Morgunblaðið - 15.08.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGUST 1974
Ungir íslendingar á
norrænni tónlistarhátíð
DAGANA 30.6. — 6.7. var haldin
samnorræn tónlistarhátíð í Piteá I
N-Svíþjóð á vegum Ung Nordisk
Musikfest, en svo nefnast samtök
tónlistarfólks undir þrítugu á
Norðurlöndunum fimm.
í ár voru tslendingar í fyrsta
sinn virkir þátttakendur I félags-
skapnum, sem hefur það markmið
annars vegar að flytja verk ungra
Mannár í iðnaði
nær tvöfölduð-
ust 1950-1970
AF 1997 iðnfyrirtækjum, sem
starfrækt voru á Islandi 1969,
höfðu aðeins 49 yfir 40 starfs-
menn I vinnu, eða 2,5% af
heildarfjölda iðnfyrirtækja. 72%
fslenzkra iðnfyrirtækja 1969
höfðu hins vegar aðeins 5 starfs-
menn eða færri. I Noregi á árinu
1967 höfðu 46,3% iðnfyrirtækja 5
menn eða færri í vinnu, en 7,9%
iðnfyrirtækja þar I landi höfðu
yfir 50 menn starfandi.
Þessar tölur eru birtar í ritinu
„Opinberar aðgerðir og atvinnu-
lífið 1950—70“, sem nýkomið er
út á vegum samtaka iðnrekenda
og iðnaðarmanna og Hagvangur
hf. hefur unnið.
Þar kemur einnig fram, að
mannár í öðrum iðnaði en fiskiðn-
aði voru 7855 árið 1950 en 14154
1970. Vísitala atvinnumagns í
iðnaði, sem var 100 árið 1950, var
167 árið 1967, en hæst var hún
1966 eða 168,9. Hluti vinnuafis í
iðnaði af heildarmannafla jökst
frá 1950—70 úr 13,3% í 16,4%, en
þetta hlutfall var hæst 1964 eða
17,7%.
norrænna tónskálda og gefa þeim
þannig tækifæri til að heyra verk
sín 1 flutningi og endurspegla um
leið þá tónsmíðaiöju, sem ung tón-
skáld stunda á Norðurlöndum, en
hins vegar hefur félagsskapurinn
það markmið að auka samskipti
hvers kyns ungs norræns tón-
listarfólks.
Þetta er gert með árlegum
hátíðarhöldum 1 formi tónleika,
fyrirlestra og samræðuhópa. Á
hátíðinni í ár voru haldnir 6 tón-
leikar, tvennir hljómsveitartón-
leikar og fernir kammertónleikar.
Hljómsveitin var skipuð um 100
manns, sem flestir eru nemendur
í hljóðfæraleik á einhverju
Norðurlandanna. Stjórnendur
hennar voru Svíarnir Per Lyng og
Siegfried Naumann. Kórar þeirra
Bo Johansson frá Sviþjóð og
Arnulv Hegstad frá Noregi
sungu undir þeirra stjórn. Fjöldi
einsöngvara kom einnig fram. Þá
fengu elektrónisk tónlist og
„musique concréte" sinn skerf og
sömuleiðis popp og jazz.
Fyrirlestrar voru haldnir
daglega og voru fyrirlesarar þrír
Svíar: Jan Ling, sem talaði um
hlutverk tónskáldsins i þjóðfélag-
inu gegn um aldirnar, Per-
Gunnar Alldahl, sem talaði um
„improvisasjón“ i tónsmíðatækni
og Sune Smedeby, sem talaði um
hóp-,,improvisasjón“.
Alls tóku um 250 manns þátt i
hátíðinni, en héðan frá íslandi
fóru 17 manns, og voru þar af 13
virkir þátttakendur. Sjö þeirra
voru tónskáld, Áskell Másson,
sem átti Silju, verk fyrir slag-
verk; Bergljót Jónsdóttir, sem átti
Pentu, verk fyrir blandaðan kór;
Jónas Tómasson, sem átti Cantötu
II, verk fyrir einsöng og 5 hljóð-
færaleikara; Karólína Eiríks-
dóttir, sem átti Helix, verk fyrir 7
einsöngvara; Snorri S. Birgisson,
sem átti Andlegar Vibrationir,
verk fyrir flautu og píanó; Þor-
steinn Hannesson, sem átti Demo-
kratiskt verk fyrir generator og
trompet og Þorsteinn Hauksson,
sem átti „Humma?" verk fyrir 2
sópran- og 1 bassasöngvara. Sex
hljóðfæraleikarar fóru; Ágústa
Jónsdóttir fiðluleikari, Dóra
Björgvinsdóttir fiðluleikari,
Guðrún S. Birgisdóttir flautu-
leikari, Hlff Sigurjónsdóttir fiðlu-
leikari, Öskar Ingólfsson klari-
nettleikari og Sigríður Vilhjálms-
dóttir óbóleikari.
Samtök þessi hafa starfað frá
1946. Er einungis nokkurra
manna nefnd í hverju landi, sem
sér um móttöku verka til flutn-
ings á hátíðunum. Sfðan eru
verkin afhent þarlendri dóm-
nefnd, sem sker úr hver séu flutn-
ingsverð. Nefndirnar sjá svo um
að fá flytjendur að verkunum.
Þeir eru gjarnan valdir af öðru
þjóðerni en höfundur.
Störf nefndarmanna og þeirra
hljóðfæraleikara, sem þær fá til
liðs, eru öll unnin endurgjalds-
laust, en Menningarsjóður
Norðurlandanna styrkir hátíðar-
höldin. Sakir mikils ferðakostn-
aðar fyrir íslenzku þátttakend-
urna hafa ýmsir íslenzkir aðilar
styrkt þá og má nefna borgar-
stjórn, menntamálaráðuneyti,
menntamálaráðherra og STEF.
Einnig hafa nefndarmenn efnt til
happdrættis.
Hátíðin er haldin árlega eins og
fyrr segir og skiptast löndin á að
sjá um hana. Næsta hátíð verður
haldin í Helsinki í Finnlandi
dagana 23.2 — 2.3 1975.
(Frá UNM-nefndinni á Islandi),
Leiðrétting
I FRÉTT um eyðileggingu lista-
verka í búi Storrs í Mbl. s.l. föstu-
dag urðu þau mistök, að nafn
Pauls Gaimards misritaðist. Þá
sagði ennfremur, að Gaimard
hefði gert myndirnar, en það er
ekki rétt, þær eru gerðar af lista-
manninum Auguste Mayer, sem
var í leiðangri Gaimards.
Af gefnu tilefni neyðumst vér
nú til að fylgja fast eftir 50%
fyrirframgreiðslu á allri inn-
römmun.
Ásbrú Njá/sgötu, Innrömmum Árna ytri Njarðvík
Innrömmun Eddu Borg Hafnarfirði
Innrömmunin Garðastræti
Rammaiðjan Oðinsgötu.
Utsala — Utsala
Mikil verölækkun.
GLUGGINN,
Laugavegi 49.
Chevrolet Pick-up
Til sölu '73 módel. Lítið ekinn. Sérlega góður
og fallegur bíll. Sími 34033.
Bútasala
Gluggatjaldadeild Últímu,
II. hæð, Kjörgarði.
Höfum fyrirliggjandi Fiat 125 P
fólksbifreiðar til afgreiðslu strax.
Gott verð, góðir greiðsluskilmálar.
Davíð Sigurðsson hf.,
Fiat-einkaumboö á Islandi,
Síöumúla 35.
ÚTSALA — ÚTSALA
Urval af peysum á alla íjölskylduna.
Einnig garn, bútar og ýmiss annar fatnaður.
Hefst í dag fimmtudaginn 15. ágúst.
Anna Þórðardóttir li. f.,
Skeifan 6, vesturdyr.