Morgunblaðið - 21.02.1975, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRUAR 1975
22
Ragnheiður Sig-
urðsson -Minning
F.4. júlí 1889.
D. 13. febrúar 1975.
Ragnheiður Grímsdóttir
Sigurðsson, ekkja Jóns Hjaltalín
Sigurðssonar prófessors, til
heimilis að Flókagötu 5, andaöist
á Landakotsspitala 13. þ.m. og
verður kvödd hinztu kveðju í dag.
Hún var á 86. aldursári, fædd 4.
júlí 1889. Faðir hennar var Grím-
ur bóndi Thorarensen i Kirkjubæ
á Rangárvöllum, soni^r Skúia
læknis Thorarensen á Móeiðar-
hvoli. Kona Skúla var Ragnheiður
Þorsteinsdóttir prests í Reykholti
Helgasonar. Móðir Ragnheiðar
var Jónína Egilsdóttir bónda í
Múla i Biskupstungum Pálssonar.
Kona Egils var Anna Jónsdóttir
prests á Breiðabólstað í Fljótshlið
Halldórssonar.
Ragnheiður ólst upp við hin
beztu skilyrði í hópi fimm
systkina, sem nutu ástar og um-
hyggju góðra foreldra. Heimilið
var mannmargt, mikil gestakoma
og umsvif, svo geta má nærri, að
oft hefur verið glatt á hjalla, þó
að öllu væri stjórnað með festu.
Bernskuheimilió yfirgaf Ragn-
heiður tæplega 20 ára og fór til
Kaupmannahafnar, þar sem hún
dvaldist á annað ár. Þar giftist
hún Jóni Hjaltalín Sigurðssyni 1.
ágúst 1910. Hann hafði þá verið
héraðslæknir í rúm fjögur ár i
Rangárhéraði, og þangað lá leiðin
eftir brúðkaupið. Rúmu ári síðar
var hann settur héraðsiæknir i
Reykjavík. Fluttust þau þangað
og áttu þar heima upp frá því.
Þau hjón eignuðust átta börn, sjö
dætur og einn son, og lifa fjögur
þeirra móður sína: Guðrún gift
Stefáni eand. jur. Þorvarðssyni
sendiherra, hann lézt 1951. Ingi-
björg gift Bergi G. Gíslason stór-
kaupmanni og ræðismanni. Grím-
ur héraðslæknir í Hafnarfirði,
kona hans er Gerda Jónsson, f.
Hansen. Bergljót gift Kjartani
Sigurjónssyni skrifstofumanni.
Börnin, sem létust á ungum aldri,
voru: Þóra, sem dó á fyrsta
misseri, Bergljót 17 ára og Gerður
14 ára, sem létust með þriggja
mánaða millibili 1930. Sigríður,
sem gift var Arna húsgagnasmíða-
meistara Skúlasyni, andaðist
1961, 43 ára að aldri. Mann sinn
missti Ragnheiður 13. sept. 1955.
Síðan hefur hún búið í sama húsi
og Guðrún dóttir hennar eins og
áður, meðan menn þeirra voru
enn á lífi. Þetta er uppistaóan í
lifi Ragnheiðar, en eftir er að lýsa
ívafinu, hluta hennar sjálfrar til
þeirra, sem hún hafði mest sam-
skipti við i dáðríku lífi sínu. Það
er sagt, að hver sé sinnar gæfu
smiður, og það er engum vafa
undirorpið, að hún var gæfukona.
Foreldrar hennar studdu hana i
æsku til aó afla sér þeirrar
menntunar, sem hugur hennar
kaus. Heima fengu þau systkin
uppfræðslu hjá góðum kennara,
sem tekinn var á heimilið, því
ekki var annarra kosta völ á þeim
tíma. Seinna lá leiðin til Reykja-
víkur og Kaupmannahafnar, þar
sem hún stundaði tungumálanám
píanóleik o.fl., sem að gagni
mætti koma, auk matreiðslunáms.
Hún valdi sér traustan og góðan
mann. Þau eignuðust góð og
myndarleg börn, sem ekki mega
vamm sitt vita frekar en hún
sjálf. Þegar tengdabörnin bættust
smám saman i fjölskylduhópinn,
tók hún þeim á þann veg, að allt
varð órofaheild fyrr en varði. Þau
báru einnig umhyggju fyrir henni
eins og hennar eigin börn, eftir að
hún var orðin ein og jafnan síðan.
Auðvitað áttu barnabörnin at-
hvarf hjá henni eins og títt er um
góðar ömmur, en barnabarna-
börnunum hafði hún ekki þrek til
að sinna, en broshýr var hún yfir
þeim eigi að siður. Þau fyrr-
nefndu eru 18, þau síðarnefndu
23.
Þau hjón höfðu yndi af tónlist,
og oft tók læknirinn lagið að
áeggjan konu sinnar, en hún lék
undir. Fátt létti honum betur
þreytu og áhyggjum eftir erfiðan
dag. Ekkert jafnaðist þó á við
freisið í Barnahvammi, sumar-
bústaðnum þeirra í Þrastarskógi
með stórfljót á tvo vegu. Þar gat
eiginmaðurinn elzt við lax og sil-
ung að vild, meðan barnahópur-
inn hoppaði um lautir og hóla.
Sjálf sá hún þar ekki út úr störf-
um á stóru heimili oft með fjölda
gesta, en hún var ólöt og fljótvirk,
að hverju sem hún gekk. Og árin
liðu í birtu og yl. Tuttugu ára
hjúskaparafmælið var á næsta
leiti, þegar fyrst syrti i áiinn og
þrjár af fimm dætrum veiktust
samtimis af skæðum sjúkdómi.
Baráttan hófst upp á líf og dauða.
Maðurinn hennar, læknirinn, var
bundinn suður í Vínarborg að búa
sig undir læknisstörf í Land-
spítala, þar sem hann átti að taka
við stjórn. Stéttarbræður hans
reyndust Ragnheiði vel, en hún
stóð þó ein daga og nætur. Gleði-
legur atburður átti sér stað. Þeim
hjónum fæddist dóttir nokkrum
vikum áður en sú elzta af sjúkl-
ingunum var kölluð burt. Þegar
holskeflan var liðin hjá, hafði
hún fengið mildara blik í auga, og
þannig var það við hverja raun,
F. 23. febrúar 1919.
D. 13. febrúar 1975.
Foreldrar Jóns voru hjónin
Halldór Samúelsson, formaður á
Isafirði og María Jónsdóttir.
Þann 9. júlí 1948 giftist Jón
eftirlifandi konu sinni, Sigrúnu
Einarsdóttur. Þau hjón eiga tvær
uppkomnar dætur, sem búa hjá
móður sinni, og uppkominn son,
sem er giftur og býr í Bandaríkj-
unum.
Jón gekk i Flensborgarskóla og
síðan i Iðnskólann i Reykjavik, en
þaðan útskrifaðist hann sem raf-
virki árið 1938.
Ég kynntist Jóni fyrst í marz
1940 um borð í gamla Lagarfossi á
leió frá Kaupmannahöfn til
Reykjavíkur, en þangað hafði
hann farið vegna vegabréfsárit-
unar til Bandaríkjanna, sem hann
fór þetta vor, og innritaðist þá í
Fairfax High School í Los Angel-
ailtaf óx hlýjan í svipnum. Hún
var ævinlega hin styrka stoð
manni sinum og börnum, á hverju
sem gekk. Siðustu 14 árin voru
henni friðsæl, engir alvarlegir
sjúkdómar eða dauði í innsta
hringnum. Hún hélt reisn sinni til
siðustu stundar, var tilbúin að
gefa ráð á báða bóga eins og
„Skrifarinn á Stapa“, langömmu-
bróðir hennar, en var alltaf hlé-
dræg og bauð ekkert siíkt að fyrra
bragði.
Minningarnar rifjast upp,
þegar góður vinur er genginn, og
hugurinn fyllist gleði og þakklæti
fyrir það, sem var. Eins verður
dauðinn fagnaðarefni eftirlifandi
ástvinum, þegar sárasti söknuður-
inn mildast og þeir finna óum-
ræðilega gæzku Guðs, sem veitti
að þessu sinni lausn í náð á rétt-
um tíma.
Sigríður Sigfúsdóttir.
es, en þaðan útskrifaðist hann svo
árið 1942. Næst bar fundum okk-
ar Jóns saman i Reykjavík er
hann kom frá Bandaríkjunum og
byrjaði i rannsóknarlögreglunni
þann 1. febrúar 1948, þar sem
hann vann síðan, fyrst í tækni-
deild, svo i deild barna og ungl-
inga, síðan við almennar rann-
sóknir og nú síðast í svikadeild.
A árinu 1942 var Jón kallaður í
herlögreglulið bandariska flug-
hersins og eftir tiiskilda þjálfun,
var hann sendur til starfa í Af-
ríku á árinu 1943 og síðan til
Italíu, er innrásin var gerð í land-
ið. 1946 kom hann aftur til Banda-
ríkjanna og gekk þá aftur í lög-
regluskóla til að læra rannsóknir
brotamáia.
Fyrir frammistöðu sina i hern-
um, var Jón sæmdur The Good
Conduct Medal, þrisvar sinnum,
og einnig European-African Mid-
el East Campaign orðunni með
stjörnu.
1 júní á s.l. ári veiktist Jón, sem
kom öllum á óvart, því enginn
hafði látið sér detta í hug að hann
gæti verið veill fyrir hjarta. Hann
var veikur fram á haust, en þrátt
fyrir að hann væri ekki orðinn
heill heilsu, treysti hann sér ekki
til að vera aðgerðarlaus lengur og
fór að vinna. Þar veit ég að til
kom samviskusemi hans, svo og
hitt, að hann vildi aldrei láta sína
vinnu lenda á öðrum, ef þess var
nokkur kostur að koma í veg fyrir
slíkt. Þessu hélt hann áfram og
vann síðast laugardaginn 8. þ.m.
fyrir hádegið, en eftir hádegið
féll hann niður og var fluttur
meðvitundarlaus í Borgarspítal-
ann, þar sem hann andaðist eftir
5 daga legu, án þess að hafa kom-
ist4til meðvitundar.
Eg hugsa að ég þekki Jón einna
bezt þeirra er nutu þeirrar
t
Eiginkona mín,
KRISTÍN M. GUÐMUNDSDÓTTIR,
frá Súgandafirði,
sem lézt i Borgarspítalanum þann 15. þ m verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju, i dag föstudag 21. febrúar kl 10 30
Kristján B. Magnússon.
t
Eiginkona min og móðir okkar.
MARÍA PÁLSDÓTTIR,
Faxabraut 41 D, Keflavik,
er andaðist á Landspítalanum 13. þ.m., verður jarðsungin frá Keflavik-
urkirkju laugardaginn 22 febrúar kl 2.
Sigurður Sturluson
og dætur.
t
Útför eiginkonu minnar og móður
ARNDÍSAR SIGURÐARDÓTTUR,
Norðurbyggð 15, Akureyri,
verður gerð frá Viðímýrarkirkju, Skagafirði laugardaginn 22 febrúar kl
2 e.h.
Vigfús Sigurjónsson,
Sigurlaug Vigfúsdóttir
t
Bálför eiginmanns mí.ns, föður okkar og afa,
VILHJÁLMS BALDURS GUÐMUNDSSONAR,
frá Kirkjuferju,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 24 febrúar, kl 1 30
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað, þeim sem vildu minnast hans
er bent á Krabbameinsfélag fslands
Margrét Bjarnadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Minningarathöfn og bálför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐBJARGAR ÚLFARSDÓTTUR NORÐDAHL
frá Fljótsdal,
var gerð 1 2 febrúar sl. Athöfnin fór fram i kyrrþey að ósk hinnár látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd
Kjartan S. Norðdahl
Baldur Norðdahl
Bragi Norðdahl
Freyja Norðdahl
Vignir Norðdahl
Ása Norðdahl
Þórunn Guðmundsdóttir
Ingunn Runólfsdóttir
Þórður Guðmundsson
Ingibjörg Magnúsdóttir
Bragi Erlendsson
barnaborn og barnabarnabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
RAGNHEIÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Steinskoti, Eyrarbakka,
sem andaðist 17 þ m. í Sjúkrahúsi Selfoss fer fram frá Eyrarbakka-
kirkju laugárdaginn 22 febrúar kl. 1.30.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
HALLDÓRU JÓHANNSDÓTTUR,
frá Gröf Grundarfirði,
fer fram frá Grundarfjarðarkirkju, laugardaginn 22. febrúar kl. 2 e.h
Inga Lárusdóttir, Helga Lárusdóttir,
Jóhann Lárusson, Sverrir Lárusson,
Sigurður Lárusson, Björn Lárusson,
tengdabörn og barnabörn.
t
Innílegar þakkir til allra, sem i orði og verki sýndu hluttekningu, vegna
andláts og jarðarfarar,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR,
frá Húsavik.
Sigrún Jónasdóttir,
dætur og tengdabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
ÁRNA GUNNARS ÞORSTEINSSONAR,
Aðalstræti 59, Patreksfirði.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Patreksfjarðar fyrir
góða umönnun, sömuleiðis til hreppsnefndar Patrekshrepps fyrir
virðingu sýnda hinum látna
Bára Halldórsdóttir,
börn og tengdabörn.
Minning:
Jón E. Halldórsson
lögregluvarðstjóri
Útfaraskreytlngar
blómouol
Gróðurhúsið v/Sigtún sími 36770'