Morgunblaðið - 24.01.1975, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JANUAR 1975 35
1 (ÞRÓTTAFRfTTIR MORCIINRW I
Á ef tír að i vei 'ða einn hi nna stærstu
— segir framkvæmdastjóri Standard Liege um Ásgeir Sigurvinsson
Tryggvagata 10 Sími: 21 91 5-21 286
P.O Box 5030 Reykjavlk
EITT stærsta og útbreiddasta vikublað f Belgfu, Panorama, helgar
Ásgeiri Sigurvinssyni f jórar sfður í blaöi því sem út kom 24. janúar s.l.
Eru birtar nokkrar myndir af Ásgeiri og viðtal við hann, auk þess sem
fjallað er um feril hans sem knattspyrnumanns, og hvernig það
orsakaðist að hann gerðist atvinnumaður f Belgíu. Er f upphafi
greinarinnar frá því skýrt, að Asgeir hafi vakið athygli Belgfumanna
með góðri frammistöðu með fslenzka unglingalandsliðinu er það tók
þátt í UEFA-bikarkeppninni á Italfu á sfnum tíma, og þá hafi hann
skorað mark í landsleik lslands og Belgfu. Sagt er, að geta Islending-
anna í móti þessu hafi komið mjög á óvart og belgfsku „njósnararnir“
sem fylgdust með leikjum Islendinganna, hafi strax komið auga á
hæfileika Ásgeirs. Síðan hefðu tekizt samningar milli hans og Stand-
ard Liege, með milligöngu Álberts Guðmundssonar, þáverandi for-
manns KSl.
I viðtalinu segir Asgeir að það
hafi alltaf verið sinn draumur að
verða atvinnumaður í knatt-
spyrnu. Hann hafi fengið tæki-
færi að reyna sig með Glasgow
Rangers, en þar hafi hann ekki
kunnað við sig og því farið heim
til Islands aftur, ákveðinn i að
bíða eftir öðru tækifæri, og það
hefði líka komið fljótlega. Þegar
hann gerði samninginn við
Standard Liege, hefði sér verið
tjáð það að hann ætti ekki mögu-
leika á að komast í aðalliðið, en
hann hefði verið ákveðinn í að
bíða og sjá til enda hefði fljótlega
komið að því að hann hefði fengið
að leika með aðalliðinu. Síðan er
sagt frá samningum Asgeirs við
félagið, og greint frá því að hann
hafi nú endurnýjað samninginn
til tveggja ára, til allrar hamingju
fyrir Standard, þar sem Ásgeir sé
nú orðinn leikmaður sem greiða
verði stórfé fyrir. Segir blaðið, að
ekki sé efamál að Asgeir sé ásamt
þeim Christian Piot og Wilfreid
Van Moer, bezti leikmaður Stand-
ardliðsins, en auk þess að leika
með Standard, leiki hann með
íslenzka landsliðinu þegar til
hans sé leitað.
Blaðið fjallar síóan um ísland
og þá sérstaklega eldogsið í Vest-
mannaeyjum, heimabyggð Ás-
geirs, og lætur hann lýsa því. Síð-
an spyr blaðið Asgeir hvort hann
hafi ekki heimþrá. Því svarar
hann til, að auðvitað sakni hann
íslands, og einna verst finnist sér
að fá aldrei góðan fisk að borða.
Hann segir móður sina reyna að
útbúa fisk handa sér i Belgiu, en
hann verði aldrei eins góður og
heima á Islandi. — En ég var
búinn að ákveða að veróa atvinnu-
maður i knattspyrnu, og þá er
bara að taka því, þótt maður hafi
heimþrá öðru hverju.
Blaðinu verður tíðrætt um bros
Ásgeirs, og segir að þá fyrst sjáist
greinilega hversu ungur pilturinn
sé, aðeins nítján ára. Siðan hefur
blaðið það eftir Ásgeiri, aó hann
væri tilbúinn að leggja á sig enn
meira erfiði við æfingar en nú hjá
liðinu, ef það gæti orðið til þess að
hann yrði betri.
Blaðið spyr Ásgeir um nám
hans, og segir að þá hafi frú
Sigurvinsson horft á son sinn,
greinilega ekki ánægð. Ásgeir
segist aldrei hafa lokið neinu
námi — hann hafi tekið knatt-
spyrnuna fram yfir.
1 lok greinarinnar er rætt við
Roger Henrotay, framkvæmda-
stjóra Standardliðsins, og lýkur
hann þar miklu lofsorði á Asgeir.
Segir hann taka hlutina alvarlega
og ætli sér greinilega að ná langt.
Hann sé framúrskarandi leikmað-
ur, bæði skotviss og fljótur að
, <'c»t pkK ei«c. *vW*«!toitct.*
*wno«tr»irt'iimi.
l'n trés grand joucur
Att StitrfwJ. (■«.!
(»«»' UMtftttx.v !)«| <::ot”Ot k-
nttetjx :<• j«kw Wxrajtj. f.in ?’»tii-
4tt, U í«i!W imenwttcna: Ué-
SC".:ú< toit txo:: iVnttiaix et »
«rv: rtc •Mtv-.&K í Stt-oiv(oiMM:
iur* 4« brrMtt k cc dctittr j
t jéik-. So« rtpintttti d propos d» *»r.
,ii iK'.tt 4ttvc::it «i: ttos (R-oixl
.toocur. tfebord vuws cwnnwöl i:
cxi bdli. o:t vcrltaúp !Íé;n*Mcroi■.
KnwiU: :: » un li: cctkKttrtiiix M
DELL
QUAY FISKIBÁTUR
Nú er rétti tíminn til að panta þessa vinsælu
fiskibáta. Lengd 19 fet, breidd 2 metrar. Get-
um útvegað nokkra báta fyrir vorið. Dell Quay
er framleiddur úr fiberglass eftir ströngustu
kröfum.
AVfNli GÚMMÍBÁTAR
Getum afgreitt fyrir vorið allar gerðir af Avon
Gúmmíbátum frá 8 —17 feta. Hagsætt verð.
Avon er mest seldi gúmmíbáturinn í Bretlandi
og Bandaríkjunum. Fáum einnig Avon Searider
báta, með fiberglass kjöl sem geta náð allt að
50 mílna hraða. Leitið upplýsinga.
CHRYSLER 75
Utanborðsmótorarnir eru komn-
ir. Eigum til afgreiðslu strax allar
stærðir frá 3.6 HP til 105 HP.
Chrysler var mest seldi utan-
borðsmótorinn á íslandi 1974.
Kynnið ykkur Chrysler '75.
hlaupa og koma auga á möguleik-
ana hverju sinni. „Fjandinn hafi
það, ef Sigur (en svo er Ásgeir
kallaður i Belgíu) á ekki eftir að
verða einn af þeim allra beztu,“
segir Henrotay í lik viðtalsins.
Mótanefnd
STJÖRN KSl hefur skipað móta-
nefnd fyrir þetta ár. Sitja sömu
menn í nefndinni og í fyrra. Helgi
Danielsson er formaður, og með
honum eru i nefndinni Ragnar
Magnússon og Páll Bjarnason.
Fyrsta verkefni nefndarinnar á
árinu er umsjón Islandsmótsins
innanhúss, sem hefst um næstu
mánaðamót.
t EINU dönsku dagblað-
anna var nýlega getið um
það að Jóhannes Eðvalds-
son, fyrirliði islenzka
knattspyrnulandsliösins,
hefði ákveðið að leika með
1. deildar liðinu Holbæk í
Danmörku á næsta
keppnistímabili. Segir orð-
rétt í frétt blaðsins:
„Jóhannes Eðvaldsson,
íslenzkur landsliðsmaður í
knattspyrnu úr KR í
Reykjavík, mun koma til 1.
deildar liðsins Holbæk
næsta vor.
Edvaldsson, sem ætlar að
nema sjúkranudd í Dan-
mörku, var nýlega númer 2
í kjöri „Iþróttamanns
ársins“ á íslandi. Nr. 1 var
einnig knattspyrnumaður,
Ásgeir Sigurvinsson, sem
er atvinnumaður með
Standard Liege.“
Mbl. hafði í gær samband
við Jóhannes út af frétt
danska blaðsins, og einnig
vegna þess að eitt dagblað-
anna skýrói frá því i gær,
að Jóhannes og Guðgeir
Mynd af opnu belgfska blaðsins. Onnur myndin sýnir Asgeir á æfingu en á hinni myndinni eru hann
og móðir hans að sýna blaðamanninum Vestmannaeyjabók Arna Johnsens.
Bikarkeppni 1 blaki
BLAKSAMBAND Islands hefur
ákveóið aó gangast fyrir bikar-
keppni í blaki i vetur, og verður
það fyrsta keppni sinnar tegund-
ar sem háð er hérlendis. Verður
bikarkeppni þessi hrein útsláttar-
keppni, þannig að lið er úr leik
eftir einri tapaðan leik. Þátttöku-
rétt i keppninni hafa öll félög og
héraðssambönd innan blaksam-
bands tsland, og er hverju félagi
og sambandi heimilt að senda eitt
lið til keppninnar.
Bikarkeppnin á að fara fram á
tímabilinu frá febrúar til apríl og
það félag eða samband sem sigrar
í henni hlýtur titilinn „Bikar-
meistari BLl“ og fylgir honum
veglegur verðlaunagripur
„Ljómabikarinn“ til varðveizlu
þar til næsta keppni fer fram.
Auk þess fá svo leikmenn verð-
launapening.
Þátttökugjald f keppninni er að
þessu sinni kr. 2000,00, og þarf
það að berast til Blaksambandsins
um leið og lið tilkynna þátttöku
sína, en þátttökutilkynningar
þurfa að hafa borizt fyrir 1. marz
n.k. Tekur Guðmundur E. Páls-
son, sími 18836, við þátttökutil-
kynningum.
Jóhannes Eðvaldsson
Leifsson væru á förum til
skozka 1. deildar liðsins
Mortons, sem gert hefði
þeim atvinnutilboð.
— Það er rétt, sagði Jóhannes,
að Morton hefur sýnt áhuga á að
fá okkur til liðs við sig, — en ég
hef aldrei haft minnsta áhuga á
að fara þangað, og mun ekki einu
sinni þiggja boð félagsins að
koma þangað í kynnisferð. Kjörin
sem Morton býður eru slik að ég
tel ekkert vit í að ganga að þeim.
Það er líka rétt sem kemur fram i
frétt danska blaðsins, að ég hef
átt viðræður við forystumenn
Holbæk liðsins og er nær ákveð-
inn í að fara þangað. Ég ætla mér
að læra sjúkranuad, og fæ þarna
kjörið tækifæri til þess. Mun
félagið að öllum líkindum veita
mér fyrirgreiðslu í sambandi við
námið.
Jóhannes tíl Holbæk