Morgunblaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1975 Jh tii/ Innflytjendur Framleiðendur Vörukynningareldhús okkar stendur ykkur opið til hverskonar kynningará matvörum. Hafið samband við verzlunarstjórann um tíma og tilhögun. 4) Austurveri, sími 82750. innritunardagur Sími 10004 og 11109 (kl. 1 —7 e.h.) Málaskólinn Mímir, Brautarholti 4 Dansskóli Hermanns Ragnars KANNTU AÐ DANSA? LÆRDU AÐ DANSA Holl og góð íþrótt í góðum félagsskap símanúmer + 36141 o ÖJ 3 Co Gn Os rD 3 aj 3 O 'O GO LO c Q Hringið og við finnum rétta flokkinn fyrir ykkur. Danslnn lenglr líflð Dansskóli Hermanns Ragnars A fmœliskveðja: Jensína Halldórsdóttir skólastjóri, Laugarvatni Það var eins og huggun guðlegr- ar hugulsemi, þegar ég eignaðist að vinum þær Jensinu forstöðu- konu og Gerði Jóhannsdóttur yfir- kennara — einmitt þegar ég var búin að missa elstu systur mína. — Hún var mjög sérstæð I um- hyggju og úrræðum. Ég hef oft notið sömu ástríðan hjá Jensínu og Gerði, sem eru líkt og systir mín var miklir úrræðamenn. Ég man allrafyrst með vissu eftir frk. Jensínu við skólasetningu að Laugarvatni. Hún vakti athygli mína, þessi unga, granna for- stöðukona, bæði af því að mér fannst hún falleg, þó einkum alv- eg sérstakur aðlaðandi persónu- leiki. Brúnt, þykkt hár og fór vel, fölur bjartur andlitslitur og blá augu, mjög sjáandi. I svip hennar var skyggni á mannlíf og um- hverfi þess. í dráttum persónuleikans býr dráttlistargáfan. Listfengi hefur mótað þá. Ég tel það mikinn skaða, að hún átti þess ekki kost að menntast í sinni eigin list fyrst og fremst og mála myndir eftir þeirri sýn, sem slíkum mönnum er gefin. Hins vegar var það mikið lán fyrir Húsmæðraskóla Suður- lands og nemendur hans, þegar hún gerðist þar forstöðukona og Gerður Jóhannsdóttir aðalkenn- ari. Það er eitt dæmi um það, hvað Bjarni Bjarnason skólastjóri var heppinn og framsýnn í kenn- aravali, þegar hann réð þær að Húsmæðraskóla Suðurlands. Þessar tvær samhentu konur mót- uðu anda skólans og vinsældir. Húsmæðraskóli Suðurlands er nú annar tveggja af húsmæðra- skólum landsins, sem enn halda fullum nemendafjölda , þrátt fyr- ir ómaklegan áróður á móti hús- mæðraskólum, þessum rótgrónu og ágætu verknámsskólum, þar sem verkhyggindi og verkleg þekking fær notið sín á borð við bókþekkingu. Það getur engum dulist, sem hugsa um þessi mál, að því veldur ekki tilviljun, að Húsmæðraskóli Suðurlands heldur velli og það svo, að ’hann er yfirfullur og mörgum árlega vísað frá, sem vildu komast þangað. Hér fer allt saman, góð skóla- sókn og heppileg, sérstök alúð er lögð við starfið og einnig við á- framhaldandi kynni við hvern ár- gang, sem kvaddur er. Strax við byrjun starfsins áttu við orð Stephans G. Stephansson- ar: Hagsmun á sjálfhlífnis verð- lags-skrá valdi ekki — viljinn hans ungi — og kostnaðinn taldi ekki. Forstöðukonan hefur eytt mörgum óborguðum tíma fyrir skóla sinn. — Allt reiknishald skólans og heimavistir hefur for- stöðukonan sjálf með höndum. Jafnvel reikníngshald byggingar nýja skólahússins hafði hún líka í hjáverkum með sínu úmsvifa- mikla starfi. Þar fyrir utan hafa þéssar góðu vinkonur og samkennarar eytt mörgum stundum utan kennslu til ýmislegrar upplífgunar, sem gerir skólalíf í heimavist glatt og skemmtilegt. Má þar til nefna árs- hátíð, kvöldvökur og afmælis- veislur nemenda. Það er enginn vafi, að þjóðlíf og hugsunarháttur hefur þannig breyst, að húsmæðrakennarastarf er erfiðara en áður var. Og jafn- vel þótt menntun, góðar gáfur og velvild sé fyrir hendi er það ekki einhlítt. Til þess að þeir góðu eiginleikar fái notið sín í skóla- starfi þarf enn eina gáfu, kenn- aragáfuna, að vera kennari af Guðs náð. Það er fyrsta skilyrðið. Þá fyrst fær þekking og góðvilji borið fullan árangur. Og þegar þar við bætist sérstök alúð og ósérplægni, óvenjuleg fórnfýsi og umhyggja fyrir nemendum, — og enn að tveir slíkir kennar sam. hentir fylgjast að við einn skóla, þá er það sem hinn sérstæði ár- angur næst. Jensina forstöðukona hefur verið heppin i sínu kennaravali. Hún hefur alltaf haft afbragðs handavinnukennara, sem sést hefur á handavinnusýningu skól- ans á hverju vori. Og eins eftir að skólinn stækkaði og nýir kennar- ar bættust við, var hún heppin með þá. Og hér held ég líka að enn komi til skyggni hennar á persónur og mannlíf, en einnig hennar hlédræga persónugerð og innileiki. Hún hefur alltaf kunn- að það sem skólastjóri að láta samken'nara njóta sín. Fröken Jensína hefur þá festu og einbeitni, sem er hulin í mjúk- látri hógværð og hljóðlegri upp- örvun. Velvild hennar og hlýja gagnvart börnum og unglingum er jafn óbrigðul eins og skilning- ur hennar er viss. Árlega hefur þessi listakona kennt nemendum sinum allskon- ar fagrar skreytingar til jóla- halds. Hún hefur boðið börnum Laugardalsins til jólaveislu á hverju ári rétt áður en jólaleyfi hefst. Þessi mikla hátíð bárnanna hefur verið fagurlega undirbúin með mikilli viðhöfn. Ekki er það lítill lærdómur fyrir húsmæður að kunna þannig að gleðja börn með ýmsu móti, og gera margt sjálfar til prýði, sem aðrir kaupa eða verða án. Jólasveinar margir hafa verið sendir með boðskort f barnaskólann og heimili. Mikill er sá fögnuður og öll sú tilhlökkun, sem þá ríkir þar, Ég vil nú nota þetta tækifæri til þess að færa forstöðukonu húsmæðraskólans hjartanlegar þakkir fyrir alla þá gleði, sem hún með rausn sinni og alúð veitti mínum skólabörnum að Laugarvatni vetur eftir vetur með fagurskreyttu jólatré og sálmasöng, skemmtiatriðum og mikilli veislu, sem þeim var hald- in um leið, og allt í þeim glæsilega ástúðleika gjört, sem ég fæ ekki jafnað við neitt annað en jólatréð fagra, skemmtun og veislu, sem Helga Þorgilsdóttir, kennarinn minn góði, hélt fyrir börnin á Skeiðum vetur eftir vetur. Báðar eru þær úr Dalasýslu og komnar af Auði djúpúðgu. Konungleg reisn, hvað sem auði Hður, kom fram í boði þeirra og allri athöfn. Ég hef I nánum kynnum af Hús- mæðraskóla Suðurlands lært að meta húsmæðraskólanám meira en ég áður gerði. Ég veit, aÓ I öllu góðu, bæði trú og siðum, hefur húsmæðraskólinn eflt sína nem- endur. — Ég er viss um, að mikið af þeirri hollu og góðu, gömlu matargerð íslenskri væru nú flestum týnd, ef ekki væru hús- mæðraskólar. Efalaust má einnig þakka það beinni kennslu þeirra og óbeinum áhrifum, hve margar ungar konur og ungar stúlkur eru miklir verkmenn I margvíslegri handavinnu. Ég sá i gamla húsmæðraskólan- um á Laugarvatni, hvernig nem- endur breyttust frá hausti til jóla. Þær fengu einhvern fágaðan menntunar skólasvip með öryggi og reisn. — Það var hægara að átta sig á þessu þá, því að nem- endur voru helmingi færri en þeir eru nú. Og ég þekkti þær allar með nafni. Það voru órökstudd orð I garð húsmæðraskólanna, sem komu fram I grein, sem birtist I Morgun- blaðinu I vetur, að þeir væru gam- aldags. Nema þá að alúðarverk góðrar húsmóður, fegrun heimil- is, handlð og hollur matur sé ,,gamaldags“. Reyndar er nú kannski ekki alvegfjarri því (!). Ég óska forstöðukonunni til hamingju með nýja skólahúsið. Og þó einkum, að nemendur skuli einnig fylla það á þessum tímum, svo að enn verður ár hvert að vísa mörgum frá, sem koma vildu, og tekur skólinn þó yfir 60 nemend- ur. Kennarastarf er þess eðlis, að aldrei fær kennari að vita með vissu, hver árangur æviiðju hans varð. Hver er og verður útkoman af alúðarstarfi Jensínu skóla- stjóra? Óþekkt stærð, sem vér finnum aldrei. Hitt er vist, að göfgandi áhrifa hennar gæta nú þegar á fjölda mörgum heimilum þessa lands. Foreldrar Jensínu bjuggu að Magnússkógum. Hún var hvorki elst né- ingst i stórum barna- hópi. Trúað og skynsamt bænda- fólk miðaði ekki móttökur slns eigin barns við óskabörn. Mér er ógleymanlegt að heyra ylinn i rödd Jensínu og sjá ljómann I svip hennar, þegar hún sagði: Við mamma áttum vel saman. Við unnum svo vel saman. Hún hefur lika getað sagt margt fallegt I setningar- og kveðjuræðum um heimilið og slgilt hlutverk þess. Til er mynd eftir frk. Jensínu af gamla skólanum og garðsígn- um þangað heim. Eftir því sem ég hef horft lengur á þá mynd þykir mér vænna um hana. Þannig hygg ég að nemendum Húsmæðraskóla Suðurlands muni verða. Eftir því sem þeir horfa lengur til minninganna þaðan, bæði til gamla og nýja skóláns, munu þær unna myndinni meira. Áhrif forstöðukonunnar ná dýpra. Ég leyfi mér að kveðja afmælis- barnið með llnum, sem ég sendi Guðmundi myndskera frá Mosdal fyrir löngu: Sú ósk var þér af alhug kær að efla það, sem fegust grær, og alltaf leist þú öðrum nær því ástarþeli með. Svo blessi Guð allt þitt ævistarf. Hjartanleg kveðja frá húsi mínu. Rósa B. Blöndals. Ný gerð stál- vinnupalla ÞAÐ VAKTI athygli þeirra sem leið áttu um Lækjargötu á sunnudaginn, að verið var að setja upp vinnupalla við íðnað- arbankahúsið. Voru pallarnir sem eru stálpallar af nýrri gerð komnir I fulla hæð á sunnu- dagskvöld. Hafði uppsetning þeirra tekið þrjá menn hálfan annan dag. Það er nýlegt fyrir- tæki, Verkpallar hf. sem keypt hefur palla þess til landsins og leigir þá út. Bjarni Böðvarsson sem stjórnaði uppsetningunni sagði að verulegur sparnaður væri að notkun slikra vinnu- palla, bæði hvað varðaði vinnu og efni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.