Morgunblaðið - 19.09.1975, Page 3

Morgunblaðið - 19.09.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBÉR 1975 3 „Við skiljum ástæður Islendinga fyrir 200 mílna útfærslunni” — sagði Bratteli í ræðu í gær TRYGVE Bratteli forsætis- ráðherra Noregs sagði í ræðu, sem hann flutti í kvöldverðarveizlu norsku stjórnarinnar fyrir islenzku forsætisráðherrahjónin í gærkvöldi, að raunsæ viðurkenning á varnarsam- starfi þjóða væri skilyrði fyrir áframhaldandi sam- vinnu austur og vesturs og tilraunum til að draga úr spennu milli þessara aðila og að bæði Noregur og ís- land væru í NATO til að tryggja öryggi sitt með þeim hætti, sem i dag væri aðeins gerlegt innan slíks varnarsamstarfs. Mikilvægi þess samstarfs sæist glöggt i Ijósi aukinnar áherzlu á öryggismálalegt mikilvægi hafsvæðisins undan strönd- um NV-Evrópu. Þá sagði forsætisráðherr- ann: „Allir vita hve hafið um- hverfis ísland er efnahags- lega mikilvægt fyrir íslenzku þjóðina og því er það eðlilegt að íslendingar taka af áhuga þátt í hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Norð- menn eiga einnig mikilla hagsmuna að gæta með sín stóru hafsvæði og taka virkan þátt í ráðstefnustörf- unum. Við leggjum alla áherzlu á, að ráðstefnan leggi grundvöll að réttlátum reglum um nýtingu hafsins og auðæfa þess. Náið sam- starf við íslendinga á ráð- Bratteli og Geir Hallgrfmsson er þeir hittust 1 gærmorgun. Frú Erna Finnsdóttir og Randi Bratteli skoðuðu f gær norska sjóminjasafnið og var myndin tekin þá. sfmamyndir AP. stefnunni hefur verið sérlega ánægjulegt, einkum við samninga um mótun fram- tíðarreglugerðar um yfirráða- rétt strandríkjanna yfir náttúruauðlindunum innan 200 mílna efnahagslögsögu. Við hlökkum til frekara sam- starfs á ráðstefnunni á næsta ári og leggjum áherzlu á, að þá takist að ná varanlegu samkomulagi. íslendingar og Norðmenn styðja báðir eindregið að á verði komið 200 mílna fiskveiðilögsögu, þar sem strandríkin hafi full- kominn rétt til að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að vernda fiskstofnana og tryggja hag fólksins sem býr við ströndina. Við höfum valið nokkuð aðra leið en íslendingar til að ná þessu takmarki, en ég geri mér Ijóst að staða okkar í þessu máli er ekki sú sama og ykkar. Við skiljum þær ástæður, sem íslendingar leggja til grund- vallar ákvörðun sinni um 200 mílna fiskveiðilögsögu og gerum ráð fyrir að veiði- réttartilslakanir verði gerðar af nauðsynlegri tillitssemi við nágrannaþjóðir (slendinga. Við styðjum þann samnings- vilja, sem íslenzka stjórnin hefur gefið til kynna gagn- vart þeim þjóðum, því að ég er viss um að íslendingar og Norðmenn muni á þessu sviði og öðrum halda áfram sínu nána og árangursrika samstarfi með gagnkvæmum skilningi og virðingu, sem við á í samskiptum náinna ætt- ingja. Ég býð íslenzku for- sætisráðherrahjónin enn hjartanlega velkomin til Nor- egs og lyfti þeirra skál." í dag föstudag heldur Geir Hallgrímsson áfram viðræð- um sinum við feratteli og gengur siðan á fund Ólafs Noregskonungs og snæðir með honum hádegisverð Síðar í dag heldur forsætis- ráðherra blaðamannafund og í kvöld bjóða forsætisráð- herrahjónin gestgjöfum sín- um og öðrum gestum til kvöldverðar. Forsætisáðherrafrúin, Erna Finnsdóttir, mun fyrir hádegi fara i ýmsar skoðunarferðir i nágrenni Óslóar en hún situr síðan hádegisverðarboð konungs. Forsætisráðherrahjónin halda frá Ósló síðla dags á morgun, laugardag. Vetrardagskrá sjónvarpsins: Sex íslenzk leikrit sýnd í 1. OKTÓBER gengur í gildi vetrardagskrá sjónvarpsins. Frá síc asta vetri hafa íitlar breytingar orðið á skipul' ;i dagskrárinnar. Þó verður sá háttur á hafður í vetur, að í stað þess að sýna langar kvikm. ndir á miðvikudags- og laugardags- kvöldum eins og verið hefur, þá verða þær sýndar á föstudags- og laugardagskvöldum. Að sögn Péturs Guðfinnssonar, fram- kvæmdastjóra sjónvarpsins, er þessi breyting gerð fyrst og fremst vegna þess, að dagskrá lýkur yfirleitt seint þegar langar kvikmyndir eru sýndar, þannig að heppilegra er talið að sýna þær þegar 1 hönd fara almennir frídagar. Sakamála- þættir þeir, sem verið hafa á föstudagskvöldum, verða í vetur á miðvikudagskvöldum. Þá /erða sjónvarpsleikrit, önnur en fslenzk, sýnd á mánu- dagskvöldum í vetur, en ekki sunnudagskvöldum eins og verið hefur. Islenzku leikritin verða eftír sem áður á dagskrá á sunnudagskvöldum. Fram- haldsmyndaflokkar, sem að undanförnu hafa verið sýndir á mánudagskvöldum, verða eftir- leiðis á dagskrá á sunnudags- kvöldum. Innlendur fréttaskýringa- þáttur verður á föstudagskvöldi vikulega. Hann verður með svipuðu sniði og verið hefur. Umsjónarmenn verða sjón- varpsfréttamenn innlendra frétta. Erlendur fréttaskýringa- þáttur verður á dagskrá annan hvern þriðjudag og er fyrir- hugað að breyta nokkuð tilhög- un hans frá því sem verið hefur, en hverjar breyt- ingarnar verða er enn óráðið. Hinn þriðjudaginn verða svo umræðuþættir um innlend málefni. Iþróttaþættir verða á laugardögum kl. 17—18.30 og á tíunda tímanum á mánudags- kvöldum. Vaka verður í umsjá Aðalsteins Ingólfssonar og verður þátturinn hálfs- mánaðarlega. Fastir þættir um skólamál verða mánaðarlega i sjónvarp- inu í vetur og verður umsjónar- maður þeirra Helgi Jónasson fræðslustjóri í Hafnarfirði. Þá verður þátturinn „Heimsókn“ á dagskrá mánaðarlega. Umsjónarrrienn verða Ómar Ragnarsson og Þrándur Thor- oddsen, Þátturinn „Maður er nefndur“ verður á döfinni öðru hverju og guðræknisstundin „Að kvöldi dags“ verður eftir sem áður sfðast á dagskrá sunnudagsins. Nú standa yfir sýningar á framhaldsmyndaflokknum „Allra veðra von“, en honum lýkur um miðjan október. Þá verða líklega teknir til sýningar 13 brezkir framhaldsþættir, sem heita „Follow Eagles“. Þættirnir eru byggðir á stað- reyndum og fjalla um ýmsa þjóðhöfðingja í Evrópu frá mið- biki 19. aldar fram til fyrri heimsstyrjaldarinnar. Sagði Pétur Guðfinnsson, að þegar þáttum þessum lyki kæmi til greina að hefja sýningar á „Onedin“ að nýju. Af öðru er- lendu afþreyingarefni má telja „Lækni á lausum kili“, en sýn- ingum á þeim flokki fer nú senn að ljúka. Óráðið er hvað kemur í staðinn, en það mun verða gamansamur mynda- flokkur. Þá má nefna „Love American Style“, sem verður á dagskrá fram yfir áramót, en sömuleiðis er óákveðið hvað við tekur af þeim myndaflokki. Sakamálaþátturinn „Skálkarn ir“ verður sýndur þar til um miðjan október, en Péfur sagði óráðið hvaða sakamálaþáttur kæmi í staðinn. „Stundin okkar“ verður á dagskrá kl. 18 á sunnudögum, en erlendar barnamyndir verða sýndar á sama tíma á miðviku- dögum og á laugardögum* kl. 18.30—19. íslenzkir skemmtiþættir á vetur laugardagskvöldum hafa verið fastur liður í vetrardagskrá sjónvarpsins og verður svo einnig að þessu sinni. Fram að áramótum verða sýndir 4—6 þættir með efni úr gömlum revíum. Umsjónarmenn verða Guðrún Ásmundsdóttir og Tage Ammendrup. Pétur sagði, að hvað við tæki þegar þessir þættir hefðu runnið sitt skeið á enda, væri enn óráðið, en til athugunar væri að gera getraunaþætti með gamansömu ívafi. Ólafur Ragnarsson fréttamaður hefur að undan- förnu unnið að gerð þátta með efni frá Islendingabyggðum i Kanada. Hann hefur viðað að sér efni i eina fimm þætti og er sá fyrsti á dagskrá 19. október n.k. Heim.ldamyndir skipa sinn sess i vetrardagskránni. Um miðjan október hcfjast sýningar á myndaflokki, sem Framhald á bls. 35 Svipmyndir úr leikriti Halldórs Laxness „Veiðitúr 1 óbyggðum", sem sýnt verður 1 október.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.