Morgunblaðið - 21.02.1975, Page 4
4
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
T2 21190 21188
LOFTLEIÐIi
/^BÍLALEIGAN ^IEYSIR CAR RENTAL -».24460 Æ 28810 PIOMŒETT Útvarp og stereo kasettutæki
4 . , .
SKIPAUTfi€RÐ RIKISINS
m/s Esja
fer frá Reykjavik þriðjudaginn
25. eða miðvikudaginn 26. þ.m.
vestur um land i hringferð.
Vörumóttaka: föstudag og mánu-
dag til Vestfjarðahafna, Norður-
fjarðar, Siglufjarðar, Ólafsfjarð-
ar, Akureyrar, Húsavikur, Rauf-
arhafnar, Þórshafnar, Bakka-
fjarðar, Vopnafjarðar og
Borgarfjarðar eystri.
Vélapakkningar
Dodge '46—'58,
6 strokka.
Dodge Dart '60—'70,
6—8 strokka.
Fiat, allar gerðir.
Bedford, 4—6 strokka,
dísilhreyfil.
Buick, 6—8 strokka.
Chevrol. '48—'70,
6—8 strokka.
Corvair
Ford Cortina '63—'71.
Ford Trader,
4—6 strokka.
Ford D800 '65—70.
Ford K300 '65—'70.
Ford, 6-—8 strokka,
'52 —'70.
Singer-Flillman- Rambler-
Renault, flestar gerðir.
Rover, bensín- dísilhreyfl-
ar.
Skoda, allar gerðir.
Simca.
Taunus 12M, 17M og
20M.
Volga.
Moskvich 407—408.
Vauxhall, 4—6 strokka.
Willys '46—'70.
Toyota, flestar gerðir.
Opel, allar gerðir.
Þ.Jónsson & Co
Simar 84515—84516.
Skeifan 1 7.
Alþýðuflokkurinn og
stjórnarmyndunin
Það er býsna fróðlegt að lesa
stjórnmálaskrif landsmála-
blaða, sem oft sýna viðfangs-
efnin í öðru Ijósi en dagblöð
höfuðborgarinnar. 1 aðalmál-
gagni norðlenzkra Alþýðu-
flokksmanna, Alþýðumannin-
um á Akureyri, segir m.a.:
„Hér skal ekki gert lítið úr
efnahagsvanda okkar tslend-
inga nú. Hann blasir við aug-
um. Og auðvitað ber okkur öll-
um að snúast við honum af
manndómi...“
„Mistökin við síðustu stjórn-
armyndun vóru þau, að Alþýðu-
flokkurinn átti að mynda
stjórnina með Framsókn og
Sjálfstæði....“
Blaðið segir, að þessa ríkis-
stjórn hefði átt að mynda undir
forsæti Gylfa Þ. Gíslasonar,
„reyndasta og hæfileikamesta
stjórnmálaforingjanum, sem
nú situr á Alþingi".
Það er eftirtektarvert, að
þetta höfuðmálgagn norð-
lenzkra Alþýðuflokksmanna
bendir ekki á nýja vinstri
stjórn sem æskilega leið í átök-
um við efnahagsvandann. Og
það leggur áherzlu á, að mæta
þurfi efnahagsvandanum með
opnum augum og raunhæfu
samátaki. Það er allt annar
tónn í skrifum þess en ! Alþýðu
blaðinu, sem löngu er hætt að
nefna á nafn „hinn ábyrga
stjórnmálaflokk", er eitt sinn
var inntak boðskaparins.
Athyglisvert er, að Alþýðu-
maðurinn kveður upp þann
dóm eftir nokkra mánaða
flokksformennsku Bencdikts
Gröndals að hann sé ekki hæf-
ur til að mynda stjórn en þegar
frá er skilinn lofsöngur
Alþýðumannsins um Gylfa Þ.
Gfslason, þar sem gætir skiljan-
legrar eftirsjár, eftir formanns-
skiptin í flokknum, stendur eft-
ir sú staðhæfing blaðsins, að
Alþýðuflokkurinn hefði átt að
mynda ríkisstjórn með núver-
andi stjórnarflokkum. Þetta er
í sjálfu sér mjög athyglisverð
yfirlýsing. En í því efni er ekki
úr vegi að minna á, að flokkar
geta tekið ábyrga afstöðu og átt
aðild að nauðsynlegu samstarfi
um lausn aðsteðjandi vanda-
mála, þó utan ríkisstjórnar séu.
Það er ekki endilega nauðsyn-
legt, þó flokkur standi utan
rfkisstjórnar, að gerast tagl-
-hnýtingur þeirra, er fjarst
standa ábyrgð og samátaki í
stærsta efnahagsvanda, sem
yfir þjóðina hefur lengi dunið.
Batnandi manni
er bezt að lifa
Fyrir skemmstu skrifaði
Magnús Kjartansson leiðara f
Þjóðviljann, þar sem réttilega
er vegið að þvf verðlagskerfi,
sem færir innflytjendum hærri
álagningu í krónutölu eftir þvf
sem innkaupsverð vörunnar er
óhagstæðara og hærra. Þetta
var óvæntur stuðningur við
sjónarmið, sem forráðamenn
verzlunarinnar hafa barizt fyr-
ir um langt árabil, þ.e. breytt
verðlagskerfi.
f gær fer afturbati Magnúsar
Kjartanssonar enn í vöxt. Þá
fjallar hann í leiðara um hugs-
anlega stöðvun hitaveitufram
kvæmda í nágrannabyggðum
Reykjavíkur, sem ótrúleg
skammsýni á tekjuþörf Hita-
veitu Reykjavíkur kann að
leiða af sér. Á sínum tíma, er
Magnús Kjartansson var orku-
ráðherra, þvældist hann fyrir
gjaldskrármálum hitaveitunn-
ar, með þeim afleiðingum, að
ekki var hægt að fullnægja skil-
yrðum fyrir lánsfjárútvegun til
þessara framkvæmda um sinn.
Framkvæmdir þessar hófust
því síðar og eru nú skemmra á
veg komnar en ella hefði verið.
Þessi seinkun hefur og gert
þessar framkvæmdir dýrari en
vera þurfti, ef tekið er tillit til
þeirrar verðlagsþróunar, sem
orðið hefur bæði innanlands og
á innfluttu efni til þeirra.
Nú talar Magnús um seinkun
þessar framkvæmda sem
„þjóðhagslegt hneyksli, er
muni valda stórfelldu fjárhags-
legu tjóni, bæði fyrir einstakl-
inga og búskap landsmanna".
Þetta er nákvæm lýsing á hans
fyrri afstöðu. En batnandi
manni er bezt að lifa. Með hlið-
sjón af hinum miklu hækkun-
um á olíuvörum verður nýting
innlendra orkugjafa enn
brýnni og nauðsynlegri. Það
verður því að gera allt sem
hægt er til að hraða fram-
kvæmdum á þeim vettvangi,
ekki sfzt þeim viðfangsefnum,
sem komin eru á framkvæmda-
stig eða vel á veg, svo sem hita-
veituframkvæmdum í ná-
grannabyggðum Reykjavíkur,
Hitaveitu Suðurnesja og Hita-
veitu Sigluf jarðar. Það er
ánægjulegt að fyrrum þrösk-
uldurinn í vegi þessara fram-
kvæmda skuli nú hafa snúizt á
sveif með eðlilegri framþróun í
nýtingu þeirrar orku, sem bíð-
ur við bæjardyr þéttbýlla
byggðarlaga og leyst getur af
hólmi þá sovétolíu, er húseig-
endur kaupa nú síhækkandi
verði.
Séra Bernharður Guðmundsson skrifar frá Addis Abeba:
Þegar gaman er að
vera íslendingur
— 25 tonn og 10 á leiðinni. Ég lofa því.
Þetta er ótrúlegt — segir mr.
Pearce. — Og aðeins 200 þús-
und sálir á öllu landir.u. Merki-
legt fólk. Það er von að við
töpum öllum þorskastríðum við
ykkur. —
Mr. Brian Pearce er einn
þessara þurrlegu, öguðu Eng-
lendinga, en í þetta sinn sleppir
hann ögn fram af sér beizlinu.
Hann er framkvæmdastjóri
Samtaka hjálparstofnana hér í
Eþíópíu. Orsökin fyrir þessari
„útsláttarsemi" er bréf sem
hann hefur í höndunum frá
hjálparstofnun kirkjunnar á Is-
landi með upplýsingum um
fatasendingar til Eþíópíu.
Hann heldur áfram:
— Þetta gat ekki komið sér
betur. Litli regntíminn er að
byrja og þá herjar lungnabólg-
an á þetta skjóllausa fólk. Við
sendum út um þessar mundir
flutningabíla með korn til verst
leiknu staðanna. Þá er ómetan-
legt að geta sett fatakassa ofan
á farminn og deilt siðan út bæði
fæði og klæðum. Flyttu innileg-
ustu þakkir til landa þinna. —
En Mr. Pearce heldur áfram
að ræða um hjálparstarf íslend-
inga.
— Svona var þetta í fyrra
lika. Þegar við áttum varla
krónu i kassanum, en lifið lá á
að halda áfram útdeilingu mat-
ar, kom þá ekki þessi stórhöfð-
inglega peningagjöf frá þessari
litlu eyju í ísnum. Makalaust
fólk. Ég verð að komast þangað
einhvern tíma.
Ég býð hann velkominn, ef
annir leyfa honum einhvern
timann að fara héðan. Mr.
Pearce hefur mejra að segja:
— Og svo reyndist hjálpar-
starfið brýnast, þar sem ís-
lenzkir kristniboðar voru starf-
andi. Þú hefðir átt að sjá þá að
verki. Ég hef nú verið í hjálpar-
starfi frá stríðslokum og ég þori
að fullyrða, að sjaldan hafi orð-
ið eins góð nýting á gjafakorni
og því sem þessir ágætu tslend-
ingar dreifðu. Þeir vissu hvar
þörfin var mest, þekktu allar
aðstæður og höfðu svo einstak-
lega gott lag á heimamönnum,
það er ekki öllum gefið.
DRYKKjURÆFÍU- / KVENNAFLAGARl l
LETÍUAUGUR / ax—
VÍE> 5KULUM SATWST EL5KAN
&LERTAUIÐ ER BÚIÐ <
i.'-J
11 ^
-'l.
wi^íÍÍtm£m2m^LmLL
Og Bretinn hlær við er hann
segir mér sögu, sem ég hafði
reyndar heyrt áður af þeim
löndum í Konsó.
— Þessi svokölluðu „frum-
stæðu“ þjóðfélög, geta oft
kennt okkur sitthvað um samfé-
lagshætti. Til dæmis hafa þeir
þann háttinn á í Konsó, ef ein-
hver verður brotlegur við lög
þeirra, að þeir safnast saman,
setja þjófinn eða hvað hann
hefur nú af sér gert, upp á pall
og síða: læja þeir áð honum
tímunun. saman. Það er bitur
refsing, skal ég segja þér. Nú
þegar þeir fóru að dreifa korni
I Konsó, vildu þeir sem betur
voru staddir líka fá sinn skerf.
Skúli og Jónas vissu að ef þeir
væru beittir hörðu, kynnu þeir
að grípa til skemmdarstarfs I
hefndarskyni, dreifa gróusög-
um, skemma bíla o.s.frv. Því
sögðu okkar menn að þeir væru
velkomnir eins og þeir ör-
snauðu, bara koma þegar dreif-
ingin færi fram. Þegar þeir
riku birtust í biðröðinni, gall
við hlátur. Menn veltust um af
hlátri — og þeir ríku læddust
sneyptir burt, höfðu lært sína
lexfu, en gátu hins vegar ekki
fjandskapast við hjálparstarfið.
— Ja, það er að mörgu að gæta.
Mr. Pearce telur þá upp þessa
íslenzku afbragðsmenn og ber
nöfnin þeirra fram á dæma-
laust kyndugan hátt: Haraldur
Ólafsson, Helgi Hróbjartsson,
Jónas Þórarinsson og Skúli
Svavarsson. Og enn lofa ég að
koma þakklæti hans á fram-
færi.
Eg spyr Pearce hvað hæft sé í
því, að ekki komist öll hjálp á
leiðarenda en hafni stundum
hjá þeim sem þurfa hennar
minna með.
— Það er aldrei hægt að kom-
ast hjá því að eitthvað lendi á
röngum stað. Er ekki vörurýrn-
un í beztu fyrirtækjum, hvað þá
við þær aðstæður, sem við verð-
um að vinna við. Mannlegt eðli
er nú einu sinni eins og það er.
BIll bilar á vegleysum. Um nótt
er hluta farmsins stolið,
kannski af sársvöngum,
kannski af þeim sem hefur sín-
ar hugmyndir um eignarétt.
Oftast erum við að verki í
neyðaraðstæðum, ókunnugir
aðstæðum. Þá er erfitt að
greina hver er svengstur, þegar
allir eru svangir. Ef við höfum
ekki þeim mun betri aðstoðar-
menn, eins og í Konsó, geta
þorparar smyglað sér aftur i
röðina, án þess að við greinum
það. Ókunnugum eru öll andlit-
in eins. En ekki ætti það
draga úr okkur þótt einhve
slík mistök verði á umfangs-
miklu starfi. Hinir nauðstöddu
verða að fá hjálp, og neyð
þeirra er nógu sár, þótt við lát-
um þá ekki gjalda spillingar
samfélagsins. En ekki þurfum
við vestrænir heldur að vera
hissa. Það er nú svo í Englandi
og kannski líka á tslandi, að
þeir ríku hreppa stundum það,
sem þeim fátæku var ætlað. Og
þar er þó eðlilegt ástand. Opnir
fjölmiðlar og allt til alls til að
uppgötva svik.
En satt að segja er ég stund-
um stórundrandi hve vel tekst
að koma hjálp á rétta staði, við
þær firna erfiðu aðstæður, sem
vinna verður við.
Það þyngir yfir Pearce og
hann bætir við:
— Hér fyrr á árum var þetta
allt léttara. Það kom upp neyð-
arástand, hjálp var send og mál-
ið leystist. Nú virðist vandamál-
ið vera miklu alvarlegra. Sum
lönd virðast lifa við sífellda
neyð og þar er enginn endir á.
Höfðinglegar gjafir frá nægta-
samfélögum, lina þjáningar
þeirra i svip eins og skylda okk-
ar er að gera — en það er engin
lausn til frambúðar. Og finnist
ekki lausn, sem verður fram-
kvæmd fljótlega, lýkur þessu
aðeins á einn veg: Hungur um
heim allan. —
Ég spyr hvort hann sé ekki
farinn að þreytast á þessu
starfi.
— Fyrir löngu síðan vildi ég
hætta. En þegar maður hefur
séð neyð fólks, getur maður
ekki látið eins og maður viti
ekki um hana. Maður er knúinn
til að gera eitthvað til gagns.
Maður verður að þrauka svefn-
lausar nætur, martraðir, en
starfið veitir líka mikla gleði.
Þegar maður finnur að maður
er til gagns og þegar allt gengur
vel við dreifingu eins og þegar
maður vinnur með íslending-
um ...