Morgunblaðið - 24.01.1975, Page 2

Morgunblaðið - 24.01.1975, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975 Viðskiptakjörín hafa versnað um 24,4% á einu ári Frá Hveragerði Töluverðar skemmdir urðu í Hvera- gerði f óveðrinu þar f fyrradag og á þessari mynd má sjá hvernig einn sfmastaurinn hefur kubbast f sundur. (Ljósm. Mbl. Ó1.K.M.). 7 1 LOK slðasta árs var vísitala við- skiptakjara komin niður f 93,2 stig, en var 123,3 stig á fyrsta ársfjórðungi og 115,3 stig að meðaltali árið 1973. Viðskipta- kjörin hafa þvf versnað um 24,4% á sfðasta ári og um 19,2% frá þvf sem var að meðaltali 1973 og til ársioka 1974. Á fyrsta ársfjórð- ungi 1974 var vfsitala viðskipta- kjara 123,3 stig, en að meðaltali var hún 102,6 stig árið 1974 samanborið við 114 stig 1973. Við- skiptakjörin versnuðu því um 11% að meðaltali á sfðasta ári miðað við árið 1973. Þetta kemur fram f yfirliti, sem Þjóðhags- stofnun hefur gert, en þar segir, að vísitala viðskiptakjara sýni þá breytingu, sem verður á verðhlut- falli útflutnings og innflutnings. Hún sýnir þvf, hvort útflutnings- verðlag hækkar meira eða minna en innflutningsverðlag og þar 2560 lestir loðnu til Reyðarfjarðar Reyðarfirði — 23. janúar. SlÐASTLIÐINN sólarhring var landað hér 1770 lestum af loðnu. Mestan afla hafði Þorsteinn RE 328 lestir. Er þá loðnumagnið verksmiðjunni orðið 2560 lestir Stendur til að hefja bræðslu á morgun, föstudag. Afköst verk- smiðjunnar hér eru 350 lestir á sólarhring. Nú liggja 11 loðnubátar hér i höfninni og bfða eftir að veður lægi. Gunnar SU 139 kom af veiðum á laugardag með 42 lestir Svissneska bridgelandsliðið til Islands í vor 1 BYRJUN mai er væntanlegt til landsins svissneska landsliðið í bridge. Kemur liðið hingað í boði BR og spilar e.t.v. landskeppni við Island. Svissneska liðið er eitt af betri bridgelandsliðum Evrópu og hafnaði í fimmta sæti á nýaf- stöðnu Evrópumóti, sem haldið var í Tel Aviv f vetur. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í gær á vegum Bridgesambandsins, en honum verða gerð nánari skil i laugar- dagsblaðinu. af þorsk og ýsu, en aflinn er unninn hér hjá Fiskvinnslustöð GSR. Snæfell SU 20 losnar úr slipp nú um helgina og fer á loðnuveiðar. Hér á Reyðarfirði er norð- austan snjókoma og skarfrenning- ur. Ein ýta er á staðnum í eign Vegagerðarinnar og þarf hún að ýta snjó á Eskifjarðarleið, Fá- skrúðsfjarðarleið og Fagradal. Þrír heflar eru hér á staðnum en koma ekki að neinum notum vegna fannfergis. Öskadraumur Fjarðarbúa er að vegagerðin eignist snjófeyki til að annast snjóruðninginn milli fjaróa og Egilsstaða. Hér er allt ófært og fáir muna svo mikinn snjó sem nú er hér. Samt ætla Reyðfirðingar að halda sitt árlega þorrablót á morgun, þótt illfært sé um bæinn og svo er sjónvarpið bilað einu sinni enn. — Gréta. Ofsaveður — engin loðna OFSAVEÐUR var á loðnumiðun- um austanlands f fyrrinótt og iágu allir loðnubátarnir f höfn. Mjög hvasst var enn á þessum slóðum fram eftir degi f gær og vonir stóðu til að svo hefði lægt undir nóttina að bátarnir gætu þá haldið á miðin að nýju. með hvort kaupmáttur útflutn- ingstekna eykst eða rýrnar miðað við innflutningsverðlag. Árið 1967 var vísitala viðskipta- kjara 77,7 stig og hafði þá versnað um 9,3% frá fyrra ári. Árið eftir var vísitalan komin niður I 73,6 stig og versnaði þvf um 5,3%. Arið 1969 batnar hlutfallið á nýjan leik og vfsitalan fer upp í 78,7 stig og bötnuðu því viðskipta- kjörin um 6,9%. Enn verður bati árið 1970, en þá stígur vísitalan upp í 89,5 stig eða um 13,7%. Arið 1971 fer vísitala viðskiptakjara upp í 100,9% stig og batnar það ár um 12,7%. Vísitala vöruútflutnings og inn- flutnings er sett í 100 árið 1972. Árið 1973 er vísitala viðskipta- kjara komin upp í 115,3 stig og höfðu því vióskiptakjör batnað um 15,3% frá árinu áður. Á fjórða Framhald á bls. 22 Um 1200 manns fara á ís- lendingadaginn 1 Kanada HÁTÍÐAHÖLD Þjóðræknisfélags Vestur-Islendinga í Winnipeg hófust f gær með þvf að þing félagsins var sett. Heiðursgestur þingsins og þessa fyrsta hluta hátfðahaldanna vegna 100 ára af- mælis byggðar Islendinga vestan- hafs er Geir Hallgrfmsson for- sætisráðherra. 1 sumar er fyrir- hugað, eins og kunnugt er af fréttum, að fjöldi tslendinga fari vestur um haf og f gær, er Mbl. hafði samband við Gfsla Guð- mundsson voru líkur á þvf að hópurinn, sem færi vestur, yrði um 1.200 manns f 8 flugvélum. Gísli Guðmundsson sagði að ásóknin í ferðirnar væri stöðug og fyrir löngu voru 7 flugvélar fyllt- ar, en í hverri ferð flugvélar fara 150 manns. Sagði Gísli, að nokk- urn veginn væri ákveðið að bæta við 8. flugvélinni og verða þá þátt- takendur í þessari Kanadaför samtals 1.200, þar af eru á þriðja hundrað þátttakendur á vegum Þjóðræknisfélagsins á Akureyri. Fyrsta ferðin verður farin 16. júlí, en þá fara 300 manns í tveim- ur flugvélum til Vancouver á vesturströndinni og eftir að hafa haft þar vikudvöl verður farið landieiðina austur til Winnipeg, þar sem þátttakendur taka þátt i hátíðahöldunum vegna afmælis- ins 2. til 4. ágúst. Heldur sá hópur siðan heim frá Winnipeg 6. ágúst. Næsta feró verður farin 23. júlí og fara þá einnig 300 manns í tveimur flugvélum. Flogið verður beint til Winnipeg og aftur verður farið heim 13. ágúst. Hinn 24. júlf fer síðan ein flug- vél og með henni m.a. Lúðrasveit Reykjavíkur, sem nú fer i aðra ferð sfna til Kanada, en þangað fór sveitin sumarið 1972. Með þeirri flugvél fer einnig ung- Framhald á bls. 22 Miklar skemmdir á bæj- um undir A-Eyjafjöllum Mikil ófærð á austanverðu landinu EFTIR AÐ óveðrið f fyrrinótt var gengið yfir kom f ljós að snjór hafði ekki spillt færð um Reykja- nes og Suðurlandsundirlendi fyrr en komið var austur á Sólheima- sand. Þar var mikil ófærð og unnið var að mokstri f gær. Upp úr miðjum degi var sfðan orðið fært til Víkur og stórir bílar komust austur að Klaustri. Ágætlega fært var um Hval- fjörðinn og Borgarfjörðinn í gær og stórir bílar komust um vegi á Snæfellsnesi og vestur í Búðar- dal. 1 nágrenni Patreksf jarðar var fært norður til Bíldudals og suður á Barðaströnd og út frá Isafirði var fært til Súðavíkur, en snjóflóð hafði aftur á móti fallið I Óshlið. Er áformað að ryðja þar í dag. Holtavörðuheiði var ófær f gær en gert er ráð fyrir að þar verði Myndir frá Eyjum á Mokka SIGURJÖN Jóhannsson, blaða- maður við Þjóðviljann, hefur opn- að ljósmyndasýningu á Mokka. Hann sýnir þar 22 myndir, sem flestar lýsa gosinu í Vestmanna- eyjum frá fyrsta degi fram f janú- ar 1974. Þetta er önnur einkasýn- ing Sigurjóns á ljósmyndum. opnað á morgun og allar götur austur í Skagafjörð. Á Öxnadals- heiði er mikill snjór, en stefnt er að því í dag að ná niður þeim farartækjum sem þar tepptust í fyrradag. Náði snjóbíll í mennina sem i bílunum voru í nótt. Hins vegar er ekki búizt við að frekar verði átt við mokstur á heiðinni fyrst um sinn ef svo heldur áfram með veðráttuna. Litlar fregnir höfóu borizt af Norð-Austurlandi í gær og á Aust- fjörðum var þess háttar veður í gærmorgun að ekkert var hægt að aðhafast við mokstur og er allt á kafi í snjó. Hins vegar er minni snjór þegar til Hafnar kemur og þaðan dálítið vestur með strönd- inni. I ÓVEÐRINU í fyrrinótt virðist veðurofsinn hafa orðið hvað mest- ur undir austanverðum Eyjafjöll- um, og skemmdir urðu þar meiri eða minni á mörgum bæjum. I fbúðarhúsinu að Núpakoti létu sig til að mynda milli 10 og 15 rúður, og varð heimilisfólkið að flýja húsið í verstu hrinunni. Leitaði það skjóls á Þorvaldseyri sem ekki varð eins illa úti f þessu fárviðri. Svo mikill var veðurofs- inn að steinar losnuðu í fjallshlíð- inni ofan við Núpakot og féllu á túnið. Lenti einn steinn á fjárhúsi og drap þar kind. Einnig urðu mjög miklar skemmdir á mannvirkjum Steina- bænda og fauk þar mjög mikið af járni, t.d. mikill hluti af þaki á fjósi eins bóndans. Á bænum Núpi í útfjallinu fauk þak af véla- geymslu og einnig járn af íbúðar- húsi. Þar á bænum býr aldraður maður, sem kveðst ekki muna eftir öórum eins hvelli og gerði þarna um nóttina. Miklar skemmdir urðu á staurum, síma- og rafmagnslín- um, sem brotnuðu og slitnuðu í óveðrinu. Var algjörlega sima- sambandslaust við A-Eyjafjöllin í gær og ítarlegar fréttir af tjóni þar ekki að fá. Nýr brezkur sendi- herra á íslandi JOHN McKenzy, sendiherra Bretlands á Islandi, lætur af störfum fyrir aldurs sakir f marzmánuði næstkomandi. Hefur brezka utanrfkisráðu- neytið tilkynnt um skipan eftir- manns hans, og hún verið stað- fest af fslenzka utanrfkisráðu- neytinu. Nýi sendiherrann er Kenneth Árthur East og á hann að baki um 30 ára starfsferil innan brezku utanrfkisþjónust- unnar. Nú sfðast var hann sendiráðunautur f brezka sendiráðinu f Lagos f Nfgerfu. Kenneth Arthur East er fæddur árið 1921, nam við Southampton-háskólann, en hóf árið 1946 störf á samveldis- skrifstofunni. Árið 1950 varð hann starfsmáður sendiráðs Bretlands í Ottawa, á árunum 1956—60 starfaði hann f Colombo á Srilanka (Ceylon) við sendiráðið þar en árið 1960—65 starfaði hann hjá utanríkisráðuneytinu í London. A árunum 1965—70 var hann fyrsti sendiráðsritari við sendi- ráðið f Osló en þaðan fór hann til Lagos í Nígeríu þar sem hann gegndi stöðu sendiráðu- nautar allt til þess að hann tekur nú við starfi sendiherra hér á íslandi. Kenneth A. East er kvæntur og á fimm börn. Myndin er af Kenneth Arthur East, sem tekur viA embætti sendiherra Breta á Islandi í aprfl. Hann hefur verið sendi- herra f Lagos síóan 1970 og áóur í Ottawa, Colombo og f Osló. Messa Beethovens aftur í kvöld HLJÖMLEIKAR Sinfóníuhljóm- sveitar tslands, með flutningi C- dúr messu Beethovens, verða endurteknir í kvöld í Háskólabíói kl. 20.30. Flutning messunnar annast auk hljómsveitarinnar söngsveitin Filharmonia og ein- söngvararnir Elísabet Erlings- dóttir sópran, Solveig M. Björling, alt, Garðar Cortes tenór og Hall- dór Vilhelmsson bassi. Stjórnandi er Norðmaðurinn Karsten Ander- sen aðalhljómsveitarstjóri, en söngstjóri Fílharmoniu nú er Garðar Cortes og hefur hann æft kórinn fyrir hljómleikana. Einnig er á efnisskrá hljóm- leika þessara sjöunda sinfónía Beethovens. Tekinn með 50 grömm af hassi TOLLGÆZLAN á Kefla víkurflugvelli handsamaði fyrradag tvítugan pilt, ser var að reyna að smygla 5' grömmum af hassi inn landið. Pilturinn var a< koma með flugvél fr Kaupmannahöfn. Hassi hafði hann keypt þar borg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.