Morgunblaðið - 06.08.1975, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.08.1975, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1975 %>;■:. -X Björgvin Þorsteinsson 0 golfmeistari íslands 1975 Ljósinynd Fridþjófur Islandsmótið í golfi, sem fram fór á golfvelli Golfklúbbs Akureyrar að Jaðri við Akur- eyri, var I senn fjölmenn og að flestu leyti ánægjuleg íþrótta- hátíð. Samtals tóku 230 manns þátt í mótinu og keppt var í átta flokkum og sjálfstæð keppni milli úrvalsliða klúbbanna háð þar að auki. Aður hefur verið sagt frá úrslitum í unglinga- flokki, drengjaflokki, kvenna- flokki, öldungakeppni og klúbbakeppninni, sem sveit Golfklúbbs Reykjavíkur vann að þessu sinni, og verður það ekki endurtekið hér. Hinsvegar verður vikið að keppninni eins og hún gekk fyrir sig þrjá síð- ustu daga mótsins hjá 2., 1. og meistaraflokki karla. Áður en lengra er haldið, skal komið á framfæri þökkum til forustumanna Golfklúbbs Akureyrar fyrir þá miklu vinnu, sem ævinlega fylgir undirbúningi og framkvæmd á landsmóti. Þar var vel að flestu staðið og margir Iétu f ljósi þá skoðun, að golfvöllurinn að Jaðri væri nú orðinn skemmti- legasti golfvöllur landsins. Hann er ekki lengur illræmdur fyrir lengd eins og hann var á síðasta landsmóti, þegar hann fékk viðurnefnið „Stóri Boli“. Nú er af honum bolabragurinn og tilbreytingin í landslaginu er með þeim hætti, að braut- irnar verða með fjölbreytilegu móti. Þær eru breiðar og grasið utan brauta fremur gisið og snöggslegið og olli hvorki töf- um né slysum. Tiltölulega lítill tfmi fór í leitir og tafir. Aftur á móti voru fáir ánægðir með út- komuna og meðalárangurinn í meistaraflokki og 1. flokki var næstum ótrúlega slakur. Flokkarnir, sem kepptu fyrst í mótinu voru ekki heppnir með veður, og rysjótt veður var bæði fyrsta og annan dag keppninnar hjá meistaraflokki og 1. flokki. En naumast varð þó veðrinu kennt um, enda kom i ljós að útkoman varð ekkert betri þegar blíðuveður gerði. Almennt umkvörtunarefni og það sem hafði af mönnum skorið, voru flatirnar. Þær höfðu þann mikla kost að halda vel bolta í innáskotum, enda búnar vökvunarkerfi. En kuld- inn frá í vor segir til sfn; vfða eru berir skallar og moldar- blettir, eða arfi eftir kal. Þess- konar gróður myndar örður, sem afvegaleiðir púttin, ekki sízt þau stuttu, sem menn misstu ótrúlega oft. Það er vitaskuld einhvers- konar afbrigðilegum aðstæðum um að kenna, þegar sæmilega sjóaðir golfarar lenda í að fjór- eða jafnvel fimmpútta, eins og fyrir kom á 6. flöt. Sú flöt á án efa eftir að stórbatna, þegar gróður myndast á flötinni, sem nýlega var endurbyggð. Allt um það eiga flestir væntanlega ánægjulegar endurminningar um landsmótsdagana og barátt- una frá degi til dags. Það kom á daginn, sem menn hafði grunað, að óhægt yrði um vik við æfingar dagana fyrir mótið. Svo fjölmennt mót verður naumast haldið svo vel sé á 9 holu velli og veldur ýms- um óþægindum. Til dæmis er feikilega leiðinlegt að þurfa að rffa sig upp f rauðabýti dag eftir dag og byrja í keppni ein- hverntfma milli kl. 6—8 á morgnana. Það var gert meðal annars til þess að rýmri tfmi skapaðist sfðdegis til æfinga- Ieiks á vellinum og mátti kven- þjóðin til dæmis hafa það að vera ræst út f býti f leiðinlegu veðri og voru þær að vonum ekki ánægðar með það. Þær fengu þó ekki meira af þessum óþægindum en aðrir, nema ef vera kynni, að þær hafi verið heldur óheppnari með veður. Áður en vikið er að keppn- inni í smærri atriðum, er óhætt að segja, að framkvæmdin tókst eins snurðulaust og hægt er að búast við á 9 holu velli. Fánar blöktu flesta dagana á mörgum stöngum meðfram golfvellinum og átti það sinn þátt í að setja hátfðablæ á staðinn. Fyrir mótið var búizt við spennandi keppni í meistara- flokki og til voru þeir, sem töldu víst, að Björgvin Þorsteinssyni mundi ekki tak- ast að verja titilinn. Var það einkum og sér f lagi byggt á því, að hann hafði ekki orðið Akur- eyrarmeistari og í annan stað höfðu aðrir, svo sem Hannes Þorsteinsson, Þórhallur Hólm- geirsson og Geir Svansson, leikið mjög vel i meistara- keppni í júlí. En strax í klúbba- keppninni kom i ljós, að Björgvin Þorsteinsson var sigurstranglegastur. Sá grunur varð að nokkuð öruggri vissu fyrsta keppnisdaginn, þegar Björgvin lék á 74 höggum og átti 6 á næsta mann. Eftir annan daginn átti hann enn 6 högga forskot og 5 högg eftir þriðja daginn. Þá þótti nokkuð Ijóst hver úrslitin yrðu og að Björgvin væri manna ólfkleg- astur til þess að tapa slfku for- skoti. Jóhann Ö. Guðmundsson var þá næstur honum og búinn að vera það f tvo daga. I 72 holu keppni gengur á ýmsu með golfgæfuna; hún er hliðholl einum í dag, en svíkur hann svo umsvifalaust á morg- un og færir einhverjum öðrum óskahringinn. Bæði í meistara- flokki og 2. flokki hélzt röð efstu manna nokkuð svipuð fram til þess síðasta. Borgfirð- ingurinn Sigurður M. Gestsson úr Golfklúbbi Borgarness, sem raunar er gamalvanur kylf- ingur frá Akureyri, var í for- ustusætinu allan tímann og sigraði. Eftir tvo daga var Heimir Jóhannsson frá Akur- eyri f öðru sæti og Ólafur Marteinsson úr Keili í þriðja. Þessir þrír voru f sérflokki, en Ólafur komst í annað sætið f lokin. I 1. flokki var hinsvegar jöfn- ust og hörðust keppni og mörg- um gaf golfgæfan þar undir fót- inn til þess eins að bregðast þeim næsta dag. Nýir menn komust f baráttusætin og hurfu þaðan jafnharðan. Eftir 1. dag- inn stóð Sverrir Einarsson úr Nesklúbbnum bezt, Akureyr- ingarnir Viðar.Þorsteinsson og Hermann Benediktsson voru næstir honum. Eftir 36 holur var Eirfkur Smith úr Keili kominn í 1. sæti ásamt Her- manni Benediktssyni, en fast á GMID Notaði tíu höggum minna en næsti maður hæla þeim og tveim höggum lakari voru þeir Frímann Gunn- laugsson og Viðar Þorsteinsson, báðir frá Akureyri og Sverrir Einarsson. Eftir þriðja daginn, þegar leiknar höfðu verið 54 holur, var nýr maður kominn í efsta sæti í I. flokki: Sigurður Hafsteinsson úr GR. Einu höggi lakari var enn einn Akureyr- ingur; Bragi Hjartarson, sem Iék þennan dag á 79 höggum og varð sá hringur beztur í 1. flokki. Hermann Benediktsson var í 3. sæti, en félagar hans frá Akureyri, þeir Frfmann Gunn- laugsson og Viðar Þorsteinsson fylgdu fast á eftir. Síðasta daginn gekk Sigurði Hafsteinssyni verr, en Akur- eyringarnir röðuðu sér í efstu sætin; Hermann Benediktsson sigurvegari. Eins og fyrr var frá sagt, vann Björgvin Þorsteinsson 6 högga forskot fyrsta daginn og fór mönnum þá að skiljast, að hann yrði ekki auðunninn; lék á 74. Tveir ungir menn, Þór- hallur Hólmgeirsson, Suður- nesjameistari nú f ár, og Jóhann Ó. Guðmundsson úr Nesklúbbnum voru næstir honum og jafnir á 80 höggum. Einu höggi lakari voru tveir ungir: Sigurður Thorarensen úr Keili og golfmeistari GR, Geir Svansson, — og tveir, sem hafa marga hildi háð á þessum vettvangi; Einar Guðnason og Óttar Yngvason. Eftir annan daginn hélt Björgvín enn 6 högga forskoti með 154 högg á móti 160 högg- um hjá Jóhanni Ó. Guðmunds- syni, en tveimur og þremur höggum þar á eftir voru þeir Einar Guðnason og Óttar Yngvason og Suðurnesja- meistarinn Þórhallur með 164. I sjötta og sjöunda sæti voru Þorbjörn Kjærbo GS með 165 högg og Ragnar Ólafsson úr GR á 166. Þannig stóðu málin, þegar mótið var hálfnað og allir vita að margt getur breytzt á sfðari helmingnum. Eftir þriðja daginn hélt Björgvin énn öruggri forustu; hann lék á 79, sem var slakasti hringur hans til þessa og hafði þó veðrið tekið miklum stakka- skiptum til hins betra og var vart hægt að hugsa sér það ákjósanlegra. Jóhann ÓIi Guðmundsson lék á 79 og dró eitt högg á Björgvin, en munur- inn virtist þó of mikill til þess að lokakeppnin gæti orðið veru- lega spennandi. Þennan dag kom nýr maður eins og raketta upp í þriðja sæti: Ragnar Ólafs- son úr GR, sem lék nú á 74. Það varð bezti hringur dagsins, en þann næstbezta átti Þorbjörn Kjærbo, sem lék á 76 og þar af annan helminginn á pari, eða 36 höggum. Þeir Ragnar og Einar Guðnason voru nú jafnir f 3.—4. sæti, Þorbjörn í 5. sæti og Þórhallur Hólmgeirsson í 6. sæti, 10 höggum lakari en Björgvin Þorsteinsson. Ekki var langt liðið á keppni hins fjórða dags, þegar Björgvin Þorsteinsson virtist með sigurinn innsiglaðan. Hann sýndi sem fyrr mikið öryggi og gat raunar leikið tals- vert langt frá sínu bezta og sigrað samt. Fyrri 9 holurnar lék Björgvin á 36 og á síðari helmingnum fór hann 3 yfir. Sfðasti hringurinn var því á 75, eða samtals 308; yfirburðasigur og 10 högga forusta. Aftur á móti stóð hörð barátta um annað og þriðja sætið og sú barátta stóð ekki aðeins milli einstaklinga, held- ur og á milli tveggja aldurs- hópa: ungu mannanna, Jóhanns Ó. Guðmundssonar og Ragnars Ólafssonar, og hins- vegar tveggja af eldri kynslóð golfleikara, sem gætu aldursins vegna verið feður hinna yngri. Það voru þeir Einar Guðnason og Þorbjörn Kjærbo. Þegar gengið var til leiks síðasta dag- inn, voru þeir Jóhann og Ragnar í öðru og þriðja sæti. En gömlu ljónin voru harðari á endasprettinum; kannski vegna keppnisreynslu, eða kannski voru þeir rólegri og sterkari á taugum. Þeir Einar og Þorbjörn léku báðir á 78 og þar með hreppti Einar annað sætið á 318 höggum, en Þor- björn var á 319 í þriðja sæti. Ragnar Ólafsson lék á 81, eða 321 samtals og hafnaði i fjórða sæti. En Jóhann Óli, sem svo lengi hafði verið f öðru sæti, guggnaði nokkuð á lokasprettin um; hann lék á 86 og varð fimmti á 324 höggum. Röð og árangur fyrstu manna í öðrum, fyrsta og meistaraflokki var annars sem hér segir: II. FLOKKUR: samtals á höggum. 1. Sigurður M. Gestsson GB, 355 2. ólafur Marteinsson, Keili, 360 3. Heimir Jóhannsson, GA, 362 4. Haflíði Guðmundsson GA 379 5. —6. Guðni Guðnason Gr 380 Ævar Sigurðsson GL, 380 I. FLOKKUR. samtals á höggum 1. Hermann Benediktsson GA, 340 2. Bragi Hjartarson GA 344 3. Frfmann Gunnlaugsson GA 345 4. Sigurður Hafsteinsson GR 347 5. Þórhallur Pálsson GA 351 6. Henning Bjarnason GK 353 7. Kjartan L. Pálsson NK 354 8. Eirfkur Smith GK 355 9. Sverrir Einarsson NK 356 10. —11. Hörður Guðmundsson GS 357 Viðar Þorsteinsson GA 357 Samtals kepptu 38 manns f 1. flokki, en 30 f meistaraflokki. MEISTARAFLOKKUR: samtals á höggum 1. Björgvin Þorsteinsson GA 308 2. Einar Guðnason GR 318 3. Þorbjörn Kjærbo GS 319 4. Ragnar ólafsson GR 321 5. Jðhann ó. Guðmundsson NK 324 6. Sigurður Thorarensen GK 325 7. —8. óttar Yngvason GR 326 Þörhallur Hólmgeirsson GS 326 9. Hannes Þorsteinsson NK 328 10. Geir Svansson GR 330 Venja hefur verið að lands- mótið endaði með samkomu, þar sem borðað er, drukkið og dansað og verðlaun veitt. Ekki var heldur brugðið út af þeirri venju nú og var form verð- launaafhendinga öllu skemmti- legra en verið hefur og ræð- urnar þeirra Páls Ásgeirs og Sverris Einarssonar áreiðan- lega á parinu. En afganginum af landsmótssamkomunni var drekkt f venjulegu fylhrýis- Framhald ð bls. 31 Bolabragurinn' af Jaðarsvellinum, sem sumir kalla bezta völl landsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.