Morgunblaðið - 24.01.1975, Page 1
36 SIÐUR
19. tbl. 62. árg.
FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
3^1 Bretland:
Þjóðaratkvæði um
EBE-aðild í júní
Fjaðrafok í
þingsalnum
Poul Hartling, forsætisráðherra Dana, f ræðustól, er danska
þingið var sett f gær. Til hægri má sjá er dreifibréfum er kastað
niður f þingsalinn og stóðu fyrir þvf tveir menn, sem sögðust
vera að mótmæla stefnunni f dönskum menningarmálum.
London, 23. jan. Reuter.
HAROLD Wilson forsætisráð-
herra Breta tilkynnti það f Neðri
málstofunni f dag, að stjórn hans
hefði ákveðið að halda þjóðarat-
kvæði, að Ifkindum f fok júnf á
þessu ári, um það hvort Bretland
ætti að vera áfram f Efnahags-
bandalagi Evrópu. Tekið var fram
að ráðherrar stjórnarinnar væru
þó hver f sfnu lagi óbundnir af
afstöðu stjórnarinnar, sem er
gegn aðild, og geta þeir þvf kosið
eftir eigin geðþótta. Verður þetta
f fyrsta skipti sem þjóðaratkvæða-
greiðsla um einstakt mál fer fram
um gervallt Bretland.
Leiðtogar Ihaldsflokksins hafa
látið í ljós ótta um að með þessu
sé dregið úr valdi þingsins, sem
jafnan hefur haft síðasta orðið,
þegar um meiriháttar ágreinings-
mál hefur verið að ræða.
Hartling frestar
fram „eldfimari”
að leggja
frumvörpin
Kaupmannahöfn, 23. janúar.
Frá Gunnari Rytgaard,
fréttaritara Morgunblaðsins.
POUL Hartling forsætisráðherra
lýsti yfir þvf f ræðu sem hann
Breta-
drotúiing
hittir
ekki
Amin
London 23. jan. AP.
TALSMAÐUR Bretadrottn-
ingar staðfesti f dag, að borizt
hefði orðsending frá Idi Amin,
forseta Uganda, til Elizabethar
II, þar sem hann æskti þess að
hún tæki á móti sér af höfð-
ingsskap þegar hann kæmi til
Bretlands 4. ágúst. Mun nú
sendiboði vera á leið með yfir-
lýsingu Amins til Sandring-
hamhallar, þar sem drottn-
ingin dvelur um þessar mund-
ir.
Haft er eftir óstaðfestum
heimildum að ekki séu
minnstu lfkur á þvf að drottn-
ingin fallist á að taka á móti
Ugandaforseta, enda séu annir
hennar miklar og tfmi hennar
skipulagður langt fram f
tfmann.
Fyrstu viðbrögð í Bretlandi
að sögn AP voru þau að menn
tóku þetta allt f mesta grfni, en
við nánari athugun kom f Ijós
að ýmsir óttast hefndarað-
gerðir Amins gagnvart brezk
um borgurum og diplómötum f
Uganda, ef forsetanum verður
ekki svarað af fyllstu virðingu.
hélt við setningu danska þjóð-
þingsins f dag, að stjórnin ætlaði
að leggja fram sum þeirra laga-
frumvarpa, sem voru í hinni svo-
nefndu heildaráætlun stjórn-
arinnar. Eru það ýmis mál sem
ekki eru Ifkleg til að valda mjög
miklum úlfaþyt að svo stöddu,
meðal annars þar sem kveðið er á
um ýmsar leiðir til styrktar at-
vinnulffinu og er þvf ekki talið að
stjórnin sé f beinni fallhættu
fyrstu daga hins nýja þings.
Viðkvæmari og „eldfimari" eru
tillögur um launastöðvun og um
afnám vísitölu með tilheyrandi
staðgreiðslubótum að upphæð kr.
100 danskar krónur á mánuði
(2000 kr. ísl.) til hvers launþega.
Þessar tillögur verða sem sé ekki
lagðar fram í fyrstu lotu, þar sem
Stjórnin ætlar að bíða átekta og
sjá hver verður niðurstaða samn-
ingaviðræðna varðandi vinnu-
markaðinn.
Á þriðjudag verður stórpóli-
tískt mál tekið fyrir. Mun þá og
ekki fyrr koma í ljós hvernig
staða stjórnarinnar er á danska
þinginu. Þó á ekki að greiða at-
kvæði um lagafrumvörp heldur
verða hugsanlega bornar fram til-
lögur þar sem ríkisstjórnin er
hvött til að taka afleiðingunum af
Dollarinn á erf-
itt uppdráttar
Zurich, 23. jan. Reuter.
RAÐSTAFANIR þær, sem sviss-
neska stjórnin gerði til að freista
þess að styrkja stöðu dollarans,
virtust f dag ekki hafa borið til-
ætlaðan árangur, þar sem verð á
dollara gagnvart svissneska
markinu var f dag lægra en
nokkru sinni fyrr. Sterlingspund
var einnig veikt á mörkuðum
Evrópu í dag og frá Frankfurt
bárust þær fréttir að bæði Banda-
rfkjadollar og sterlingspundið
stæðu mjög höllum fæti á gjald-
eyrismörkuðum þar.
Þegar gjaldeyrismarkaðir
opnuðu í Sviss í morgun leit út
fyrir í fyrstu að ráðstafanirnar
hefðu borið einhvern ávöxt, en
fljótlega sótti i sama horf.
Dollarinn var 2.5557 gagnvart
svissneska frankanum í morgun
og komst ekki hærra en i 2.5850
síðdegis,en lækkaði síðan að nýju.
Heimildir í Ztirich sögðu að
enda þótt staða dollarans hefði
styrkzt örlítið á timabili, væri það
mun minna en svissneska stjórnin
hefði gert ráð fyrir og vonast eft-
ir. Ýmsir verðbréfasalar vörpuðu
fram þeirri spurningu, hvort
frekari ráðstafanir kynnu að
verða aðkallandi, ef staða
dollarans héldi áfram að versna.
Landsbankinn í Sviss hefur nú
keypt um það bil 500 millj.
dollara síðan hann greip f taum-
ana þann 6. janúar í fyrsta skipti i
tvö ár. Af hálfu bankans voru
engar ráðstafanir vegna
dollarsins gerðar í dag.
flokkaskipaninni á þinginu og
segja af sér.
I ræðu sinni f dag sagði Hartl-
ing að hann hefði reynt að koma á
samvinnu við flokka, sem samtals
hefðu meirihluta að baki, en það
hefði ekki tekizt.
„Því verðum við nú að binda
vonir við að í þinginu skapist í
reynd samstaða, svo að þingið geti
sinnt störfum sínum og mál hlotið
rétta afgreiðslu,“ sagði Hartling.
Meðan Hartling hélt ræðu sína
áttu all sérkennilegar mótmæla-
aðgerðir sér stað. Tveir menn sem
eru frægir að endemum í dönsku
menningarlífi, rithöfundurinn
Jörgen Nash og kvikmyndatöku-
maðurinn Jens Jörgen Thorsen,
mótmæltu stefnunni í menningar-
málum með því að kasta dreifi-
miðum af áheyrendabekkjum
niður í þingsalinn, meðan annar
þeirra blés án afláts f flautu.
Thoresen er m.a. þekktur fyrir
áform sín um að gera mynd um
Jesú Krist, sem aldrei hefur
komizt í framkvæmd og hefur
fyrirfram verið lýst sem guðlasti.
Framhald á bls. 22
Um nokkra hrfð hefur þess ver-
ið beðið að Wilson tilkynnti um
þjóðaratkvæðagreiðsluna og hef-
ur verið mikill áhugi á málinu í
Bretlandi. Wilson nefndi ekki
ákveðinn dag, en sagði að at-
kvæðagreiðslan færi fram áður en
sumarleyfistíminn hæfist.
Franskir embættismenn fögnuðu
því í dag að Bretar hefðu tek-
ið af skarið varðandi þetta atriði
og væri þar með ekki ríkjandi
sama óvissuástand og að undan-
förnu og hefði skaðað bandalagið
og starfsemi þess. I Kaupmanna-
höfn sagði Ivor Nörgaard, fyrr-
verandi markaðsmáiaráðherra í
stjórn Krags, að ef Bretar tækju
þá ákvörðun að segja sig úr EBE
ættu Danir að halda hliðstæða at-
kvæðagreiðslu um það, hvort þeir
vildu vera í bandalaginu. I aðal-
stöðvum EBE i Briissel var látin í
ljós ánægja f svipuðum stíl og í
Frakklandi. TASS-fréttastofan í
Moskvu sagði einnig frá fyrirhug-
aðri þjóðaratkvæðagreiðslu og
sagði að Verkamannaflokkur
Bretlands hefði séð sig knúinn til
að taka þessa ákvörðun vegna
geysilegra mótmæla meðal alþýðu
manna við aðild að EBE.
Mikil fundahöld hafa verið inn-
an Verkamannaflokksins f Bret-
landi siðustu daga vegna þessa
máls og búast menn við snörpum
deilum um málið á næstu mánuð-
um.
Manntjón
er hús
hrundi
Casablanca, 23. jan. Reuter.
VITAÐ er að 22 létu lífið og
ellefu slösuðust alvarlega
þegar þriggja hæða fbúðarhús
hrundi f Casablanea f kvöld.
Björgunarsveitir óttast að
fleiri hafi látizt, þvf að nokk-
urra er saknað. Haft er eftir
einum fbúa f húsinu, sem
slapp lifandi, að sprungur hafi
komið f húsið f jarðskjálfta
fyrir sjö árum og hafi ekki
verið gert við þær.
Kissinger heim-
sækir Nixon
Washington, 23. jan. Reuter.
HENRY Kissinger, utanrfkisráð-
herra Bandarfkjanna, mun heim-
sækja Nixon, fyrrverandi forseta,
f Kaliforníu um helgina, að þvf er
talsmaður utanrfkisráðunevtisins
sagði f dag. Verður þetta f fyrsta
skipti sem þeir hittast sfðan
Nixon sagði af sér forsetaembætti
f ágústmánuði sl.
Ford hækkar olíutollinn
Búizt við að til tíðinda dragi
milli hans og þingsins
Washington, 23. jan. Reuter.
GERALD Ford Banda-
ríkjaforseti undirritaði í
kvöld yfirlýsingu, þar sem
ákveðið er að hækka toll á
innfluttri olíu og má vænta
að til tíðinda dragi á næst-
unni milli forsetans og
þingsins, sem hefur risið
öndvert gegn þessari
ákvörðun forsetans, eins
og sagt hefur verið frá.
Ford tók endanlega ákvörðun
um hækkunina eftir að hafa setið
á fundi með Þjóðaröryggisráðinu
í Hvita húsinu í dag. Hækkunin
nemur einum dollara á hverja
tunnu af innfluttri olfu og tekur
hún gildi frá og með 1. fébrúar.
Síðan bætist við önnur hækkun
þann 1. apríl og segist forsetinn
með þessu stefna að því að gera
Bandaríkjamenn óháðari inn-
flutningi á olíu erlendis frá.
Fulltrúadeildin hefur hafið um-
ræður um að bera fram frumvarp
þar sem forsetinn er sviptur
heimild til að leggja þennan toll
á.
Forsetinn mun flytja sjónvarps-
ræðu í nótt (að ísl. tima) til að
rökstyðja mál sitt við þjóðina.