Morgunblaðið - 21.02.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.02.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1975 r Rjrgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri: Skuldir hækka um 870 millj. kr. vegna gengisfellingarinnar Frá blaðamanna- fundi Kröflunefnd- ar — t.v. Júlfus Sól- nes verkfræðingur, Ingvar Gíslason, varaformaður nefndarinnar, og Jðn Sólnes, for- maður og fram- kvæmdastjóri Kröflunefndar. Engar framkvæmdir hafnar nema með sérstöku leyfi BIRGIR Isleifur Gunnarsson borgarstjóri upplýsti á fundi borgarstjórnar I gærkvöldi, aó gengistryggðar skuldir borgar- sjóðs myndu hækka um 144,7 millj. kr. vegna gengisbreyting- arinnar. Þá sagði borgarst jóri, að skuldir borgarfyrirtækja myndu hækka um 725,6 millj. kr. vegna gengisbreytingarinnar. Það kom einnig fram f ræðu borgarstjóra, að afborganir og vextir af lánum borgarsjóðs munu hækka um 41,4 millj. kr. á þessu ári og greiðslu- byrði borgarfyrirtækja aukast um 182,6 millj. kr. á árinu vegna gengisfellingarinnar. Borgar- stjóri sagði, að ekki væri Ijóst, hvaða áhrif þetta hefði á fram- kvæmdir borgarinnar, en hann hefði mælt svo fyrir, að engar framkvæmdir yrðu hafnar ncma með sérstöku leyfi, og það sama gilti um áhaldakaup og viðhalds- verk. Þessar upplýsingar komu fram í svari við fyrirspurn frá borgar- fulltrúum Alþýðubandalagsins: Orðrétt sagði borgarstjóri I svari sfnu: „Gengistryggðar skuldir borg- arsjóðs fyrir 14. febr. s.l. voru 578,7 millj. kr. Hér er nær ein- göngu um að ræða eftirstöðvar af því 600 millj. kr. láni, sem borgar- sjóður tók á s.l. hausti. Ég vil rifja upp, að í bréfi mínu til borgarráðs þ. 5. nóv. s.l., þar sem leitað var heimildar til lántökunnar, gat ég þess að sá fyrirvari væri gerður af hálfu Landsbankans, að breyta mætti láni þessu í erlent lán. Það var gert af bankans hálfu þ. 16. janúar s.l. og vaxtakjörum þá jafnframt breytt þannig, að í stað 17% vaxta voru vextir gerðir breytilegir og miðaðir við svo- nefnda FNCB Best Rate við upp- haf hvers 6 mánaða tímabils láns- timans og lækkuðu þá í 11% og fara nú enn lækkandi. Hækkun á þessum skuldum vegna gengislækkunar er 144,7 millj. kr. Gengistryggðar skuldir fyrir- tækja borgarsjóðs voru sem hér segir: m kr. Hitaveita 1.340,0 Rafmagnsveita 932,0 Strætisv. Reykjavfkur 18,0 Bæjarútgerð v/togarakaupa (áætlað) 560,0 i'ramkvæmd&sjóður 28,2 Reykjavfkurhöfn 10,2 Laugardalshöll 13,7 2.902,1 Hækkun ofangreindra skulda nemur um 725.6 m kr. 1 þessum tölum eru ekki reiknaðar hækkanir I innfluttum vörum, sem fluttar verða inn á árinu. Afborganir og vextir af gengis- tryggðum lánum borgarsjóðs á ár- inu 1975 hækka um nálægt 41,4 millj. kr. og er þá tekið tillit til lækkunar á vöxtum. Rétt er að taka fram, að hugsanleg breyting á lánstíma hefur komið til orða við Landsbanka Islands og munu viðræður um það teknar upp fljót- lega. Greiðslubyrói fyrirtækja borgarinnar vegna gengislækkun- ar eykst á árinu sem hér segir: millj. Hitaveita Reykjavlkur 102,0 Rafmagnsveíta Reykjavikur 57,5 Strætisvagnar Reykjavikur 4,5 Framkvæmdasjódur 1,8 Reykjavíkurhöfn 1,5 Laugardalshöll 0,6 B.tJ.R. (togarakaup) 18,8 186,2 A þessu stigi er erfitt að svara þeirri spurningu nákvæmlega. Að því er veilustofnanir snertir, fer það að sjálfsögðu eftir ákvörðun um gjaldskrá þeirra, hvort draga þarf úr framkvæmdum eða ekki. Gjaldskrármálin eru nú til með- ferðar hjá borgarstjórn. Utgjalda- aukning hjá S.V.R. mun lenda á borgarsjóði nema fargjöld hækki. Hins vegar eru ýmsar óbeinar af- leiðingar gengislækkunar ekki framkomnar, t.d. hækkun rekstrarkostnaðar og hækkun framkvæmdakostnaðar. Lakari innheimta getur dregíð úr fram- kvæmdagetu og ljóst er, að kjara- samningar, sem fyrir dyrum standa, munu einhver áhrif hafa á afkomu borgarsjóðs. Þegar þessi atriði liggja ljósar fyrir, tel ég nauðsynlegt að taka fjárhags- áætlun upp til endurskoðunar í borgarstjórn. Á meðan þessi óvissa rikir hef ég mælt svo fyrir um, að engar nýjar framkvæmdir skuli hafnar nema með sérstöku leyfi og sama gildir um áhalda- kaup og viðhaldsverk.“ Ljósmynd Sv.P. Krafla fullvirkjuð í árs- Tvœr 30 Mw gufuhverfilrafalasamstæður keyptar frá Japan fyrir um 890 milljónir kr. lok 1976? Akureyri — 20 febrúar. FYRSTI blaðamannafundur Kröflunefndar var haldin á Akur- eyri f dag og sagði formaður og framkvæmdastjóri nefndarinnar, Jón G. Sólnes alþingismaður, f upphafi fundarins, að þar sem Kröflunefnd hefði samkvæmt ráðherraúrskurði aðal aðsetur sitt á Akureyri hefði þótt hlýða að þessi fyrsti fundur nefndarinnar með blaðamönnum yrði haldinn á heimastöðvum væntanlegrar virkjunar. Varaformaður nefnd- arinnar, Ingvar Gfslason alþingis- maður, var einnig staddur á fund- inum svo og verkfræðingarnir Júlfus Sólnes og Pétur Pálmason. Formaður tók fram að megin- áherzla hefði verið á það lögð af hálfu iðnaðarráðuneytisins, þegar Kröflunefnd var skipuð, að öllum framkvæmdum og undirbúningi þeirra yrði hraðað sem mest. í samræmi við það hefði nefndin lagt hið mesta kapp á að ná skjót- um samningum um afgreiðslu á vélbúnaði og tækjum til virkjun- arinnar. it Enn beiðið lokaniðurstöðu 1 fyrstu var það til nokkurs baga fyrir nefndina að rannsókn- um á Kröflusvæðinu var ekki lok- ið og nefndinni hefur raunar ekki enn borizt formlega lokaniður- staða rannsókn frá Orkustofnun en frumdrög gáfu til kynna að skilyrði til orkuvinnslu væru hag- stæð. Ekki hefur tekizt að gera nákvæma kostnaðaráætlun virkj- unarframkvæmdanna f heild, en samkvæmt nýlegum drögum var hún talin mundu kosta rúma þrjá milljarða króna miðað við gamla gengið. Línukostnaður var þar ekki innifalinn, en hvorki jarð- boranir eftir gufu og gufuleiðsla inn í vélasal né heldur línulögn eru í verkahring Kröflunefndar. Fyrra verkefnið er f höndum Orkustofnunar, en hið síðara hef- ur verið falið Rafmagnsveitum ríkisins. Sl. haust var gengið frá samn- ingi við verkfræðiskrifstofu Siguröar Thoroddsen sf. I Reykja- vík og Rogers Engineering Inc. í San Francisco um skipulagningu og hönnun verkframkvæmda og öflun tilboða í vélbúnað gufu- virkjunar við Kröflu. Það varð strax ljóst, að öflun vélbúnaðar og þá sérstaklega aflvéla til væntan- legs orkuvers mundi taka lengst- an tíma og þess vegna ráða hraða byggingarframkvæmda. Kröflu- nefnd hefur því lagt sérstaka áherzlu á að flýta þessum hluta undirbúningsins. if Afgreiðslutfminn 16—18 mánuðir Eftir að leitað hafði verið til helztu framleiðenda á þessu sviði Vitni vantar ÞRIÐJUDAGINN 18. febrúar s.l. var ekið á bifreiðina R-27600 og vinstra afturbretti dældað. Þetta geróist á móts við hús nr. 22 við Baldursgötu milli kl. 23 og 24. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um þessa ákeyrslu eru vinsamlegast beðnir að hafa sam- band við rannsóknarlögregluna. og tilboð þeirra athuguð, hafa nú verið gerðir samningar við japanska fyrirtækið Mitsubishi um kaup á tveimur 30 MW. gufu- hverfilrafalasamstæðum. Eru samningarnir gerðir með venju- legum fyrirvara um samþykki hlutaðeigandi stjórnvalda. Ráð- gjafaverkfræðingarnir töldu til- boð Mitsubishi 1 aflvélarnar vera hagstæðast enda er um að ræða óvenjulega hagstætt verð og af- greiðsluskilmála að mati þeirra sem til þekkja. Heildarsamningsverð sam- stæðnanna er um 890 milljónir króna miðað við núverandi gengisskráningu og afgreiðslu sif Húsavfk. Hugsanlegar breytingar á flutningskostnaði hafa því eng- in áhrif á verð vélanna. Af- greiðslutimi fyrri vélarsamstæð- unnar er 16 mánuðir og hinnar síðari 18 mánuðir. I verðinu eru innifaldir varahlutir fyrir um 130 milljónir króna. Fyrri vélasamstæðan á að koma til landsins f júní 1976 og skal prófun hennar með fullum afköst- um vera lokið í október sama ár samkvæmt ákvæðum samnings- ins. Ljóst er því, að raforkufram- leiðsla við Kröflu á að geta hafizt síðla árs 1976 ef engin hlekkur í framkvæmdakeðjunni bilar. Kröflunefnd hefur bent yfir- völdum á nauðsyn þess að hraðað verði lagningu byggðalínu frá Kröflu til Akureyrar og ennfrem- ur bent á hagkvæmni þess að leggja flutningslínu frá Kröflu til Austurlands. if Bráðabirgðavirkjun Þá hefur Kröflunefnd unnið að athugun á bráðabirgðavirkjun við Kröfíu sem hugsanlega væri hægt að taka f notkun á þessu ári. Helzt kemur til greina að setja upp notaðar gufuaflvélar af stærðinni 5—10 MW. ef slíkar vélar væru fáanlegar. Ymsir aðilar hafa haft þetta mál til athugunar en án árangurs. Kröflunefnd barst vitneskja um tvær notaðar 5 MW gufuaflvélar f Kaupmannahöfn, sem Rafmagnsveita Kaupmanna- hafnarborgar vildi selja. En borgaryfirvöld þar gáfu ekki leyfi til sölunnar. Kröflunefnd mun fylgjast náið með því hvort bráða- birgðalausn af þessu tagi kemur til greina og halda áfram athug- unum á því máli meðan tími leyf- ir. Nýjar vélar af þessari stærð eru svo dýrar að kostnaður við framangreinda bráðabirgðavirkj- un yrði ekki undir 250 milljónum króna ef þær yrðu keyptar og yrði þá að taka afstöðu til þess hvort leggjandi væri í þann kostnað fyrir eitt ár eða svo, ef notaðar ódýrar vélar fást ekki. Loforð Orkustofnunar hefur fengizt fyrir þvi að boraðar verði Framhald á bls. 31 Ofsaveður í Skagafjarð- ardölum Mælifelli 22. febrúar SlÐAN á laugardag hefur verið stormasamt hér um slóðir, þótt ekki hafi náð viðllka ofsa og sl. laugardagskvöld. Hjörleifur Kristinsson á Gilsbakka i Austur- dal og Grétar Simonarson í Goð- dölum I Vesturdal telja að svo hvasst hafi ekki orðið i dölunum siðan 1. febrúar 1955, en þá var þar fárviðri. Skemmdir urðu á nokkrum bæjum nú, svo sem fúðubrot í Villinganesi og heyfok á Forná en mest í Goðdölum, þar sem 14 þak- plötur fuku af velfrágengnu og nýlegu íbúðarhúsi Borgars Símonarsonar. Stóð veðrið af suð- austri eins og 30. desember 1903 þegar kirkja fauk í Goðdölum og brotnaði i smámola, talin vandað hús og hafði staðið í aðeins 17 ár. — Sr. Agúst. Friðrik gerirenn jafntefli FRIÐRIK Ólafsson gerði enn jafntefli í fjórðu umferð alþjóðlega skákmótsins 1 Tallin í Eistlandi og að þessu sinni við bandaríska stórmeistarann Lombardi. Morgunblaðið náði símasambandi við Friðrik I gær, sem þó rofnaði skömmu slðar, en heyra mátti á Friðrik að þetta hefði verið létt skák og löðurmannleg, þar sem tveir stórmeistarar sömdu snemma jafntefli. Friðrik sagði hins vegar, að hinar þrjár jafnteflisskákirnar hefðu allar verið harðar skákir og raunar hefðu biðskákirnar tvær við Taimanov og Spassky verið mjög erfiðar, þar sem hann átti lakara tafl 1 þeim báðum. Sérstaklega kvaðst hann hafa þurft að tefla ná- kvæmlega í skákinni við Spassky, sem hafði töluvert rýmri stöðu, en svo hefði farið að þeir sömdu um jafntefli Keres er nú i efsta sæti á mótinu með 3 vinninga og bið- skák, Spassky er í öðru sæti með þrjá vinninga og fimm eru jafnir í 3—7 sæti með 2 og 'A vinning en þá kemur Friðrik í 8. sæti með 2 vinninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.