Morgunblaðið - 31.07.1975, Síða 10

Morgunblaðið - 31.07.1975, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLl 1975 SÁ blaðamaður erlendur, sem fyrst var rekinn frá Indlandi eftir að Indira Gandhi setti þar herlög og kom á ritskoðun var Lewis Simons frá Washington Post. Opin- bert tilefni brottvfsunar hans var að hann hefði sent blaði sfnu „tilhæfulaust slúður“, um að indverski herinn stæði ekki einhuga að baki aðgerðum forsætisráðherr- ans. Hann hafði þó áður bakað sér óvild Indiru með skrifum sfnum og segist sjálfur hafa verið rekinn úr landi vegna þess fyrst og fremst, að hann hafi vitað og skrifað of mikið um spillinguna f stjórn landsins og Kongressflokknum og hneykslanlegt fjármáladekur við son Indiru, Sanjay Gandhi f sambandi við Muruti- bflaverksmiðjuna. Simon segir í grein, sem hann birti um þessi mál eftir komu sína frá Indlandi, að vinir sínir hafi tekið sér vara fyrir því að skrifa meira um Muruti-málið fyrr en fjölskylda hans væri öll úr land- inu, þar sem hún kynni ella að sæta refsiaðgerðum vegna skrifa hans. Simons hefur i greinum sínum fjallað talsvert um samband Ind- iru og sonar hennar og heidur þvi fram, að hann hafi meira en lítil áhrif á það sem nú er að gerast í Indlandi, hann taki t.d. þátt i dag- legum fundum forsætisráð- herrans með neyðarráði landsins, hafi bækistöð í skrifstofu forsæt- isráðherrans og sendi þaðan fyrir- skipanir til hinna ýmsu aðila, jafnvel hæst settu embættis- manna og annarra ráðherra. Simons staðhæfir, að Sanjay hafi verið móður sinni til ráðu- neytis um það hverja skyldi fangelsa, þegar herlögin komu til framkvæmda 26. júni sl. og hvernig bezt sé fyrir hana að styrkja sig f sessi. Þessi nána samvinna þeirra mæðgina hófst þegar eftir að dómurinn féll gegn Indiru i Allahabad 12. júni. Segir Simons að Indira hafi farið heim til sin strax er hún vissi niðurstöðu dómsins og þar hafi Sanhay tekið á móti henni grátandi og faðmað hana á hlaðinu. Simon hefur eftir heimildum nákomnum fjölskyldu Indiru Gandhi — og gagnrýnendum hennar — að Sanjay hafi auðgazt geysilega á undanförnum árum vegna þess eins hver hann er. Gagnrýnendur hennar halda því fram, að án hennar fulltingis hefði Sanjay aldrei fengið leyfi til að reisa Muruti-bíiaverk- smíðjuna, sem getið hefur verið í fréttum frá Indlandi öðru hverju. Nánari tildrög þess máls eru þau, að þvi er Lewis Simons heldur fram, að fyrir um það bíl tiu árum kom fram sú hugmynd i Indlandi að hefja þar framleiðslu lítils fjölskyldubíls í ætt við Volkswagen bifreiðina v-þýzku. Hugmyndin fékk dræmar undir- tektir þar til árið 1969, að Sanjay Gandhi, þá 22 ára að aldri, sótti um leyfi til að reisa verksmiðju og framleiða slíkan bíl, sem hann hafði sjálfur teiknað og kallaði Muruti — „Son vindgoðsins". Sanjay var einn af 18, sem sóttu um leyfi til bifreiðaframleiðslu — og sá eini sem fékk það. Hann hafði þá samkvæmt skattafram- tali um 100 dollara tekjur á mánuði — en bilaverksmiðjan var fyrirtæki upp á um það bil 10 milljón dala fjárfestingu. Því er haldið fram, að hann hafi sjálfur lagt um 1500 dollara í fyrirtækið, — og eina menntunin, sem Sanjay hafðí á þessu sviði var ársdvöl hans sem lærlings hjá Kolls Royce í Bretlandi. Með leyfið i höndum sótti San- jay um lóð fyrir verksmiðjuna — og fékk hana fyrir „slikk“ hjá ráðamönnum í Haryanaríki, en til þess þurfti að reka 1500 smá- bændur af jörðum sínum. Þegar til kom upplýstist, að landið lá að einu af vopnabúrum hersins og Sanjay Gandhi samkvæmt reglugerð mátti ekki reisa verksmiðju á þessum stað, — en undanþága þar frá var Sanjay auðsótt, að því er Simons segir. Hann segir því einnig haldið fram í Indlandi, að Indira Gandhi hafi sjálf beitt hálf- gerðum þvingunum til að fá menn til að fjárfesta í þessu fyrirtæki. Upphaflega var áætlað að Muruti-bíllinn mundi kosta sem svarar 1600 dollurum, en nú er áætlað framleiðsluverð hans sem nemur 3000 dollurum — og hann er enn ókominn á götuna. En nú hefur Sanjay að sögn Simons ekki lengur áhuga á bíla- framleiðslunni, hann hefur nú öðrum og merkilegri málum að sinna sem sé að stjórna landlnu með móður sinni, og við verk- smiðjunum hefur tekið eldri bróðir hans, flugmaðurinn Rajiv Gandhi. Simons segir, að margir hafi velt því fyrir sér hvers vegna svo harðskeyttur og glöggur stjórn- málamaður sem Indira Gandhi er, hafi leyft deilunum út af syni hennar og sambandi þeirra að blómstra svo sem raun ber vitni. Er á það bent, að hún hefði hæg- lega getað komið málum hans öðru vísi fyrir, þegar í upphafi — og þannig að hún þyrfti ekki að bera fyrir þau kinnroða. Svarið telur Simons fólgið í flóknum fjölskyldutengslum og eiga sér rætur i hjónabandi Ind- iru og nánum tengslum hennar við föður sinn, Jawaharlal Nehru, er hann var forsætisráð- herra- Indira Gandhi Indira Gandhi með foreldrum sínum 1931. Er Sanjay Gandhí hægrí hönd Indíru ? Feroze og Indira Gandhi voru gefin saman I hjónab'and árið 1942. Eftir sjö ára sambúð fór hún af heimili þeirra i Locknow, ásamt sonum þeirra tveimur, og fluttist i hús forsætisráðherrans þar sem hún varð opinber gest- gjafi. Feroze reyndi að búa þár með fjölskyldunni en það gekk ekki og. hjönabandið fór út um þúfur. Feroze var sjálfur þing- maður og gat með engu móti við það unað, þegar Indira fór að ryðja sér framabraut í Kongress- flokknum — né gat hann sætt sig við að vera kallaður tengdasonur þjóðarinnar. Simons hefur eftir fólki, sem áður hafði umgengizt fjölskyldu Indiru að Sanjay hafi í raun aldrei getað fyrirgefið móður sinni framkomu hennar við föður sinn og því séu tilfinningar hans í hennar garð býsna blandaðar. Hann hefur eftir fjölskylduvini, sem var í kvöldverðarboði með þeim mæðginum fyrir um hálfu ári, að Sanjay hafi siegið móður. sína sex sinnum í andlitið án þess að hún bæri hönd fyrir höfuð sér. „Hún stóð þarna bara og tók þessu,“ sagði heimildarmaður Simons, — og bætti við að hún væri dauðhrædd við Sanjay. Stjórnarandstaðan á indverska þinginu hefur itrekað reynt að fá Muruti-málið rætt ýtarlega en Indira hefur haldið uppi skelegg- um vörnum fyrir son sinn, sem hún segir gott fordæmi ind- verskri æsku. Og með sterkum meirihluta Kongressflokksins, sem í heild hefur verið sakaður um margháttaða spillingu og að taka við leynilegum fjárframlög- um frá hinum ýmsu hagsmuna- aðilum, — hefur henni tekizt að koma í veg fyrir rækilegar um- ræður um málið. Simons hefur eftir einum af hörðustu gagnrýnendum Indiru, að Muruti-málið sé svartasti blett- urinn á stjórn Indlands frá því landið fékk sjálfstæði, forsætis- ráðherra landsins hafi aldrei fyrr gert sig sekan um slika spillingu. Og í æfisögu Indiru eftir Krisnan Bhatia, sem út kom i Banda- rikjunum sl. ár, segir, að Muruti- hneykslið hafi þurrkað burt mikið af þeim ljóma sem Iék um nafn Indiru um og eftir Bangla- desh-stríðið 1971 og 1972. Indverskir fjölmiðlar hafa oft rætt Muruti-málið en ýtarlegustu tilraun til að rannsaka það ofan i kjölinn gerði ritstjóri hægri blaðsins „Móðurlandið", K.R. Malkani. Hann var handtekinn eftir að herlögin voru sett 26. júní sl„ — eini indverski blaða- maðurinn, sem þaggað var niður í með þeim hætti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.