Morgunblaðið - 06.08.1975, Page 32
Fallegri myndir Fallegri myndir
1 Ástþór tttmkiitinl | Astþór |
myndiðjan myndiðjan
MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGUST 1975
Rannsóknarnefnd sjóslysa:
Tveir bátar strönd-
uðu vegna þess að
áhafnir sváfu
ÞAÐ hefur aldrei þótt gæfulegt
að sofna á stýrisverði og í skýrslu
Rannsóknarnefndar sjóslysa
fyrir árið 1974 kemur fram að tvö
skipsströnd á s.l. ári má rekja
beint til þess, að áhöfn bátanna
var sofandi. Sem betur fer var
veður með bezta móti og hlauzt
hvorki mannskaði né skipstjón
af, þar sem hægt var að bjarga
báðum skipunum.
Fyrra strandið átti sér stað 5.
ágúst 1974 þegar Hópsnes GK 77
var á leið til Grindavfkur frá Ing-
ólfshöfða. Áætlaður komutími til
Framhaid á bls. 31
Auglýsingaverð
útvarps hækkar
28% í hljóðvarpi og 31% í sjónvarpi
AUGLÝSINGAVERÐSKRÁ
hljóðvarps og sjónvarps hækkaði
hinn 1. ágúst sl. og nemur
hækkunin hjá hljóðvarpi
25—28% að jafnaði, en hjá sjón-
varpi um 31%.
hækkun á þessum töxtum að nýju
áður en tekin yrði ákvörðun um
afnotagjöld og auglýsingaverð-
skrá hljóðvarps fyrir árið 1976.
Auglýsingagjald sjónvarps
Framhald á bls. 31
Ljósmynd Sigurgeir.
EYJAR — Þessi óvenjulega mynd var tekin f áhaldahúsi Vestmannaeyja aðfaranótt s.l. mánudags, en þar
höfðu um 200 þjóðhátíðargestir fengið inni vegna úrfellis á tjaldsvæðinu á Breiðabakka. Fólk kom sér
fyrir í hlýjum pokunum og eins og sjá má var hafður sami stíll á og í niðurröðun í sardfnudósir. Fór nóttin
þarna hið prúðasta fram að sögn eftirlitsmanna úr hópi Týrara. Fjöldi aðkomufólks fékk inni f
heimahúsum, en áhaldahúsið stóð opið þeim sem vildu og þarna sést hluti gestanna.
Geysilegar annir hjá ferða-
skrifstofum vegna hópferða
Að sögn Gunnars Vagnssonar
fjármálastjóra varð hækkun úr 50
kr. f 70 kr. á hvert orð í hljóð-
varpsauglýsingum fyrir líknar-
stofnanir og dánartilkynningar,
úr 90 kr. í 115 kr. og úr 100 kr. f
130 kr. fyrir almennar viðskipta-
auglýsingar (verðið fer eftir
þvf á hvaða tíma auglýsingin er
flutt) og úr 200 kr. í 260 kr. fyrir
hverf orð þeirra auglýsinga sem
fluttar eru eftir kvöldfréttir.
Gunnar kvað ekki liggja fyrir
neinar ákvarðanir hjá yfirstjórn
hljóðvarps um að sækja um
BANASLYS varð við Kleppsveg i
Reykjavfk skömmu fyrir hádegi f
gær. 65 ára gamall maður var að
vinna þar f skurði þegar skurð-
bakkinn gaf sig skyndilega undan
þunga Uppúrmoksturs sem lá á
honum. Grófst gamli maðurinn
undir skriðunni. Fljótlega tókst
þó að ná honum upp og var hann
MIKLAR annir 'hafa verið hjá
ferðaskrifstofum borgarinnar að
undanförnu og eru ástæðurnar
fluttur á Borgarspftalann. Lézt
hann þar um klukkan 14 af völd-
um innvortis meiðsla sem hann
hlaut. Ekki er hægt að skýra frá
nafni mannsins að svo stöddu
vegna fjarstaddra ættingja.
Slysið átti sér stað skammt
austan við bensfnstöð Shell við
Framhald á bls. 31
einkum þrjár:
0 Mjög mikið er um að fólk, sem
pantaði tveggja vikna sólarferðir
fyrr f sumar, reyni nú að fram-
lengja þær um viku, eftir að
gjaldeyrisyfirvöld hafa fellt
niður takmarkanir á lengd hóp-
ferða.
0 Mjög mikið hefur verið bókað f
Kanarfeyjaferðir á komandi vetri
hjá þeim ferðaskrifstofum, sem
hafa slfkar ferðir á boðstólum.
0 Mjög mikil vonbrigði manna
með veðrið að undanförnu hafa
valdið þvf, að þeir keppast um að
panta sólarferðir til að bæta sér
það upp og keyrði þó um þverbak
f gær, fyrsta daginn eftir verzl-
unarmannahelgi, þvf að fjöl-
margt fólk, sem var vonsvikið
eftir slæma veðrið nú um helgina.
ákvað að skella sér f sólarferðir
sem fyrst f staðinn.
Morgunblaðið hafði samband
við fjórar ferðaskrifstofur í gær
— Ferðamiðstöðina, Sunnu, tJr-
val og (Jtsýn, og bar starfs-
mönnum þeirra, sem blaðið ræddi
ÞEGAR sundlaugarvörður við
Sundlaug Kópavogs kom til vinnu
að morgni s.I. laugardags fann
við, saman um, að mjög mikið
væri um að fólk vildi framlengja
tveggja vikna ferðir sínar um
eina viku. Jafnframt bar þessum
aðilum saman um, að ferðaskrif-
stofurnar ættu mjög óhægt um
Framhald á bls. 31
hann Ifk unglingspilts f lauginni.
Reyndist þetta vera Ifk tæplega
17 ára pilts, Halldórs Einars-
sonar, Hlfðarvegi 41 f Kópavogi.
Að sögn Leó Löve fulltrúa bæjar-
fógetans í Kópavogi, bendir rann-
sókn til þess, að Halldór heitinn
hafi verið einn á ferð er hann
kom að lauginni aðfararnótt
laugardagsins.
Lfk Halldórs var fáklætt en föt
hans voru við laugina. Engin skil-
rfki voru f fötum hans og var
lengi vel ekki vitað hvern þarna
var um að ræða. Var af þeim
sökum eindregin ósk rannsóknar-
lögreglunnar í Kópavogi, að
Morgunblaðið skýrði ekki frá lík
fundinum í sunnudagsblaðinu.
Rannsóknarlögreglan í Kópavogi
hóf þegar rannsókn á þvf um
hvern þarha gæti verið að ræða
en sú rannsókn gekk seint m.a.
vegna verzlunarmannahelgar-
innar. Tókst um sfðir að finna út,
hver hinn látni var.
Eins og fyrr segir hefur athug-
un á ferðum Halldórs heitins á
laugardag og laugardagskvöld
bent eindregið til þess að hann
hafi verið einn á ferð og er því
enginn til frásagnar um það með
hverjum hætti slysið bar að hönd-
um.
Spariskírteini hafa 13,2 faldast íverði
á samatíma og fasteign hefur 11 faldast
10 þúsund króna skírteinin frá 1974 orðin 21 þúsund króna virði
MORGUNBLAÐIÐ átti í gær samtal við lögmann í
borginni, sem töluvert hefur fylgst með útgáfu spari-
skírteina rfkissjóðs og gert samanburð á f járfestingu í
slfkum skfrteinum og öðru, svo sem fasteignum.
Veitti lögmaðurinn blaðinu
þær fróðlegu upplýsingar, að um
síðustu áramót hefði fyrsta útgáfa
slfkra skírteina frá rikissjóði
verið innleyst í Seðlabankanum,
en skírteinin voru gefin út árið
1964. Voru þau innleyst um ára-
mótin á 13,2 földu nafnverði. Lög-
maðurinn kvaðst hafa fengið um
svipað leyti til sölumeðferðar hús-
eign, einnar hæðar einbýlishús,
sem reist var um sama leyti og
bréfin voru fyrst gefin út. Kvaðst
hann hafa gert samanburð á því
hve fasteignin hefði hækkað f
verði á sama tíma og skírteinin
höfðu 13,2 faldast. Kom i ljós, að
fasteignin hafði 11 faldast í verði.
Sagði lögmaðurinn að þetta hefði
vakið áhuga sinn og hefði hann
kannað sölur á tveimur öðrum
húseignum, sem seldar voru í
kringum 1964 og svo aftur um
síðustu áramót. Reyndust báðar
fasteignirnar hafa hækkað svipað
í verði, eða verðið 10—11 faldast.
„Hitt ber svo að athuga,“ sagði
lögmaðurinn, „að á þessum tfma
hefur eigandi fasteignarinnar
notað sitt húsnæði en engin not
haft af skírteinunum, þau hafa
bara legið í geymslu. Ef maður
tekur notin af húseigninni inn í
dæmið og dregur frá gjöld og
kostnað, sýnist mér að kaup f
fasteign séu heldur betri fjárfest-
ing en f spariskírteinum. Þetta tel
ég að sýni vel hve góð fjárfesting
skírteinin eru, enda hafa undir-
tektirnar við þau sýnt það bezt,“
sagði lögmaðurinn.
Loks skulu nefnd sem dæmi um
hækkun skírteina, að 2. flokkur
þeirra frá árinu 1973 er nú því
sem næst 2,3 faldaður frá nafn-
verði, eða 10 þúsund króna
skírteini eru orðin 23 þúsund
króna virði. Og 10 þúsund króna
skírteinin frá árinu 1974, þ.e. 1.
flokkur frá í fyrra eru orðin 21
þúsund króna virði.
65 ára gamall mað-
ur lézt í vinnuslysi
Kópavogur:
16 ára piltur fannst
látinn í sundlaug