Morgunblaðið - 11.05.1975, Blaðsíða 1
105. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 11. IVIAÍ 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
George McGovern öldungadeildarþingmaður frá Bandarfkjunum og frambjóðandi til forsetakjörs hefur
verið á Kúbu undanfarna daga og átt vinsamlegar viðræður við Castro. Hér sjást þeir f bænum Jibacoa
sem er mikill mjólkurframleiðslubær. Báðir eru þeir að gæða sér á fs og spjalla við fólk sem safnaðist
saman til að fylgjast með ferðum þeirra.
Kambodia:
Allir útlendingar
hypji sig
Bankok, 10. mai.
NTB. Reuter.
%
NÝJA rikisstjórnin í Kam-
bodiu krafðist þess í dag,
að allir útlendingar sem nú
væru í landinu kæmu sér á
brott hið skjótastsf og fá
þeir einhvern frest til að
komast úr landi. Var þetta
birt í tilkynningu innanrík-
isráðherrans, Hu Nim, og
sagði þar, að enn væru all-
margir útlendingar í land-
inu og hefðu þeir flestir
staðið í sambandi við
glæpahreyfingu Lon Nols
og fylgismanna hans.“
snarlega
Talið er að enn séu um 100—
200 franskir ríkisborgarar i
Kambodiu, og hafa sumir þeirra
búið i landinu í fjölda ára.
Ráðherrann sagði að um 600
þúsund manns hefðu látizt i loft-
árásum Bandarikjamanna á tima-
bilinu febrúar til ágúst 1973.
Ráðherrann sagði að bandarísk-
ir heimsvaldasinnar og „hlaupa-
strákar" þeirra væru enn að
reyna að hafa i frammi skemmd-
arstarf gegn núverandi valdhöf-
Framhald ábls.38
Sprengja við
Aeroflotskrif-
stofu í USA
Ótti og flótti í Vientiane
— en fregnum um yfirvofandi valda
töku kommúnista vísað á bug
Vientiane, 10. mai.
AP — Reuter.
lEIMILpiR meðal diplómata i
l'ientiane hermdu I dag, að þess
ixri vænzt að Souvanna Pouma,
'orsætisráðherra Laos, myndi í
íæstu viku útnefna nýja ráðherra
ir hópi hægri manna I stað þeirra
imm sem sögðu af sér, en tals-
naður stjórnarinnar staðfesti í
iag fregnir um afsögn ráðherr-
mna, en tilgreindi ekki nöfn
aeirra né hvenær þeir hefðu sagt
rf sér, né heldur hvers vegna.
Vleð útnefningu nýrra ráðherra
helzt jafnvægið innan samsteypu-
stjórnarinnar milli sex hægri ráð-
herra og sex vinstri sinnaðra Pat-
het Lao ráðherra. En heimildir
hermdu hins vegar að ekki væri
búizt við því að nýju ráðherrarnir
fengju mikil völd og Pathet Lao
hefði áfram undirtökin I borg-
inni.
O Ótti greip um sig f höfuðborg-
inni í dag. Hundruð útlendinga
og Laosmanna flúðu borgina, og
þrálátar sögusagnir voru á kreiki
um byltingar og gagnbyltingar.
lbúar borgarinnar voru sagðir ótt-
ast herflutninga í átt til hennar,
og af þeim völdum hefur gjald-
Finnar ítreka velvild við
Rússa með friðarskjali
áhrifamenn i bæjar- og sveitar-
stjórnum og þar að auki 580 þús-
und einstaklingar.
Helsinki, 10. maí.
Reuter.
FULLTRÚAR 174 samtaka og fé-
laga í Finnlandi, sem hafa innan
sinna vébanda um 8 milljónir
manna, afhentu í gærkvöldi
Kekkonen Finnlandsforseta skjal
við hátiðlega athöfn í Helsinki. 1
skjalinu er lögð áherzla á að und-
irskrifendur óski eftir áframhald-
andi friði og góðri samvinnu við
Sovétrikin.
A mánudag fór Ahti Karjalain-
en til Moskvu til að sýna Pod-
gorny forseta Sovétríkjanna,
skjal þetta.
Eins og áður er sagt undirrita
það fulltrúar 174 samtaka svo og
Kína á kvik-
myndahátíð
Vestur-Berlín,
10. maí. Reuter
KlNA mun f fyrsta skipti taka
þátt f kvikmyndahátíðinni í Ber-
lín á þessu ári, að þvf er talsmað-
ur undirbúningsnefndar sagði frá
í dag. Munu Kínverjar senda tvær
stuttar myndir á hátfðina.
miðill fallið f verði og verð á
hrfsgrjónum hækkað. Sumar
verzlanir hafa lokað og eigend-
urnir farið úr landi. Suður-
Kóreustjórn hefur fyrirskipað
starfsliði sendiráðs landsins í Vi
entiane að hefja brottflutning 79
manna af suður-kóreönsku þjóð-
erni og undirbúa eigin brottflutn-
ing. Ástralíustjórn hefur flutt á
brott fjölskyldur sendimanna
sinna vegna óvissunar f borginni,
en bandarfsk stjórnvöld neita að
þau undirbúi samsvarandi brott-
flutning. Undanfarna daga hafa
um 1000 manns farið yfir Me-
kongfljótið til Thailands, og flug
frá Vientiane er sagt fullbókað
næstu vikuna.
Areiðanlegar heimildir herma
að afsögn ráðherranna hafi orðið
eftir fund s.l. þriðjudag mílli for-
sætisráðherrans og hægri sinn-
aðra ráðherra og vararáðherra i
samsteypustjórninni sem mynduð
var fyrir einu ári. Er sagt að með-
al ráðherranna sem sögðu af sér
hafi verið Ngon Sananikone fjár-
málaráðherra og hafi hann þegar
farið til Thailands í gær, föstu-
dag, Tianethone Chantharasy
varautanrikisráðherra, Houpþan
Saignasith varaatvinnumálaráð-
herra, en aðrar heimildir herma
að Sisouk Na Champassak varnar-
málaráðherra hafi einnig verið
meðal þeirra sem sögðu af sér,
auk tveggja háttsettra hershöfð-
ingja.
Framhald á bls. 38
Pundið
fellur enn
London, 10. maí
— Reuter.
STERLINGSPUNDIÐ féll f
mestu lægð á gjaldeyrismörkuð-
um á sfðari tfmum f gær vegna
vaxandi ótta um að brezku stjórn-
inni takist ekki að hafa hemil á
verðbólgunni í landinu, sem nú
er allþjakað af atvinnuleysi og
vinnudeilum. Pundið féll niður í
24,4% verðgildis sfns í desember
1971 gagnvart öðrum helztu
gjaldmiðlum.
Washington,
10. maf — Reuter.
SPRENGJA sprakk fyrir framan
skrifstofur sovézka flugfélagsins
Aeroflot í Washington i dag, en
litlar skemmdir urðu og engin
slys á mönnurn. Skrifstofan er ný-
opnuð, tók til starfa í fyrra mán-
uði og er ekki langt frá sovézka
sendiráðinu i Washington, sem
vörður er um allan sólarhringinn.
Hans G. Andersen.
w m
Utfærsla Islendinga í 200 mílur
mun ekki koma neinum á óvart
Rætt við Hans G. Andersen við
lok Hafréttarráðstefnunnar í Genf
Cienf, 9. maí,
frá Matthfasi Johannessen ritstjóra
1 SAMTALI vió fréttamann
Mbl. á hafréttarráðstefnunni i
Genf sagði formaóur íslenzku
sendinefndarinnar, Hans G.
Andersen sendiherra, um
niðurstöðurnar, sem nú liggja
fyrir að Genfarfundinum lokn-
um:
„Það, sem mér er efst i huga,
er þrennt, í fyrsta lagi, að
mikill árangur hefur náðst i
frumvarpi þvi að heildartexta,
sem nú liggur fyrir. Eins og
sjálfsagt hefur komið fram í
fréttum er þar byggt á þeim
höfuðsjónarmiðum, sem sendi-
nefnd Islands hefur fylgt frá
upphafi, s.s. 12 mílna landhelgi,
200 mílna efnahagslögsögu og
óhindraðri umferð um sund. Þá
er einnig gengió vandlega frá
orðalagi um, að strandríkið
skuli sjálft ákveða leyfilegart
hámarksafla innan efnahags-
lögsögunnar og getu sina til að
hagnýta það — og ég tel fyrir
mitt leyti, að litil hætta sé á þvi,
að ákvæði i endanlegum sátt-
mála um lausn deilumála muni
ná til þessara atriða, t.d. gerðar-
dómur.
Allt er þetta fagnaðarefni.
I öðru lagi minnist ég með
þakklæti mjög góðs samstarfs
við fjölmargar sendinefndir,
ekki aóeins innan strandrikja-
hópsins og Evensen-
nefndarinnar, sem hefur verið
frábært, heldur fjölmargar aðr-
ar nefndir. Án slíks samstarfs
er vafasamt, að sá árangur, sem
nú liggur fyrir, hefði náðst.
I þriðja lagi er svo það, að
allar þessar vikur, og raunar
undanfarin ár, hefur ekkert
tækifæri verið látið ónotað til
að útskýra sjónarmið okkar
Islendinga og þarfir — og ég
tel, að óhætt sé að fullyrða, að
þær ráðstafanir, setn Is-
lendingar kunna að gera innan
tiðar á grundvelli þessara
þarfa, muni ekki koma neinum
á óvart.
Hins vegar er auðvitað nauð-
synlegt að hafa það i huga, að
hér er aðeins um frumvarp að
ræða, sem hefur ekki hlotið
endanlegt samþykki, enda þótt
það lýsi þeim sjónarmiðum,
sem mest fylgi hafa. Það er þvi
eðlilegt, að þau riki, sem hafa
barizt á móti heildarlausn á
þeim grundvelli, sem nú liggur
fyrir, muni enn um sinn halda
Framhald á bls. 38