Morgunblaðið - 30.08.1975, Síða 3

Morgunblaðið - 30.08.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÁGUST 1975 3 Aðalfundur Stéttarsambands bænda: Samþykkt að gef a Búnaðarsam- bandi Suðurlands 1 millj. til byggingar rannsóknarstofu 30. aðalfundur Stéttar- sambands bænda var settur á Laugarvatni kl. 10 árdegis í gær. Til fundarins eru mættir 46 fulltrúar af öllu landinu auk gesta, en stjórn stéttarsambandsins bauð öllum þeim fulltrúum, sem sæti áttu á aðal- fundinum fyrir þrjátfu árum og enn eru á lífi, að vera viðstaddir þennan aðalfund. Þá voru gestir fundarins ýmsir forráða- menn fslenzks land- búnaðar s.s. Land- búnaðarráðherra, Hall- dór E. Sigurðsson, búnaðarmálastjóri, Hall- dór Pálsson, og fl. Þrjátíu ára afmælis stéttarsambandsins var sérstaklega minnzt með hátiðarsamkomu í gær og meðal þeirra sem þar fluttu ávörp voru nokkr- ir þeirra manna sem sæti áttu á stofnfundinum. Fundinum lýkur síð- degis í dag að lokinni af- greiðslu tillagna og kosn- ingu stjórnar. Fundurinn hófst með því að formaður stéttar- sambandsins bauð full- trúa og gesti velkofnna og minntist tveggja lát- inna bænda sem átt höfðu sæti á aðalfundum stéttarsambandsins, þeirra Jósefs Jónssonar prests á Setbergi og Páls Metúsalemssonar á Refs- stöðum. Að lokinni setningu fundarins voru kjörnir embættismenn hans og var Bjarni Helgason á Uppsölum kjörinn fundarstjóri. Þá flutti Gunnar Guðbjarts- sön formaður stéttarsambands- ins skýrslu sína og rakti þar starf stéttarsambandsins á liðnu ári og ræddi um viðhorf og stöðu landbúnaðarins. Þar kom fram að stéttarsambandið hefur á liðnu ári unnið að því í samráði við ýmsa aðila að vinna að eyðingu flugvargs og villi- minks.Stéttarsambandiðhafði á liðnu ári töluverð afskipti af láglaunabótum til bænda en nú er búið að greiða um hundrað og tíu milljónir og eftir er að greiða milli sjötíu og áttatíu milljónir í láglaunabætur til bænda. Láglaunabætur til bænda hafa að meðaltali numið fjörutiu og tveimur þúsundum á hvern bónda. Þá kom fram að bændur höfðu tapað nærri hundrað og fimmtíu milljónum vegna þess dráttar, sem varð á verðlagningu landbúnaðarvara á slðasta ári. Á árinu varð mikil verðhækkun á áburði og gerði stéttarsambandið þá tillögu til rikisstjórnarinnar að þessi hækkun yrði greidd niður til helmings og mætti þannig draga úr áhrifum þessarar hækkunar á verðbólguþróun- ina og auka jafnframt rekstrar- fjármagn i landbúnaði. Gunnar ræddi ítarlega um lánamál landbúnaðarins en þess er að vænta að þau verði eitt aðalmál þessa fundar og að hann geri samþykktir um þau. I skýrslu Gunnars kom fram að niðurgreiðslur á innlendum markaði væru orðnar miklar og hefði stéttarsambaiidið áhyggj- ur af því að þær yrðu skertar snögglega. Stjórn stéttarsam- bandsins hefur lagt á það áherzlu við rikisstjórnina að Hluti fulltrúa á þrftugasta aðalfundi Stéttarsambands bænda á Laugarvatni Meðal þeirra mála sem fjallað er um á aðalfundinum er hvort konur fái aðild að stéttarsambandinu. Hér sjást nokkrar eiginkonur fulltrúa fylgjast með störfum aðalfundarins. Ljósm. Mbl. T.G. Gunnar Guðbjartsson flytur skýrslu sfna. dregið verði úr niðurgreiðsl- unum í áföngum og með tiltölu- lega smáum tröppum þannig að ekki komi til samdráttar í sölu landbúnaðarvara hér innan- lands. Að lokinni skýrslu stjórnar- innar voru lesnir reikningar stéttarsambandsins og kom þar fram að tekjuafgangur þessa árs nemur tæplega 11,5 milljón- um. Þá var gert matarhlé en að því loknu fluttu gestir ávörp. Halldór E. Sigurðsson landbún- aðarráðherra ávarpaði fundinn og kom fram hjá honum að ákveðið hefur verið að skipa nefnd til að kanna stækkun áburðarverksmiðjunnar i Gufu- nesi. Ásgeir Bjarnason for- maður Buðnaðarfélags Islands flutti einnig ávarp. Þá voru frjálsar umræður og siðan voru lagðar fram tillögur að sam- þykktum fundarins. Öllum til- lögunum nema einni var visað til nefnda. Ein tillaga var sam- þykkt á þessum fyrri degi aðal- fundarins og var það tillaga frá stjórn stéttarsambandsins um að færa Búnaðarsambandi Suðurlands eina milljón króna að gjöf til byggingar rann- sóknarstofu á Selfossi og er þetta gert í tilefni af þrjátiu ára afmæli stéttarsambandsins. Eins og áður sagði lýkur fundinum siðdegis í dag. Fjölda margar tillögur hafa borizt fundinum frá kjör- mannafundum og fjalla þær m.a. um lög stéttarsambands- ins, lánamál landbúnaðarins og hvort veita eigi konum aðild að stéttarsambandinu. Fundinum lýkur með afgreiðslu tillagna og kosningu stjórnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.