Morgunblaðið - 22.08.1974, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 22.08.1974, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. AGUST 1974 27 Unglingamót HSH í sundi UNGLINGAMÓT HSH í sundi fór fram í sundlaug Ólafsvíkur 26. júli s.l. Keppt var í fjórum aldurs- flokkum og mættu til leiks um 40 þátttakendur frá þremur fé- lögum. Keppnisgreinar voru 18 talsins. 1 stigakeppni félaganna bar Ungmennafélagiö Víkingur I Ólafsvik sigur úr býtum, hlaut 131 stig. UMF Snæfell varö í öðru sæti með 14 stig og UMF Reynir, Hellissandi, i þriðja sæti með 13 stig. Stighæstu einstaklingar í aldursflokkakeppninni urðu sem hér segir: 1 flokki pilta 15—16 ára varð Guðlaugur Gunnarsson stighæst- ur með 11 stig. I flokki drengja 13—14 ára varð Randver Steins- son stigahæstur með 12 stig og í flokki stúlkna 13—14 ára varð Þorgerður Þráinsdóttir stighæst með 16 stig. I flokki pilta 11—12 ára hlaut Páll Sigurðsson flest stig, 11, og I sama aldursflokki stúlkna hlutu þær Ragna Mar- teinsdóttir og Indíana Jafetsdótt- ir flest stig, 8. I yngsta aldurs- flokknum, 10 ára og yngri, hlaut Sigurgeir Sigurgeirsson flest stig í piltaflokki og Lilja Stefánsdóttir flest stig I stúlknaflokki. Stig- hæstu einstaklingarnir í hverjum aldursflokki hlutu verðlauna- gripi, sem hjónin Guðrún Alex- andersdóttir og Stefán Jóhann Sigurðsson í Ólafsvík gáfu. Héraðsmót UMSB HÉRAÐSMÓT Ungmennasam- bands Borgarfjarðar fór fram að Varmalandi dagana 29. og 30. júnf s.l. Keppt var þar f 13 grein- um karla og 8 kvennagreinum. Sigurvegari f stigakeppni mótsins varð Ungmennafélagið Dagrenn- ing og Ungmennafélagið Is- lendingur sem hlutu 85 stig, en f öðru sæti varð Ungmennafélag Reykdæla með 57,5 stig. Sigurvegarar f einstökum keppnisgreinum urðu eftirtalin: KARLAR: Langstökk: Friðjón Bjarnason, SK 5,58 m. Kringlukast: Vigfús Pétursson, R 30,98 m. Kúluvarp: Jón Pétursson, R 9,94 m. Þrístökk: Friðjón Bjarnason, SK 12,22 m. Hástökk: Guðmundur Sigurðss., Di 1,65 m. Spjótkast: Sigm. Hermundss., Dí 46,18 m. Stangarstökk: Guðmundur Sigurðss., Dl 2,80 m. 100 metra hlaup: Jón Pétursson, R 12,4 sek. 400 metra hlaup: Sigurður Leósson, SK 60,2 sek. 1500 metra hlaup: Ágúst Þorsteinss., Di 4:59,8 mín. 5000 metra hlaup: Ágúst Þorsteinss., Dí 18:49,1 mín. 4x100 metra boðhlaup: Sveit Skallagrfms 54,0 sek. 1000 metra boðhlaup: Sveit UMF Dl 2:28,0 mín. KONUR: Langstökk: Ingibjörg Guðmundsd., R 4,30 m. Spjótkast: Eygló Einarsdóttir, Dl 21,41 m. Hástökk: Ingibjörg Guðmundsd., R 1,25 m. Kringlukast: Eygló Einarsdóttir, Dl 22,05 m. Kúluvarp: Ingibjörg Guðmundsd., R 7,06 m. 100 metra hlaup: Kristín Guðmundsd., Sk 14,9 sek. 400 metra hlaup: Agnes Guðmundsd., St 1:13,9 mín. 4x100 metra boðhlaup: Sveit UMF St. 67,0 sek. Félagslíf fFERÐAFÉLAG, ÍSLANDS ágúst. Norður fyrir Hofsjökul, 29. ágúst — 1. sept. Aðalblá- berjaferð i Vatnsfjörð. Ferðafélag íslands. Föstudagskvöld kl. 20. 1. Hitardalur, berjaferð, 2. Þórsmörk, 3. Landmannalaugar, 4. Kjölur — Kerlingarfjöll. Ferðafélag íslands, Öldugötu 3, simar: 1 9533— 1 1 798. Hjálpræðisherinn Fimmtudag kl. 20.30. Almenn samkoma. Lautinant Daniel Óskarsson stjórnar og talar. Komið og hlýðið á Guðs orð. Filadelfia Reykjavík Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30. Ungt fólk talar og syngur. Allir hjartanlega velkomnir. 24.-25. ágúst Ferð í Hrafntinnusker Nánari upplýsingar veittar á skrif- stofunni daglega frá 1 til 5 og á fimmtudags og föstudagskvöldum frá 8 til 10. Farfuglar. Eldri Farfuglar og yngri, hittumst öll í Valabóli og endurnýjum göm- ul kynni sunnudaginn 25. ágúst kl. 14.00. Farfuglar LANDNAMSPENINGUR Ásatrúarfélagið hefur látið slá minnispening í tilefni af því að í ár er haldið upp á 1100 ára af- mæli byggðar norrænna manna á íslandi. Peningurinn er hannaður af Jörmundi Inga og er að öllu leyti unninn hér heima, að undan- skildum stansinum, sem er gerður af Sporrong í Svíþjóð. Peningamir eru 44 mm í þvermál úr platínu, gulli, silfri og bronsi. Á framhlið- inni er mynd af Aski Yggdrasil, 12 st. platína verð kr. 160.000,00 200 st. gull verð kr. 60.000,00 800 st. silfur verð kr. 6.000,00 ......brons verð kr. 1.600,00 eins og honum er lýst í Eddu Snorra Sturlusonar, en á bakhlið er sólkross bundinn rúnum fjög- urra höfuðása Óðins, Freys, Þórs og Njarðar, ásamt áletruninni 1100 ár íslands einnig í rúnum. Sláttu peninganna lýkur í septem- ber, en sala er þegar hafin. Land- námspeninginn má panta beint frá Ásatrúarféljiginu með þyí að greiða verðgildi hans inn í gíró- rcikning Nr. 70008. Útsölustaðir í Reykjavík: Frímerkjamiðstöðin sf. Skólavörðustíg 21 Vcrzlunin Laugaveg 42 ÁSATRÚARFÉLAGIÐ 1 Fallegur og nytsamur hlutur, öskubakki eða veggplatti 3 Skemmtileg gjöf til vina og kunningja innan lands sem utan 2 Vandaðar umbúðir sem jafnframt eru póstkort

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.