Morgunblaðið - 21.02.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.02.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1975 Geir sneri taflinu við þegar halla tók á FH-ingana Geir Halisteinsson var ekki margar mínútur inná f leik FH og Hauka í 1. deildar keppni tslands- mótsins í handknattleik f fyrra- kvöld. Eigi að sfður skipti það sköpum í þessum leik að hann blandaði sér f málin. Eftir að FH- ingar höfðu náð yfirburðastöðu f hálfleik voru þeir að missa allt niður f seinni hálfleiknum og höfðu ekki skorað mark f 13 mfn- útur á meðan Haukar skoruðu fjögur. Það var þá sem Geir snaraðist úr æfingabúningnum og fór inná. Tókst honum að róa sína menn, koma spili FH-liðsins betur f gang og skora mikilvægt mark. Þar með var tónninn gef- inn. FH-liðið fór aftur að taka við 'sér, og þctta var Geir nóg. Hann fór útaf og hlandaði sér ekki meira í viðureignina. Þetta var annars hálf slakur ieikur af hálfu beggja liðanna, sérstaklega þó Hauka, sem virtust fá svör ciga við þvf herbragði FH-inga að taka Hörð Sigmarsson úr umferð, en hann hafði „yfir- Bikarkeppni 1 KVÖLD veróa leiknir fyrstu leikirnir í Bikarkeppni Körfuknattieikssambands Is- lands. Þá fara fram þrír leikir, og hefst keppnin i íþróttahúsinu í Njarðvík kl. 19. Fyrsti leikurinn er milli UMFG og IBK. UMFG er neóst í 2. deiid, en IBK er ofarlega \ sínum riðli i 3. deild. — Næsti leikur er milli UMFN og UBK. Sióasti leikurinn er milli Snæfells og Ár- manns. Hér eigast tvö 1. dcildar lió vió, en þau léku einmitt saman í deildinni um s.l. helgi. Þá sigraói Ármann meó 90 stigum gegn 80, eftir aó Snæfell hafói leitt allan fyrri hálfleikinn. frakka" á sér allan leikinn. Þá hafði það greinilega ekki Iftið að segja fyrir Haukana að Viðar Símonarson stjórnaði þeim ekki, — hann lék heldur ekki með FH. Virtist liðsstjórnin í hálfgerðum molum hjá Haukum í leiknum, og kom meira að segja fyrir að það gleymdist að skipta inná — Haukarnir voru einum færri, þótt enginn hefði verið rekinn útaf. 1 fyrri hálfleik lék hvorugt liðið vörn. Stórskotahríð var á báða bóga með sínu betri árangri hjá FH, þar sem þeir Ólafur Einars- son og Þórarinn Kagnarsson fengu að leika lausum hala. Mark- varzlan hjá landsliðsmarkverðin- um f Ilaukamarkinu, Gunnari Einarssyni, var líka engin. Hann varði aðeins tvö skot allan hálf- leikinn. f seinni hálfleiknum tefldu Haukarnir varamarkverði sfnum, Ölafi Torfasyni, fram og varði hann snöggtum betur. Þegar FH-ingar höfðu náð 5 marka forskoti f hálflcik, áttu flestir von á þvf að þeir myndu láta kné fylgja kviði og vinna þennan leik með miklum marka- mun. En f seinni hálfleiknum snerist dæmið við. Haukarnir náðu upp baráttu f vörninni hjá sér og stöðvuðu hættulegustu leikmenn FH f tfma, jafnframt þvf sem beðið var betri tækifæra í sóknarleiknum og smugurnar notaðar. Þegar munurinn fór svo að minnka jókst fátið á FH-liðinu og virtist svo sem sagan úr fyrri leik liðanna, þegar FH missti nið- ur unninn leik, kynni að endur- taka sig. Er ekki ólfklegt að svo hefði farið hefði Geir Hallsteins- son ekki blandað sér f málið. Hann beitti sér annars lftið f leiknum — forðaðist návfgi, en kom leiknum aftur í gang fyrir FH. 1 FH-liðinu áttu þeir bræður Ólafur og Gunnar Einarssynir langbeztan leik ásamt Þórarni Ragnarssyni, sem senniiega var beztur FH-inga f leiknum. Hanrr var atkvæðamikill f sókninni og skilaði mjög vel þvf hlutverki sínu að hafa hemil á Herði Sig marssyni þegar FH-ingar voru I vörn. Stefán Jónsson bar af félögum sfnum f Haukaliðinu. Barðisi allan tfmann og er sennilega orð inn einn bezti varnarleikmaður inn f íslenzkum handknattleik Þess vegna á hann fullt erindi inr f fslenzka landsliðið, sem er oi fátækt af mönnum sem kunns verulega vel að leika vörn, og ero ekkert að draga af sér í leikjun- um, heldur gefa sig alla. Þórarinn Ragnarsson, bezti maður FH-liðsins f leiknum, snýr þarna á Ólaf Torfason, Haukamarkvörð og skorar. Fallið blasir við ÍR-ingum eftir 16—19 tap gegn Gróttu UBK lagði FH aftur 1 annað skiptið á fáum dögum sigraði Breiðabilk FH í 1. deild- inni f kvennahandknattleik. 1 fyrra skiptið var leikið í Asgarði í Garðahreppi, heimavelli Breiðá- bliks. Þá sigraði Breiðablik með 14 mörkum gegn 11 eftir að FH hafði leitt lengi vel. Nú var leikið í Firðinum á miðvikudagskvöldið og aftur sigraði Breiðablik, nú með 9 mörkum gegn 8. FII náói góóri forystu f byrjun, komst f þrjú mörk gegn engu áóur en Breióabliki tókst aó svara fyrir sig. Þessari þriggja marka forystu héit FH þar til ellefu mfn. voru eftir af háifleiknum, en þá skoraói Hrefna þriója mark Breióabliks, þannig aó staóan var 5 gegn 3 FH í vil. Þaó sem eftir lifói hálfleiksins komst FH ekki á blaó, en Breióablik skoraói aftur á móti fjögur mörk, og leiddi því í hálfleik, 7 gegn 5. Þegar f upphafi sfóari hálfleiks bætti Björg áttunda marki Breiðabliks vió. Tvö þau næsfu skoraói svo FH, og bjuggust þá flestir vió aó FH mundi taka forystuna f leiknum aó nýju. Svo varó þó ekki því Kristfn skoraói fallegt mark fyrir Breióablik. Loka- oróió í leiknum átti svo Kristjana fyrir FH þegar þrjár mfn. voru til leiksloka. Þaó sem eftir var fengu bæói lióin fjölda tækifæra til aó skora, en allt kom fyrir ekki, Breióablik sigraði meó 9 mörkum gegn 8. Eins og áóur hefir verið getið hér á sfóunni hafa Breióabliksstúkurnar tekió undra- veróum framförum í vetur. Margir töldu f upphafi mótsins aó lióió úr Kópavogi yrói Ifklegast til aó falla, en þá spá hafa Kópa- vogsstúlkurnar aó engu gert. Þaó er þó alls ekki þar meó sagt aó Breióablik hafi ein- STAÐAN Staóan í 1. deildar keppni lslandsmótsins í handknattleik karla er nú þessi: hverju stórliði á aó skipa. Þaó sem mest er um vert er aó lióið er í stöóugri framför. 1 leiknum gegn FH báru af þær Margrét Guómundsdóttir í markinu, Björg Gísla* dóttirog Kristfn Jónsdóttir. 1 lió FH vantaói landsliósmarkvöróinn Gyóu (Jlfarsdóttur, og munar um minna. Ekki er gott aó segja hvernig farió hefói ef hennar hefói notió vió. Svanhvft Magnús- dóttir og Katrín Aradóttir komust einna best frá leiknum af FH-stúlkunum. Annars er lióió fremur jafnt og má mikils af þvf vænta á næstu árum. Leikinn dæmdu Georg Árnason og Geir Thorsteinsson og voru heldur mistækir. Mörkin. Breióablik: Kristfn og Hrefna Snæhólm 3 hvor, Björg 2 og Arndfs Björns- dóttir eitt. FH: Svanhvft 4 (lv), Kristjana 3 <2v) og Katrín Danivalsdóttir eitt. Sigb. G. Unglingaskíðamót ANNAÐ unglingamót bikarkeppni Skíóafé- lags Reykjavfkur veróur haldió sunnudaginn 23. febrúar og hefst kl. 13.00 vió Skíðaskál- ann í Hveradölum. Nafnakall kl. 12.00 á sama staó. Á sunnudag veróur keppt f flokki pilta og stúlkna 10. ára og yngri og 11 og 12 ára Þátttökugjöld eru kr. 200,00. Þátttökutil- kynningar þurfa aó berast til Ellen Sighvats- son sfmi 12371 fyrir kl. 18.00 f dag. ÞAÐ má mikið vera, ef Grótta hefur ekki kveðið upp dauðadóm- inn yfir 1. deildar dvöl iR-inga, er liðin mættust í Hafnarfirði f fyrrakvöld. Seltjarnarnessliðið sigraði, 19:16, og hefur því hlotið 6 stig í keppninni, helmingi fleiri en ÍR-ingar. Getur því varla farið öðru vísi en svo, að það verði iR-ingar sem gisti 2. deild næsta vetur — nokkuð sem enginn hefði trúað áður en mótið hófst í haust, en eins og spilamennskan var hjá liðinu í fyrrakvöld á það ekki annað betra skilið. Eftir að hafa fylgzt með 1. og 2. deildar keppninni í vetur er óhætt að fullyrða, að í 2. deild séu a.m.k. þrjú lið: KA, KR og Þróttur sem eru til muna betri sem lið en þau sem mætt- ust f Hafnarfirði í fyrra- kvöld í botnbaráttunni. Hand- knattleikurinn sem þessi lið sýndu var með afbrigðum slakur, og á tíðum var ekki um það að ræða að leikmenn gerðu tilraun til að iðka þá iþrótt heldur var miklu frekar um fjölleikahúsa- brögð að ræða, sérstaklega undir lok leiksins. Mikill munur er annars á Gróttuliðinu og ÍR-liðinu. ÍR-liðið á að hafa yfir að ráða ágætum einstaklingum, en erfiðlega hefur gengið að mynda liðsheild í vetur, og eitthvað meira en lítið hlýtur að vera að, þegar þrir af sterkustu leikmönnum liðsins, Agúst Svavarsson, Vilhjálmur Sigur- geirsson og Þórarinn Tyrfings- son, eru settir út úr liðinu í svo mikilvægum leik, sem var í fyrra- kvöld, fyrir agabrot. Það hefði örugglega ekki verið gert nema um meiri háttar brot hefði verið að ræða, en lýsir agaleysinu hjá leikmönnum liðsins, að til sliks sem þessa skuli þurfa að koma, þegar félagið er að berjast fyrir lífi sinu í deildinni. Gróttu-liðið hefur hins vegar yfir tiltölulega fáum góöum handknattleiks- mönnum að ráða, en liðseiningin virðist vera með ágætum, og lið- inu tekst að ná því út sem í því býr. Það gerði það a.m.k. i leikn- um í fyrrakvöld, og sýndu leik- mennirnir ágæta yfirvegun, þeg- ar staða liðsins var orðin slæm. ÍR-ingarnir gripu til þess ráðs að taka Björn Pétursson, marka- kóng Gróttu-liðsins, úr umferð. Við það var mesti broddurinn far- inn úr sóknarleik Gróttuliðsins, en Halldór Kristjánsson kunni vel að meta það frelsi sem honum gafst við þessa ráðstöfun IR- inganna og skoraði hann 8 mörk. Vörn Gróttuliðsins lék svo betur að þessu sinni en hún hefur gert í mótinu til þessa, og hver einasti leikmaður liðsins lagði sig allan fram — staðráðnir í því að sigra í þessum leik. ÍR-ingum gekk bærilega í leikn- um til að byrja með og hafði for- ystuna stöðugt í fyrri hálfleikn- um. 1 byrjun seinni hálfleiks var svo ekki til yfirvegun hjá liðinu — einmitt þegar mest á reyndi og tókst Gróttu að skora fimm mörk í röð. Sóknarleikur ÍR-inganna var mjög tilþrifalítill i þessum leik — helzt var það Guðjón Marteinsson og Ásgeir Elíasson sem eitthvað ógnuðu, en sá fyrrnefndi var allt- of skotbráður og var það í ótalin skipti sem IR tapaði knettinum eftir misheppnuð skot hjá honum. V# i ♦ J* v.#' • ' Y.#' Vfkingur 10 7 1 2 197—176 15 Valur 11 7 0 4 218—188 14 FH 10 7 0 3 215—196 14 Fram 11 5 2 4 206—205 12 Armann 11 6 0 5 187—195 12 Haukar 11 5 0 6 205—205 10 Grótta 11 2 2 7 224—249 6 IR 11 1 1 9 187—235 3 Stadan f 1. derld kvenna Valur 10 10 0 0 194:94 20 Fram 9 8 0 1 156:104 16 Ármann .U -«.14 152:119 13 B> eióablik 10 5 0 5 96:130 10 FH •*£.** 10 4 0 6 140:148 8 KR 9 2 16 99:122 5 Þór 11 2 0 9 90:183 4 LIÐ HAUKA: Gunnar Einarsson 1, Ingimar Haraldsson 1, Logi Sæmundsson 1, Olafur Ólafsson 2, Stefán Jónsson 4, Frosti Sæmundsson 2, Hörður Sigmarsson 2, Elfas Jónasson 2, Svavar Geirsson 1, Arnór Guðmundsson 2, Ólafur Torfason 2. LIÐ FH: Hjalti Einarsson 2, Geir Hallsteinsson 2, Sæmundur Stefánsson 1, Guðmundur Stefánsson 2, Arni Guðjónsson 1, Jón Gestur Viggósson 1, Tryggvi Harðarson 1, Kristján Stefánsson 1, Gunnar Einarsson 3, Ólafur Einarsson 3, Þórarinn Ragnarsson 3, Birgir Finnbogason 2. LEICESTER FÆR AFTUR TÆKIFÆRI LIÐ GRÓTTU: Ivar Gissurarson 2, Kristmundur Asmundsson 1, Björn Pétursson 1, Þór Ottesen 1, Arni Indriðason 2, Halldór Kristjánsson 3, Grétar Vilmundarson 1, Georg Magnússon 2, Magnús Sigurðsson 2, Sigurður Pétursson 1, Guðmundur Ingi- mundarson 1. LIÐ IR: Jens G. Einarsson 1, Asgeir Elfasson 2, Ólafur Tómasson 1, Guðjón Marteinsson 2, Hörður Arnason 2, Sfgtryggur Guðlaugs- son 1, Hörður Hákonarson 2, Bjarni Hákonarson 1, Brynjólfur Markússon 2, Sigurður Svavarsson 1. ARSENAL og Leicester sem gerðu jafntefli í ensku bikar- keppninni s.l. laugardag mættust öðru sinni f fyrrakvöld, þá á heimavelli Arsenal. Lauk leikn- um aftur með jafntefli, nú 1—1. Eftir venjulegan leiktfma hafði hvorugt liðið skorað mark, og var þá framlengt. Virtist svo sem Arsenal myndi tryggja sér áfram- haldandi rétt í keppninni er John Kadford skoraði með skalla á 9. mfnútu framlengingarinnar, en nokkrum mfnútum sfðar tókst Alan Birchenall að skora fyrir botnliðið f 1. deildinni, sem lagt hafði allt sitt f sóknina, eftir að Arsenal skoraði markið og þvf fær Leicester enn tækifæri og þá á heimavelli sfnum. Þá fór fram einn leikur í 1. deild. Liverpool kom í heimsókn til West Ham og lauk þeim leik með jafntefli 0—0, þrátt fyrir mý- mörg tækifæri West Ham til að skora. Metaðsókn varð að þessum leik hjá West Ham, þar sem sam- tals 40.256 áhorfendur fylgdust með leiknum. I 3. deild léku Chesterfield og Halifax (1—1) og Walsall og Wat- ford (2—0). 1 skozku bikarkeppninni sigraði Aberdeen i leik sínum við Dundee United á útivelli 1—0 og mætir Motherwell í undanúrslit- unum. I skozku 1. deildar keppn- inni vann svo Dumbarton stór- sigur yfir Arbroath: 5—1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.