Morgunblaðið - 24.01.1975, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.01.1975, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975 27 víkurflugvelli voru búnir að segja: nei, þessi hlutur er ekki til á öllu landinu, þá fann Lúðvík þennan stórhlægilega hlut á lager sem var öðrum gleymdúr. Fyrir honum var ekkert til sem ekki var hægt að gera, annars skorti bara viljann til verksins. Við Lúðvík byggðum í sameiningu marga stóra loftkast- ala og þetta var allt svo raunveru- legt i augnablikinu, en á bakvið leyndist alltaf bjargföst vissa um raunveruleikann. Það er einmitt á valdi slíkra manna að láta sig dreyma. Honum kom ekkert við hvað aðrir hugsuðu á slikum augnablikum, því þetta var á þeim hamingjusömu stundum þegar sagan hættir að vera saga og verður að raunveruleika. Sióan fórum við allir að vinna. Ef hann var spurður um fram- tíðaráform sín, átti hann það til að segja eitt í dag og annað á morgun. I hvorugt skiptið var hann að ljúga, hann vissi bara af báðum möguleikum og var ekki búinn að gera upp við sig hvorn hann hætti að taka. Hann var heldur aldrei of merkilegur með sig til þess að viðurkenna ekki fyrir öðrum, að hann gat haft rangt fyrir sér. Lúðvík var ákaflega heiðarleg- ur maður og óskeikull ef einhver var hjálparþurfi. Þaó er ákaflega auðvelt að hafa samúð með fólki úr fjarlægð. Ef hann vissi að hann gat hjálpað þá gerði hann það hér og nú og á staðnum, annars lét hann sér hitt nægja. Að skrifa tæmandi minningar- grein um Lúðvík Karlsson, er að skrifa heila bók. Hér munu aðrir mér færari koma til með að gera honum betri skil. Ég veit bara að ef satt er, að handan við tjaldið mikla taki annað við, þá verður ekki leiðinlegt þar eftir þangað komu Lúðvíks Karlssonar. Hrafnhildur min, megi allar góðar vættir fylgja þér og börnun- um. Ég votta aðstandendum öllum mína dýpstu samúð. Geir Rögnvaldsson. A meðan jörð vor veróur byggð, munu slysin sennilega halda áfram að eiga sér stað. Oftast líkj- ast þau að meira eða minna leyti hvert öðru, meiðsli, örkuml, dauði, efnatjón, sorg, söknuður, jafnvel eymd og örbirgð. En þrátt fyrir þessa líku aðal- þætti þessa algenga ófarnaðar er samt svo margt ólíkt, á sumum sviðum. Það er ekki sama, hver fyrir slysi verður. Fornmönnum var þetta vel ljóst og voru sum manngjöld býsna mikil, jafnvel svo að ógreiðandi voru talin nema með lífi annars. Slysin eru mis- jafnlega mikil og átakanleg, mis- jafnlega ósennileg og óvænt. Skagðinn, sem þau hafa í för með sér, er stundum eins ólikur og svart og hvitt. Islendingar eru frá fornu fari manna vanastir slysum, ekki sist i baráttu sinni fýrir lífinu á sjón- um. Vart verður orðum að því komið, hve geigvænlegur mann- skaði, sorg og neyð oft hlaust þar af. Mikið hefur af hinum bestu og framsýnustu mönnum gert verið á hinum siðari árum til að milda tjón hinna eftirlifandi ástvina, svo algerlega er ólikt þvi sem áður var. En látinn sonur eða maki kemur ekki aftur. En þetta sýnir, hve þjóðin er samhent á ýmsum sviðum, og vel er það. Slysið mikla, er þyrlan fórst yf- ir Kjalarnesinu snemma dags þ. 17. jan.'sl., var eitthvað svo hast- arlegt ólíklegt ogkomöllumsvoá óvartmeira aðsegjafagmönnum í flugsamgöngum, að ég segi fyrir mitt leyti, að ég rétt fyrst brást ónotalega við, hélt að hér væri enn ein ýkjusagan. Ég sá þó fljótt á fólkinu, að hér var full alvara á ferðinni. Ég fékk lika svo til strax fréttir af þvi að allir hefðu farist og nöfn þeirra. Engan þessarra manna þekkti ég persónulega nema Lúðvík Karlsson, en nöfn hinna látnu sögðu mér, að þar hefðu engir aukvisar látið lifið, að þar hefðu fallið dýrir menn og lítt bætanlegir þjóðinni. Ég fann ekki til persónulegrar sorgar, eins og hún er vanalega skilin, að visu sorgar yfir stórskaða smáþjóöar (Skyldi það ekki hafa þótt fréttir til næsta bæjar i Bandaríkjunum, ef 7000 manns hefðu látið þar lifið í einu vetfangi. Sjö manns hjá okkur gera um 7000 manns Þar.). En ég syrgði Lúðvik Karlsson af heilum hug. Þar var fallinn í val- inn ungur maður með svo fjöl- þætta hæfileika að með ólikind- um var. Þessa hæfileika hafði hann vel notað og var þvi hæfni hans mikil. Hann mun aðeins hafa lokið landsprófi hér heima, en aðal nám hans átti sér stað utanlands, í Englandi (3 ár), þar sem hann einkum lagði stund á enska tungu og kvikmyndatöku. Heim kominn starfaði hann við fyrirtæki föður síns og hjá fleir- um. Ég þekki Karl Lúðviksson, lyfsala, svo vel, að ég veit að hann er einbeittur í viðskiptum að öll- um jafnaði. En ég veit líka, að reki hann sig á mikla þörf, að ekki sé talað um neyð, þá leitar hönd hans stundum ansi skjótt niður í vasann eftir peningavesk- inu, eða það sem oftast mun vera, að hjálpað sé á annan og oftast haldbetri hátt. Ég hygg að Lúðvík hafi ekki verið ólíkur föður sínum að þessu og ýmsu öðru leyti. Lúðvík hefði vafalaust getað náð langt i viðskiptum en hann var of mikill sportmaður í sér, of mikið fyrir að reyna alltaf eitt- hvað nýtt, hugkvæmnin beindist svo viða, að hann stöðvaðist ekki við tóm viðskipti. Það var ein- hvern veginn ekki nógu spenn- andi, fullnægói honum ekki. Hann vildi kunna sem flest, geta sem mest. Hann fór því út í flug- nám og var búinn að fá fullkomin réttindi þar fyrir 2 eða 3 árum. Svo brá hann sér til Bandaríkj- anna til að læra þyrluflug. Var því námi lokið og fékk hann mikið lof vestra fyrir kunnáttu og hæfni. Svo kom dauðinn. — Það vill svo einkennilega til að ég sem þetta rita, var aldrei, utan einu sinni, gestur á heimili Lúðviks Karlssonar og heldur enginn heimilisvinur hjá Karli föður hans. Ég kynntist þeim á annan hátt, í starfi, einkum Lúðvik, bæði í félagsstörfum og öðrum viðskiptum. Þvi meira sem við höfðum saman að sælda, því meira mat ég hann. Ég sakna hans af öllu hjarta. Hann var fæddur 11.5 1943 og náði þvi að- eins 31 árs aldri. Föður Lúðvíks, Karl, hefi ég þegar minnst á. Hann var sonur Lúðvíks Sigurðssonar, útgerðar- manns á Norðfirði, þekkts manns. Móðir Lúðvíks er Svanhildur Þor- steinsdóttir Sigurðssonar, fyrrv. kaupmanns í Reykjavik, verzl. Bristol. Kona Lúðviks, Hrafnhildur Helgadóttir, Sæviðarsundi 2, ekkja með 3 börn, syrgir nú látinn mann og góðan dreng. öllu þessu fólki votta ég innilega samúð mína, svo og öórum aðstandend- um. Asbjörn Stefánsson. Kvcðja til vinar. Það er óþarfi að lýsa þeirri til- finningu sem sækir að manni þeg- ar vinir hverfa á einu augnabliki. Það hafa margir reynt. En samt er það svo þegar Lúð- vik Karlsson hverfur svo snögg- lega, það er erfitt að trúa þvi. Þessi lífsglaði hæfileikamaður sem kunni hvergi betur við sig en i hástemmningu lifsins, kunni fátt að hræðast og bauð því byrg- inn sem hann mætti á lifsleiðinni og óttaðist ekki stór áform sem aðrir hefðu hikað við. Ég hefi þekkt Lúðvík Karlsson frá þeim tima er hann ánetjaðist sviffluginu og mér hefur alla tíð þótt hann draga að sér mikla at- hygli, ýmist fyrir dirfsku, lagni og ekki sízt hina ómetanlegu frá- sagnargáfu sem ætið kom öllum í gott skap, sem á hann hlustuðu. Ekkert verkefni var svo stórt að Lúðvik hikaðiviðaðleggjaí það engin hindrun svo torfær að hún væri ekki um leið freistandi við- fangsefni. Hann var alveg sér- stakur persónuleiki, sem dró að sér athygli hvar sem hann fór. Væri „Lúlli“ nálægur, var mað- ur síhlæjandi, þvi engan hefi ég þekkt sem hefur haft eins skemmtilega frásagnargáfu og hann. Þótt hann hafi oft leikið sér að því að láta hugarflugið streyma um draumheima ásamt hinum raunverulega heimi, þá Kveðja frá Alþjóðlegum varaforseta Junior Chamb- er International JC félagar um allan heim sam- hryggjast eiginkonum og fjöl- skyldum og félögum sinum í JC á Islandi vegna hins sorglega missis tveggja góðra félaga sinna. Lúðvík Karlsson og Kristján Sveinn Helgason voru vel þekktir og virtir ungir menn sem sýndu hversu einstaklingsframtakið er mikilvægur þáttur lífsins. Ég sendi fjölskyldum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðj- ur, Jeffrey Bird. Alþjóðlegur varaforseti JCI fyrir Island. Kveðja frá Junior Chamber — Reykjavík. Sú harmafregn barst um borg og bæ hinn 17. þessa mánaðar, að þyrla hefði farist með 7 manns. Tveir þeirra sem fórust voru fé- lagar i JC-Reykjavík, þeir Lúðvík Karlsson, flugmaður, og Kristján Sveinn Helgason, framkvæmda- stjóri. Með þeim eru gengnir tveir virkir og áhugasamir félagar, sem á undanförnum árum hafa starfað af ósérhlífni og áhuga að verkefn- um innan samtakanna. Þeir voru einarðir í framgöngu og ábúðar- brást það aldrei að hann var manna langskemmtilegastur í sín- um hópi. Það er mikil eftirsjá að þessum marghæfa og raungóða manni og það skarð, sem nú er höggvið í hóp flugliðanna við Reykjavikur- flugvöll verður aldrei fyllt, þvi enginn var líkur Lúðvíki Karls- syni. Þórður Hafliðason. Okkur setti hljóða við fregnina af flugslysinu á Kjalarnesi þann 17. þ.m., þegar ljóst var, að okkar góði félagi Lúðvík Karlsson flug- stjóri, hafði farist þar ásamt mörgum öðrum góðum mönnum. Lúlli gerðist félagi i F.K.R. síðastliðið sumar, svo að ekki uróu kynni okkar löng, en þau voru að sama skapi góð. Það er þvi stórt skarð höggvið í okkar litla hóp. Áhugasemi hans og ósérplægni um málefni okkar og hugðarefni munu verða okkur hvatning til dáða um ókomin ár. Á þessari erfiðu stund vottum við Hrafnhildi konu hans, sonun- um litlu og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. f.h. Kallhlffakhibbs Reykjavfkur Hannes Thorarensen Ásgeir Arnoldsson Leifur Guðmundsson Þann 17. þessa mánaðar lézt Lúðvík Karlsson, flugmaður, af slysförum. Hann var aðeins 31 árs þegar hann lézt. Hann fæddist i Reykjavik 11. maí 1943, elzta barn hjónanna Karls Lúðvíkssonar, lyfsala hér í borg, og konu hans Svanhildar Þorsteinsdóttur. Lúðvík ólst upp á myndarheim- ili foreldra sinna. Hann var kom- inn í menntaskóla, þegar hann fór utan og lagði stund á nám i ensku og kvikmyndagerð i Englandi. Lauk hann þar prófi í þessum greinum. Ekki varð sú raunin að hann ynni við kvikmyndagerð þegar heim kom, heldur lagði hann fyrir sig verzlunarstörf. A þessum árum kynntist hann svif- flugi og náði hann góðum árangri i þeirri íþrótt. Svifflugið beindi svo huga hans að vélflugi og ákvað Lúðvík aó gerast atvinnu- flugmaður. Hann fékk atvinnu- flugpróf í marz 1971, og flug- stjóraréttindi í maí 1974. Lúðvík starfaði mikið að félags- málum og gegndi ábyrgðarstöðum innan Junior Chamber hreyfing- arinnar. Fyrir þremur árum varð Lúðvik þeirrar hamingju aðnjótandi að ganga að eiga Hrafnhildi Helga- dóttur. Eignuðust þau tvo syni Karl og Þorlák. Fjölskyldu sinni hafði hann búið fagurt heimili að Sæviðarsundi 52. Lúðvík var á margan hátt miklir, og það var tekið eftir þeim hvar sem þeir beittu sér að starfi. 1 starfi JC-Reykjavík liggja spor þeirra víða, og má nefna að báðir tveir höfðu þeir verið formenn fjáröflunarnefndar félagsins. Kristján Sveinn átt sæti í nefnd ársins 1973—1974. Hann var þátt- takandi í för til Turku á Evrópu- þing JC hreyfingarinnar á síðasta sumri, og var hann einn örfárra Islendinga sem komið höfðu til Coral Gables I Florida, höfuð- stöðva JC hreyfingarinnar í heim- inum. Þá átti Kristján Sveinn sæti í landsstjórn samtakanna, sem gjaldkeri 1972—1973. Lúðvík átti sæti i mörgum nefndum samtakanna, og eins og áður segir formaður fjáröflunar- nefndar félagsins. Hann var vara- landsforseti 1971—1972 og tók þátt í fjölmörgum ræðukeppnum fyrir hönd JC-Reykjavík. Hann var þátttakandi á alheimsmóti JC hreyfingarinnar í Dublin á Ir- landi 1971, og segja má að hann hafi átt einn rikastan þátt i, á þvi þingi, að Islendingar fengu kos- inn sinn fyrsta og eina alþjóðlega varaforseta hreyfingarinnar. Lúðvik var margt til lista lagt, og hefði án erfiðleika getað skap- að sér sess á viðskiptasviðinu, en flugió átti hug hans allan. Hann hafði m.a. aflað sér réttinda í froskköfun, stundaði fallhlifar- stökk og hafði árum saman verið eini ferjuflugmaður íslendinga. óvenju mikill hæfileikamaður og mörgum mannkostum búinn, glaðlyndur, greiðvikinn, og lagði aldrei illt til neins. Tungumála- hæfileika hafði hann með afbrigð- um og munum við, sem vorum með honum í ræðumennsku- klúbbnum suður á Keflavíkur- flugvelli, lengi minnast ræða hans þar. Komst þar enginn nærri i flutningi, framsetningu og valdi á enskri tungu. Lúðvík sýndi í starfi sinu sem flugmaður einstaka hæfileika. Var sem flugvélin væri hluti af honum sjálfum. Hafði hann öðlazt mikla reynslu í flugi hér á landi við erfiðustu aðstæður, eins og i sjúkraflugi. Flaug hann um 300 ferðir til Vestmannaeyja, um og eftir gosið. Var hann kominn með nærri tvö þúsund flugtíma, sem er óvenju mikið í slíku flugi. Síð- astliðinn vetur fór hann nokkrar ferðir með flugvélar milli Amer- iku og Evrópu, um Grænland, einn síns liðs og er það ekki nema á fárra færi og ekki heiglum hent. Fannst mér, sem þetta ritar, að þar sem Lúðvík væri, færi vax- andi maður, sem með hverju ári Kristján Sveinn starfaði áður hjá ýmsum fyrirtækjum, en fyrir um tveimur árum setti hann á stofn sitt eigið fyrirtæki, hjól- barðasólunina Bandag hf., og á siðasta ári stofnuðu þeir Kristján og Lúðvik fyrirtækið Þyrlu- flug hf., ogbáruþeirmiklar vonir i brjósti um framtíð þess og fram- gang. Ekki auðnaðist þeim að sjá þann sameiginlega draum sinn rætast, heldur voru kallaðir á burt í slíkri skyndingu. Þegar við nú kveðjum þá félaga okkar Lúðvik og Kristján Svein kemur margt i huga, eftir sam- starf margra ára. Eitt ber þó öðru hærra. Báðir tveir höfðu þeir til- einkað sér það af einkunnarorð- um JC hreyfingarinnar, sem "Við leiðarlok skilur dýpst spor eftir, en þau eru: „Að manngildið sé mesti fjársjóður jarðar.“ Þeir virtu og sýndu í breytni sinni og störfum, að þeir höfðu tileinkað sér þá hugsjón er að baki þessara einkunnarorða liggur. Það var akkur okkur hinum að hafa verið samtiða þeim. Vió hryggjumst við fráfall góðra félaga og söknum vina i stað. Við vottum ekkjum þeirra og börnum dýpstu samúð og hlut- tekningu, svo og ættingjum þeirra öðrum. yxi að manngildi og áynni sér traust sinna meðbræðra. Nú i haust ákvað Lúðvík að stofna til kaupa á þyrlu, ásamt félaga sínum og vini, Kristjáni S. Helgasyni. Hér á landi hefur skapazt þörf fyrir þyrluflug á ýmsum sviðum, sérstaklega á sviði raforkumála. Hægt er með aðstoð þyrlu að sinna viðgerðum og öðru eftirliti með rafmagnslin- um, með miklu styttri fyrirvara og á auðveldari hátt en unnt er eftir öðrum leiðum. Skort hefur þyrlu er hefði nógu mikið burðar- þol til að flytja viðgerðarefni og tæki við slikar aðstæður. Höfðu þeir félagar gert samninga um þessa þjónustu við þær stofnanir, er hér áttu hlut að máli. Lúðvík dvaldi nokkurn tima í Bandaríkj- unum og hlaut þjálfun i meðferð þyrlunnar. Lauk hann þar prófi með óvenju góðum vitnisburði. Má segja að hann hafi verið á margan hátt sérstaklega vel til þessa starfs fallinn vegna hæfi- leika og reynslu. Eg hitti Lúðvík í hinzta sinn á gamlársdag og var þyrlan þá að koma til landsins. Hann var fullur Framhald á bls. 25. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Fyrir mörgum árum drýgði ég alvarlega synd. Mér þykir mjög fyrir þvf. En nú er ekki hægt ad bæta fyrir þessa synd. Er nokkur von fyrir mig? Já, vinur minn, þér eigið von. Guð er aldrei hirðulaus gagnvart drýgðri synd. En hann er líka Guð takmarkalausrar miskunnar. Verið þess fullviss, að hann veit, að hve miklu leyti þér getið bætt fyrir hið liðna, ef það er þá hægt. Stundum má lagfæra það, sem illa var gert. Við þekkjum mörg dæmi þess frá samkomum okkar víðsvegar um landið. En hér er eitt nauðsynlegt. Væruð þér fús til þess að bæta fyrir það, sem þér brutuð af yður, ef það væri unnt? Þetta er eðli iðrunarinnar! Hryggö vegna syndarinnar, svo mikil, að menn vilja afneita henni og bæta fyrir hana, ef tök eru á. Oft verður því þó ekki við komið. En sé löngun fyrir hendi, þá þekkir Guð hjarta yðar. Eg vil því svara yður á þessa leió: Snúið yóur til Guðs, núna, af einlægu og iðrandi hjarta, og játið synd yðar fyrir honum. Tr.eystið fyrirheitum hans um sáluhjálp, sem veitist vegna dauða Krists. Minnizt þess, að Guð gaf son sinn, af þvi að hann þráir, að þér verðið hólpinn: Er það ekki nóg trygging? Treystið því Kristi, að hann veiti yður sáluhjálp. Og þegar tækifæri gefst, bætið þér úr því, sem þér hafið gert rangt, og berið þannig vitni um það, sem Kristur hefur gert fyrir yður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.