Morgunblaðið - 13.10.1974, Síða 45

Morgunblaðið - 13.10.1974, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1974 45 Evelyn Anthony: LAUNMORÐINGINN Jöhanna v Kristjönsdöttir þýddi , 21 Keller hafði verið vikutíma í Bandaríkjunum og skap hans var orðið fúlt og jaðraði við beizkju á stundum. I heila viku hafði hann verið innilokaður með einhverju málverki, sem glápti á hann ofan af veggnum, hann las bækur sem hann fann í bókaskápnum, eina af annarri, horfði á sjónvarpið og beið eftir simtali, sem ekki kom. Enginn hafði reynt að ná sam- bandi við hann. Elisabeth Camer- on kom og fór, og reyndi að láta eins og ekkert væri, en spennan milli þeirra jókst dag frá degi. Elisabeth eldaði morgunverð og hádegisverð, síðan hvarf hún út og hann vissi ekki hvað hún að- hafðist það var sjálfsagt svipað og ríkar kellingar gerðu til að drepa tímann. Svo kom hún heim á kvöldin og þau sátu saman og horfðu á sjónvarpið. I fyrstu hafði hann þó farið snemma inn til sín, kastað sér á rúmið og reynt að sofna. Eftir fjórða daginn gafst hann upp, hann var reiður og argur og taugar hans þandar til hins ítrasta af óvissunni. Hann gat ekki sætt sig við slíka innilokun. Hann féllst því á að fara með henni út og skoða New York, og þrátt fyrir allt tókst honum smám saman að slaka á og hann fór að njóta þess sem fyrir augu bar. Þetta var ævintýraleg borg. Hann gat ekki líkt henni við neina af þeim stórborgum, sem hann hafði komið í áður. Svo ólík var hún til að mynda borgum f austurlönd- um, að hún hefði þess vegna getað verið á annarri plánetu. En borg- in var æsandi, iðandi og heillandi og engu lík. — Ég sé að þú ert hrifinn, sagði Elisabeth — þetta er ólfkt öllu f Evrópu. Þetta er allt svo banda- rískt. Og þú mátt bóka, að mér þykir vænt um það, einmitt fyrir þá sök. — Þú virðist ákaflega til- finningaheit, sagði Keller. — Það hlýtur að vera gott fyrir mann að þykja vænt um einhvern stað. — Hefur þér aldrei þótt vænt um þitt land? — Ég á mér ekkert föðurland, sagði hann. — Ég er fæddur í Frakklandi, en það skiptir mig engu. Ég er upp alinn annars stað- ar og munaðarleysingjahælin eru alls staðar eins geri ég ráð fyrir. Þau höfðu numið staðar við um- ferðarljós. Þegar grænt ljós kom aftur og hún ók af stað tók hann eftir því, að hún ók mjög vel. Hún hafði sagt dagsatt, þegar hún stað- hæfði, að hún væri bæði dugleg og kjörkuð. Þvf furðaði hann stundum á þeirri verndartil- finningu, sem greip hann gagn- vart henni. Hann hafði aldrei orðið þessarar tilfinningar var áð- ur; gagnvart Souha hafði þetta verið eins konar föðurleg um- hyggja. En þvflfkum kenndum var ekki að heilsa gagnvart Elisabeth Cameron. Hún ruglaði hann stöðugt f ríminu og var sífellt að koma honum á óvart og vaktí honum ýmsar hugsanir sem hann mundi ekki til að hefðu leitað á hann fyrr. Hann vissi líka, að hún var ekki verndarþurfi. Ekki eins og unga arabiska stúlk- an hans, sem engap átti að í þess- um heimi nema hann. Elisabeth Cameron var gædd sjálfsöryggi og hún átti gnægð fjár. Hún gat gert flest það, sem hugurinn grintist og flest virtist hún eiga auðvelt með að leysa af hendi til jafns við karla. Samt stóð hann sig að þvf að taka um handlegg hennar, þegar þau gengu yfir götu, eða langa til að bera fyrir hana pinklana hennar. Hann horfði á SIG6A V/öGA £ 1/LVEgAN VELVAKAIMOI Velvakandi svarar I sima 10-100 kl. 10.30 — 1 1.30, frá mánudegi til föstudags 0 Karlprestar — kvenprestar Herdfs Hermóðsdóttir á Eski- firði skrifar: „Heill þér Velvakandi. Satt að segja hefur nú skrifsýk- in náð tökum á mér enn einu sinni. Og tilefnið er hin einstæða þröngsýni Hannesar Guðmunds- sonar prests í Fellsmúla, er hann telur kirkjuna vera að fara út á hála braut, er hún vígir konur til prestsstarfa. Fyrir það fyrsta tel ég það klára meinloku hjá mann- inum að tala um kvenpresta. Kon- an var að vfsu vígð til prests og er aðeins prestur. Eða hver hefur nokkru sinni heyrt talað um karl- prest? Þess hefur ekki þótt við þurfa og hins þá ekki heldur. I annan stað er það bein móðgun við hinn nývígða prest, að hafa af þvf sérstakar áhyggjur, að „metn- aður og fordild" hafi ráðið gerð- um hennar. Eg minnist ekki að hafa orðið vör við slfkt áður, er prestar hafa hlotið vfgslu. En máski er það svo „að margur held- ur mann af sér“. Og blessaður Guðsmaðurinn, sem telur að kirkjan sé á glötunarvegi þegar hún vfgir konu til prestsstarfa, er hinn dæmigerði, þröngsýni, kreddu- klerkur, sem fylgt hefur kristn- inni frá fyrstu tfð. Mætti þá sá hinn sami hyggja að því, að einmitt slíkir menn í prestastétt hafa orsakað fráhvarf manna og þjóða frá kristinni trú og það svo mjög, að vfðast hvar er kvartað yfir trúardeyfð og lélegri kirkjusókn. Þar hafa ekki konur um ráðið. Enda getum við að því hugann leitt, að hvergi hefur Djöfullinn verið aðgangsharðari og gengið ljósari logum en hjá prestum þessa lands, að þeirra sjálfra sögn. Það er svo sannar- lega „söguleg staðreynd", ekki sfður en að kirkjan hefur i háveg- um haft, trúaðar, dauðar konur, sem sannarlega voru ekki hátt skrifaðar, né hátt hossað í lifenda lifi. Og hvernig dóu svo þessar konur? Öjú. Þær voru drepnar. Flestar brenndar lifandi eða þeim var drekkt. Og hverjir skyldu nú hafa orðið til þess að fremja slfk níðings- verk? Svo mikið er vfst, að það var ekki sauðsvartur, óupplýstur al- múginn. 0 Konur hinir einu sönnu trúboðar? Nei, það voru prestarnir og valdamennirnir. Hinir Guði þóknanlegu karlprestar og sýslu- menn, hérlendis sem erlendis, gengu skeleggast fram í að vinna þau verk, sem hljóta að verða talin til hinna verstu nfðings- verka sögunnar. Samt lét enginn þess getið, að kirkjunni stafaði hætta af að vígja karlana til starfsins. Enda munu þeir lengi verða f minnum hafðir Jón Magnússon þumlungur og Páll Björnsson í Selárdal, báð- ir vfgðir prestar „af Djöflinum undirtroðnir“, í óða önn við að koma sóknarbörnunum sínum á bálið. Allt sögulegar staðreyndir. Mér þykir illt til þess að vita, að í fslenzkri prestastétt skuli enn vera til aðrir eins þröngsýnis- menn og séra Hannes. En það gerir þó meira en vega það upp, að við eigum biskup, sem ekki sá neitt athugavert við það að taka konu opinberlega í þjónustu kirkjunnar með vígslu. Því það vita allir, að frá fyrstu dögum kristninnar til þessa dags, hafa fjölmargar konur unnið ómetanlegt starf í kirkjunum. Og ég vil meina, að konur hafi jafn- vel verið hinir einu sönnu trú- boðar á öllum öldum. Þær sáðu fræi trúarinnar í sálir barnanna og mér liggur við að segja, að án þeirra væri engin kristin trú í heiminum. Enda seg- ir hinn mikli kennimaður og þjóð- skáld Matthías Jochumsson svo um móður sfna: Eg hefi þekkt marga háa sál, ég hefi lært bækur og tungumál og setið við lista lindir, en enginn kenndi mér eins og þú hið eilífa og stóra, kraft og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir. 0 Hamingjuóskir til Auðar Eir Það lánast fáum að þakka móður sinni svo frábærlega og Matthiasi, en margir hefðu ef- laust viljað svo gera og ástæða til þess ærin. En litil er ræktarsemin og illa goldin fósturlaunin hjá þeim mönnum, sem meta konur ekki meira en séra Hannes gerir. Þó það standi f Bibliunni, að Páll postuli frá Tarsos hafi sagt, að konur ættu að þegja á manna- fundum, hef ég alltaf haft mfnar skoðanir á því, hvers vegna hann vildi svo vera láta og talið mig skilja ástæðuna. Hætt er við, að jafnvel Páli hefði gengið illa að mæla gegn mæðrunum, sem sýndu fram á uppleyst heimili og sveltandi börn, en menn þeirra færu að flækjast um með honum og boða trú í stað þess að vinna fyrir dag- legu brauði „i sveita sins andlitis", sem Biblfan þó boðar að menn skuli gera. Þvf fagna ég þeirri framför, að konur skuli nú í ríkara mæli en verið hefur hasla sér völl a fleiri starfssviðum og óska fyrstu kon- unni sem tekur prestvígslu á Is- landi séra Auði Eir Vilhjálmsdótt- ur til hamingju í starfi. Eskifirði 3.101974 Herdfs Hermóðsdóttir.“ 0 Rúmeníuferðin Hér er bréf frá Sigríði Guðjóns- dóttur um Rúmeniuferð, sem verið hefur til umræðu hér í dálk- unum að undanförnu. Enn bfður eitt bréf um sama efni birtingar, en þegar það hefur birzt, verða umræður um þetta mál látnar niður falla á þessum vettvangi: „Eftir að hafa lesið skrif Ólafs Markússonar um Rúmeníuferð 25/8—15/9 finnst mér ég verða að andmæla sumu af því sem kemur þar fram. Af skrifum hans að dæma hefur hann verið f heilsu- ræktinni. Þar er ég alveg ókunn. Aftur á móti fór ég með hópnurn sem fór til fjalla, og var sú ferð f alla staði skemmtileg. Þar er mikil náttúrufegurð, þar gistum við á hötel Carpati, sem er sér- staklega gott hótel. Við ströndina eru hótelin aðeins starfrækt yfir sumarmánuðina. Þau eru ekki bara glæsileg hið ytra, þau eru ágæt, herbergin rúmgóð með baði og þó ekki sé sími eða bjalla þá hefur maður það tæpast við rúmið sitt hér heima, og ég hef ekki trú á að fólk sé að fara f ferðalag til annarra landa, ef það getur ekki náð f aðstoð. Hreinlætisatstaða fannst mér vera f lagi. Það var að vfsu ekki sápa, en hana gat maður keypt á svipuðu verði og hér heima, salernispappfr gat maður fengið hjá stúlkunum, sem þrifu herbergin, en það var gert dag- lega og skipt um sængurföt annan hvern dag. Þá er það maturinn. Ekki veit ég hvernig mat Ólafur er vanur en ég efa að hann fái fjórréttað bæði i hádegi og á kvöldin. Mér fannst maturinn mjög góður og þjónustan í matsal til fyrirmynd- ar. Magaveiki held ég að hafi ekki verið meir en eins og allir geta fengið ef þeir borða eða drekka eitthvað, sem þeir eru óvanir hér heima. Bankaþjónusta var f hverju hóteli og engin vandræði að skipta peningum. Sólbaðs- ströndin var þrifin á hverjum morgni og um hið „drulluga Svartahaf“, þá var það hreinna en strendurnar við okkar ágæta land. Sundlaug var við hvert hótel svo fólk gat valið um. Hitinn var ósköp notalegur, 19—25°, en oft svolftil hafgola. Um betl og gripdeildir heyrði ég ekki. Farar- stjórarnir fjórir, Guðný, Margrét, Þórhallur og Páll stóðu sig með prýði, og vel ég færa þeim þakkir. Það er alltaf svo, að það verða ekki allir jafn ánægðir, og er vist sama hvar er, en þó held ég að fólk hafi verið yfirleitt ánægt með þessa ferð, og ég vona að sem flestir geti heimsótt þetta fagra land, Rúmeniu, og vinalega fbúa þess. Það er sannarlega þess virði. Sigrfður Guðjónsdóttir." - Þurrhreinsitæki Framhald af bls. 48 og hlytu þær lfka að koma niður á álframleiðendum eins og öðrum. Fyrirhugað er að taka upp við- ræður á næstuTini um stækkun álversins í Straumsvík. Verða stækkunaráform þá rædd nánar, en f raun er þegar samkomulag um það milli ISALS og rfkisvalds- ins, að kerskáli númer 2 verði stækkaður til jafns við skála núm- er 1 og ennfremur að hugsanlega verði reistir fleiri skálar. Þá lét rfkisstjórnin fyrir nokkrum árum kanna hagkvæmni þess að reist yrði álverksmiðja á Norðurlandi. Ekki vildi Ragnar S. Halldórsson álíta að það mál væri algjörlega úr sögunni. Frumkvæði ríkis- stjórnar þyrfti til, en á þeim tfma, sem hagkvæmnikönnunin hafi farið fram, hafi verið kreppa á álmarkaðinum (árið 1971) og undir slfkum kringumstæðum var ekkert vit í að hefjast handa. Hins vegar sagði Ragnar að ef mark- aðurinn héldist áfram jafngóður og hann er nú, þá gæti af þessu orðið. Samkomulag um rafmagns- verð er jafnframt tengt stækkunaráformum, þannig að um leið og stækkun verður gerð, hækkar rafmagnsverð. Á sama hátt verður einnig samið um framleiðslugjaldið, sem er skatt- greiðsla Islenzka álfélagsins. Ragnar S. Halldórsson sagði að framleiðslugjaldið hefði farið fram úr allri skynsemi á þessu ári. Nú verður skattgreiðslan væntanlega um 450 milljönir króna og ætti það að samsvara, ef ekki væri greidd nema 50% af hagnaði, að hagnaður væri 900 milljónir króna. Kvað hann þetta vera miklu meiri skattgreiðslu en aðrir greiddu, þar sem önnur fyrirtæki gætu greitt 25% í vara- sjóð áður en til álagningar kæmi. Því ætti hagnaður tSALs sam- kvæmt skattinum að vera um 1.000 til 1.200 milljónir króna, en á síðastliðnu ári var hagnaður félagsins aðeins 10 til 12 milljónir króna. Ragnar kvaðst vonast eftir einhverjum hagnaði á þessu ári, en hann væri þó ekki í neinu hlutfalli vjð skattgreiðsluna. Hitt kvað hann svo annað mál að félagið fengi skattinneign út á svo óhóflega skattgreiðslu, þar sem afkoman leyfði ekki slíkt, en skattur, sem greiddur hefði verið yrði ekki endurgreiddur. — Bergþurs Framhald af bls. 3 viljans afsökunar á þessum mistökum. Varmahlíð 8. október 1974 Ragnar Arnalds.“ „Ritstjórar Þjóðviljans viður- kenna af sinni hálfu þau mis- tök, sem áttu sér stað við birtingu þess efnis, sem Ragnar Arnalds fjallar um, og biðja hlutaðeigandi afsökunar." Þess má að lokum geta að höfundur þessa greinaflokks er Ulfar Þormóðsson blaðamaður við Þjóðviljann. — Óttast áhrif Framhald af bls. 48 hingað til Stykkishólms, og við erum að kanna möguleikana. Það er svo lítið spennandi að eiga við þetta og við erum að athuga möguleika á að láta búa mjög stekt net sem unnt væri að veiða háhyrning í, en þetta er nú allt á undirbúningsstigi". Ibúð óskast 3ja—4ra herb. íbúð óskast til leigu í Reykjavík. Tilboð merkt: „Reglusemi 6509”, sendist afgr. blaðsins fyrir 1 5. okt. n.k.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.