Morgunblaðið - 15.08.1974, Page 24

Morgunblaðið - 15.08.1974, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGUST 1974 För Þórs til Útgaröa-Loka Snorra Edda, Gylfaginning svo.“ Þá taka þeir aftur annað skeið, og þá er Hugi kemur til skeiðsenda og hann snýst aftur, þá var langt kólfskot til Þjálfa. Þá mælti Útgarða-Loki: „Vel þykir mér Þjálfi renna skeiðið, en eigi trúi ég honum nú, að hann vinni leikinn, en nú mun reyna, er þeir renna hið þriðja skeiðið.“ Þá taka þeir enn skeió. En er Hugi er kominn til skeiðsenda og snýst aftur, er Þjálfi eigi kominn á mitt skeið. Þá segja allir, að reynt sé um þennan leik. Þá spyr Útgarða- Loki Þór, hvaða íþróttir það muni vera, er hann muni vilja birta fyrir þeim, svo miklar sögur sem menn hafi gert um stórvirki hans. Þá mælti Þór, að helst vilji hann það til taka, að þreyta drykkju við 1B£E- ÞETTA er skotbakki, sem strákarnir bjuggu til. Þeir náðu í 6 tómar dósir, máluðu tölustafi á hverja þeirra, settu þær upp á kassann og síðan hófst stigakeppni í að skjóta dósirnar niður. Stigafjöld- inn fer eftir því, hvaða tölur eru á dósunum — sá vinnur, sem flest hefur stigin að sjálfsögðu. einhvern mann. Útgarða-Loki segir, að það megi vel vera, gengur inn í höllina og kallar á skutilsvein sinn, biður, að hann taki vítishorn það, er hirðmenn séu vanir að drekka af. Því næst kemur fram skutil- sveinn með hornið og fær Þór í hönd. Þá mælti Útgarða-Loki: „Af horni þessu þykir þá vel drukkið, ef í einum drykk gengur af, en sumir drekka af í tveimur drykkjum, en enginn er svo lítill drykkju- maður, að eigi gangi af í þremur.“ Þór lítur á hornið og sýnist ekki mikið, og er þó heldur langt, en hann er mjög þyrstur og tekur að drekka og svelgur allstórum og hyggur, að eigi skuli hann þurfa að lúta oftar í hornið. En er hann þraut erindið og hann laut úr horninu og sér, hvað leið drykknum, líst honum svo sem alllítill munur muni vera, að nú sé lægra í horninu en áður. Þá mælti Útgarða-Loki: „Vel er drukkið og þó eigi mikið; eigi mundi ég trúa, ef mér væri frá sagt, að Ása-Þór mundi eigi meiri drykk drekka, en þó veit ég, að þú munt vilja drekka af i öðrum drykk.“ Þór svarar engu, setur hornið á munn sér og hyggur nú, að hann skuli drekka meira drykk, og þreytir drykkjuna sem honum vanst til erindi; og enn sér hann, að stikillinn hornsins vill ekki upp svo mjög, sem honum líkar. Og er hann tók hornið af munni sér og sér í, líst honum nú svo, sem minna hafi þorrið en hinu fyrra sinni. Er nú gott beranda borð á horninu. Þá mælti Útgarða-Loki: „Hvað er nú, Þór? Muntu nú eigi spara til eins drykkjar meir en þér mun hagur á vera? Svo líst mér, ef þú skalt nú drekka af horninu hinn þriðja drykkinn, sem þessi muni mestur ætlaður. En ekki muntu mega hér með oss heita svo mikill maður sem æsir kalla þig, ef þú gerir eigi meira af þér um aðra leika en mér líst, að um þennan muni vera.“ Þá varð Þór reiður, setur hornið á munn sér og drekkur sem ákafast hann má og þreytir sem mest drykkinn. En er hann sá í hornið, þá hafði nú helst nokkur munur á fengist. Þá býður hann upp hornið og vill eigi drekka meira. Þá mælti Útgarða-Loki: „Auðsætt er nú, að máttur þinn er ekki svo mikill, sem vér hugðum, en viltu freista um fleiri leika? Sjá má nú, að ekki nýtir þú hér af.“ Þór svarar: „Freista má ég ANNA FRÁ STÓRUBORG — saga frá sextándu öld „Þá má ég vonandi hjálpa þér af baki.“ „Ég þakka fyrir,“ mælti Anna og þáði hjálpina. „Og hvert er erindið?“ „Kaupa af þér Hvamm,“ mælti Anna brosandi. „Ekki er það lengi gert,“ mælti Sigvaldi með uppgerðar- alvöru. „Ég hafði þarna kaupvott með mér, ef ganga skyldi sam- an með okkur. Hinn kaupvottinn átt þú auðvitað að leggja til.“ „Einhver ráð verða með það.“ Fylgdarmaður önnu og vinnumenn Sigvalda litu hvorir á aðra. Þeir trúðu þessu. „Er ]>á ekki be/t, að við komum inn í bæinn til að koma okkur saman um jarðakaupin?" mælti Sigvaldi með sömu blessaðri hægðinni og áður. „Ekki inn i bæ. En á einmæli vildi ég gjarnan fá þig.“ „Jæja, þá skulum við koma héma upp að brekkurótun- um. Gerir það nokkuð til, þó að hamrabúarnir heyri til f>kkar?“ „Nei, tröllin eru trygg og okkur vinveitt, nábúum sinum.“ „Ojæja, stundum.“ TTppi við brekkuræturnar settust þau niður. „Það er vandamál og trúnaðarmál, sem ég hefi að tala um við þig,“ mælti Anna. „Mig grunaði, að svo væri.“ Anna horfði fast á hann. Henni fannst sauðarsvipurinn hverfa alltaf meira og meira, en undir „blíðalogninu“ birtast djúp spaklegrar hugsunar og öruggrar einlægni. „Ég þarf að leita ráða og ásjár til þín.“ „Það er mér óvæntur heiður. Það gera ekki margir, sem betur fer. Þeir treysta ekki „bliðalogninu“! Hætt er líka við, að ráðin mundu fljótt þrjóta og ásjáin verða lítils virði, ef margir þyrftu á slíku að halda.“ „Því betur, sem færri leggja sporin heim til þín í slík- um erindum. Þú veizt, að ég hirði ekki um troðna vegi.“ Sigvaldi þagði um stund og hugsaði. „Það er um Hjalta, sem þú vilt tala við mig,“ mælti hann. „Já, það er um Hjalta.“ „Mig grunaði það undireins." „Sérðu nokkur sköpuð ráð?“ Sigvaldi þagði lengi og var hugsi. „Ég veit ekki,“ mælti hann loks. „Ég hefi lítið um þetta hugsað.“ „En þó ofurlitið?“ Anna fór að verða forvitin. „Já, ofurlítið. Ég vissi, að þú mundir koma. „Hvernig vissirðu það?“ „Ég veit það ekki. Það var eins og mér væri sagt það.“ eftir Jón Trausta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.