Morgunblaðið - 24.01.1975, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975
Stálu víni fyrir um 100
þús. kr. úr Fagranesi
isafirði — 23. janúar.
BROTIZT var inn í Fagranes —
skip Djúpbátsins hf. — aðfara-
nótt fimmtudagsins. Þeir sem
þarna voru að verki komust inn f
skipið með þvf að snúa sundur
hengilása og brjóta upp hurðir.
Var farið inn f kortaklefann og
brúna og virðist helzt sem
þjófarnir hafi verið f lyfjaleit,
því að rótað var í lyfjageymslu
skipsins en ekki liggur fyrir
hvort eitthvað hefur horfið
þaðan. Töluverðar skemmdir
voru unnar f kortaklefanum og
brúnni.
Eins hafa þjófarnir brotizt inn í
káetu matsveinsins og stolið
þaðan sfgarettum og skiptimynd,
svo og peningum frá stýrimanni
skipsins. Síðan lá leið þjófanna í
vörulestina og þar komust þeir
heldur betur í feitt, þar sem voru
áfengisbirgðir Djúpbúa. Er talið
að stolið hafi verið áfengi fyrir
milli 80—100 þúsund krónur úr
lestinni. Þá var björgunarbátur
skipsins brotinn upp og virðist
sem þar hafi verið leitað lyfja.
— Sigurður Grfmsson.
Olíustyrkurinn greiddur
upp úr næstu mánaðamótum
ÞESSA dagana er verið að af-
greiða olfustyrkinn svonefnda frá
fjármálaráðuneytinu til þeirra
bæja og sveitarfélaga sem tif
hans eiga tilkall. Eru það alls á
þriðja hundrað sveitarfélög, en
samkvæmt upplýsingum Ingva
Ólafssonar f f jármálaráðuneytinu
ætti ráðuneytið að vera búið að
senda styrkgreiðslur til sveitarfé-
laganna um miðja næstu viku,
þannig að styrkurinn ætti að geta
komið til útborgunar til almenn-
ings fljótlega upp úr mánaðamót-
unum.
Hér er um að ræða styrkgreiðsl-
ur fyrir þriggja mánaða tfmabil
— september—nóvember — og
eru þær eftir sem áður kr. 1800 og
2700 krónur. Heildarupphæðin
nemur samtals um 175 milljónum
króna.
Frakkar undirbúa
olíumálaráðstefnu
Parfs, 23. jan. Reuter.
FRAKKAR hafa 1 hyggju að bjóða
fljótlega til fundar fulltrúum
olíuframleiðsluríkja og olíuinn-
flytjenda svo og þróunarrfkja, að
því er opinberir embættismenn
skýrðu frá þar f borg í dag. Var
því bætt við að ráðherrarnir Hans
Dietrich Genscher, V-Þýzkalandi
og franski ráðherrann Jean Sau-
vagnargues hefðu komizt að sam-
komulagi á fundi í Bonn fyrir
örfáum dögum, að Frakkar ættu
að hafa frumkvæði f þessu efni.
Ráðherrarnir líta svo á að á
fundinum beri að undirbúa ráð-
stefnu sem hefði það markmið að
leysa orkuvandamál heimsins og
vænta þess að tekið verði vel í að
senda fulltrúa til þátttöku.
Bankastjóra falið
að mynda stjórn
Beirut, 23. jan. Reuter.
BANKASTJÓRI aðalbankans i
Norður-Jemen hefur verið beðinn
að mynda nýja ríkisstjórn í land-
inu, að því er fréttastofa Iraks
skýrði frá síðdegis og hafði eftir
fréttum frá Sanaa, höfuðborg
Norður-Jemen.
Bankastjórinn heitir Abdel Axix
Abdel-chani og segir í fréttum að
búizt sé við að margir ráðherrar
Guðmundur
tapaði
GUÐMUNDUR Sigurjónsson tap-
aði fyrir pólska skákmanninum
Sznapik í áttundu umferð alþjóð-
lega skákmótsins f Hollandi, en
hann keppir þar f meistaraflokki.
Hafði Guðmundur svart og eftir
fimm klukkustunda tafl var hann
orðinn peði undir f flóknu enda-
tafli, þar sem honum tókst ekki
að jafna metin. Guðmundur er nú
f 5.—6. sæti ásamt Dieks með 4'A
vinning.
Keppinaut Guðmundar frá því í
Hastings, Hort frá Tékkóslóakíu,
vegna hins vegar betur i stór-
meistaraflokki. Hann sigraði
Búlgarann Pópov í 8. umferð og
er nú í 3.—4. sæti ásamt Kvalek
með 5‘A vinning en Portisch leiðir
enn með 6ió vinning. Smejkal er í
öðru sæti með 6 vinninga.
I meistaraflokki hefur Dvorecki
frá Sovétrikjunum enn forustu
með 6'A vinning eftir jafntefli við
Ciocaltea frá Rúmeniu, Schmidt
er i öðru sæti með 5!4 vinning,
Ciocaltea þriðji, hefur 5 vinninga,
fjórði er Ligterink með 4'A vinn-
ing og biðskák en síóan koma þeir
Diek og Guðmundur eins og fyrr
segir.
úr fyrri stjórn muni sitja i hugs-
anlegri stjórn hans. Fráfarandi
forsætisráðherra Mohsen A1
Ayani var látinn hætta fyrir
nokkru eftir að honum hafði
verið skýrt frá þvf að hann nyti
ekki lengur þess trausts sem
nauðsynlegt værí.
Töluverðar skemmd-
ir á botni Hvassafells
ÖTTAR Karlsson skipaverkfræð-
ingur SlS kom til Kotka i Finn-
landi í gærmorgun, en þar liggur
Sambandsskipió Hvassafell, sem
strandaði undan Finnlandsströnd
aðfararnótt s.l. mánudags. Að
sögn Hjartar Hjartar, fram-
kvæmdastjóra skipadeildar SlS,
hefur Óttar aðeins kannað
skemmdirnar lauslega, en fyrir
liggur, að töluvert tjón hefur orð-
ið á botni skipsins.
Siglfirð-
ingar vilja
bræða loðnu
Siglufirði — 23. janúar.
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að
skora á stjórn Síldarverksmiðja
ríkisins að vinna að því nú þegar
að loðna verði flutt hingað til
vinnslu og sjá um að vinnsla og
löndunarmöguleikar séu strax
fyrir hendi, þar sem nóg
þróarrýmí muni vera í Siglufirði
fyrir um 11 þúsund tonn og af-
kastageta verksmiðjunnar urn
1000—1100 tonn ásólarhring.
— Fréttaritari.
Þinga
enn um
fiskverð
VERÐLAGSRÁÐ sjáv-
arútvegsins kom saman til
fundar í gær. Yfirnefnd al-
mennu fiskverðsákvörðunar-
innar hóf fund kl. 3.30 og yfir-
nefnd verðákvörðunar á fisk-
úrgangi hóf fund kl. 4.30.
Þegar Morgunblaðið hafði
sfðast fregnir af fundinum
hafði engin niðurstaða fengizt.
— Viðskiptakjör
Framhald af bls. 2
ársfjórðungi ársins 1973 var vísi-
tala viðskiptakjara hins vegar
komin niður í 114 stig og var því
um 1,1% lakari en að meðaltali
það ár. Eins og áður segir fór
vísitalan síðan niður i 102,6 stig
að meðaltali á síðasta ári og hafði
þvi versnað um 11%. Hins vegar
hafa viðskiptakjörin versnað um
19,2% ef miðað er við meðaltal
ársins 1973 og siðasta ársfjórðung
ársins 1974.
I skýringum Þjóðhagsstofnunar
segir, að innflutningur til Lands-
virkjunar og Isal svo og innflutn-
ingur skipa og flugvéla sé ekki
meðtalinn.
Skemmdir í Blönduhlíð
Mælifelli — 23. janúar.
I SUÐAUSTAN veðrinu sem
gekk yfir í gær varð það tjón á
Ulfsstöðum í Blönduhlíð að járn-
klæddur stafn fauk af stórri fjár-
húshlöðu og hiuti af þakinu.
Helgi Friðriksson, bóndi á Ulfs-
stöðum telur að fremur litið hafi
sogast út af heyi og er tjónið því
aðallega skemmdir á hlöðunni.
Brakið fauk árafmagns- og síma-
linu. Siminn var þegar lagfærður
i gærkvöldi er veður fór að lægja,
en rafmagn var ekki komið enn á
hádegi í dag. Brotnaði raflínu-
staur í heimtaug og spennirinn
brann yfir. Engan sakaði, en járn-
plötur fuku langar leiðir, jafnvel
vestur yfir vötn. Hér i Lýtings-
staðahreppi gætti þessa veðurs
nokkuð i framhluta sveitarinnar
án þess þó að tjón yrði af, en færi
spilltist svo, að ákveðið er að
hefill verði sendur í vesturdalinn
í fyrramálið vegna mjólkurbílsins
Ófriðlegt á
N-írlandi
Belfast 22. jan. — Reuter
BREZKIR embættismenn áttu f
kvöld leynifund við fulltrúa
stjórnmálaarms írska lýðveldis-
hersins, Sinn Fein um framvindu
mála, eftir að ný ofbeldisverk í
nótt rufu vopnahlé það sem IRA
gerði, og nú er útrunnið. Rees,
trlandsmálaráðherra vildi ekkert
láta uppi um árangur fundarins,
en sagði enga fleiri verða haldna
fyrr en ofbeldisverkum linnir.
Hótel Borgar-
nes er opið
I FRÉTT hér i blaðinu var sagt,
að ekkert hótel væri nú opið á
leiðinni frá Siglufirði til Akra-
ness. Þetta er ekki rétt, Hótel
Borgarnes er opið. „Við teljum
skyldu okkar að hafa opið,“ sagði
Geir Björnsson, hótelstjóri, „þótt
reksturinn sé erfiður."
Lítið er um gistingar, en mat-
sala er nokkur. Þá sér hótelið um
veizlukost fyrir samkvæmi í
Borgarfirði og einnig á Snæfells-
nesi.
Sjálfkjörið í
Iðju á Akureyri
STJÖRNARKJÖR hefur farið
fram f Iðju, félagi verksmiðju-
fólks á Akureyri. Listi stjórnar og
trúnaðarmannaráðs var sjálfkjör-
inn. Jón Ingimarsson var nú kjör-
inn f 30. skipti formaður félags-
ins.
Aðrir í stjórn voru kjörnir:
Hallgrimur Jónsson, varafor-
maður, Höskuldur Stefánsson rit-
ari, Þorbjörg Brynjólfsdóttir
gjaldkeri, og Ingibergur
Jóhannesson meðstjórnandi. I
varastjórn voru kjörin: Kristin
Hjálmarsdóttir, Sigþór Bjarna-
son, Margrét Jónsdóttir og Sig-
urður Garðarsson.
og er það fremur sjaldgæft, því að
hér er afar snjólétt.
— Agúst.
Hagnaður
Peugeot
minnkaði
um helming
París, 23. jan. REUTER.
PEUGEOT-bflaverksmiðjurnar
frönsku hafa tilkynnt að ágóði á
árinu 1974 hafi lækkað um helm-
ing frá fyrra ári, sakir minnkandi
sölu bifreiða og aukins fram-
leiðslukostnaðar.
Hafði hagnaður fyrirtækisins
numið um 215 milljónum franka á
árinu 1973, en fór ofan í 100
milljónir franka 1974.
Haft er fyrir satt, að til standi,
að Peugeot taki yfir Citroen-
verksmiðjurnar sem spáð er um
það bil 800 milljón franka tapi á
þessu ári.
Bílasala Peugeot minnkaði um
5% á árinu 1974, miðað við 1973.
Voru seldar 722.600 bifreiðar
1974, en 762.000 árið 1973.
— Loðnu-
verksmiðja
Framhald af bls. 36
26.100 lestir að stærð, og var
breytt fyrir tæpum 5 árum í fljót-
andi fiskjmjölsverksmiðju. Siðan
hefur það fylgt norska úthafs-
veiðiflotanum og bæði verið við
Ný-Fundnaland og V-Afriku, en
þaðan er skipið nýkomið. Nú
þegar skipið var tekið á leigu vildi
svo til, aó dauður timi var hjá
skipinu fram í miðjan aprílmánuð
en þá heldur það af stað til Ný-
Fundnalands, til að bræða loðnu
frá norskum loðnuveiðiskipum.
Washington 22. jan. AP.
FYRSTU viku janúarmánaðar
bættist tæplega milljón atvinnu-
leysingja á skrá í Bandaríkjunum,
að því er atvinnumálaráðuneytið
skýrði frá í dag og er þetta um 289
þúsund mönnum fleira en f vik-
unni þar á undan og mesti fjöldi
síðan farið var að greiða atvinnu-
leysisbætur í Bandaríkjunum árið
1937.
— 1200 manns
Framhald af bls. 2
mennahópur, sem segja má að sé
eins konar endurgjald heimsókn-
ar ungs fólks frá Arborg á þjóð-
hátíð hér siðastliðið sumar.
300 manna hópur mun síðan
fara með tveimur flugvélum til
Winnipeg hinn 30. júli. Ráðgert
hafði verið að þar á meðal yrðu
hópar glimumanna og leikarar frá
Þjóðleikhúsinu, sem fara i leikför
til Vestur-Kanada. Þar sem asókn-
in er mikil í þessar ferðir er nú I
ráði, að bætt verði við 8. flugvél-
inni og að hún fari 31. júli. Verði
af þeirri ferð mun leikarahópur
Þjóðleikhússins fara með þeirri
ferð. Sá hópur, sem fer með þess-
ari síðustu ferð mun að loknum
hátiðahöldunum fara i ferðalag
að vesturströnd Kanada og kemur
heim hinn 20. ágúst.
Gísli Guðmundsson bað Mbl. að
geta þess, að áætlanir og verð
vegna Kyrrahafsferðarinnar
væru nú tilbúnar og yrðu sendar
til væntanlegra þátttakenda á
næstunni. Einnig mun fyrirhugað
að efna til kynningar- og fræðslu-
kvölda á Hótel Esju fyrir alla
hópana í næsta mánuði.
Morgunblaðið spurði Svein
Einarsson þjóðleikhússtjóra um
fyrirhugaða ferð leikara til Kan-
ada. Sveinn sagði, að ekki væri
enn fullákveðið, hvort í ferðina
yrði ráðizt og kvað hann nú verið
að kanna, hvort fjárhagslegur
grundvöllur væri fyrir slikri leik-
för. Ef af ferðinni verður, munu
leikararnir lesa upp og leika sér-
staka dagskrá i tilefni 11 alda
byggðar á Islandi.
Skrifstofa Þjóðræknisfélagsins
i Reykjavík er að Gimli við
Lækjargötu og er opin miðviku-
daga og föstudaga frá klukkan 15
til 18 og laugardaga frá klukkan
15 til 17. Síminn er 28025.
— Gervimjólk
Framhald af bls. 36
fisksins melta þá slógið, þegar
búið er að laga þetta til, þ.e.
breyta sýrustiginu. Enzím úr
skúflöngunum er þessi sjálf-
meltari og virðist ráða við það,
og ekki þurfa að bæta neinum
auka enzimum við. Þannig
leysist slóglð upp i vökva, sem
má þurrka og siðan aftur leysa
upp, þegar Á að nota það sem
gervimjólk í fóður handa kálf-
um.
Sagði Björn að tilraunirnar
væru að komast á það stig, að
þær þyrftu að fara i verk-
smiðjuprófun. Einu aðstæð-
urnar, sem fyrir hendi eru tii
þess, eru í þurrmjólkurverk-
smiðju Mjólkurbús Flóamánna
á Selfossi, og verða á næstunni
gerðar vinnslutilraunir þar.
— Hartling
Framhald af bls. 1
Þá er einnig vert að taka fram
að annar grænlenzku þingmann-
anna, Lars Erhil Johansen, hefur
verið samþykktur i þingflokk SF.
Hann skuldbindur sig þó ekki
með því að greiða atkvæði með
flokknum í pólitískum málum,
sem varða Danmörku.
— Krónan
Framhald af bls. 3
gagnvart spænskum pesetum um
0,2% og gagnvart japönsku yeni
um0,5%.
Meðaltalsfall krónunnar gagn-
vart öllum þeim gjaldmiðlum,
sem Seðlabankinn skráir gengi á
er 1,8%. Sölugengi Bandaríkja-
dollars er 118,70 krónur. Hvert
vestur-þýzkt mark kostar nú rétt
rúmlega 51 krónu.
— Olíuhækkun
Framhald af bls. 36
hér á landi. Nefndi Onundur að
verð á gasolíu nú samkvæmt
Rotterdamskráningu væri 90
Bandaríkjadalir á hvert tonn.
Hingað komið myndi það senni-
lega kosta 94 dollara, en samt sem
áður væri það um 10—12 dollur-
um lægra en sú gasolia sem við
keyptum nú frá Sovétrikjunum.
Þá hefði berisínverð einnig hald-
ist mjög stöðugt í Evrópu, en Ön-
undur kvaðst ekki hafa hand-
bærar síðustu tölur um verð-
skránirigu þess.
Samkvæmt síðustu hækkun hér
innanlands á eldsneyti hækkaði
bensínlítrinn úr kr. 49 í 51,
gasolia til húshitunar úr kr. 14.30
í 16.70, gasolia til annarra nota úr
17.05 í 19.85 kr. og gasolía á bif-
reiðar úr kr. 1060 hvert tonn í
1136 kr. tonnið. Kvað Önundur
hækkanir þessar stafa að hluta af
þvi að olíufélögin hefðu nú verið
að fá leiðréttingu á skuld rfkisins
við þau, en ad öðru leyti vegna
verðbreytinga erlendis.