Morgunblaðið - 22.08.1974, Page 1
28 SÍÐUR
154 tbl. 61. árg.
FIMMTUDAGUR 22. ÁGtJST 1974
Prentsmiðja Morgunhlaðsins.
Ford fer í
framboð ’76
Lík grafið upp úr gröf í tyrkneska þorpinu Aloda norður af Famagusta. Tyrkir
segja, að grískir Kýpurbúar hafi tekið þar af lífi konur og börn þorpsins og
grafið þau í fjöldagröf. Myndin sýnir, þegar erlendum fréttamönnum var sýnd
gröfin.
Washington 21. ágúst — AP.
TALSMAÐUR Fords
Bandaríkjaforseta skýrði
frá því, að Ford hefði
ákveðið að bjóða sig fram í
forsetakosningunum 1976.
Það var blaðafulltrúi for-
setans, Jerald F. Terhorst,
sem flutti fréttamönnum
þessi skilaboð, en hann
sagði jafnframt, að óvíst
væri, hvort Nelson Roeke-
feller yrði varaforsetaefni
Fords.
Terhorst tók það samt
fram, að þetta bæri ekki að
túlka sem svo, að Ford
ætlaði að losa sig við
Rockefeller áður en hann
leitaði kjörs.
Fyrir 13 dögum lýsti
Ford því yfir opinberlega,
að hann hefði ekki áhuga á
að ná kjöri sem forseti.
Rockefeller sagði hins veg-
ar á þriðjudag, að hann
teldi allar líkur á því, að
Ford færi í framboð.
Merkur fornleifafundur á íslandi:
VILL STJORNMALA-
SAMBAND VIÐ KÚPU
Panamaborg, 21. ágúst —
NTB, AP.
PANAMA er reiðubúin til að taka
upp stjórnmálasamband við Kúbu
eins fljótt og hægt er, eftir því
sem skýrt var frá af opinberri
hálfu.
Sendinefnd stjórnarinnar mun
brátt halda til Kúbu til að ná
samkomulagi við Havanna-stjórn
ina um þetta atriði.
Bandariska utanríkisráðuneyt-
ið hefur lýst vonbrigðum sinum
með þessa ákvörðun Panama-
stjórnar.
Fjöl með Hríngaríkisútskurði
frá 11. öld fannst í Gaulverjabæ
FYRIR nokkru fann Guðjón
Sigurðsson bóndi i Gaulverjabæ f
Gaulverjabæjarhreppi merkilega
fjöl og nú hefur komið f Ijós, að
fjöl þessi, sem er með Hringa-
rfkisútskurði, er frá 11. öld. Það
voru þau Guðrún Sveinbjarnar-
dóttir fornleifafræðinemi, Helgi
Þorláksson sagnfræðingur og
Margrét Hermannsdóttir forn-
leifafræðinemi, sem uppgötvuðu
gildi fjalarinnar, er þau voru I
heimsókn I Gaulverjabæ við leit
að öðrum fornminjum, sem þau
fundu ekki. Kom þá Guðjón með
fjölina og sýndi þeim, en hana
hafði hann fundið úti á túni f vor.
Er þetta talinn einn merkasti
fornleifafundur á tslandi sfðari
ár.
Staðfestingu útnefning-
ar Rockefellers hraðað
Washington, 21. ágúst — AP.
LEIÐTOGI demókrata í
öldungadeildinni, Mike
Mansfield, lofaði á mið-
vikudag skjótum aðgerðum
við staðfestingu útnefning-
ar Nelsons Rockefellers
sem varaforseta.
Sagði Mansfield, að allt
yrði gert til að hægt yrði að
ganga frá staðfestingunni
fyrir þinghlé i október.
(Jtnefningu Rockefellers hefur
verið mjög vel tekió af þingmönn-
um, að gömlum óvinum hans úr
Repúblikanaflokknum undan-
skildum, þannig að öruggt má
telja, að hún verði staðfest.
Forsetar beggja deilda þings-
ins, sem báðar munu fjalla um
útnefninguna, hafa ekki viljað
segja hvaða dag nákvæmlega út-
nefningin verður sfaðfest.
Peter Rodino formaður dóms-
málanefndar fuiltrúadeildarinn-
ar sagði, að tekið gæti átta eða tíu
vikur að fjalla um Rockefeller
sem varaforseta.
Þór Magnússon þjóðminjavörður virðir fyrir sér f jölina frá Gaulverja-
bæ. Fjölin er um 60 sm löng og 20 sm breið.
Ljósm. Mbl.: Brynjólfur.
„Þessi fjöl er einn óvæntasti
hlutur, sem komið hefur I Þjóð-
minjasafnið sfðari ár, og segja
má, að hér sé um afmælisgjöf að
ræða á þjóðhátfðarárinu og þvf
ekki úr vegi að þakka þeim, sem
fundu fjölina fyrir einskæra til-
viljun,“ sagði Þór Magnússon
þjóðminjavörður, þegar við rædd-
um við hann f gær.
Hann sagði, að þessi Hringa-
ríkisútskurður frá 11. öld hefði
fundizt við og við á fornum fjöl-
um. Mætti þar nefna fjalirnar frá
Hólum f Eyjafirði og Möðrufells-
fjölina, en þó svipaði þessari fjöl
mest til fjalanna frá Flatatungu í
Skagafirði, sem komu í Þjóð-
minjasafnið fyrir tuttugu árum.
Skurður fjalarinnar frá Gaul-
verjabæ væri öruggur 11. aldar
skurður og væri þessi fundir með
ólikindum, aldrei áður hefði
fundizt fjöl af þessu tagi sunnan-
lands.
Þá sagði Þór, að Hringaríkisút-
skurður þekktist viða í V-Noregi á
Framhald á bls. 16
Tvrkir hóta stofnun lýðveldis á Kýpur
Nikósiu, 21. ágúst — AP, NTB.
LYÐVELDI Kýpur-Tyrkja verður
stofnað á norðurhluta Kýpur ef
Grikkir fallast ekki á að taka upp
viðræður við Tyrki um framtfð
eyjarinnar fljótlega. Það var Ieið-
togi tyrkneska minnihlutans á
Kýpur, Rauf Denktash, sem sagði
þetta á miðvikudag.
Ef Grikkir fallast ekki á að taka
upp viðræður á ný verður þriðj-
ungur Kýpur lýstur tyrkneskt
lýðveldi, sagði hann
Glafkos Kleredies forseti Kýp-
ur sagði um þessa yfirlýsingu
Denktash, að hún kæmi sér ekki á
óvart, þvf að ásetningur Tyrkja
hefði alltaf verið að skipta eynni.
Óvenju miklar rigningar juku á
miðvikudag á vanda þúsunda
flóttamanna, sem búið höfðu um
sig í skógum og opnum svæðum,
þar sem lítið skjól er að finna. En
vopnahléð hélzt áfram, þó að her-
menn Sameinuðu þjóðanna hefðu
nóg að gera við að koma í veg
fyrir að óeirðir brytust út á milli
gríska og tyrkneska þjóðarbrots-
ins.
Tyrkneski herinn krafðist þess
á miðvikudagsmorgun, að friðar-
gæzlusveitir S.Þ. hefðu sig á brott
frá hafnarborginni Famagusta.
Það eru sænskar sveitir, sem þar
hafa haldið uppi gæzlu. Neituðu
Sviarnir að fara fyrr en nánari
skýring kæmi frá Tyrkjum og sá-
ust þeir enn á götum borgarinnar
á miðvikudagskvöld.
Lögreglan í Nfkósiu handtók á
miðvikudag þrjá menn f sam-
bandi við óeirðirnar við banda-
ríska sendiráðið, sem leiddu til
þess, að bandaríski sendiherrann
Rodger Davies var myrtur. Tveir
hinna handteknu voru aftur látn-
ir lausir og lögreglan vildi ekkert
gefa upp um nöfn eða ákærur.
Embættismenn stjórnarinnar
sögðu, að unnið væri eftir öllum
leiðum í málinu undir persónu-
legri stjórn saksóknara Kýpur.
Forsætisráðherra Tyrklands,
Ecevit, ítrekaði á miðvikudag, að
Tyrkir væru reiðubúnir að endur-
skoða vopnahléslínur og draga
her sinn frá einhverjum hinna
herteknu svæða. Hann hvatti
jafnframt Grikki til að setjast á
ný að samningaborðinu og lýsti
sig reiðubúinn til að hitta
Karamanlis forsætisráðherfa
Grikkja í Aþenu.