Morgunblaðið - 24.01.1975, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.01.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975 15 Norðmenn vænta vaxandi ágreinings um Svalbarða með aukinni nýtíngu auðlinda þar FRAM kemur f fréttabréfi frá norska utanríkisráðuneytinu, að norskum stjórnvöldum er f mun, að aukin efnahagsleg starfsemi og nýting auðlinda á Svaibarða Brlissel, 23. jan. REUTER. FRÁ ÞVl var skýrt I dag af hálfu Efnahagsbandalags Evrópu, að ákveðið hefði verið að greiða 100 milljón dollara til aðstoðar fátæk- ustu vanþróuðu rikjunum og þeirra, sem harðast hefðu orðið úti af völdum olíukreppunnar. Að þessari upphæð meðtalinni veitir bandalagið löndum þessum 500 milljón dollara aukaaðstoð, að því er utanrlkisráðherra Irlands, Garrett Fitzgerald, upplýsti f dag, að loknum fundi þróunarmála- ráðherra EBE rikjanna. 45létust í eldi í Manilla Manilla, Filippseyjum, 23. jan. Reuter. AÐ MINNSTA kosti fjörutíu og fimm manns, flest ungar stúlkur, iétust f eldsvoða sem kom upp I morgun I stórri byggingu í út- hverfi Manilla, þar sem skóli var m.a. til húsa. Lögreglan telur að um íkveikju hafi verið að ræða og gaf f skyn að maður scm bjó í húsinu lægi undir grun. Margar stúlknanna lokuðust inni í brennandi húsinu, en aðrar reyndu að stökkva út um glugga og slösuðust sumar alvarlega. fari vel og skipulega fram, að lýðræði verði ríkjandi f stjórn staðarmála þar og að lögð verði áherzla á umhverfisvernd sam- fara aukinni starfsemi og vaxandi Þriðjungur ofangreindrar upp- hæðar greiðist beint I neyðarsjóð Sameinuðu þjóðanna til aðstoðar fátækustu ríkjunum, en tveir þriðju verða látnir í té beint. Bandalagið hafði sl. ár heitið því að greiða 500 millj. dollara til neyðarsjóðs Sameinuðu þjóðanna, sem gert er ráð fyrir að nemi samtals 3000 millj. dollurum. Með þessari nýju greiðslu er við þá skuldbindingu staðið, að sögn starfsmanna EBE, og er nú komið að öðrum auðugum iðnríkjum, þar á meðal Bandaríkjunum, og olíuframleiðslurikjunum, að standa við sínar skuldbindingar. Nokkur ágreiningur varð um hvort telja skyldi innan þessarar skuldbindingar EBE bein fram- lög einstakra aðildarríkja í sjóð- inn, en þau nema nú um 200 milljónum dollara. Þar fyrir utan hefur bandalagið heitið að leggja fram 50 milljón dala virði i mat- vælum. ferðamannastraumi. Sömuleiðis er ljóst, að þau gera ráð fyrir vaxandi ágreiningi um yfirráð þeirra á Svalbarða með aukinni nýtingu auðlinda þar um slóðir. I fréttabréfinu segir m.a.: Norð- menn hafa því mikilvæga hlut- verki að gegna aó sjá um, að vax- andi auðlindavinnsla og efnahags- leg starfsemi á Svalbarða (Spitzbergen) fari vel fram og í samræmi við skilmála Svalbarða- samningsins. Samkvæmt samn- ingnum hafa Norðmenn yfirráð yfir eyjaklasanum með tilteknum takmörkunum. Jafnframt þarf að gæta þess, að starfsemi þar gangi ekki hraðar fyrir sig en svo, að unnt sé að forðast hvers konar spillingu náttúrulegs umhverfis eyjaklasans. Verið er að vinna að nýjum reglugerðum með það í huga að koma i veg fyrir óæski- lega starfsemi að þvi er fram kemur í skýrslu norsku stjórnar- innar um framtíðarstefnu hennar viðkomandi Svalbarða. Stjórnin hyggst hafa hönd i bagga með hvers konar norskri starfsemi með þvi að setja tiltekin skilyrði fyrir fjárhagslegum stuðningi af hálfu ríkisins og með því að láta ríkið eiga hlutabréf i einkafyrir- tækjum, sem hyggja á starfsemi á eyjunum. í skýrslunni kemur fram, að fjárfesta þurfi 500 milljónir n. kr. til nýtingar nýrrar, ábatavænlegr- ar kolanámu við Sveanámurnar. Fyrir utan vaxandi náma- vinnslu og olíuvinnslu er búizt við vaxandi ferðamannastraumi, sérstaklega þegar komið hefur verið á flugferðum til Svalbarða allan ársins hring. Þá gerir norska stjórnin ráð fyrir, að á Svalbarða verði lýðræðislegt stjórnarfar, sem líkast því sem gerist i Noregi. Tekið er fram, að búast megi við áframhaldandi skoðana- ágreiningi Norðmanna og Sovét- manna varðandi yfirráð Norð- manna yfir eyjunum og einnig megi búast við vaxandi ágreiningi við önnur riki eftir því sem auð- lindanýting eykst. Lausn slíkra ágreiningsmála verður að mati stjórnarinnar að byggja á grund- vallarreglum um jöfn réttindi allra þeirra aðila, sem hlut eiga að Svalbarðasamningnum. EBE framlag tíl fátækustu ríkjanna Skortur á neyzluvatni fyrir- sjáanlegur um aldamót Amsterdam, 23. jan. ReUter UM þessar mundir stendur yfir i Amsterdam alþjóðleg ráð- stefna um skort og nýtingu neyzluvatns I heiminum. Er hún haldin á vegum Alþjóða heilbrigðismálastofnunar Sam- einuðu Þjóðanna — WHO. Einn af helztu sérfræðingum á þessari ráðstefnu, HoIIending- urinn Cees Zoeteman, heldur því fram, að í lok þessarar ald- ar muni mannkynið standa andspænis alvarlegum skorti á drykkjarvatni, sakir vaxandi iðnvæðingar og hinnar öru mannfjölgunar f vanþróuðum rikjum. Segir Zoeteman, að þegar búi um 1300 milljónir manna, aðallega í vanþróuðu rfkjunum, við vatnsskort og vfsindamenn hafi vaxandi áhyggjur af þvf, hverjar afleið- ingar það muni hafa fyrir heilsufar jarðarbúa að nota hreinsað skólp og frárennslis- vatn úr iðnverum. Hefur Zoete- man hvatt til þess að unnið verði að gerð öflugri hreinsi- tækja og gagnger rannsókn verði gerð á þcim efnum f drykkjarvatni, sem orsaka kunni krabbamein og eitranir ýmiss konar. Hættuna í vanþróuðu ríkjun- um segir Zoeteman fyrst og fremst stafa af hinni geysiöru mannfjölgun. Hún hafi i för með sér vaxandi likur á því, að veirur og sýklar í neyzluvatni valdi farsóttum og öðrum sjúk- dómum. ’í iðnríkjunum stafi fólki hins vegar mest hætta af þeim fjölmörgu efnum i drykkjarvatni, sem valdió geti krabbameini og annarri ban- vænni óáran. Hann segir, að auðugri iðnþjóðir hafi tök á að hreinsa drykkjarvatn í vaxandi mæli en slík hreinsun krefjist mikillar orku og sé kostnaðar- meiri en svo, að vanþróuðu rík- in fái við ráðið. „Við skortinum á drykkjar- vatni getum við ekki svo ýkja mikið gert I sjálfu sér, segir Zoeteman, •— við verðum því að leggja alla áherzlu á að hreinsa vatnið svo vel að við losnum við veirur og snikjudýr, sem valdið geta farsóttum." Vandamálið, sem hér er við að etja, lýsir sér vel á landbún- aðarsvæðum Indlands; á þurrkatímum þar byggjast vatnsbirgðir næstum eingöngu á hreinsuðu skolpvatni frá Nýju Delhi. Og samkvæmt nýj- um skýrslum er ástandið þann- ig í ánni Thames, nokkra kíló- metra fyrir ofan miðborg Lundúna, að 40% vatnsmagns- ins er skolpvatn og afrennslis- vatn frá iðnverum. Að sögn dr. Zoetemans gera sérfræðingar sér enn ekki ljóst, hver verða muni frambúðar- áhrif þeirra þúsunda efna, sem dælt er JJljót og vötn frá ýmiss konar verksmiðjum. Þessi efni gætu sameinazt og myndað nýj- ar efnasamsetningar, kannski illvióráðanlegar og eitraðar. Sá tími kann að koma, segir Zoete- man, að við mengunarvalda þessa verði ekki ráðið með þeim aðferóum, sem nú eru þekktar. 1 nýlegrl skýrslu um vatns- málin f New Orleans én þar er neyzluvatn fengið úr Mississippifljóti, — er látið að því liggja að vaxandi tíðni lifr- arkrabba megi rekja til efna i því. Zoeteman segir, að íbúar iðn- ríkja geri sér yfirleitt ekki grein fyrir að hve miklu leyti neyzluvatn sé fengið úr hreins- uðu skolpvatni og frárennslis- vatni — en það sé verulegur hluti drykkjarvatns i Bretlandi, Þýzkalandi og Hollandi svo nokkur dæmi séu nefnd. Stylianos Pattakos, fyrrverandi innanríkisráðherra Grikklands og helztur samstarfsmaður Georges Papadopoulosar yfirmanns herforingjastjórnarinn- ar, sést hér koma til fangelsis í Aþenu, þar sem hann situr nú. Ráðherrann situr i aftursæti bílsins (t.h. á myndinni). Isabel hættir ekki Buenos Aires, 23. jan. Reuter. EINN nánasti samstarfs- maður Isabel Peron Argen- tínuforseta bar í dag til baka fregnir sem flogið höfðu fyrir um að hún ætlaði að segja af sér for- setaembættinu, að minnsta kosti um stundarsakir. Var tilkynningin birt í tveimur argentínskum fréttastofn- unum og sagt að þessi orð- rómur styddist ekki við nein rök. Isabel Peron tók við starfi forseta að Juan Peron eiginmanni sínum látnum, í júlí sl. Mjög róstusamt hefur verið í Argentínu síðustu mánuði og margir talið aó Isabel Peron hefði ekki tekizt að vinna sér það traust og þá lýðhylli sem dygði til að koma á kyrrð og stöðug- leika í landinu. Viö bjóöum gestum okkar úrval rétta, allt frá heitum samlokum upp í stórar steikur. Einnig eru á boöstólum súpur, forréttir, eftirréttir, kaffi og meö þvi, aö ógleymdum rétti dagsins hverju sinni. Allt þetta sem viö bjóöum upp á, hefur eitt sameiginlegt, og þaö er verðið, þaö er eins lágt og hægt er aö hafa þaö. Opið frá kl. 08.00 til 22.00 alla daga. ttHOTI nl: Suðurlandsbraut 2 Reykjavik. Sími 82200 Hótel Esja, heimiliþeirra er Reykjavik gista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.