Morgunblaðið - 24.01.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975
23
— Viðbótar-
ritlaun
Framhald af bls. 5
væntanlega með fullu umboði frá
félögum sinum og Sveini
Sæmundssyni þar meðtöldum.
Lýsing Sveins á vinnubrögðum
úthlutunarnefndarinnar 1974 er
hugarfóstur hans og nenni ég
ekki að elta svoalangar ólar.
I lok greinar sinnar dregur
Sveinn nokkrar ályktanir, sem
eru í reynd mergur málsins, eða
öllu heldur ástæðan til þess að
Sveinn skrifaði greinina. Það er,
að Sveinn fékk ekki viðbótar-
ritlaun, hvorki i fyrra eða nú.
Eins og allir vita hefir Sveinn
verið afkastamikill rithöfundur
og bækur hans selst vel undanfar-
in ár. Hann byggir kröfu sina til
viðbótarritlauna á því hve sölu-
skattur af bókum hans nemur
hárri fjárhæð. Hér að framan
gerði ég grein fyrir þvi hvernig
söluskattur af bókum snertir
viðbótarritlaun. Þau tengsl voru
rofin áður en viðbótarritlaunum
var úthlutað í fyrra skiptið,
þannig að lagalega er ekkert sam-
band á milli sölu bóka og við-
bótarritlauna.
Ég hefi frá öndverðu talið að
svokallaðir „söluhöfundar" ættu
siðferðilegan rétt til viðbótar-
ritlauna, þrátt fyrir lagalega hlið
málsins. Því hefi ég undanfarin 2
ár gert tillögur í nefndinni um að
svokallaðir söluhöfundar fengju
viðbótarritlaun, þar á meðal
Sveinn Sæmundsson. Með-
nefndarmenn mínir hafa ekki
talið „söluskattssjónarmiðið"
nægjanlegt til veitingar viðbótar-
ritlauna. Bókmenntalegt, og þá
væntanlega fagurfræðilegt mat
beri að leggja til grundvallar við-
bótarritlaununum. Hér er að
sjálfsögðu átt við mat á rithöfund-
um en ekki fræðimönnum. Þetta
sjónarmið meðnefndarmanna
minna er ósköp skiljanlegt, þegar
málið er skoðað í heild. Þessi
skoðanamunur er ástæðan til þess
að Sveinn hlaut ekki viðbótar-
ritlaun.
Það kemur mér á óvart að
Sveinn skuli láta að þvi liggja, að
úthlutun hafi byggst á pólitík.
Honum er vel kunnugt um þenn-
an málefnalega ágreining innan
nefndarinnar. Allt þetta tal
manna um „sálufélaga", „bolsé-
vikka" og „rauðliða" er 20 árum á
eftir tímanum. Unga fólkið í land-
inu er löngu hætt að tala um
„helv. komma", „rússadindla" og
hvað þetta hét nú allt saman.
Sveinn fer fram á, að nöfn
þeirra, sem sendu upplýsingar til
nefndarinnar verði birt.
Slíkt er á valdi menntamála-
ráðuneytisins og höfundanna,
sem sendu upplýsingar. Æskilegt
væri að birta nöfnin til þess að
allir geti séð hve örðugt verkefni
nefndin átti við að glíma. Hrædd-
ur er ég um, að Sveinn og fleiri
gagnrýnendur nefndarinnar
myndu hnjóta um nöfn manna,
sem ekki fengu viðbótarritlaun
þar eð þeir fullnægðu ekki skil-
yrðum reglnanna um úthlutun.
Þar má líka finna menn, sem full-
nægðu skilyrðunum en urðu að
víkja vegna annarra rétthærri.
Sem sé höfundar allt frá Halldóri
Laxness niður i Hilmar Jónsson.
Báðir þessir menn ku vera rit-
snillingar, annar á heimsmæli-
kvarða en hinn að eigin sögn.
Sveinn virðist einnig misskilja
hlut fræðimanna í viðbótar-
ritlaunum. Þeir eiga lagalegan
rétt, sem ekki verður frá þeim
tekinn. Bækur þeirra verða ekki
metnar eftir því hve mikils sölu-
skatts þær afla frekar en aðrar
bækur.
Sveinn sneiðir að kollegum sín-
Stýrimaður óskar
eftir plássi á togbát. Upplýsingar í síma 71 144.
Verzlun
Til sölu er á góðum stað við Laugaveginn,
verzlun sem verzlar með snyrtivörur og kven-
fatnað í tveimur deildum.
Lager er nýr og góður og hagstæður húsaleigu-
samningur.
Fyrirspurnir sendist Morgunblaðinu merkt:
„Sérverzlun við Laugaveg. — 7356".
Holl fæóa
UFBAKÆFA
SÍLD & FISKUR
Bergstaðastræti 37 sími 24447
um, sem hafa tekið það ráð að
fjölrita bækur sinar, til þess að
koma verkum sínum á framfæri
og þannig aflað sér viðbótar-
ritlauna. Það er ómaklegt.
Enn segir Sveinn: „Og einn hef-
ir jafnvel gefið út grammófón-
plötur.“ Hér á Sveinn við Kristján
frá Djúpalæk, sem fyrir löngu er
orðinn þjóðkunnur textasmiður
og ljóðskáld. Enn vil ég benda
Sveini á að lesa úthlutunarregl-
urnar betur. Þar stendur orðrétt:
„Uthlutun miðast við ritverk út-
gefið eða flutt opinberlega á
árínu 1973.“
I lok greinar sinnar vill Sveinn
fá að vita hvort „þriðji nefndar-
maðurinn" (undirritaður) eigi
sinn þátt i hneykslinu, og á hann
þá við úthlutun viðbótarritlauna.
Ég tek fulla ábyrgð á mínum
hluta að úthlutun viðbótarrit-
launa bæði árið 1973 og 1974. Allt
tal um „hneyksli" er út í hött í því
sambandi. Ég leysti þetta verk-
efni eins vel af höndum og mér
var unnt. Gagnrýni er eðlileg,
þegar um svo vandasamt verkefni
er að ræða, en'hún þarf að vera
málefnaleg.
Ég hefði aldrei leiðst út í ritun
þessarar greinar, ef ekki hefði
komið til ódrengileg og fjarstæðu-
kennd gagnrýni ekki aðeins á
nefndina sem heild heldur per-
sónulegar dylgjur og skítkast í
garð einstakra nefndarmanna.
Orðum þessum beini ég ekki til
Sveins Sæmundssonar, nema að
litlu leyti. Bókavörður suður með
sjó hefir flengriðið blöðum og út-
varpi að undanförnu blindaður af
pólitísku ofstæki og stórmennsku,
fullur vandlætingar á þvi að hann
sjálfur skuli ekki hafa fengið við-
bótarritlaun. Við hann segi ég:
Skrifaðu bara betri bækur, góði!
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:
Blaöburöarfólk:
AUSTURBÆR
Freyjugata 1—27, Óðinsgata,
Þingholtsstræti, Sóleyjargata,
Flókagata 1 —45, Laugavegur
101—171, Skúlagata, Bergþóru-
gata, Laufásvegur 2—57, Mið-
tún, Laufásvegur 58 — 79. Úthlíð.
ÚTHVERFI
Hluti af Blesugróf, Fossvogsbelttir,
Selás, Efstasund I, Ármúli, Selja-
hverfi, Tunguvegur.
VESTURBÆR
Nýlendugata, Tjarnargata 1 og 1 1.
SELTJARNARNES
Skólabraut, Lambastaðahverfi.
Upplýsingar í síma 35408.
SENDILL ÓSKAST
Á afgreiðsluna Skeifunni 19 fyrir
hádegi. Sími 101 00.
Seyðisfjörður
Umboðsmaður óskast til að sjá um
dreifingu og innheimtu Mb. Uppl.
hjá umboðsmanni og í síma
10100.
Ferðakynning
^ a fl
MUNIÐ AÐ TAKA
DAGINN FRÁ!
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9, símar 11255 og 12940
REYKJAVfKURDEILD
Rauða Kross íslands
NÁMSKEIÐ: SKYNDIHJÁLP
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20—22, í sex skipti.
Byrjar 30. janúar, n.k.
HAGASKÓLI: kennari Hafþór Jónsson,
BREIÐHOLTSSKÓLI; kennari Guðjón Petersen,
ÁLFTAMÝRARSKÓLI; kennari S igurður Sveinsson.
NÁMSKEIÐ: AÐHLYNNING SJÚKRA
f HEIMAHÚSUM
Þriðjudaga og miðvikudaga kl. 1 7 — 1 9, í sjö skipti.
Byrjar 29. janúar, n.k.
ÖLDUGATA 4; kennari Kristbjörg Þórðardóttir.
Námskeiðin eru ókeypis og öllum heimil þátttaka.
UPPLÝSINGAR OG INNRITUN
í SÍMA 2-82-22 OG AÐ ÖLDUGÖTU 4