dagbjartsson, forstöðumað-
ur stofnunarinnar tjáði Mbl.
Standa vonir til, að hægt verði að
byrja í vetur. Húsnæði er fyrir
hendi í húsi Vestra h.f. við Suður-
götu, en eftir að innrétta það og
tæki hafa verið pöntuð. Sam-
kvæmt nýjum lögum frá 1973 er
stofnuninni gert að leita sam-
starfs við fiskiðnað, matvæla-
framleiðendur og sveitarfélög um
að starfrækja rannsóknastofur ut-
an Reykjavikur, og skulu þessir
aðilar leggja fram helming kostn-
aðar, en rannsóknastofurnar
skulu veita fiskiðnaði og öðrum
matvælaiðnaði á svæðinu þjón-
ustu með rannsóknum, gæðaeftir-
liti og leiðbeiningum samkvæmt
gjaldskrá.
Björn sagði, að orðið hefði að
samkomulagi, að Isafjarðarkaup-
staður sæi um innréttingu á hús-
næðinu, en stofnunin um tæki, og
Varð •
bráðkvaddur
ÞAÐ ER nú upplýst, að ungi
maðurinn, sem féll fram af svöl-
um á hóteli á Mallorka um sl.
helgi, lézt ekki af völdum fallsins.
Læknisrannsókn leiddi í ljós, að
hann hafði orðið bráðkvaddur á
svölunum, áður en hann féíl.
Hann hét Þorsteinn Ingólfsson,
25 ára, kennari, og átti heima i
Reykjavik.
Héraðsmót
á Akranesi
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
heldur héraðsmót á Akranesi
(Hótel Akranesi) næstkomandi
sunnudag kl. 21.00. Alþingis-
mennirnir Jón Árnason og Ellert
B. Schram munu flytja ávörp.
Hljómsveit Ölafs Gauks, Svala
Nielsen, Svanhildur og Jörundur
Guðmundsson munu annast fjöl-
breytt skemmtiatriði. Að mótinu
loknu verður stiginn dans fram
eftir nóttu.
IÐNAÐARRÁÐHERRA, Magnús
Kjartansson, mælti fyrir frum-
varpi um breytingu á orkulögum
i neðri deild Alþingis f gær.
Frumvarpið gerir ráð fyrir þvf, að
jarðhitasvæði skuli skiptast í
háhitasvæði og lághitasvæði og
rfkið hafa allan rétt til umráða
hagnýtingar jarðhita á háhita-
svæðum og uppleystra efna og
gastegunda, sem háhitavatni og
gufu fylgja, þó með nokkrum
takmörkunum.
Iðnaðarráðherra gat þess, að
frumvarp þetta hefði verið flutt á
síðasta þingi, en ekki hlotió
fullnaðarafgreiðslu. Meirihluti
iðnaðarnefndar hefði þá mælt
með samþykkt þess með nokkrum
breytingum. Breytingartillögur
nefndarinnar sem og breyt-
ingartillaga Gils Guðmundssonar
alþingismanns, er miðaði að þvi
að tryggja frekar rétt sveitar-
félaga í þessu efni, hefðu verið
teknar inn í frumvarpið í
núverandi mynd þess.
Ráðherra sagði það sitt álit, að
orkan í iðrum jarðar væri sam-
eign allra landsmanna og hana
bæri að nýta í almenningsþágu.
Frumvarpið hefði verið borið
undir lagadeild Háskóla Islands
og hefði það verið álit
deildarinnar, að frumvarpið bryti
ekki í bága við eignarréttar-
ákvæði stjórnarskrárinnar.
dæmið síðan gert upp þegar séð
yrði hver stofnkostnaðurinn yrði.
En á fjárlögum voru veittar 2,5
milljónir kr. I þessu skyni. Sagði
Björn, að farið yrði hægt af stað
og þessi upphæð látin duga. En
vonir standa til að á næstu fjár-
lögum fáist álíka upphæð með
verðlagsbótum og að þá verði
hægt að byrja á öðru útibúi fyrir
Austfirði, líklega í Neskaupstað.
Fyrir Norðurland hefur Fjórð-
ungssamband Norðurlands svo
stungið upp á, að slík rannsókna-
stofnun verði í framtíðinni á
Siglufirði. En Suðurlandi þjónar
rannsóknastofnunin í Reykjavik.
Og í Vestmannaeyjum hafa fisk-
vinnslufyrirtækin rekið rann-
sóknastofnun fyrir fiskiðnaðinn
sem sjálfseignastofnun síðan
1962, aðeins styrkt af ríkinu með
launum forstöðumanns. Og mun
hugmyndin að þessum útibúum
þaðan komin.
— Á Isafirði höfum við hugsað
okkur að verði til að byrja með
nokkuð góð aðstaða til efnafræði-
legra mælinga, en gerladeild
verður ekki þar að svo stöddu,
sagði Björn. Þetta útibú á að
þjóna öllum Vestfjörðum. Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins á að
reka útibúið, en ætlazt er til þess,
að gjald sé tekið 'fyrir efnafræði-
lega þjónustu og komi upp í hluta
af kostnaði. Hins vegar segja
Vestfirðingar með réttu, að þeir
greiði í sínum útflutningsgjöldum
árlega fé, sem ætlað er til rann-
sóknaþjónustu fyrir fiskiðnaðinn,
en sem þeir fái ekki notið sam-
bærilega við höfuðborgarsvæðið.
Einn efnafræðingur verður
fyrst um sinn starfandi á rann-
sóknastofunni á ísafirði og sagði
Björn, að þeir hefðu i það starf í
huga mann sem er Isfirðingur.
Yrði þarna ráðinn fastur for-
stöðumaður, en að sjálfsögðu væri
nauðsynlegt að fá aðstoð með
ýmsar sérstakar rannsóknir frá
stofnuninni í Reykjavik og sér-
fræðingar yrðu tíðir gestir til að
standa fyrir tilraunum sem fram
fara á slíkum stöðum. Otibúin
yrðu þjónustustöðvar og að auki
væri oft betra að stunda ýmsar
framleiðslutilraunir þarna við
ströndina, en undirstöðutilraunir
yrðu áfram á Rannsóknastofnun-
inni í Reykjavík.
Ingólfur Jónsson alþingis-
maður sagði, að iðnaðarnefnd
hefði ekki orðið sammála um af-
stöðu til frumvarps þessa á
síðasta þingi. Hefði minnihlutinn
lagt til, að því yrði vísað til ríkis-
stjórnarinnar til nánari athug-
unar og skyldi endurskoðun þess
framkvæmd í samráði við Stéttar-
Framhald á bls. 16
FRUMVARP til laga um verðjöfn-
unargjald af raforku var til 1.
umræðu í neðri deild Alþingis í
gær. Gerir frumvarpið ráð fyrir
13% verðjöfnunargjaldi á raf-
orku á siðasta stigi viðskipta, sölu-
verð til notenda. Verðjöfnunar-
gjaldið rennur til Orkusjóðs „til
að bæta fjárhag Rafmagnsveitna
ríkisins skv nánari ákvörðun
stjórnar Orkusjóðs og ráðherra
orkumála". Ennfremur gerir
frumvarpið ráð fyrir því að veita
RARIK eftirgjöf á bráðabirgða-
lánum ríkissjóðs að fjárhæð 147
milljónir króna og að ríkissjóði sé
heimilt að endurgreiða bráða-
birgðalán Seðlabanka Islands,
sem veitt var ríkissjóði í nafni
Rafmagnsveitna ríkisins árið
HÓPUR norður-irskra barna kom
til landsins I gær á vegum Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar og ým-
issa sjálfboðaliða fyrir austan
Fjall. Börnin eru 21 að tölu, á
aldrinum 12—14 ára og öll frá
Londonderry og nágrenni. Þau
eru ýmist kaþólsk eða mótmæl-
endatrúar. Með þeim komu tveir
frskir fararstjórar.
Irsku börnin munu dveljast hér
til 26. ágúst. Fyrst í stað munu
þau búa í Hlíðardalsskóla en
siðan búa á einkaheimilum i
Hveragerði. Þetta er þriðja
sumarið, sem Hjálparstofnunin
R ANN SOKN ASTOFNUN land-
búnaðarins keypti sl. vor Möðru-
velli I Hörgárdal og er að flytja
þangað Tilraunastöðina á Akur-
eyri. Er áformað að losa sig í
framhaldi af því við Gróðrastöð-
ina á Akureyri. Að Möðruvöllum
á að flytja sem mest af starfsemi
landbúnaðarrannsókna á Norður-
landi og leiðbeiningaþjónustuna í
Eyjafirði. Einnig er áformað að
koma þar upp 100 kúa tilrauna-
fjósi og er verið að teikna það.
Mbl. fékk þessar upplýsingar
hjá dr. Birni Sigurbjörnssyni, for-
stöðumanni Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins, sem var á förum
1973, að fjárhæð 130 milljónir
króna.
Magnús Kjartansson orkumála-
ráðherra mælti fyrir frumvarp-
inu. Ráðherra sagði m.a., að slíkt
verðjöfnunargjald, bundið við
fasta upphæð, 35 mkr., hefði kom-
ið til árið 1965 og verið hækkað i
70 mkr. árið 1969. Þetta rekstrar-
framlag til Rafmangsveitna ríkis-
ins hefði síðan farið ört lækkandi
að verðgildi i verðbólgunni og því
þætti rétt að binda það nú við
ákveðna prósentutölu af seldri
raforku. Ráðherra gat þess og, að
áætlaður rekstrarhalli fyrirtækis-
ins á yfirstandandi ári hefði verið
272 mkr., en endurskoðun áætlun-
ar í mafmánuði sl. hefði leitt í
ljós, að hallinn myndi verða 349
bíður norður-írskum börnum
hingað til dvalar til hvíldar frá
átökum og hermdarverkum, sem
heita mega daglegt brauð i heima-
högum þeirra. Hefur orðið mjög
SALTFISKFRAMLEIÐSLAN I
sumar hefur verið meiri en um
norður, þar sem halda á stjórnar-
fund rannsóknastofnunarinnar á
föstudag, til að ræða um starfsem-
ina á Möðruvöllum. Stjórnina
skipa: Bjarni Arason, ráðunautur
í Borgarfirði, stjórnarformaður,
Ásgeir Bjarnason, alþingismaður
og Jóhannes Sigvaldason, for-
stöðumaður rannsóknanna á
Norðurlandi. Tilraunastjóri á
Möðruvöllum er Bjarni Guðleifs-
son.
Möðruvellir í Hörgárdal eru
ríkisjörð og er er helmingur
hennar kirkjujörð. En Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins
hefur keypt hús og annað af bónd-
anum Eggert Davíðssyni.
mkr. Ráðherra sagði, að þessi til-
högun hefði óveruleg áhrif á vísi-
tölu, þótt söluverð raforku hækk-
aði sem gjaldi þessu næmi skv.
lögunum.
Ingólfur Jónsson Alþingismað-
ur minnti á, að frumvarp þetta
hefði verið flutt í aprilmánuði sl.,
vísað til iðnaðarnefndar, en ekki
fengið afgreiðslu þar. Hann gat
þess og, að umsagnir um frum-
varpið, sem borizt hefðu,
væru mjög neikvæðar. Hann
benti á tvö atriði, sem íhuga
þyrfti í meðferð málsins.
Hið fyrra væri, að skv. frum-
varpinu myndu þær rafveitur,
sem hæsta hefðu gjaldskrá, og því
þeir neytendur, er keyptu raf-
Framhald á bls. 16
góð reynsla af dvöl norður-írsku
barnanna hér á landi og er jafn-
vel í ráði að auka þennan þátt í
starfi Hjálparstofnunarinnar á
næsta sumri.
langt árabil, og þar af leiðandi
eru nú til nokkrar birgðir af salt-
fiski f landinu. Að sögn Tómasar
Þorvaldssonar, stjórnarformanns
Sölusambands fsl. fiskfram-
leiðenda, er nú ætlunin að fara að
huga að sölu á þessum fiski. 1 þvf
sambandi sagði Tómas, að ekki
væri búizt við þvf, að saltfisk-
verðið hækkaði frekar úr þvf sem
komið væri, jafnvel mætti gera
ráð fyrir, að það sigi eitthvað.
Hann kvað þó enga svartsýni
rfkjandi I bækistöðvum fiskfram-
leiðenda hvað verðlagsmál salt-
fisksins snerti.
Vertíðarframleiðslan á saltfiski
í vetur varð samtals um 32
þúsund tonn og reyndist heldur
meiri en fyrst var gefið upp í vor.
Framhald á bls. 16
r
Ovænt úrslit
FJORIR leikir voru I bikar-
keppni Knattspyrnusambands Is-
lands f gærkvöldi. Óvæntustu úr-
slitin urðu tvfmælalaust f Vest-
mannaeyjum, þar sem annarrar
deildar lið Völsunga frá Húsavfk
sigraði heimamenn með 2 mörk-
um gegn engu, og er þar með
komið f undanúrslit.
A Akranesi sigruðu heima-
menn bikarmeistara Fram frá í
fyrra með tveimur mörkum gegn
engu og skoraði Teitur Þórðarson
bæði mörkin. A Laugardalsvelli
sigraði Víkingur KR með 3 mörk-
um gegn 2 eftir framlengingu.
Eftir venjulegan leiktfma var
staðan 1—1. Páll Björgvinsson
skoraði tvö mörk Vfkings en var
sfðan vikið af leikvelli er 2 mfnút-
ur voru eftir. Kári Kaaber gerði
þriðja mark Vfkings en þeir Ottó
Guðmundsson og Ólafur Lárusson
mörk KR. Valsmenn sigruðu
Keflvfkinga á útivelli með 3—1.
Eftir venjulegan leiktfma var
staðan 1—1 og skoraði Steinar
Jóhannsson fyrst fyrir Keflvfk-
inga úr vfti, en Aiexander jafnaði
fyrir Val skömmu fyrir Ieikslok. 1
framlengingunni skoruðu svo
Helgi Benediktsson og Atli Eð-
valdsson og tryggðu Val öruggan
sigur.
Framhald á bls. 16
Hagnýting jarðhita
Verðjöfnunargjald af raforku
Flytja tilraunastöðina á
Akureyri að Möðruvöllum
Verður miðstöð landbúnaðar-
rannsókna á Norðurlandi
Mikil sumarfram-
leiðsla á saltfiski