Morgunblaðið - 21.02.1975, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1975
Skólamáltíðir í
skólana? — Afstaða
foreldra könnuð
Fræðsluskrifstofa Reykjavfkur
er um þessar mundir að senda
út spurningalista til könnunar
á afstöðu foreldra og forráða-
manna nemenda í forskóla í
1.—3. bekk og 4.-8. bekk í
skyldunámsskóla til skóla-
máltfða. Er það liður f athug-
unum, sem á undanförnum
árum hafa farið fram á vegum
fræðsluyfirvalda í Reykjavík
um það með hvaða hætti væri
unnt að koma á samfelldum
skóladegi hjá nemendum, sem
oft verða að gera sér fleiri en
eina ferð á dag til að sækja
kennslustundir skólans, en
geta ekki verið allar kennslu-
stundirnar án þess að fá að
borða.
Spurningalistarnir verða
sendir heim með nemendum á
föstudag og eiga þeir að koma
aftur útfylltir á mánudag.
Könnunin miðar að þvf að fá að
vita hvort foreldrar vilja
óbreytt ástand, þ.e. að
nemandinn borði heima; að
hann hafi hádegismatinn með
sér í skólann sem nesti; að hann
fái keypta mjólk í skólanum en
hafi matinn með sér að öðru
leyti, eða að hann fái hádegis-
matinn keyptan í skólanum. Og
sfðan eru þeir, sem vilja fá mat-
inn keyptan spurðir hve mikið
hádegismatur fyrir hvern
nemdanda megi kosta að
hámarki til þess að valið yrði
fremur að kaupa hann en að
láta nemanda hafa matinn með
sér sem nesti að heiman. Gert
er ráð fyrir núverandi verðlagi
og miðað við 5 valkosti, þar sem
maturinn kostar þá frá 80 kr.
upp í 175 kr. á dag eða á mánuði
1600 kr. upp í 3500 kr. Er miðað
við að foreldrarnir sjálfir greiði
fyrir börn sín það, sem
maturinn kostar kominn i
skólann, en ríki og borg greiði
laun starfsfólks við skóla-
máltíðir innan hvers skóla.
Samkvæmt skýrslu, sem
fræðsluráð Reykjavíkur lét
gera í maí 1973, og fjallaði um
samfelldni í skóladvöl nemenda
var skólamáltíð tekin til sér-
stakrar athugunar og kom þá
m.a. fram að heit máltíð myndi
kosta rúmlega helmingi meira
en kaldur matur. Með köldum
mat var þá átt við matarpakka,
sem innihéldi brauð með
breytilegu áleggi, ávöxt, t.d.
epli eða appelsínu, og 'A lítra af
mjólk. Endanleg ákvörðun heil-
brigðisyfirvalda skólanna um
hvert skuli vera innihald
hádegisverðar í skólum Iiggur
enn ekki fyrir og er að svo
stöddu i þessari könnun miðað
við matarpakka og mjólk í
líkingu við það, sem fram kom í
skýrslu fræðsluráðs frá 1973 og
hér hefur verið Iýst. Ekki er
ljóst hvað hádegisverður mýndi
kosta á nemanda, en fjöldi
þeirra nemenda sem kaupa
mat, skiptir m.a. máli vegna
þess hvaða hagræðingu er hægt
að koma við í framleiðslu, t.d.
með sjálfvirkum vélakosti.
Engar ákvarðanir hafa verið
teknar enn af hlutaðeigandi
stjórnvöldum, rfki og Reykja-
víkurborg, um það hvort eða
hvenær teknar kynnu að verða
upp skólamáltíðir.
Kennslustundir nemenda í
4.—8. bekk grunnskóla eru það
margar að ekki er unnt að láta
nemendur i þeim bekkjum ná
samfelldum skóladegi nema
með því að geta neytt matar um
hádegið í skólanum, en börn í
forskóla og 1.—3. bekk hafa
aftur á móti ekki fleiri viku-
legar kennslustundir en svo að
þessvegna mætti fá samfelldan
skóladag fyrir eða eftir hádegi
og því undir foreldrum komið
hvort þau börn borðuðu heima
eða í skólanum.
Hefur fræðslustjórinn í
Reykjavík hvatt foreldra eða
forráðamenn nemenda til að
taka þátt í þessari könnun, sem
mun veita mikilvægar upp-
lýsingar sem ákvarðanir er
síðar kynnu að verða teknar um
þetta mál myndu að verulegu
leyti byggjast á.
Nýtt loðnuverð ákvarðað
MORGUNBLAÐINU barst í
gær eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá Verðlagsráði sjávarút-
vegsins:
Yfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins ákvað á fundi í
dag eftirfarandi lágmarksverð
á loðnu til bræðslu eftirgreind
timabil áloðnuvertíð 1975:
Frá 16. febrúar til 22.
febrúar, hvert kg kr. 2.45, frá
23. febrúar til 1. marz, hvert kg
kr. 2.10, frá 2. marz til 8. marz,
hvert kg kr. 1.75, frá 9. marz til
15. marz, hvert kg kr. 1.65 og
frá 16. marz til loka loðnu-
vertíðar, hvert kg kr. 1.60.
Verð á úrgangsloðnu frá
frystihúsum skal vera 10%
lægra en ofangreint verð.
Auk framangreinds verðs
greiði kaupendur kr. 0.10 fyrir
hvert kg frá 16. febrúar til 8.
marz í loðnuflutningasjóð. Eftir
þann tíma er ekki greitt fram-
lag i loðnuflutningasjóð.
Fulltrúum i Verðlagsráði er
heimilt að segja verðinu upp
frá og með 23. marz og hvenær
sem er síðan, með viku fyrir-
vara.
Verðið var ákveðið af odda-
manni og fulltrúum loðnuselj-
enda gegn atkvæóum fulltrúa
loðnukaupenda í nefndinni en í
henni áttu sæti: Jón Sigurðs-
son, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar, sem var oddamaður
nefndarinnar, Guðmundur Jör-
undsson og Tryggvi Helgason
af hálfu seljcnda og Guðmund-
ur Kr. Jónsson og Jón Reynir
Magnússon af hálfu kaupenda.
Ekið
á bíla
AÐFARARNÓTT 20. febrúar
s.l. var ekið á bifreiðina Y 769,
sem er rauður Skódi, þar sem
bifreiðin stóð við gangstéttar-
brún við Barónsstíg 5. Bifreiðin
er öll meira og minna dælduð
að aftan. Þá var ekið á bif-
reiðina R 33920, sem er Merced-
es Benz svartur að lit, þar sem
bifreiðin stóð við Stýrimanna-
stíg 15 Öldugötumegin. Gerðist
þetta frá kl 20 á þriðjudag til
klukkan 17 s.l. miðvikudag.
Báðar vinstri hurðir eru dæld-
aðar. Dökkgrænn litur var í
skemmdunum.
1 báðum tilfellunum stungu
sökudólgarnir af vettvangi án
þess að gefa sig fram. Það eru
tilmæli rannsóknarlög-
reglunnar að þeir sem ein-
hverjar upplýsingar geta geíið
um þessar ákeyrslur hafi þegar
samband við rannsóknarlög-
regluna. í báðum tilvikunum er
um mikið tjón að ræða.
Símamynd AP
FISKISTRÍÐ — Reiðir fiskimenn stöðvuðu flutningabíla skammt frá
París í gær og fleygðu fiski út fyrir vegarbrúnina til að mótmæla lágu
fiskverði og innflutningi á ódýrum fiski frá öðrum löndum.
790.892
Bretar at-
vinnulausir
London, 20. febrúar. AP.
ATVINNULAUSUM hefur
fjölgað f 790.892 í Bret-
landi f þessum mánuði og
hafa ekki verið fleiri sfðan
í janúar 1973 að þvf er
brezka stjórnin tilkynnti f
dag.
14.000 fleiri eru atvinnulausir
en í síðasta mánuði og 137.000
fleiri en 1 nóvember. Alls eru
3,4% 23 milljóna vinnufærra
manna í Bretlandi atvinnulausir.
Ekki eru taldir með 60.000
verkamenn sem hefur verið sagt
upp til bráðabirgða og heldur
ekki þúsundir verkamanna sem
vinnutimi hefur verið styttur hjá,
þar á meðal 11.000 starfsmenn
Ford-verksmiðjanna, sem munu
vinna þrjá eða fjóra daga í viku
frá og með 3. marz.
Atvinnuleysið er mest á Norð-
ur-lrlandi. Þar eru 34.691 at-
vinnulausir eða 6,8%.
Reiðir sjómenn henda
físki og loka höfnum
Dunkerque, 20. febrúar
AP, Reuter
REIÐIR fiskimenn lokuðu
frönskum höfnum f dag og
fleygðu niður fiski til að mót-
mæla lækkun á fiskverði og
hækkuðu olfuverði, en stjórnin
kom til móts við kröfur þeirra.
Togarar röðuðu sér við hafnar-
mynni og stöðvuðu siglingar til og
frá Calais, Boulogne, Le Havre,
Dieppe, Treport, Brest, L’Orient
og Sables d’Olonne. Siglingar her-
skipa voru þó ekki hindraðar f
Brest. Mestallar ferjusiglingar
yfir Ermarsund lögðust niður
nema frá Le Havre, en ferðir loft-
púðaskipa gengu samkvæmt áætl-
un.
Vöruflutningabifreiðar á leið
til Parísar með 'fisk á markað þar
voru stöðvaðar af réiðum fiski-
mönnum, sem fleygðu niður 160
lestum af fiskí. Á veginum frá
Lille til Parísar stöðvaðist umferð
í tvo tíma þegar 80 iestum af fiski
hafði verið fleygt úr fimm
flutningabifreiðum skammt frá
Roy, þar af einum hollenzkum.
Sama sagan gerðist við Suvilliers
og Boulogne.
Séinna átti Marcel Cavaille
samgönguráðherra þriggja tfma
fund með fulltrúum 30.000 fiski-
Aminer
hræddur
Kampala, 20. febr. Reuter.
IDI Amin Ugandaforseti sagði í
dag að nærvera bandarfskra her-
skipa á Indlandshafi gæti táknað
að Bandaríkjamenn ráðgerðu inn-
rás í Arabaríki vegna ástandsins í
olfumálunum.
Amin segir í skeyti til Einingar-
samtaka Afríku (OAU) að hann
hafi undir höndum upplýsingar
um að bandariskir tundurspillar
og flugvélamóðurskip séu nú und-
an ströndum Austur-Afríku.
manna og lýsti þvf yfir að honum
loknum að ríkið mundi leggja
fram 28 milljón franka aðstoð til
að koma til móts við kröfur
þeirra. Fiskimennirnir krefjast
strangara eftirlits með inn-
flutningi, styrkja til að mæta
auknum olíukostnaði, ákveðins
lágmarksverðs á fiski og ríkisað-
stoðar við sjávarútveginn.
Fiskimenn kvarta ekki sízt yfir
því að ógæftir hömluðu veiðum í
nokkra mánuði og þeir misstu
tekjur en síðan hafi fiskverð
Addis Ababa, 20. febr. NTB —
Reuter — AP.
HERSTJÖRNIN í Eþfópfu hefur
stefnt a.m.k. 90 herforingjum og
hermönnum til yfirheyrslu vegna
átakanna i Erítreu undanfarið.
Evrópumenn, sem fluttir hafa
verið á brott frá héraðinu, hafa
skýrt frá því að stjórnarherinn
hafi myrt óbreytta borgara og
framið önnur ódæðisverk á íbú-
um Erítreu. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum fóru fram
verulegar tilfærslur á hersveitum
f kringum höfuðborg héraðsins,
Asmara, í dag. Þá skýra sendier-
indrekar í Addis Ababa frá þvf að
enn haldi arabfskir og palestfnsk-
ir ráðgjafar áfram að koma til
Erftreu til að ganga f lið með
frelsishreyfingunum.
Stjórnarherinn gerði í dag árás-
ir, m.a. með bandarískum her-
flugvélum, á andófssveitir norður
af Asmara. Talsmenn frelsis-
hreyfinganna hafa sagt að þær
muni gera árásir á skip við strönd
Rauðahafs ef Bandaríkin haldi
áfram að senda stjórnarhernum
gögn. Borgarastríðið, sem nú hef-
ur staðið í þrjár vikur, hefur leitt
til matarskorts í Erítreu, m.a. á
smjöri og kjöti: Bandaríska sendi-
lækkað vegna mikils afla. Þeir
kvarta einnig undan þvf að ódýr
fiskur sé fluttur inn frá Hollandi
og Bretlandi og vilja að stjórnin
stöðvi hann.
Að sögn togaraeiganda í Con-
carneau á Bretagne hefur verð á
ufsa lækkað á einu ári úr 45 cent-
um kílóið í 28 cent. Fiski-
mennirnir vilja einnig að stjórnin
lækki um 5 cent toll sinn af dísel-
olíu. Verðið á díselolfu hefur
hækkað úr 4 centum í 11 cent
lítrinn á einu ári.
ráðið i Addis Ababa skýrði frá því
i dag, að Bandarikjaménn mundu
auka hungursneyðarhjálp sina og
veita til hennar 4,1 milljónum
dollara. Nemur aðstoð Banda-
ríkjamanna vegna þurrkanna í
landinu nú 28 milljónum dollara
frá árinu 1973.
Kona fremur
bankarán
Beirut, Líbanon
19. febrúar. AP.
ÞOKKAFULL ljóshærð stúlka
réðst í dag ásamt fjórum karl-
mönnum inn í Verzlunarbanka
Líbanons og hafði á braut með
sér 100 þúsund líbönsk pund
(40 þús dollara). Komust ræn-
ingjarnir undan.
Stúlkan hafði vélbyssu falda
undir klæðum sínum. Hún
beindi henni að gjaldkera
bankans, og afhenti hann
henni upphæðina. Leitað er nú
bankaræningjanna, en ekki
hafði til þeirra spurzt í kvöld.
Rannsókn á aðgerð-
um Eþíópuhersins