Morgunblaðið - 24.01.1975, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975
Aston Villa og
Norwich í úrslitum
EINS og frá var skýrt I Morgun-
balðinu í gær fóru undanúrslita-
leikir ensku deildarbikarkeppn-
innar fram í fyrrakvöld, og urðu
úrslit þeirra þau, að Norwich
sigraði Manchester United með
einu marki gegn engu og Aston
Villa sigraði Chester með þremur
mörkum gegn tveimur. Var þetta
önnur viðureign þessara liða, en
fyrri leikjunum lauk báðum með
jafntefli, 2:2.
Leikur Norwich og Manchester
United fór fram við hin verstu
skilyrði. Völlurinn var eitt forar
svað, sérstaklega er á leikinn leið,
og varla var hægt að þekkja leðju-
Meistaramót
hinna yngstu
MEISTARMOT lslands í frjálsum
iþróttum innanhúss fyrir sveina,
pilta, stúlkur og meyjar verður
haldið sunnudaginn 2. febrúar I
íþróttahúsi Kársnesskóla í Kópa-
vogi. Hefst mótið kl. 14.00. Verður
húsið opnað kl. 13.00. Keppnis-
greinar verða eftirtaldar:
Sveinar: Hástökk með og án
atrennu, langstökk án atrennu og
þrístökk án atrennu.
Piltar, stúlkur og meyjar: Há-
stökk með atrennu, langstökk án
atrennu.
Þátttökutilkynningar skulu
berast til Magnúsar Jakobssonar
eða Hafsteins Jóhannssonar fyrir
31. janúar, ásamt 50,00 kr. þátt-
tökugjaldi fyrir skráningu.
ataða leikmenn liðanna, þegar að
leikslokum dró. Þessi slæmu
vallarskilyrði komu Norwich
fremur til góða, enda var það svo,
að liðið átti meira í leiknum, og
fleiri hættuleg tækifæri en þeir
United-menn. Þannig átti t.d.
Norwich skot í stöng þegar í
fyrstu mínútum leiksins, og um
miðjan fyrri hálfleik misstu leik-
menn liðsins af opnu marktæki-
færi. Stóðu leikar 0:0 í hálfleik.
A 55. minútu leiksins bar sókn
Norwich loksins árangur og var
það Suggett sem skoraði eftir
hornspyrnu. A næstu mínútum
átti Norwich svo tvívegis tæki-
færi, en þegar leið að ieikslokum
hægðu leikmenn liðsins ferðina
og hugsuðu um það eitt að halda
fengnum hlut. Það tókst þrátt fyr-
ir að United pressaði ákaft undir
lokin.
Chester-liðið kom enn á óvart í
leik sinum gegn Aston Villa. Eftir
að Villa hafði skorað tvivegis,
áttu fæstir von á þvi að 3. deildar
liðinu tækist að rétta hlut sinn, en
Chester-leikmennirnir sýndu enn
einu sinni frábæran dugnað og á
60. mínútu var staðan orðin jöfn
2:2. Eftir vel útfærða sóknarlotu
Aston Villa á 80. mínútu tókst svo
Brian Little að skora, og þvi
marki tókst Chester ekki að svara.
Hin mörk Aston Vilia gerði Tom
Leonard, en Mason og James
skoruðu fyrir Chester.
Urslitaleikurinn fer fram á
Wembley-leikvanginum i London
1. marz n.k. og samkvæmt siðustu
fréttum virðast mun fleiri veðja á
að Aston Villa beri þar sigur úr
býtum.
Úrvalió
Umboð lyrir amerískar, enskar og
japanskar bifreiðir. Allt á sama stað
er hjá Agli
Frá Bretlandi: SUNBEAM
SUNBEAM 1600 1975. 2ja dyra,styrktur
fyrir íslenskar aðstæður: 55amp. raf-
geymir, styrkt hemlakerf i og fjöðrun.
Auk þess: Hallanleg sætisbök, útvarps-
tæki með forvali á stöðvum.
Aðeins kr.690þús.
MIKIL gróska er nú I frjáls-1
iþróttastarfinu hjá FH og
skipta þeir tugum sem sækja
æfingar félagsins. Sá háttur
hefur verið hafður á hjá félags-
deildinni að veita verðlaun
þeim sem beztum árangri nær f
karlaflokk og kvennaflokki á:
hverju keppnistfmabili, og eru
handhafar verðlaunanna kall-
aðir „Garpar FH“. Verðlaunin
fyrir árið 1974 voru nýlega af-
hent og voru það garpar fyrra
árs sem það gerðu. Verðlaunin
hlutu að þessu sinni Sigurður
Pétur Sigmundsson I karla-
flokki og Lára Halldórsdóttir 1
kvennaflokki. Efri myndin er
af görpunum og eru þar, talið
frá vinstri: Árni Þorsteinsson,
garpur ársins 1973, Sígurður
Pétur Sigmundsson, garpur
ársins 1974, Lára Halldórsdótt-
ir garpur ársins 1974 og Anna
Haraldsdóttir, garpur ársins
1973. Neðri myndin er svo af'
hinum frfða flokk sem var á
æfingu hjá frjálsfþróttadeild-
inni, kvöldið sem verðlaunin
voru afhent.
Fyrsta skíðamót-
ið á ísafirði
Isafiröi —23. janúar
FYRSTA síðamót vetrarins á veg-
um Skfðaráðs Isafjarðar — svo-
nefnt Grænagarðsmót — var
haldið sl. sunnudag. Keppt var í
svigi f aldursflokki 17 ára og
eldri. Keppnin fór fram f Selja-
landsdal og voru skráðir kepp-
endur 10 en 9 mættu til leiks.
Keppt var i tveimur brautum.
Fyrri brautin var 60 hliö, 500
metra löng og fallhæð 180 metrar,
en hin seinni var 70 hlið, 550
metra löng og fallhæð 180 metrar.
Urslit urðu sem hér segir:
sek.
1) Arnór M agnússon, Herði 105,40
2) Valur Jónatanss, Herði 105,47
3) Hafþór Júlíuss.,
Skíðaf. Is. 108.91
4) Arnór Jónatansson 109.80
Austurrískur skíðaþjálfari,
Kurt Jenny að nafni, hefur verið
ráðinn til að þjálfa isfirzku skíða-
mennina fram til 1. april næst-
komandi.
Holland setti
heimsmet
HINN fimmtán ára ástralski
sundmaður Stephen Holland
bætti eigið heimsmet í 800 metra
skriðsundi á móti sem fram fór í
Brisbane um síðustu helgi. Synti
hann vegalengdina á 8:15,20
mínútum, og var það 0,68 sek.
betri tími en eldra met hans var,
en það var sett á samveldisleikun-
um í Christchurch í Nýja-
Sjálandi. Eftir að hafa sett heims-
metið lét Holland þau orð falla, að
nú væri helzta keppikeflið hjá
honum að bæta metið enn meira,
og ná aftur heimsmetinu í 1500
metra skriðsundi, en bándaríski
sundmaðurinn Tim Shaw náði þvi
frá honum s.l. sumar.
Armannsstúlkurnar brotnuðu
og Valur vann stórsigur 17:10
ÁÐUR en karlaleikirnir hófust i
Höilinni á þriðjudagskvöldið fór
fram einn leikur f 1. deild
kvenna. Það var liðið í fyrsta sæt-
inu, Valur sem mætti Ármanni.
Þessi lið hafa að undanförnu átt i
talsverðri baráttu, og þess er
skemmst að minnast, að í úrslita-
leik Reykjavíkurmótsins marði
Valur sigur yfir Armanni með
sex mörkum gegn fimm.
Leikur þessara aðila á þriðju-
dagskvöldið var nokkuð jafn
framan af. Þó fór aldrei á milli
mála að Valur ar sterkara liðið.
Jafnt var á öllum tölum upp í 5:5,
en þá tóku Valsstúlkurnar af
skarið og sigu fram úr. I hálfleik
höfðu Valsstúlkurnar tveggja
marka forskot, 9 gegn 7.
1 siðari hálfleik skoraði Erla
fyrsta markið fyrir Ármann. Og
þannig hélst staðan, eitt til tvö
mörk í milli, þar til um miðjan
hálfleikinn, þegar Valur hafði
eitt mark yfir, 11 gegn 10, að
Valsarar tóku mikinn fjörkipp og
skoruðu sex síðustu mörk leiks-
ins. Leiknum lyktaði því með
öruggum sigri Vals, 17 mörkum
gegn 10 Armanns.
Eins og fyrr getur voru Vals-
stúlkurnar mun ákveðnari heldur
en þær í Armanni. Sigrún Guð-
mundsdóttir sem skorað hefir
flest mörk Valsara til þessa var
tekin úr umferð, og losnaði aðeins
tvisvar úr gæslunni, þannig að
mark hlytist af. En hinar stúlk-
urnar í Valsliðinu fylltu skarð
hennar með prýði. Einkum voru
þær atkvæðamiklar Bjargirnar,
Guðmundsdóttir og Jónsdóttir. Þá
varði Oddgerður einnig ágætlega
í síðari hálfleik.
Lið Ármanns olli talsverðum
vonbrigðum. Eftir að hafa haldið
vel í við Valsstúlkurnar brotnaði
liðið gersamlega um miðjan síðari
hálfleik. Það var einkum Auður
sem sýndi lit út leikinn, ódrep-
andi baráttukona og laginn með
boltann.
I BYRJUN febrúar munu hefjast
innanhússæfingar hjá Golfklúbbi
Reykjavfkur. Hefir fengist til
þess leikfimissalur Laugardals-
hallar, undir stúkunum, þó með
þvf skilyrði að allir hafi með sér
skiptiskó, strigaskó eða inniskó,
og að notaðir séu innanhússboltar
eða léttir æfingaboltar.
Er þetta tilvalið tækifæri fyrir
þá sem hugsa sér að hefja golfleik
með vorinu, þar sem þeim gefst
þarna kostur á tilsögn hjá Klúbb-
félögum án þess að greiðsla komi
fyrir, en til þess að greiða leigu
fyrir salinn, verður tekið eitt-
hvertgjald af hverjum við inn-
ganginn.
Það er ekki nauðsynlegt að fólk
hafi með sér kylfur, en þeir sem
eiga golfáhöld ættu að koma með
5 eða 8 járn og æskilegt að hver
komi með æfingabolta.
Æfingar þessar munu standa
yfir allan febrúarmánuð og leng-
Mörkin, Valur: Björg J. 7. Björg
G. 7 (2v), Sigrún 2, Ragnheiður 1.
Ármann: Erla 4, Auður 3,
Guðrún 2 (lv), Jóhanna 1.
Leikinn dæmdu Ævar Sigurðs-
son og Grétar Vilmundarson og
komust þolanlega frá sinu.
Sigb.G.
ur, ef aðsókn verður góð, og munu
koma fram upplýsingar um það
siðar.
Er það von stjórnar GR að
klúbbmeðlimir og væntanlegir
félagar notfæri sér þessa aðstöðu.
(Frétt fráGR)
Sænska landsliðið
SVIAR hafa valið lið sitt sem
keppa mun á Norðurlanda-
meistaramótinu í handknatt-
leik í Danmörku 2. til 5. febrú-
ar n.k. Verður liðið skipað
eftirtöldum leikmönnum: Lars
Karlsson, Ingemar Zell, Hans
Jansson, Sven-Aake Frick,
Basti Rasmunsen, Dan Eriks-
son, Olle Olsson, Göran Haard,
Lars Börje Hasselberg, Bengt
Hansson, Ingemar Andersson,
Björn Andersson, Lars-GÖran
Jönsson og Gunnat Södeberg.
Innanhússæfingar
hjá Golfklúbbnum