Morgunblaðið - 24.01.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. J ANÚAR 1975
7
Pólitískur
krankleiki
Brezhnevs
WASHIflGTON — Staða
Leonid Brezhnevs flokksritara
í Kreml er algengt umræðuefni
leyniþjónustusérfræðinga og
allt i einu hefur líf færzt í þess-
ar umræður vegna frétta um að
hann sé veikur og bollalegginga
um að til mála geti komið, að
hann hverfi af sjónarsviðinu.
Það eina, sem hann þarf að
gera, er að koma fram opinber-
legæsýna fram á, að hann sé við
góða heilsu og i fullu fjöri, og
þá hljóðna þessar umræður enn
einu sinni. En þessar umræður
eiga sér stoð i raunveruleikan-
um og þær munu ekki hætta.
Ýmsir sérfræðingar vísa á
bug síðustu fréttum um póli-
tiskan krankleika Brezhnevs en
taka mark á fréttunum um
veikindi hans. Sú ákvörðun
hans að aflýsa ferðinni til
Egyptalands var aðeins siðasta
dæmið af mörgum, sem benti i
þessa átt. Þótt hann virtist
hraustlegur á fundinum í
Vladivostok fór það ekki fram
hjá Bandaríkjamönnum, sem
venjulega sækja slíkar ráð-
stefnur, að hann þurfti að hvila
sig milli funda, einkum þegar
harðnaði á dalnum í viðræðun-
um.
Hann hefur oft litið út fyrir
að vera veikur eða þreyttur,
eins og til dæmis þegar hann
fór til Frakklands nýverið og
þurfti að aflýsa nokkrum atrið-
um heimsóknarinnar af því
hann var illa fyrir kallaður. Æ
fleiri erlendir gestir i Moskvu
— allt frá Mondale öldunga-
deildarmanni til opinberra
sendinefnda frá Irak og Sri
Lanka — hafa fengið þau boð á
siðustu stundu, að þeir gætu
ekki hitt Brezhnev að máli þvi
hann væri ekki góður til heils-
unnar. Þar sem veður var vont
við árlegu nóvember-
hátíðahöld, var við hin árlegu
nóvember-hátíðahöld, var hefó-
bundinni skrúðgöngu sovézkra
borgara aflýst svo áð Brezhnev
þyrfti ekki — samkvæmt sum-
um fréttum — að standa úti i
nepjunni i marga klukkutíma.
Af öllu þessu má sjá, að dómi
sumra sérfræðinga, að nógu
gildar ástæður eru til þess að
falíast á ástæðurnar, sem voru
tilgreindar þegar Egyptalands-
ferðinni var aflýst, án þess að
leggja i þær einhverja aðra
merkingu, og vísa á bug tali
manna um pólitískan krank-
leika Brezhnevs og skoða það
sem venjulega kjaftasögu. En
aðrir, sem áður hafa þráfald-
lega neitað rökum um að stöðu
Brezhnevs í Kreml væri ógnað,
eru nú farnir að hagræða
skoðunum sínum nokkuð, hik-
andi að visu en þó þannig, að
þeir eru ekki eins lokaðir og
áður. Eins og venja er til i um-
ræðum af þessu tagi milli
starfsmanna í skrifstofukerfi,
hagræða þeir nú afstöðu sinni
þannig að þeir geti sagt, að
ágizkanir þeirra hafi verið
réttar — betra seint en aldrei
— ef eitthvað skyldi gerast. En
þessi hægfara skoðanabreyting
er í sjálfu sér til marks um að
meira og meira mark er tekið á
ábendingunum frá Moskvu.
Þannig var almennt litið svo
á, þegar þvi var nýlega neitað
af hálfu Kremlar, að Kissinger
hefði nokkrar fullvissanir feng-
ió þaðan um að Gyðingum yrði
leyft að flytjast úr landi, að
ákveðið hefði verið að koma
neituninni á framfæri í sama
mund og bandariska þjóðþingið
samþykkti viðskiptalögin til
þess aó formlega kæmi fram í
Washington, að Rússar væru
mótfallnir ákvæðum breyt-
ingartillögu Jacksons. Nú hall-
ast menn hins vegar heldur að
því að taka megi mark á þeim
sönnungargögnum, sem benda
til þess, að Brezhnev hafi orðið
fyrir þrýstingi frá har ,iinu-
mönnum i Moskvu þar sem þeir
töldu hann hafa slakað of mikið
til í málinu. Nú er litið svo á, að
neituninni frá Kreml, sem kom
fram með birtingu gamals bréfs
til Kissingers, hafi ekki aðeins
verið beint til Washington
heldur hafi hún lika verið
varnarleikur af hálfu
Brezhnevs og átt að sýna and-
stæðingum hans heima fyrir að
hann hefði ekki verið of auð-
sveipur.
Egyptalandsferðinni var ekki
aflýst fyrr en Brezhnev hafði
sent áríðandi bréf til Kaíró, er
varð til þess að utanrikisráð-
herra og hermálaráðherra
Egypta skunduðu til Moskvu.
eftir Victor
Zorza
Ef aðeins hefði staðið í bréfinu
að Brezhnev væri veikur, hefði
mátt búast við að Sadat sendi
beztu lækna Egypta til Moskvu,
ekki helztu ráðherra stjórnar
sinnar. En það sem greinilega
stóð i bréfinu var, að skyndileg
breyting hefði orðið á þeim
skilyrðum fyrir heimsókninni,
er upphaflega hafði náðst sam-
komulag um.
Sovézk blöð höfðu áður skrif-
að af hrifningu um heimsókn-
ina og það benti til þess að
samkomulag hefði I raun og
veru tekizt um skilyrðin fyrir
heimsókninni, að minnsta kosti
i aðalatriðum, og að gera átti
heimsóknina fyrirfram að
mikilli sigurför. En nú var það
skilyrði sett fyrir því að Rússar
hæfu aftur vopnasendingar til
Egyptalands — en öllum frétt-
um ber saman um að um það
hafi einnig náðst samkomulag
fyrirfram — að fallizt yrði á
nærveru mikils fjölda sovézkra
hernaðarráðunauta. Brezhnev
vissi að Sadat gat ekki gengið
að þessu skilyrði og ef hann
héldi þvi til streitu stofnaði
hann í hættu þeim árangri, sem
gæti orðið af heimsókninni.
En sovézkir herforingjar,
sem Sadat hafði rekið frá
Egyptalandi, vildu fá hann til
að afmá þá smán. Þeir vildu
einnig, þvi þeir eru varkárir
menn eins og herforingjar yfir-
leitt, fá aðstöðu til þess að hafa
eftirlit með þvi hvernig vopnin,
er Egyptar fengju, yrðu notuð.
Ef svo fer aó sovézki herinn
dregst inn í átök — sem gæti
gerzt í Miðausturlöndum vegna
nærveru sovézka herliðsins í
Sýrlandi — vilja herforingjarn-
ir tryggja sér aðstöðu til þess að
geta tekið sínar eigin ákvarðan-
ir sjálfir i stað þess að þurfa að
hlýða skipunum frá Sadat.
Brezhnev hefur augljóslega
visað á bug þessum mótbárum,
sem honum hlýtur að hafa ver-
ið gerð grein fyrir þegar skipu-
lagning Kaíróferðar hans bar
fyrst á góma í Kreml — því
annars hefði engin tilkynning
verið gefin um heimsóknina.
En heilsu Brezhnevs hrakaði
stöðugt, eins og sjá mátti á því
að fundum hans og erlendra
stórmenna var aflýst hvað eftir
annað, og pólitisk staða hans
versnaði, eins og sjá má á tog-
streitunni um Gyóingamálið, og
af þessum sökum tókst and-
stæðingum hans að hefja að
nýju umræður um heimsóknina
til Kairó — og aflýsa henni
þegar Sadat neitaði að ganga að
skilyrðum þeirra.
Báðir aðilar hafa reynt að
láta eins og ekkert hafi í skorizt
þvi það er í beggja þágu. Bæði
frá sjónarhóli ráðamanna i
Kaíró og Moskvu er fyrir beztu
að þrætan komi ekki fram i
dagsljósið. Svo virðist sem
Egyptar fái nokkur hergögn, en
ekki sama magn og sömu
tegundir og þeir vildu.
Með tilliti til þrætunnar i
Moskvu var sú ráðstöfun að af-
lýsa Kairó-feróinni og sá
„varnarleikur" Brezhnevs að
draga i land i Gyðingamálinu
aðeins siðustu leikirnir í valda-
skák um stórpólitísk stefnumál,
er staðið hefur i nokkur ár. Það
nýja er síhrakandi heilsa
Brezhnevs því hún er orðin svo
slæm að hún getur haft áhrif á
úrslit baráttunnar.
Hverfur
Brezhnev
brátt af sjón-
arsviðinu
vegna veik-
inda?
Ensk stúlka 27 ára m.enntuð enskukennari óskar eftir vinnu helzt allan daginn. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma 81565. Stýrimann vantar á netabát, sem rær frá Þor- lákshöfn. Uppl. i sima 99-1426 og 99-1267.
Útgerðarmenn, skipsstjórar Óskum eftir netabát í viðskipti á komandi vertið. Getum útvegað veiðarfæri. Uppl. í sima 99-1426 og 99- 1267. Stúlkur óskast til eldhússtarfa. Vaktavinna. Uppl. i síma 1 7758. Veitingahúsið Naust.
Píanó til sölu og sýnis kl. 4—6 i dag að Þingholtsbraut 1 9. Heyblásari til sölu Heyblásari ásamt tilheyrandi raf- magnsmótor, til sölu. Blásarann má nota bæði til þurrkunar og til blásturs á heyi í heygeymslur. Uppl. i sima 50569^
Hitari Vil kaupa stórt vatnshitaelement. Upplýsingar í síma 1 7888. Til sölu Góð Hoover þvottavél til sölu. Upplýsingar i sima 51 058.
Svefnsófar 1 og 2ja manna svefnsófar. Einnig stólar i stil við. Greiðsluskilmálar. Nýja bólsturgerðin, Laugavegi 1 34, s. 1 6541. Vogar, Vatnsleysuströnd Til aölu nýleg 4ra herb. efri hæð. Sér kynding. Bilskúrsréttur. fbúðin afhendist með vorinu. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1 263 og 2890.
Grindavík Til sölu 137 ferm. nýlegt einbýlis- hús ásamt bilskúr, á góðum stað. Laust fljótlega. Fasteignasala, Vilhjálms og Guðfinns, símar 1 263 og 2890. Citroén Til sölu Citroén G. S. árgerð 1 972 ekinn 34 þús. km. Nánari upplýsingar veitir biladeild Globus, simi 81 555.
Til sölu Tilboð óskast i Rambler Classic árg. '66 með bilaðan girkassa. Einnig Moskvich árg. '63. Uppl. í sima 92-7148 og milli kl. 7—8 i sima 92-7097. WV '71 útvarp, naglad., sumard., til sölu. Má borgast með 1 — 2 ára skuldabr. eða eftir samkomul. Simil 6289.
Bifreiðaeigendur Tökum að okkur að þrifa, bóna, þvo og oliuþvo bila. Allt vel gert. Pantanir í s. 30752 á morgun laugardag. Geymið auglýsinguna. Keflavík Suðurnesjamenn Til sölu 3ja herb. sem ný góð íbúð og 4ra herb. glæsileg sem ný ibúð.. Eigna og Verðbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavik, sími 92-3222.
Vön götunarstúlka óskar eftir vinnu. Upplýsingar í sima 36564. Hafnarfirði 2ja herb. ibúð i fjölbýlishúsi við Álfaskeið til leigu strax. Tilboð sendist í pósthólf 234, Hafnarfirði.
Skattframtöl Veitum aðstoð við skattframtöl. Lögfræðingar Gestur Steinþórsson og Sigurður Sigurjónsson. S. 22691 og 27798 eftir kl. 1 7.00 og um helgar. Skattuppgjör og bókhald. Aðstoða við skatt- framtöl. Svavar H. Jóhannsson, Klapparstíg 31, simi 1 7249.
Keflavík Til sölu 170 fm einbýlishús með stórum bilskúr. Skipti á 4ra herb. ibúð i Reykjavik möguleg. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1263 og 2890. Framtalsaðstoð Veitum aðstoð við gerð skattfram- tala fyrir einstaklinga og atvinnu- rekendur. Tö|v!s h f Hafnarstraeti 1 8, simi 22477.
Skattframtöl Veiti aðstoð við skattframtöl. Pantið tima sem fyrst. Haukur Bjarnason hdl. Bankastræti 6. Símar 1 5528 og 26675. Skattframtöl — reikningsskil Þórir Ólafsson, hagfr. s. 23017. Magnús Sigurðsson, löfr. s. 13440. Skrifstofa Öldugötu 25.
Simba — rúm
sænskur framleiðandi simba-rúma og það sem
þeim tilheyrir óskar eftir öruggum fra'mleiðanda
á Islandi.
PAHLENS FABRIKER AB 19400
UPPLANDS VASBY, SVERIGE.
Sólarkaffi
Sólarkaffi ísfirðingafélagsins verður að Hótel
Sögu sunnudaginn 26. janúar kl. 8.30 í Súlna-
sal. Miðasala kl. 16 —18 á laugardag og
16 —17 sunnudag í anddyri Súlnasals. Borð
frátekin samtímis. Stjórnin.