Morgunblaðið - 06.08.1975, Síða 31

Morgunblaðið - 06.08.1975, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGtJST 1975 31 — Pönnukökur Framhald af bls. 1 100 ára afmæli landnáms Is- lendinga i Manitoba hófust með pönnukökumorgunverði við höfn- ina að Gimli. Klukkan tíu um morguninn lögðu tíu skipstjórar fiskibátum sinum á Winnipeg- vatni frá landi á Hnausum, sem eru frá fornu fari útgerðarstöð á Nýja-lslandi. Skipunum sigldu þeir suður með ströndinni og tóku Iand á Gimli en þar er nú annarr- ar landtöku von en fyrir hundrað árum. Meðal farþega á flota þess- um var Benedikt Blöndal lög- maður og kona hans. Sögðu þau hjón að ferðin hefði verið hin ánægjulegasta og ekki varð séð á frúnni að öldur Winnipegvatns hefðu leikið hana grátt. I upplýs- ingamiðstöðinni á Gimli hittum við Jón Þórðarson kennara og sagði hann að þessi ferð mundi verða sér minnisstæð til æviloka. Þá hittum við að máli Vestur- Islendinginn Óskar Jörundsson frá Riverton og dóttur hans Gloriu Jörundsson. Óskar sagði mjög ánægjulegt að hitta hér svo marga að heiman og enginn þyrfti að efast um að hugur fylgdi máli þegar þeim væri fagnað. Gest- risnin varð ekki eftir á Islandi þegar feður og mæður fluttu vestur um haf. Á elliheimilinu í Betel á Gimli hefur verið mikið um að vera. Þangað hafa flestir hátíðargestir að heiman lagt leið slna. Forseti Islands, herra Kristján Eldjárn og forsetafrú ásamt Einari Ágústs- syni utanríkisráðherra, drukku þar miðdegiskaffi, en meðal ann- arra gesta heiman frá Islandi voru menntamálaráðherra og kona hans. Þar voru fluttar kveðjur. Frú Sigríður Hjartarson forstöðukona heimilisins færði forsetahjónunum fagran blóm- vönd og frú Lára Tergersen, sem verið hefur um árabil formaður, færði forsetahjónunum gjöf. For- seti Islands ávarpaði slðan heimil- ismenn og gesti þeirra. Kvað hann sér og konu sinni vera það mikla ánægju að vera nú stödd meðal Islendinga I Manitoba. Það vekti sérstakar tilfinningar að koma til þessa lands, sem orðið hefði fósturland svo margra Is- lendinga fyrir hundrað árum. Það að ferðast út að Gimli frá Winni- peg og sjá íslenzka fánann blakta við hún svo vlða I byggðinni með- fram akbrautinni yrði sér ógleymanleg stund. Um tlma litu Islendingar svo á að það fólk sem hvarf út I óvissuna til hins stóra og fjarlæga lands vestan við hafið væri tslandi tapað fyrir fullt og allt, en nú hafa tímarnir breytzt, fjarlægðir eru ekki jafn tilfinnan- legar og áður. Hér hittum við margt fólk sem er íslenzkt bæði að ætterni og hugarfari. Það er ómælt hve stóran hlut Vestur- Islendingar eiga I íslenzkri menn- ingu. Og það er bjargföst trú mln, sagði forsetinn, að flutningurinn vestur um haf hafi þegar á allt er litið verið Islendingum til góðs. Hér hafa lifað og starfað margir merkir Islendingar, sem eru jafn- framt hollir og góðir þegnar slns lands. Fólkið á Betel er fulltrúar þeirra, sem varðveitt hafa Islenzk- an menningararf. Margt fleira sagði forsetinn og mátti sjá klökkva en jafnframt ánægju I svip þeirra sem á hlýddu. Að lokum sagði forsetinn: — Við hjónin hlökkum til að dvelja hér I nokkra daga og ég vil færa heimilinu hér og fólkinu sem þar býr okkar beztu heillaóskir. Utanríkisráðherra flutti kveðju frá ríkisstjórninni og færði heimilinu að gjöf myndabók frá Islandi. Að lokinni kaffidrykkju gengu forsetahjónin, utanrlkis- ráðherra og aðrir gestir um og skoðuðu heimilið og gáfu sig á tal við fólkið. I fylgd með forsetanum voru þeir Ted Árnason forseti Þjóðhátíðarnefndar Vestur- Islendinga, Stefán Stefánsson for- seti Þjóðræknisfélags Islendinga I Vesturheimi og konur þeirra. — Angóla Framhald af bls. 1 að um 200 flóttamenn hefðu komið yfir landamærin daglega að undanförnu. Eru það mest- megnis portúgalskir flóttamenn sem komið hafa til Suðvestur- Afríku og að sögn yfirvalda þar hafa hermenn MPLA rænt marga þeirra á leiðinni. — Auglýsinga- verð Framhald af bls. 32 hækkaði hinn 1. agúst úr 32 þús. kr. á hverja mlnútu I 42 þús. kr. Þessi hækkun hafði verið tilkynnt fyrr á þessu ári, er tekin var ákvörðun um afnotagjöld og aug- lýsingagjald sjónvarps. Fram til 1. apríl sl. kostaði hver mlnúta sjónvarpsauglýsinga 26 þús. kr., en hækkaði i 32 þús. kr. þann 1. aprll og nú 142 þús. kr. Síðan mun mínútan enn hækka þann 1. nóv. I 52 þús. kr. — Karl prins Framhald af bls. 2 sem lengi hefur haft Hofsá á leigu. Ströng gæzla er I nágrenninu og reynt að varna þvi, að fólk raski ró prinsins, sem er eingöngu kom- inn hingað til lands til að njóta hvíldar og kyrrðar við laxveið- arnar. Hafa Ijósmyndarar reynt að komast nærri veiðistöðvum hans, en illa orðið ágengt, þvi að, eins og Gunnar Valdimarsson sagði I samtali við Mbl. I gær, „ef menn ætla að skriða eins og skæruliðaforingjar I kjarri og milli kletta, þá er eðlilegt, að þeir séu stöðvaðir." Sagði Gunnar, að þeir menn, sem þannig höguðu sér, gætu sjálfir sér um kennt að fá ekki að taka myndir af prins- inum. — Tveir bátar Framhald af bls. 32 Grindavfkur var kl. 5 að morgni til. Sfðustu tvær klst. fyrir mið- nætti voru skipstjóri og stýri- maður báðir á stjórnpalli. Á mið- nætti fór skipstjórinn að sofa, en áður bað hann stýrimanninn um, að hann yrði vakinn kl. 02. A tilsettum tlma sendir stýrimaður hásetann, sem var á vakt, til að vekja skipstjórann og háseta þann, er átti næstu vakt. A sama tlma tekur hann staðarákvörðun. Annar háseti kom á vakt, en kl. 2.30 fer stýrimaðurinn inn til skipstjóra og talar við hann, kemur slðan með þau skilaboð til hásetans að hann eigi að vekja skipstjórann kl. 3.00. Síðan fór stýrimaðurinn að sofa. KI. 4.50 vaknar svo skipstjórinn og áhöfn hans við að báturinn er strand- aður I Staðarbót, vestan Grinda- vikur, en hásetinn hafði sofnað á verðinum. Alit sjóslysanefndar á óhappinu er þetta: „Öafsakanlegt kæruleysi skip- stjórnarmanna við stjórn bátsins, að hafa aðeins einn mann á verði. Vítavert kæruleysi af stýrimanni að víkja úr brúnni, áður en skip- stjóri hafði leyst hann af við skip- stjórnina á stjórnpalli.“ Seinna strandið varð er And- vari KE strandaði við Ingólfs- höfða, þann 24. nóvember s.l. Kl. 14.30 þann dag var trollið hlft upp og ekki kastað aftur, þar sem lítil veiði var. Fóru þá allir skipverjar i koju nema skipstjóri og 2. vél- stjóri. Skipstjóri fór inn I korta- klefa og lagði sig þar á bekk, en áður hafði hann beðið vélstjórann að halda bátnum 3 sml. SA af Ingólfshöfða og láta sig vita strax ef eitthvað kæmi uppá og I síðasta lagi kl. 17.00. Kl. 16.30 vaknar skipstjórinn við það að báturinn tekur niðri og þegar hann kemur fram I brúna sér hann að báturinn er strand- aður 3 sml. austan við Ingólfs- höfða. 2. vélstjóri sat I stól I stýris- húsinu og hafði sofnað, en vaknaði um leið og skipstjórinn. Björgunarsveit S.V.F.I. á Fagur- hólsmýri dró mennina I land, en báturinn var siðan dreginn á flot daginn eftir. Álit nefndarinnar á þessu atriði er: „Óafsakanlegt kæruleysi skip- stjórnarmanna við stjórn bátsins að hafa aðeins einn mann á verði.“ — Kaffi Framhald af bls. 1 framleiðslan muni falla úr 22 miljón sekkjum á þessu ári I 8 milljón sekki 1976. „Næsta ár þar á eftir hefur verið afskrifað, spurningin er hve slæmt ár 1978 verður", er haft eftir áreiðanlegri heimild. Eyðileggi frost lauf kaffitrés, án þess að greinarnar sjálfar skemmist, er ekki hægt að nota það til ræktunar fyrr en tveim árum seinna. Skemmist greinarnar hins vegar, verður að skera stofninn og þá er tréð allt upp 15 ár að ná sér. - Portúgalsnefnd Framhald af bls. 15 framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um ástandið I Miðjarðarhafsbotnum. Harold Wilson, forsætisráð- herra Bretlands, sem sat Stokk- hólmsfundinn, sagði við frétta- menn að honum Ioknum að við- ræður sínar við Costa Gomez Portúgalsforseta í Helsinki hefðu ekki gefið tilefni til bjartsýni. Wilson sagðist ennfremur hafa rætt um Portúgal við Brezhnev leiðtoga kommúnistaflokks Sovét- ríkjanna, en gaf ekki frekari upp- lýsingar um efni þeirra viðræðna. — Annir Framhald af bls. 32 vik að verða við þessum óskum og væru þar helztar ástæður þessar: Nú fer I hönd aðalannatlminn I sólarferðamálum, ágúst og september, og eru flestar ferðir á þessum tlma löngu fullbókaðar. Erfitt er að útvega gistirými, þar sem gistirýmisáætlanir skrif- stofanna voru I sumar endur- skipulagðar með takmarkanir gjaldeyrisyfirvalda á lengd hóp- ferða í huga, en I þeim fólst, að óheimilt var að selja lengri hóp- ferðir en tveggja vikna. Erfitt er að endurskipuleggja flutninga ferðamannanna I flug- vélum til sólarlanda og frá á þessu stigi og erfitt að fá auka- vélar til flutninga. Allar fer'ðaskrifstofurnar kváð- ust þó reyna að leysa vanda við- skiptavinanna eftir fremsta megni, þótt svigrúmið væri lítið. Þá bar mönnum saman um, að ekki virtist I heildina gæta neins verulegs samdráttar I ferðalögum landsmanna, miðað við metárið I fyrra. Að vísu hefði framan af ári verið mjög lítið um pantanir, en þegar líða tók á sumarið og eink- um þó eftir að sýnt varð að sumar- veðrið myndi bregðast hefðu verið geysimiklar pantanir og þannig væri þetta ár farið að nálgast metárið I fyrra, hvað hóp- ferðirnar snerti. — Minning Sveinn Framhald á bls. 22 þekkingar og reynslu sem dugði honum við þau störf, sem hann stundaði mest slðar, þ.e. verzl- unarstörf og bifreiðaakstur. Sveinn hóf störf hjá föður mlnum I Sælgætisgerðinni Vlking, árið 1943. Starfaði hann fyrst aðallega við Iagerstörf og akstur á vörum, Slðar fékkst hann við ýmis alhliða verzlunarstörf. Kom strax I ljós nákvæmni hans og fyllsti trúnaður, sem aldrei brást. Þau þrjátíu og tvö ár, sem síðan hafa liðið, stundaði Sveinn akstur hér I bænum, lengst af hjá Borgarbílastöðinni, með störfum slnum fyrir Sælgætisgerðina Viking. I hverju starfi, er Sveinn tók að sér, kom fram árvekni hans, trúnaður og fyllsta samvizkusemi I smáu sem stórú. Veit ég að aðrir samstarfsmenn hans minnast þessara góðu eiginleika. Sveinn tók þátt I ýmsu félags- starfi á Grímstaðaholti, sem aðrir eru kunnugri en ég. Þó veit ég um þátttöku hans I Knattspyrnufélag- inu Þrótti, á bernskudögum þess félags, svo og um þátt hans I tafl- félögum bifreiðastjóra Borgar- bílastöðvarinnar. Þessi fáu minningarorð um kæran vin eru færri og fátæklegri en ég hefði viljað, en hógværð hans og kurteisi I öllum greinum veldur þvl, að ég hef reynt að gæta hófs I orðum mlnum. Hinsvegar vita þeir, sem þekktú Svein Kristjánsson, að ég hef áreiðanlega hvergi ofmælt. Þessum minningarorðum mun ég Ijúka á þann hátt að þakka Sveini samveruna og samvinnuna í þau rúm þrjátlu ár, sem við áttum þvl láni að fagna að hittast nær daglega og oftast vikulega árið um kring. Systkinum hans færi ég samúðarkveðjur mínar og fjöl- skýldu minnar og veit að þau geyma þá minningu prúðmennis I huga mér, sem aldrei fyrnist. Far vel kæri frændi og vinur. Jarðarför Sveins Kristjáns- sonar fór fram I kyrrþey að ósk hans. Kjartan Jónsson. — Orð í eyra Framhald af bls. 4 sko sunnudagslitir. Á morgun skipti hann um enda væri þá mánudagur samkvæmt almanakinu. Þá færi vel á að hafa varir gular en brúnan fót. Varlasjónir væru mögulegar meðan litaskalinn dygði og lystaverkin væru svo náteingd lífinu að þau spásséruðu um og bæru listinni vitni um borg og bý. Forleggjarinn bað um kóplu en það var ekki hægt svo við fórum allir heim. — Skæruliðar Framhald af bls. 1 tveir sem handteknir voru I Stokkhólmi I marz sl. Þota frá japanska flugfélaginu Japan Air Lines flutti fangana fimm til Kuala Lumpur og var vélin hlaðin matföngum og elds- neyti. Ekki var vitað hvert förinni væri heitið frá Kuala Lumpur en orðrómur var á kreki um að stjórn Malasíu hefði beðið stjórnir Sýr- lands og Lýblu að taka við föng- unum og skæruliðunum sem talið er að séu sex talsins. Þegar þotan var lent I Kuala Lumpur hófust langar samninga- viðræður milli fanganna I vélinni, skæruliðanna I bandaríska sendi- ráðinu og yfirvalda I Malaslu um hvernig þeim yrði komið burtu. Var búizt við að viðræður þessar mundu taka marga klukkutíma og áhöfn flugvélarinnar hafði farið fram á að fá að hvíla sig I 12 stundir I Kuala Lumpur áður en haldið yrði af stað. Talið er að taka gíslanna I sendiráðinu hafi verið tlmasett með tilliti til að valda Takeo Miki forsætisráðherra Japan erfið- leikum á ferð hans til Banda- ríkjanna. Miki átti I dag viðræður við Ford Bandaríkjaforseta um málefni landanna og baðst þá af- sökunar á atburðunum sem væru að gerast I sendiráði Banda- ríkjanna I Kuala Lumpur. — Þjóðhátíð Framhald af bls. 17 Þrátt fyrir bullandi regn um nóttina logaði glatt I hinu gamla skipi, en í hústjöldunum söng fólk af fullum krafti þótt dyttu úr lofti dropar stórir I gegn um segldúkana. Það er ekki nema bjartsýnisfólk sem stundar þjóðhátlð og það ætlaði sér að standa af sér skdrirnar, jafnvel þótt það þyrfti að sitja undir sturtunni I 8 klukku- stundir. Það var góður sprettur I gamninu þessa nótt, en nokk- ur ungmenni aðkomin varð að aðstoða við að taka saman tjöld, því þau höfðu gleymt að hæla þau niður I upphafi. Þetta var þó smámál og I morgunsárið fór hópur Týrara um Bakkann og hreinsaði til. Eftir hádegið spratt svæðið þvf upp á ný ferskt og hreint og hófst dagskráin á tilskildum tíma. Þjóðhátiðargestir höfðu flestir farið I þurr föt. Stöku menn voru þó slæptir, en það gekk skjótt yfir. Um kvöldið og sérlega um nóttina var blíð- skaparveður og góð stemming á Bakkanum, fjölmenni á dans- pallinum hjá Ingimar Eydal og félögum og dúndur mikið, fjöldasöngur I tjöldum, raddað og: óraddað, lundakrlkar sviða- sulta á normalbrauði og fleira I gömlum og góðum dúr og ný tjörn á Bakkanum. Menn voru að byrja að ná taktinum hver með öðrum, en þó sat hópur fólks um kl. 8 á sunnudags- morgun I hlíðinni fyrir ofan Bakkabyggð. Það voru 5 gítarar I gangi þar, en enginn lék sama lagið, ótrúlegt á þjóðhátið. En menn voru ekkert að æsa sig, gáðu út I nátturuna, kíktu á grös og út I Suðureyjarnar með von I huga til næsta kvölds um samstillian kór. En rigningin sturtaði þjóðhátíðinni niður á Bakkanum það kvöld og allir fóru I bæinn I heimahús og samkomuhúsin og 200 manna hópur fékk inni I áhaldahúsi bæjarins þar sem fólk var hið prúðasta á allan hátt, flestir tóku því rólega en einn og einn stundaði jókaæfingar og annan skáldskap. Þó skildi þjóð- hátlðin eftir góðar minningar, hinum sturtaði rigningin niður I eilífðina, og svo verður aftur þjóðhátíð næsta ár. -á.j. — íþróttir Framhald af bls. 20 skralli I Sjallanum, þar sem hvorki var hægt að tala saman né dansa. Fóru sumir þaðan leiðir og aðrir reiðir og þarf að taka þennan þátt landsmótsins til frekari athugunar á næsta golfþingi til þess að ekki þurfi að verða „antiklimax“ ár á þessari árlegu hátíð kylfinga. GS. — Fá’ann? Framhald af bls. 2 leyfðar. Nú væru komnir yfir 100 laxar á land og allir sæmi- lega vænir. Þá mætti geta þess, að bleikjuveiði hefði verið góð og til dæmis fengist bleikja sem var 7 pund að þyngd. — Þátttakendur Framhald af bls. 2 með þessum mótum alla tíð þó ekki hafi tala þátttakenda frá Is- landi verið há fyrr en síðustu 4 árin. Þá hefur félagið fengið full- trúa I nefnd, sem undirbýr öll mót kristilegu félaganna á Norðurlöndunum, en auk þessara árlegu móta eru haldin ýmis smærri mót, þar sem tekin eru fyrir einstök málefni. — Lézt Framhald af bls. 32 Kleppsveg um klukkan 11.15 en þar er unnið að breikkun Klepps- vegar. Skurðgrafa vann að skurð- greftri og var hætt að grafa á meðan gamli maðurinn aðgætti með skólfu að skólprörum sem talið var að lægju þarna um. Stjórnandi skurðgröfunnar veitti þvl athygli, að skurðbakkinn var að gefa sig og kallaði varnaðarorð til gamla mannsins. Hann reyndi að forða sér en var of seinn og fékk skriðuna yfir sig. Bakkinn var á þessum stað um 1.50 metrar. Starfsfélagar mannsins hófu strax björgunaraðgerðir og grófu hann fljótlega út. Var maðurinn fluttur á Borgarspítalann en þar lézt hann sem fyrr segir af völd- um innvortis meiðsla sem hann hlaut. + Maðurinn minn, ÞÓRÐUR EYJÓLFSSON, fyrrverandi hæstaréttardómari, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni I dag kl. 1.30. Halldóra Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.