Morgunblaðið - 13.10.1974, Síða 34
34
MORGUNBLAPIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÖBER 1974
Þónmn Amóra Sturhi-
dóttir frá Bolungavik
Fæddur 22. febrúar 1893.
Dðinn 3. september 1974.
„Hver á sér fegra föðurland,
með fjöll og dal-og bláan sand.“
Hulda.
Seyðisfjörður býður þeim í hug,
er siglir inn hann upp á friðsæld
og fegurð. Til Seyðisfjarðar kom
einn af landnámsmönnum og festi
rætur við fjörðinn. Fjörðurinn
mun hafa boðið upp á gott bjarg-
ræði til lands og sjávar, er hann
byggðist. Báðum megin fjarðar
byggðist hvert stórbýlið af öðru.
Á suðurströndinni utar miðju er
jörð, er heitir Þórarinsstaðir. Um
síðustu aldamót bjuggu þar hjón,
Sigurður Jónsson og Þórunn
Sigurðardóttir, hófu þar stórat-
vinnurekstur, útgerð og land-
búnað, er stóð iengi með miklum
blóma. Þeim Sigurði og Þórunni
fæddist sonur, er hlaut nafnið
Þórarinn. Hans vil ég nú minnast,
er hann er nú horfinn okkur. Það
er æði löng sjávargata að sjó frá
Þórarinsstöðum, en þaðan sést vel
til hafs upp á það hvernig sjó-
veður mundi verða, en við sjóinn
er mjög góð aðstaða, aðdýpi mikið
og gott að gera aðstöðu fyrir báta.
Þórarinn kynntist ungur öllum
störfum hjá föður sínum og var
strax þátttakandi í dagsins önn.
Því var viðbrugðið hvað mikil
reglusemi var á öllu, er við kom
Þórarinsstaðaheimilinu, er
Sigurður lifði. Að honum látnum
tók Þórarinn við búi og annarri
umsýslu, hann hélt sömu reglu-
seminni við. Frá Þórarinsstöðum
t
Innilega þakka ég þeim, sem auðsýndu mér samúð og hluttekningu
við andlát og útför eiginmanns míns
GÍSLA JÓHANNESSONAR,
Freyjugötu 19, Sauðárkróki.
Sérstaklega vil ég þakka læknum og starfsfólki sjúkrahúsinu Sauðár-
króki.
Jónína Árnadóttir.
t
ODDNÝ STEFÁNSDÓTTIR
frá Knarrarnesi
lést að Hrafnistu 7. þ.m. Útförin fer fram þriðjudaginn 1 5. október kl.
1 3.30 frá Fossvogskirkju.
Systur hinnar látnu.
t Sonur okkar, bróðir og faðir.
KARLSMÁRI MAGNÚSSON,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju, mánudaginn 14. okt. kl. 14.
kl. 14.
Leopoldína Bjarnadóttir, Magnús Pétursson,
Sigrfður E. Magnúsdóttir, Bjarni P. Magnússon,
Hallgrímur Þ. Magnússon, Sigrún K. Magnúsdóttir,
og Kristfn Karlsdóttir.
Bróðir okkar t
GÍSLI ÓLAFSSON,
loftskeytamaður.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15. október kl.
10.30.
Svava Ólafsdóttir,
Fjóla Ólafsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
HAUKUR HELGASON.
fyrrverandi húsvörður,
Kópavogsskóla,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1 5. október kl. 3
e.h.
Halldóra Guðmundsdóttir,
Helgi Hauksson,
Guðmundur Hauksson, Rannveig Þ. Garðarsdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug
viðfráfall
SIGRÍÐAR ÁSTHILDAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Hávallagötu 53.
Einnig færum við heimilislækni hennar, svo og læknum og hjúkrunar-
fólki deildar A-5, Borgarspltalanum þakklæti fyrir frábæra aðstoð og
hjúkrun í veikindum hennar.
Kristinn Kristjánsson,
Brynbildur og Geir R. Andersen,
Kristinn, fvar og Sigriður Ásthildur Andersen.
voru gerðir út 2 mótorbátar í
stærra lagi en bátar gerðust þá. Á
þessum bátum var einvala lið að
prúðmennsku og dugnaði, enda
þótti þeim áhöfnum vænt um hús-
bændur sína, þá Sigurð og Þór-
arin. Útgerð var mikii af fleiri frá
Þórarinsstaðaeyrum eins og þær
voru oftast nefndar. A stríðs-
árunum 1939—'45 varð svo mikil
röskun á aliri atvinnu, ekki sizt
hvað við kom útgerð. Verkunarað-
ferðir á fiski breyttust, allt varð
erfiðara, einnig að haida áfram
útgerð. Fólk átti kost á atvinnu
fyrir hátt kaup, svo að útgerð
lagðist niður að mestu leyti á Þór-
arinsstaðaeyrum. Þórarinn
Sigurðsson yfirgaf ekki jörð sína,
þótt hætt væri við útgerð. Hann
bjó á jörð sinni, snotru búi, um
lengri tíma, þó að flestir væru
burt fiuttir, er næst honum
bjuggu. Það kom að því, að hann
varð að yfirgefa jörð sína og skilja
hana eftir í eyði, sem fleiri hafa
þurft að gera. Þórarinn flutti inn
í Seyðisfjarðarkaupstað. Meðan
Þórarinn var á jörð sinni gegndi
hann hreppsstjórastarfi í Seyðis-
fjarðarhreppi. Allar skýrslur og
fleiri gjörðir hans í því starfi
leysti hann af hendi með snyrti-
mennsku, svo til var tekið. I
Seyðisfjarðarkaupstað vann hann
í mörg ár á skrifstofu hjá raf-
veitunum, þar fékk hann lof fyrir
starf sitt. Þórarinn Sigurðsson
var sérstakt prúðmenni f allri
framkomu. Hann var orðtraustur
maður, orðum hans mátti hver
treysta. Hann var þeim tryggur,
er hann tók tryggð við. Þórarinn
Sigurðsson var grandvar maður f
allri framkomu. Hann naut
virðingar þeirra, er kynntust
honum. Ég hef hér að framan
leitazt við að lýsa því sem mestu
máli skiptir, störfum og umhverfi
er Þórarinn Sigurðsson starfaði
að. Þau orð, sem eru úr kvæði
Huldu, sem ég tileinka Þórarni,
eiga við það umhverfi, er honum
var kærast. Minning um góðan
dreng geymist mér í huga.
Sigurður Stefðnsson
frá Stakkahifð.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför móður minnar,
GUÐBJARGAR JÓNS-
DÓTTUR,
frá Bolungarvfk.
Jensina Þórarinsdóttir,
Gfsli Guðmundsson,
Kristfn G. Gfsladóttir,
Konráð Gfslason.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
HJÁLMAR HALLDÓRSSON,
frá Seyðisfirði,
Rauðarárstfg 32,
lést 3 október.
Jarðarförin hefur farið fram.
Hrafnhildur Leifsdóttir,
Hildur Hjálmarsdóttir,
Leifur Hjálmarsson.
LOPAPEYSUR
Kaupum vel prjónaðar lopapeysur.
Hækkað verð. Móttaka alla virka
daga nema laugardaga kl. 9— 12.
Rammagerðin,
Hafnarstræti 19.
NYSM
ERUM FLUTTIR
með trésmíðaverkstæði okkar að AUÐBREKKU
63 Kópavogi.
Getum á ný tekið á móti pöntunum á ýmis
konar sérsmíði, í stærri og betri húsakynnum.
Eigum á lager meðal annars góða svefnbekki á
mjög lágu verði.
Grensásvegi 50 sími 81612
Auðbrekku 63, Sími 44600