Morgunblaðið - 21.02.1975, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1975
5
KvP lördag 18.1.19
aWXBOWOaiWg^BI Mftndagen <le« ST JgBBm‘1 19T.V
Flink portrattör
Islönnihgen Steir.frrimur Sigurds-
son. staller ut pá den nya konstsa-
longen Tre Kungar víd Nytorgel i
Kungalv. Han 'ár globetrotter, för-
íattare, joumali*t och snabb produ-
cent av portratt i fárgkritor som
han tom ástadkommer medan mo-
tivet vandrar runt och tittar pá
hans konst.
— Portrattecknandet ger mej en
ehans att komma i kontakt med
folk och samJa intryck frán det
kmd jag besöker, ságer han.
Iirtrycken redovisar han i artiklar
DAGENS
intervju
till Morgonbiadet i Rey’
far sá pengar för aU
násta stad. Han
í mellan himmei <v
i hel del beromcF
| tecknar *v o
i digt Han >
ar runt och portrát-
cn sig pá sín bond-
•í pá IsLand hos sina
•».r scener frán den
dár
man-
sma i
overy
-m « :0*
Steingrimur Sigurdsson
portrðtterar sína Isfand-
ska landsmðn i Malmö.
Tvi dagar átBHer han ut
pé .Ungdomens hus (Fo-
to: Torbjörn Carlsson)
Han rítar av
besökarna
\LMö (KvP) Steingri-
^igurdsson beter han
nmer frán Stokkse-
Htter islándskt
Kksá.
‘eingrímur i
v*> '°igar, mest
den sto-
al-
Sænsk blöð um sýningar
Steingríms Sigurðssonar
Steingrímur Sigurðsson listmál-
ari hefur undanfarinn mánuð
haldið sýningar i Svíþjóð eins og
áður hefur verið greint frá.
Fyrst sýndi hann í Malmö á
vegum Galleri Islandica, sem
Guðni Stefánsson veitir forstöðu.
Steingrímur hlaut góðar viðtökur
sænsku blaðanna. Kulturredaktör
Gunnar Niels Nielsson við Syd-
-svenska Dagbladet skrifaði um
sýninguna í Malmö undir fyrir-
sögninni: Konst pá platsen (list á
staðnum), og ennfremur skrifaði
þekktur blaðamaður, Ulv
Johannsson, í Kvallsposten undir
fyrirsögninni: Han ritar av besök-
arna: „Hann gerir skyndimyndir
af sýningargestum.
Nielsson segir m.a. þetta: „ ...
Steingrímur hefur þegar haldið
20 sýningar og sækir oft fyrir-
myndir — þegar ekki er um að
ræða „portret" — til íslenzkrar
náttúru. Á sumrin býr hann á
suðurströnd Islands og þar fær
hann sífellda hugljómun frá At-
lantshafinu. Á sýningu hans er
hægt að fylgjast meö þvi, hvernig
islenzk list skapast.
Auk málaralistar stundar hann
,,free-lance“-blaðamennsku og
hann hefur skrifað fjórar bækur
og að auki þýtt eina bók eftir
Alexander Solzhenitsyn.
Ulv Johannson segir m.a. þetta
í Kv.P. 18. jan. sl.: „Hann heitir
Steingrímur Sigurðsson og býr á
Stokkseyri. Þetta nafn hljómar ís-
lenzkt. Það kemur lika á daginn.
Undánfarið hefur hann dvalizt
nokkra daga í Malmö mestmegnis
til að gera andlitsmyndir af hinni
íslenzku nýlendu í Malmö. Hann
sýnir 30 andlitsmyndir — Málm-
eyjar-portret — i dag og á morgun
i Ungdommens Hus við Skolgatan
10.
Steingrímur sýndi ennfremur
skyndiportret og nokkrar blóma-,
innlifis- og kyrrlífsmyndir í Gall-
eri Tre Kungar i Kungálv við
Gautaborg. Það var fimm daga
sýning. Upprunalega átt sýningin
að vara þrjá daga, en var fram-
lengt um tvo daga vegna aðsókn-
ar. Galleri Tre Kungar er nafntog-
aö gallerí og þekkt á meginland-
inu. Þar sýna franskir, hollenzkir,
svissneskir og þýzkir málarar.
Það er talið eitt af þrem beztu’
galleríum í Suðvestur-Svíþjóð. I
Bohuslaningen 24. jan. sl. segir
þetta m.a.: „Ekki líður meira en
háif klukkustund, unz myndin
verður til og afhent þeim, sem
situr fyrir. Það er snjallt hjá
Steingrimi Sigurðssyni, að hann
lætur ekki truflazt við vinnu sína
og í sínum listrænu vinnubrögð-
um, enda þótt sá eða sú, sem situr
fyrir, sé á hreyfingu, gangi um og
hafi sína hentisemi. Hann hefur
verið í ferðum í Svíþjóð síðan 7.
þ.m. Siðast var hann í Málmey.
Kungálv er síðasti áfanginn í Sví
þjóð. Héðan fer hann til Öslóar.
Steingrímur hefur ekki einungis
stundað og kynnt list sína í heima-
landi sínu, heldur og í U.S.A. og í
Frakklandi hefur hann kynnt
þessa sérstæðu gerð listar sinnar,
List á staðnum — konst pá plats-
en. Steingrímur er fjölhæfur
Iistamaður og fjölgáfaður per-
sónuleiki. Hann er ekki einungis
listmálari að atvinnu, heldur
einnig blaðamaður, rithöfundur
Sven Eklund skrifar um sýn-
ingu Steingríms í Kungálv í þætt-
inum „Dagens intervju“ (viðtal
dagsins) undir fyrirsögninni:.
Flink portráttör ( (Snjall port-
rett-málari): íslendingurinn
Steingrimur Sigurðsson sýnir um
þessar mundir í listasalnum Þrír
kóngar við Nýjatorg í Kungálv.
Hann hefur ferðazt víða um heim,
hann er rithöfundur og hann ger-
ir skyndiandlitsmyndir i pastel, á
meðan „fyrirmyndin" labbar um
og skoðar sýningu hans.
„Portret-gerðin gefur mér færi
á að komast í snertingu við mann-
eskjur og verða fyrir áhrifum frá
þvi landi, sem ég sæki heim,“
segir hann.
Hann segir frá þessum áhrifum
í skrifum sínum, sem hann birtir í
Morgunblaðinu í Reykjavik.
Hann skrifar um allt milli himins
og jarðar. Á leið hans verður
margt frægt fólk, sem hann málar
og teiknar og á jafnframt viðtal
við. Hann hefur skrifað fjórar
bækur og einnig þýtt Solsjenit-
syn.
Þegar hann er ekki á ferðalagi
hefur hann dvalizt á bæ sinum á
Stokkseyri á Islandi hjá þrem
börnum sínum. Hann málar m.a. á
Þingvöllum þessum gamla alþing-
isstað, þar sem var elzta löggjafar-
þing heimsins.
Molly, forseti menningarráðs úr
Kungálv, sat fyrir á mynd, sem
Steingrímur gerði í brúnkrít. Það
var á fyrsta degi sýningarinnar.
Síðan kom hver Svíinn á fætur
öðrum og lét gera af sér portret.
Steingrimur gerði myndir af
Folke Lind, einum frægasta mál-
ara Svía, og Kjell, sem er stór-
huga listamaður. Kjell færði
Steingrimi gjöf, leðurskrin með
skjaldarmerki undir glasplatta og
skrifaði i botn skrinsins á ensku:
„I’m glad having got a great Ice-
landic spirit among my friends".
Ennfremur hafði hann gert sjálfs-
mynd og sett undir maríugler inni
í skríninu.
Eric Ekbrand og sonur hans
Gunnar leystu Steingrím út með
Framhald á bls. 29
TAKIÐ MJÖG VEL EFTIR
ENNÞÁ ER TIL MJÖG FJÖLBREYTT
ÚRVAL AF ALLS KONAR FATNAÐI
Á HREINT ÓTRÚLEGA
GÓÐUM KJÖRUM T.D. W ^H
KULDAFLIKUR OG LEÐURFLÍKUR Á DOMUR OG ^H H ■
HERRA ÁSAMT STÖKUM TERELYNE- & ULLAR- ^H H I
BUXUMfTWEED BUXUM • FOTUM M/VESTI • ^H I
KJOLAR • PILS • BLUSSUR O MFL HH ■
KARNABÆR
" Útsölumarkaður Lauqaveq 66
ÞRATT FYRIR ALL I OG ATLT
STÓRGLÆSILEGT ÚRVAL AF
NÝJUM OG FALLEGUM VÖRUM.
SIMI 18660
SIMI13630
SIMI 12330.