Morgunblaðið - 08.12.1974, Blaðsíða 48
jregpttiMðfrft
Ronson
Electronic
gjöfin, sem
vermir BONSON
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1974
Blönduósbátarnir
teknir eins oghverj-
ir aðrir lögbr jótar
SKIPSTJÓRAR rækjubát-
anna tveggja frá Blönduósi
— Aðalbjargar og Nökkva
hafa haidið áfram rækju-
veiðum á Húnaflóa, þrátt
fyrir veiðileyfissvipting-
una og munu hafa landað á
Blönduósi í gær. Morgun-
blaðið sneri sér til
Matthíasar Bjarnasonar
sjávarútvegsráðherra og
spurði hann hver yrðu við-
brögð stjórnvalda vegna
þessa, hvort iandhelgis-
ÞAÐ má með sanni
segja, að viðskiptalífið
blómstri ávallt i jóla-
mánuðinum. Þá gerast
ólíklegustu menn
kaupmenn og pranga
inn á náungann hinu
og þessu. Hér er Ljón-
ið Guðmundur Jóns-
son með eitt fórnar-
dýra sinna, Hauk
Bjarnason rannsókn-
arlögreglumann.
Haukur keypti Ijósa-
perur og virðist
ánægður með viðskipt-
in. Ekki er víst að
hann hafi gert góð
kaup, þegar kostnaðar-
verð hverrar peru er
reiknað út, en mis-
munurinn fer í gott
málefni — og það er
fyrir öllu. — Ljósm.:
Ól. K. M.
Þangmjölsverksmiðjan í gagnið í vor:
Samið um 5.000 tonna lág-
markssölu á ári í 10 ár
Braga Jósepssyni
sagtuppstörfum
MORGUNBLAÐINU er kunnugt
um, að dr. Braga Jósepssyni,
deildarstjóra í menntamálaráðu-
neytinu, hafi verið sagt upp störf-
um í ráðuneytinu. Blaðið hefur
ftrekað gert tilraun til þess að
hafa samband við dr. Braga
Jósepsson eða fá með öðrum
hætti upplýst, hvað valdi þessari
uppsögn, en það hefur ekki tekizt.
NVLKGA er hafið útboð á hluta-
fjáraukningu þangmjölsverk-
smiðjunnar á Reykhólum, en
ákveðið hafði verið að auka hluta-
fé verksmiðjunnar úr 68 milljón-
um króna f 100 milljónir. Nú hef-
ur verið gengið frá samningum
við skozka félagið, sem kaupir
framleiðslu verksmiðjunnar og
er þar samið um 5 þúsund tonna
lágmarkskaup á ári f 10 ár á lág-
marksverði, sem tengt er vísitölu
f brezkum efnaiðnaði. Fyrirhugað
er að verksmiðjan taki til starfa í
maí f vor og mun hún veita um 40
manns atvinnu.
Vilhjálmur Lúðvíksson hjá Iðn-
þróunarnefnd sagði í viðtali við
Mbl. i gær, að viðskiptasamningur
þangmjölsverksmiðjunnar við
skozka félagið, Alginate
Industries Ltd., væri nokkuð ein-
stæður miðað við markaðsöryggi í
dag, þar sem samið væri um lág-
marksverð bundnu vfsitölu. Hann
kvað vísitöluna, sem miðað væri
við, vera mjög háða olíuverði og
því ætti það að vera mjög hag-
kvæmt verksmiðjunni, sem fær
meginorku sfna frá jarðhita.
Orkukostnaður við þurrkun
þangs er alla jafna verulegurhluti
reksturskostnaðar slíkra verk-
smiðja. Umrætt lágmarksverð er
ekki umsamið söluverð — heldur
aðeins lágmarksverð og er það
umsemjanlegt aftur á hverju ári f
ijósi raunkostnaðar verksmiðj-
unnar og annarra hækkana.
Þegar hefur verksmiðjubygg-
ing þangmjölsverksmiðjunnar á
Karlsey verið reist og er hún nú
fokheld. Er verið að byrja á inn-
réttingum. Þá hefur verið gengið
frá þangmóttökuplani fyrir utan
húsið og verið er að ganga frá
undirstöðum undir mjölgeymslu-
turna, sem síðan verða reistir með
vorinu. Vélar i verksmiðjuna
koma til landsins í febrúar- eða
marzmánuði og verða þá settar
niður. Nú um þessar mundir er
verið að leggja hitaveitu frá Reyk-
hólum út i Karlsey og lagður
hefur verið út hafnargarður frá
eyjunni og út á svæðið, þar sem
25 handteknir
við Þórscafé
LÖGREGLAN f Reykjavfk átti
annrfkt fyrir framan skemmti-
staðinn Þórscafé í fyrrinótt.
Safnaðist mikill mannfjöldi þar
saman, og voru mjög margir áber-
andi ölvaðir. Kom til áfloga, án
þess þó að slys yrðu. Varð lögregl-
an að handtaka 25 manns vegna
ölvunar og óspekta, fyrir framan
skemmtistaðinn.
síðar verður gerð bryggja. Jafn-
framt er verið að leggja raflínu
frá Reykhólum og i eyna og er
fyrirhugað að setja niður disilraf-
stöð í verksmiðjubyggingunni, en
hún á að verða varaaflstöð fyrir
byggðarlagið. Standa vonir til
þess að vinnsla i verksmiðjunni
geti hafizt i mai í vor — ef allt
gengur sem horfir. Þó mun
hafnargerð vera talsvert á eftir
Framhald á bls. 47.
gæzlan yrði hugsanlega
sett til höfuðs þessum
bátum.
„Vitaskuld verða bát-
arnir teknir, eins og hverj-
ir aðrir lögbrjótar,“ svar-
aði ráðherra. „Þessar
veiðar eru háðar leyfum og
án þeirra mega bátar ekki
stunda þær.“ Vegna frétta-
tilkynningar forráða-
manna Særúnar, rækju-
verksmiðjunnar á Blöndu-
ósi, sem birtist í Mbl. i gær,
kvaðst ráðherra vilja
benda lögfræðingunum i
Reykjavík, sem að þessari
verksmiðju standa, á að
það hefði aldrei verið um
það deilt að rækjuveiðar
skyldu vera háðar ströng-
um Ieyfum og þær væru
undir vísindalegu eftirliti
fiskifræðinga á Hafrann-
sóknastofnuninni. Samfara
slíkum leyfum yrði að vera
samræming milli vinnslu-
staða. „Ég held að engum
detti í hug, ekki einu sinni
þessum löglærðu frjáls-
ræðispostulum í Reykja-
vík, að gefa eigi rækju-
veiðarnar frjálsar,“ sagði
sjávarútvegsráðherra.
Geirfinnsmálið:
iHinir eftirlýstu gefa sig ekki fram
ÞEGAR Mbl. hafði sam-
band við lögregluna í
Keflavík í gærdag,
skömmu áður en blaðið fór
í prentun, var fátt nýtt af
Geirfinnsmálinu að frétta.
Enginn þeirra fimm
manna sem lýst hefur ver-
ið eftir í sambandi vió
hvarfið, hefur gefið sig
fram. Eru enn ítrekuð þau
tilmæli lögreglunnar, að
þeir gefi sig fram hið
fyrsta. Lögreglan telur sig
vita með nokkurri vissu
hver það var, sem fór úr
landi daginn eftir að Geir-
finnur hvarf, undir fölsku
nafni. Eru litlar sem engar
líkur taldar á því, að hann
sé viðriðinn þetta mál.
Fulltrúar Norsk hydro kanna að-
stæður fyrir norðan og austan
NORSKA stóriðjufyrirtækið
Norsk hydro hefur sýnt áhuga á
þvf að setja hériendis á stofn stór-
iðju f samvinnu við fslenzk
stjórnvöld. Þetta mál er þó enn á
frumstigi, en starfssvið Norsk
hydro er einkum álbræðsla og
með tilliti til þess hafa fulltrúar
fyrirtækisins kynnt sér aðstæður
norðan lands og austan. Einnig
hefur verið rætt við fulltrúa
Norsk hydro um hugsanlega aðild
að rekstri sjóefnavinnslunnar á
Reykjanesi, en norska fyrirtækið
er stór framleiðandi á
magnesíum.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri og formaður viðræðu-
nefndarinnar um orkufrekan
iðnað, að undanfarin tvö ár hefðu
fulitrúar Norsk hydro átt við-
ræður við nefndina um þessi mál.
Jóhannes kvað þetta hafa verið
almennar könnunarviðræður um
hugsanlega samvinnu á sviði stór-
iðju í framtíðinni og viðræðurnar
þá einkum snúist um álbræðslu,
en einnig hefði sjóefnaverk-
smiðjan á Reykjanesi verið orðuð
við fulltrúa Norsk hydro. Jó-
hannes sagði ennfremur, að full-
trúar Norsk hydro hefðu verið
talsvert hér á landi og kynnt sér
aðstæður með tilliti til stofnunar
álbræðslu norðaniands og austan.
Jóhannes Nordal tók fram, að á
þessu stigi væri hér eingöngu um
könnunarviðræður að ræða. Málið
væri ekki komið á neitt samnings-
stig enn, heldur snerust við-
ræðurnar um gagnkvæma upplýs-
ingamiðlun.
Norska dagblaðið Adresse-
avisen hefur það nýlega eftir Jon
Storækre, talsmanni Norsk hydro,
að Norájt hydro hafi sem alþjóð-
legt fyrirtæki vakandi auga með
öllum möguleikum á að færa út
kvíarnar og um þessar mundir sé
Island sérstaklega áhugavert í þvf
sambandi. „Við getum aðeins
staðfest að um tíma höfum við
verið í sambandi við íslenzk
stjórnvöld um hugsanlega sam-
vinnu á sviði iðnaðarupp-
byggingar. Forsendan er að sjálf-
sögðu orkuskorturinn hér í
Noregi. Island er eitt af fáum
löndum sem enn hefur yfir veru-
legum ónýttum orkulindum að
ráða og Norsk hydro hefur áhuga
á aðild að orkufrekri iðnaðar-
framleiðslu á Islandi. Við-
ræðurnar eru þó á byrjunarstigi
og við viljum því ekki ræða um
málið í smáatriðum."
Þjóðhátíðarmunt:
Sexföldunnafn-
verðs á 1/2 ári
1 BANDARÍSKA myntblaðinu
„World Coin News“, sem út
kom f nóvember s.l. eru aug-
lýstar til sölu margar fslenzkar
myntir og peningar. Mesta at-
hygli vekur auglýsing frá
fyrirtækinu Agimpex í
Montreal f Kanada, sem aug-
lýsir sérunnin gullpening úr
serfu þjóðhátíðarmyntar
Seðlabankans, nafnverð 10
þúsund krónur, á 500 dollara,
eða ca. 58.500 krónur. Er þetta
nær sexföldun nafnverðs á
tæpu hálfu ári.
Þá má nefna sem dæmi, að
annað fyrirtæki býður
Alþingishátíðarpening frá
1930 á 125 dollara, eða um 14
þús. kr. Alþingishátíðarsettið
frá 1930, 3 peningar, er boðið á
275 dollara, eða um 32 þúsund
kr. Minnispeningur Jóns
Sigurðssonar frá 1961 nafn-
verð 500 krónur, er boóinn á
375 dollara, eða um 44 þúsund
kr. Er hér um að ræða stórkost-
lega aukningu nafnverðs á
þessum tíma.____________