Morgunblaðið - 08.05.1975, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. MAl 1975
29
uppsetningu kínverskra mál-
verka. Sköpun og þróun tré-
stungulistar er eitt af veigamikl-
um afrekum menningar og listar
hinnar kínversku þjóöar. Síöan
Nýja Kina var stofnað, hafa
starfsmenn viö gerð tréstungu-
mynda, skiröir sérstaklega í eldi
hinnar miklu menningarbylt-
ingar öreiganna, tekið frekari
framförum i aö beita frumkvæði
sínu og sköpunargáfu út i æsar.
Með því að nota tréþrykkingu
hafa listvinnustofa Jung Pao-Chai
i Peking og listvinnustofa To-
Yun-Hsuan i Sanghai gert um
meira en tuttugu ára skeið eftir-
líkningar af þúsundum frægra
kinverskra málverka og letur-
mynda, bæði nútimalegra og sí-
gildra, og komið þannig tré-
stungulist upp á nýtt stig“. Þetta
skýrir sig væntanlega sjálft, hér
er sem sagt um eftirmyndagerð
málverka að ræða í stórum stíl, og
síðan eru gerðar eftirprentanir á
eftirmyndunum og þær að lokum
uppprentaðar á sýningar. Þetta
skilst þó að nokkru, þegar þess er
gætt, að Kínverska þjóðin mun
telja 800 milljónir einstaklinga og
þvi þýðir lítt að gera myndir i
3—10 eintökum líkt og islenzkir
grafik-listamenn! . . .
En ég er nú einu sinni unnandi
grafík-listar sem slikrar, en ekki
eftirmynda af málverkum og
síður eftirmynda af grafískum
verkum. Engu að siður er þetta
fróðleg og fyrir margt forvitnileg
sýning, sem fólk er hvatt til að
skoða, en aðgangur er ókeypis og
sýningin stendur til sunnudags
11. mai.
Um leið og ég þakka framtakið,
vil ég taka það fram, að forvitni
min um þróun kinverskrar
grafíklistar hefur aukist til muna
og vona ég, að ég geti satt þessa
forvitni mina fyrr eða síðar á
raunhæfan hátt.
— Afmæliskveðja
Maren
Framhald af bls. 16
leikum. Á þessu tímabili er
ekkert eins hættulegt eins og eín-
manakenndin og allt sem af henni
leiðir, til likama og sálar. Það
þýðir ekki fyrir neinn að segja
öðrum hvað hann á að gera, það
verður hver að ganga sína götu og
gera hlutina upp við sjálfan sig.
Þess vegna tekst eins misjafnlega
til eins og fólkió er margt. A
okkar aldri er gaman að skoða
lifið. Maður hrekkur ekki um koll
þó komi smá vindhviður, maður
lokar bara fyrir súginn. Og heldur
jafnvæginu i kærleika. Á honum
byggist allt, og af honum áttu nóg.
Nú fer ég að hætta þessu pári.
Þar sem þú ætlar ekki að vera
heima á þessum timamótum sendi
ég þér þennan hlutá af sjálfri mér
með þessum línum og smá
tryggðapant til minja um okkar
gömlu og góðu kynni.
Svo óska ég þér innilega til
hamingju með daginn, og góðrar
heilsu á ókomnum árum, sem ég
vona að verði mörg, okkar allra
vegna, sem þekkjum þig.
Beztu kveðjur frá mér og manni
minum.
Þin Vinkona
Inga Bjarnadóttir,
Selfossi.
^loraunlilttítiíi
margfaldar
markad vðar
I C C HJÓLHÚSAKLÚBBUR ÍSLANDS
ÞEIR SEM EIGA HJÓLHÝSI í GEYMSLU AÐ
REYKJAVÍKURVEGI 60 HAFNARFIRÐI
GETA SÓTT ÞAU N.K. LAUGARDAG 10.
MAÍ KL. 2 E.H.
STJÓRNIN.
V
J
Veiðafærauppboð
Föstudaginn 16. þ.m. fer fram nauðungarupp-
boð á veiðafærum af Hafbjörgu GK-7, Æskunni
Sl 1 40 og Eldey KE-37.
Uppboðið hefst kl. 15 í Borðahúsinu á Svend-
borgarlóð. Þar verða seld tvö humartroll og fl.
Kl. 15.30 verða boðin upp við veiðafæra-
geymslu Bæjarútgerðarinnar við Víðistaði tvö
fiskitroll, toghlerar og fl. Kl. 16.45 verða
boðnir upp í Dröfn togvírar og fl. af m.b.
Æskunni. Kl. 17 verður boðin upp í Netagerð
Kristins Ó. Karlssonar þorsknót af m.b. Eldey.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Einkamál
Eldri hjón sem eiga fasteign, sem lítið hvílir á
óska eftir 200—300 þús. kr. láni í tvö ár eða
styttri tíma.
Tilboð sendist Mbl. merkt. „Öruggt — 6711".
á morgun og næstu daga seljum viö
smágallaða keramik,
Öpið frá kl. 10—12
,, og 13
LmJ
sem prýða má góða
^ gleraugnaverzlun ,a
r Að ^
V Austurstræti7^
við hliðina á Oculus
NU, ÞAÐ ER BARA SVONA
— SKILNAÐUR —
Við höfum breytt verzlunum okkar.
Að Austurstræti 20, við hliðina á „Hressó”,
höfum við opnað fullkomna
sem við bjóðum allar helztu tegundir gleraugnaum
t.d. Saphira, Neostyle, Modeme Optik
o.fl. o.fl.
Lituð gler og sólgleraugu
í úrvali.
Sjónaukar, loftvogir
og allt það
höfum við opnað
verzlun, sem sérhæfir sig með
LJÓSMYNDAVÖRUR
og stefnum að því að þér þurfið ekki að leita langt
yfir skammt, þar sem við bjóðum öll helztu vörumerki í
Ijósmyndavörum auk allra þeirrar þjónustu,
sem hægt er að bjóða upp á.
Með því að aðskilja vöruflokka þessa,bjóðum við yður
meira vöruúrval, sérhæfðara starfsfólk og ánægjulegri viðskipti/
Týli h.f.
gleraugnaverzlun,
Austurstræti 20.
Týli h.f.
Ijósmyndavöruverzlun,
Austurstræti 7.