Morgunblaðið - 31.07.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JULl 1975
19
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Hestamenn —
Bændur
Slægjur til sölu í Mosfells-
sveit.
Upplýsingar í sima 66166.
Utanborðsmótor
óskast
30—50 hestöfl.
Simi 73431.
Verzlið ódýrt
Sumarpeysur kr. 1000.- Síð-
buxur frá 1000.- Denim
jakkar 1000- Sumarkjólar
frá 2900.- Sumarkápur
5100.- .. ...
Verðhstinn,
Laugarnesvegi 82.
Hjónarúm — spring-
dýnur
Höfum úrval af hjónarúmum
og einsmannsrúmum meðal
annars með bólstruðum
höfðagöflum og tvöföldum
dýnum. Erum einnig með
mjög skemmtilega svefn-
bekki fyrir börn og unglinga.
Framleiðum nýjar springdýn-
ur. Gerum við notaðar
springdýnur samdægurs.
Opið frá 9 — 7 og laugardaga
frá 10—1.
KM — springdýnur Hellu-
hraun 20 Hafnarfirði sími
53044.
Til sölu
Kempler heyhleðsluvagn.
Uppl. á Hellishólum, Fljóts-
htið simi um Hvolsvöll.
Til sölu
12 feta hraðbátur með 28 ha
Johnson utanborðsmótor
ásamt dráttarkerru.
Uppl. i sima 42241.
bílar
Til sölu
Peugeot 504 station, ekinn
20 þús. km ásamt lúkasar
tjaldvagni nýjum. Uppl. i
sima 24124, Bjarni Gislason
og 75714.
Til sölu
nú þegar 22 manna '70 og
17 manna '66 Benz i góðu
standi, skipti á 25—30
manna bil koma til greina.
Uppl. i sima 94-3398 og
94-3304.
Höfum opnað
aftur eftir breytingar.
Látið skrá bilinn strax. Opið
alla virka daga kl. 9—7 laug-
ardaga kl. 9—4.
Bilasalan Höfðatúni 10,
simar 18870 — 18881.
Til sölu
Eskort 1973 ekinn 23 þús.
km.
Uppl. i sima 33446 eftir kl.
6.
íbúð til leigu
2ja herb. ibúð við Vesturberg
til leigu nú þegar. Fyrirfram-
greiðsla æskileg.
Tilb. merkt: Laus strax —
2828.
Húsnæði
Óskum eftir 2ja til 3ja herb.
ibúð, helst i Mið- eða Vestur-
bæ Rvk. Erum tvö i heimili
og erum bæði að Ijúka námi
við Háskólann. Erum reglu-
söm og heitum góðri og
prúðmannlegri umgengni.
Vinsamlegast hringið í sima
40109.
Ibúð óskast
2ja herb. ibúð óskast til leigu
í Reykjavík. Tvennt i heimili.
Uppl. i sima 35686.
Kennari og háskóla-
nemi
óska eftir 2ja—3ja herb.
ibúð nú þegar eða siðar.
Fyrirframgreiðsla. Uppl. i
sima 82328.
Til leigu
skrifstofuhúsnæði nálægt
miðbænum við Ránargötu.
Húsið er 3 hæðir ca 200 fm
ásamt kjallara. Leigutímabil 1
til 5 ár eða eftir samkomu-
lagi. Tilboð óskast. Uppl. i S.
37203.
atvin^
Stúlka
vön afgreiðslu óskast strax
hálfan daginn i sérverslun við
Laugaveg. Tilboð merkt: Af-
greiðsla — 5110 sendist
Morgunblaðinu.
fé\agsVl<
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30.
Hjálpræðisherinn
i kvöld, fimmtudag kl.
20.30. Almenn samkoma.
Kapt. Daniel Óskarsson og
frú stjórna og tala. Velkomin.
Fræðslukvöld
Viltu fræðast um Bahá'i
trúna? Spurningum svarað
að Óðinsgötu 20 (bókasafns-
herb.) frá kl. 20 i kvöld.
Bahá'iar i Rvik.
Farfugladeild
Reykjavíkur
Ferðir um verzlunar-
mannahelgina
1. Þórsmörk
2. Langisjór og Sveinstindur.
Lagt af stað föstudag kl.
20.00.
Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni. Sími 24950.
Farfuglar, Laufásveg 41.
Ferðir um verzlunar-
mannahelgina
Föstudagur 1.8. kl.
20.00.
1. Þórsmörk, verð kr.
4.600.—
2. Landmannalaugar — Eld-
gjá, verð kr. 4.600.—
3. Veiðivötn — Jökulheimar,
verð kr. 4.600.—
4. Skaftafell, verð kr.
4.600. —
Laugardagur 2.8.
kl. 8.00. Snæfellsnes, verð
kr. 4.200 —
kl. 8.00 Hveravellir — Kerl-
ingarfjöll, verð kr. 3.600.—
kl. 14.00. Þórsmörk, verð kr.
3.600, —
Farmiðar á skrifstofunni.
Ferðafélag íslands,
Öldugötu 3,
simar: 1 9533 — 1 1 798.
ÚTIVISTARFERÐIR
Verzlunarmannahelgi.
Föstud. 1.8.
kl. 20.00:
1. Þórsmörk —
Goðaland.
Gengið á Fimmvörðuháls,
Útigönguhöfða og viðar.
Fararstjóri: Jón I. Bjarnason.
2. Gæsavötn —
Vatnajökull.
Farið með snjóbilum á
Bárðarbungu og i Grimsvötn.
Gengið á Trölladyngju og i
Vonarskarð. Fararstjóri:
Einar Þ. Guðjohnsen.
3. Einhyrningsflatir —
Markarfljótsgljúfur
Ekið inn að Einhyrningi, og
ekið og gengið þaðan með
hinum stórfenglegu Markar-
fljótsgljúfrum og um svæðin
austan Tindfjalla. Nýtt ferða-
mannaland. Fararstjóri:
Tryggvi Halldórsson.
4. Strandir
Ekið og gengið um nyrstu
byggðu svæði Strandasýslu.
Stórfenglegt landslag.
Fararstjóri:
Þorleifur Guðmundsson.
5. Vestmannaeyjar,
kl. 21.15
Flogið báðar leiðir. Bílferð
um Heimaey, bátsferð kring-
um Heimaey. Gönguferðir.
Fararstjóri:
Friðrik Danielsson.
Farseðlar á skrifstofunni.
Útivist,
Lækjargötu 6, sími 1 4606.
— Loðnan
Framhald af bls. 32
blaðinu. Þá ræddi Mbl. í gær við
Ágúst Einarsson á skrifstofu LtU.
Sagði hann að margir útgerðar-
menn hefðu hug á að stunda þess
ar veiðar enda bátar þeirra svo til
verkefnalausir. Hins vegar væri
ekki Ijóst hve margir færu á veið-
arnar, margt væri óljóst, t.d. væri
loðnuverðið ókomið.
Morgunblaðið ræddi i gær við
Hjálmar Vilhjálmsson um niður-
stöður loðnurannsóknanna. Hann
sagði:
„Hafrannsóknarstofununin barst
sýni afla Eldborgar sem landað
var á Siglufirði á þriðjudaginn.
Meðallegnd loðnunnar reyndist
vera 11,1 sentimetri. Um 80% var
loðna á öðru ári en aðeins 20%
var loðna komin á þriðja ár.
Smærri loðnan var um 3—5
grömm að þyngd en sú stærri
milli 10—14 grömm. Rannsókna-
stofnun fiskiðnaóarins hefur
mælt fituinnihald þessarar smáu
loðnu og reyndist það vera 6,5%
en fituinnihald stóru loðnunnar
sem Eldborg veiddi fyrir u.þ.b.
viku síðan var hins vegar 10,3%.
Veiðar á þessari smáu og mögru
loðnu geta því varla talizt bú-
mannlegar ef litið er til þeirrar
þyngdar og fituaukningar sem
verða mun á henni til næsta sum-
ars. Sem betur fer er árgangurinn
frá 1974 mjög stór þannig að hann
mun tæpast bíða verulegt tjón
þótt eitthvað verði veitt af honum
nú. Ef um stórfelldar veiðar verð-
ur að ræða á.næstunni gæti auð-
vitað annað orðið uppi á teningn-
um, en fyrst um sinn verður að
líta á loðnuveiðarnar fyrir norðan
land sem nauðsynlega tilraun.
Eins og kunnugt er hefur hafís
mjög hamlað loðnuleit á djúpmið-
um úti fyrir vestanverðu Norður-
landi og Vestfjörðum. Með hlið-
sjón af rannsóknum fyrri ára er
trúlegt að veiðiskipin hafi enn
ekki komizt á þær slóðir sem helst
er von stærri og betri loðnu í
veiðanlegra ástandi. Þetta svæði
er noróar og fjær landi en skipin
hafa verið til þessa.
Til samanburðar má geta þess,
að loðna veidd fyrir Suðurlandi á
vetrarvertíð hefur verið 13—20
sentimetra löng og meðalstærð
15—17 sentimetrar og fitupró-
sentan hefur verið 12—14%, fyrst
og allt niður í 4% síðast á vertíð-
inni.“
— Heilsugæslu-
stöðvar
Framhald af bls. 2
1 Búðardal þar sem gert verður
ráð fyrir tveimur læknum.
Framkvæmdir við sjúkrahús og
heilsugæzlustöðvar standa ýmist
yfir eða standa til á þéttbýlis-
stöðum um allt land og auk þeirra
sem þegar eru talin eiga
svonefndar H-2 stöðvar að hefja
rekstur á næstu árum á Akranesi,
f Borgarnesi, Ölafsvfk og Stykkis-
hólmi, einnig á Patreksfirði, en á
Þingeyri og Flateyri eiga að rísa
H-1 stöðvar, svo og í Hólmavík. Þá
er gert ráð fyrir H-2 stöð á
Hvammstanga, en H-1 stöð á
Blönduósi og Sauðárkróki og slík
stöð er þegar tekin til starfa I
Ölafsfirði. Einnig er gert ráð fyrir
H-1 stöð á Þórshöfn, Vopnafirði,
Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði, en
læknismóttöku á Stöðvarfirði og í
Breiðdalsvík. H-1 stöð er I bygg-
ingu í Djúpavogi og einnig f
Laugarási f Biskupstungum er H-
2 stöð í smiðum. Loks er gert ráð
fyrir H-2 stöð á Seltjarnarnesi f
framtfðinni.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
öruggur um að verða varaforsæt-
isráðherra í nýju stjórninni, sem
búist er við að Gonvalves tilkynni
sfðar i kvöld eða á morgun.
Þrfeykið átti f kvöld að koma
saman til fyrsta fundar síns, en
þing herhreyfingarinnar hefur
falið því æðstu völd í landinu. 30
manna byltingarráðið, sem nú
þjónar aðeins ráðgefandi hlut-
verki, kom einnig saman í dag til
að ræða um nýju stjórnina, sem
talið er að skipuð verði her-
foringjum, kommúnistum og
óflokksbundnum marxistum úr
hópi borgara.
Carvalho minntist í viðtölum
sínum við fréttamenn, við kom-
una til Lissabon í dag, á ummæli
sín I útvarpi í fyrra mánuði þar
sem hann harmaði að herinn
hefði ekki sett hundruð þúsunda
andbyltingarsinna upp við vegg
eða fangelsað þá á nautaats-
hringnum f Lissabon þegar eftir
byltinguna. „Eftir þessi ummæli
fékk ég óteljandi bréf þar sem ég
var kallaður bófi og morðingi.
Það er rétt að ég sagðist þá vona
að við þyrftum ekki að setja þá
þar (f nautaatshringinn), en ég er
sannfærður um að við eigum eftir
að þurfa að setja þá þar. Allt
stefnir í þá átt og því miður er
ógerlegt að framkvæma sósíaliska
byltingu með algjörlega friðsam-
legum aðferðum."
Stjórnmálaskýrendur túlkuðu
ummæli Carvalhos á þann veg, að
þeim væri ætlað að styrkja stöðu
hans innar þríeykins í þeirri
valdabaráttu sem talin er óum-
flýjanleg þar. Goncalves er i stór-
um dráttum talinn fulltrúi
Kommúnistaflokksins, en Costa
Gomes málsvari jafnaðarmanna
og annarra varkárari flokka sem
stefna vilja að vesturevrópsku
þingræði í Portúgal. Carvalho er
hins vegar augljóslega talinn bylt-
ingarsinnaður marxisti, þótt af-
staða hans til Kommúnistaflokks-
ins hafi ekki verið ljós. Við kom-
una frá Kúbu hrósaði hann Castro
f hástert og hinni kommúnisku
herstjórn hans.
— Komst ekki
Framhald af bls. 2
einhverjar af stúlkunum 20 á bið-
lista kæmust að þvi fyrir þann
tfma þyrftu aðrir að staðfesta. Nú
kæmust færri að, en undanfarið,
vegna hjúkrunarkennaraskorts,.
en búið væri að reyna eins og
hægt væri, meira að segja væri
búið að auglýsa erlendis eftir
kennurum. Skólinn þyrfti a.m.k.
12 kennara, en hefði fengið 6
hjúkrunarkennara og ætti von á
tveimur. Þar af hefðu aðeins 2
kennaramenntun, en aðrar hefðu
góða reynslu í kennslu. Þetta upp-
fyllti aðeins 2/3 af þörfirtni. Og
við þetta bættist svo að meira
framboð væri af menntaðra fólki
en áður og skv. lögum og reglu-
gerð frá 1966 er mælt svo fyrir áð
þeir sem hafa meira nám að baki
skuli ganga fyrir. Þetta var ekki
ljóst í vetur, og því ekki hægt að
vara stúlkurnar við.
Ingibjörg Magnúsdóttir,
deildarstjóri í heilbrigðismála-
ráðuneytinu og stjórnarmaður í
Hjúkrunarskóla Islands sagði, er
Mbl. ræddi við hana, að stjórninni
þætti ákaflega slæmt að þurfa að
neita nemendum, sem ættu rétt á
skólavist, en allt hefði verið reynt
til að fá kennara. Væri það raunar
sorglegt, nú þegar rætzt hefur úr í
húsnæðismálum skólans að þá
skuli þurfa að fækka nýjum
nemum úr 100 i 80 vegna kenn-
araskorts. Annars kvað hún það
vekja furðu að stúdentarnir
skuli ekki sækja frekar í háskóla-
deildina i hjúkrunarfræðum, sem
er að komast á legg, þó byrjunar-
örðugleikar hafi verið eins og
ávallt i nýjum deildum, en
þangað ættu þeir beina leið. 1
júlílok höfðu þar innritast 17
nemendur. Um 30 stúdentar sóttu
nú um vist i Hjúkrunarskóla Is-
lands. Háskólanámið er fjögurra
ára nám og meira bóklegt nám, en
hjúkrunarskólanámið er 3ja ára
nám. Þriðja leiðin er Nýji hjúkr-
unarskólinn við Suðurlandsbraut
18, sem hefur einnig ærin verk-
efni framundan. Hann tekur
aftur ljósmæður inn nú, þar sem
um 30 hafa sótt, og einnig er
áformað að fara þar af stað með
geðhjúkrunardeild.
Hafsteinn Stefánsson, skóla-
stjóri f Lindargötuskóla, sagði að
69 nemendur hefðu verið í sjötta
bekk f hjúkrunar- og uppeldis-
kjörsviði sl. vetur, en þar af hefðu
50 sótt um inngöngu í Hjúkrunar-
skólann. Væri þetta ástand ákaf-
lega slæmt gagnvart nemendum,
sem stefna á hjúkrun og bjuggu
sig undir það. Á næsta ári verða
svo enn fleiri, því í 6. bekk verða
130 nemendur á þessu sviði en
170 í 5. bekk. Að vísu miði ekki
allir við að fara f hjúkrun, þvf
þeir dreifist nokkuð á fóstru-
skóla, aðfaradeild Kennaraskóla
og íþróttaskóla, en þeim fari samt
hraðfjölgandi, sem sæki i hjúkr-
unarskóla. Þurfi a.m.k. að gera
þeim það ljóst fyrirfram, ef tak-
marka eigi inngöngu við ákveðna
lágmarkseinkunn. Og hann
kvaðst hræddur um að ef svona
væri farið, þá drægi það úr þeim,
sem hefðu hug á að læra hjúkrun.
Þá ræddi Mbl. við fram-
kvæmdastjóra sjúkrahúsanna i
Reykjavfk. Haukur Benediktsson
i Borgarspítalanum sagði að tek-
ist hefði að reka allar deildir i
sumar, en með naumindum, og
ástandið færi versnandi. Nú er
verið að auglýsa í örvæntingu eft-
ir hjúkrunarfólki vegna slysa-
varðstofu og von væri á nýjum
deildum sfðar, svo sem langlegu-
deild i Hafnarbúðum. En lítið
þýði að bæta við sjúkrahúsum, ef
ekki fjölgar verulega almennu
hjúkrunarfólki. Hjúkrunarfólkið
er mjög stopult yfir sumarið, sem
er versti tfminn, þvi auk sumar-
leyfa taki margir sér aukafrí án
launa einmitt á þeim tima, þegar
verst er hjá spftölunum. Fram-
boðið af lærðu hjúkrunarfólki er
ekki nærri nógu mikið, þegar
námið taki 3 ár og 60% falli
kanski úr eftir 2 ár, skv. könnun
sem gerð var.
Davíð Gunnarsson, aðstoöar-
framkvæmdastjóri Ríkisspital-
anna, sagði að ástandið á Land-
spftalanum hefði verið það skárra
í sumar að ekki hefði þurft að
loka eða fækka rúmum eins og i
fyrra, en það hefði staðið í járn-
um. Margar hjúkrunarkonur
hefðu útskrifast í fyrra, en ef öll
fyrirhuguð sjúkrarúm bættust við
í haust. þ.e. á neðstu hæð nýju
fæðingardeildarinnar, 68—72
rúm í langlegudeild i Hátúni og á
hæli fyrir drykkjumenn á Vifil-
stöðum þá þyrfti mikla bjartsýni
til að ætla að það yrði framkvæm-
anlegt. t_________
- Ekkert ákveðið
Framhald af bls. 1
neinar slíkar viðræður. Hins
vegar mætti búast við því, að
þetta vandamál yrði rætt á
næstu vikum og mánuðum
innan bandalagsins og við full-
trúa Islands í Brussel.
Á þessu stigi málsins get ég
ekkert um það sagt, hvaða til-
lögur þar kunna að koma fram
til lausnar.hvortþar koma fram
ákveðnar tillögur um viðræður,
eða um það hver ræðir við
hvern.“
„Málið er alveg opið. hélt .
hann áfram, og ég get ekki um
það sagt, hvort fram verða
borin ákveðin tilmæli um við-
ræður, sem íslendingar þá fall-
ast ekki á samkvæmt um-
mælum utanrfkisráðherrans is-
lenzka, það er hugsanlegt, — en
til þessa hafa engin slik tilmæli
komið fram eða verið ákveðin.“
Leiðrétting
ÞAU MISTÖK urðu í frétt blaðs-
ins í gær um lántökuheimils til
handa rikisstjórninni, að í fyrir-
sögn og inngangi var sagt að
heimild þessi til kaupa á flugvél
landhelgisgæzlunnar og við-
gerðum á Óðni næmi 45o millj-
ónum króna. Blaðinu sást hins
vegar yfir að 140 milljin króna
heimild var ætluð sérstaklega til
endurbótanna á Óðni, þannig að
samtals nemur lántökuheimildin
kr. 590 milljónum. Biðst blaðið
velvirðingar á þessum mistökum.