Morgunblaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.09.1975, Blaðsíða 36
INNIHURÐIR Cæöi í fyrirrúmi SIGURDUR ELÍASSON HF. ^avo^ AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI, SÍMI 41380 auí;lVsin(;asíminn er: 22480 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1975 40 kr. fyrir kg af stærri síldinni — 26 kr. fyrir þá minni VERÐLAGSRAÐ sjávarútvegsins sat enn á fundi um miðnætti þegar Morgunblaðið fór f prentun og voru nefndarmenn ekki fylli- lega búnir að ganga frá verði á reknetasíld til söltunar en nefnd- in kom saman til fundar kl. 21. Morgunblaðið hafði hins vegar frétt, að verð fyrir sfld 32 sm og lengri, yrði 40 krónur pr. kíló og fyrir sfld styttri en 32 sm 26 krón- ur pr. kfló. Er þetta nærri þcirri kröfu, sem sjómenn og útgerðar- menn höfðu farið fram á, en þeir vildu fá kr. 40.50 fyrir hvert kg af sfld stærri en 32 sm og 30.50 kr. fyrir sfld undir 32 sm. Morgunblaðið ræddi í gær- Selur úr Karabíska- hafinu fannst á Stokksnesfjöru FRANSKUR dýrafræðingur að nafni Roger De La Grandi- ére, sem kominn er til Horna- fjarðar til háhyrningsveiða, var í gær fenginn til að Ifta á hinn furðulega sel, sem fannst á Stokksnesfjörum á laugar- daginn. Var það úrskurður hans, að þetta væri selur af tegund „munkasela" (monk seal) og að öllum Ifkindum kominn með golfstraumnum frá Karabíska hafinu, en Frakkinn sagðist ekki vita bet- ur en þessi selategund væri mjög sjaldgæf ef ekki nær al- dauða. Morgunblaðið hafði í gær samband við Finn Guðmunds- son hjá dýrafræðideild Náttúrugripasafnsins. Finnur sagði, að ef greining Frakkans á selnum væri rétt væri hér á ferðinni hin merkasta sela- tegund. Sagðist Finnur hafa gert ráðstafanir til þess að selurinn yrði djúpfrystur og síðan sendur til Reykjavíkur með fyrstu ferð til skoðunar. kvöldi við tvo skipstjóra á Horna- firði. Annar þeirra sagði, að þeir gerðu sig ánægða með þetta verð, úr því sem komið væri. Þeir hefðu heldur ekki búizt við því að ná fram öllum sínum kröfum. Þá yrði útkoman á þessum veiðum sennilega ekkert verri en á fiski- trolli þ.e.a.s. éf 30 króna meðal- verð næðist fyrir hvert kg af síld, en það er svipað og hvert kg af þorski gefur af sér. Hinn skipstjórinn sagði, að þeir væru ekkert of ánægðir með þetta verð, hitt væri svo annað mál, hvað menn yrðu að sætta sig við, þannig að veiðarnar stöðvuðust ekki alveg. Um leið og fréttist að síldar- verðið væri í nánd lögðu fimm reknetabátar úr höfn á Horna- firði. Ætluðu þeir að reyna að leggja netin í nótt, þrátt fyrir leiðindaveður. Engin síldarsöltun hefur verið á Hornarfirði í heila viku, en nú fara stúlkurnar sennilega að hrópa á ný „tóma tunnu, vantar salt, síld“. Búið er að salta rösklega 3000 tunnur á Höfn. Ljósm. Mbl.: Árni Johnsen. Tilmæli ASÍ til aðildarfélaganna: Samningum verði sagt upp fyrir 1. desember íun óctonrl r> <r bnrfnr ofnohíioc. dA han COUÍ lir»n UÍlHahHÍ lé iaríl Kjaramálaráðstefna ASÍ verður haldin eigi síðar en í nóvember Fékk dufl í vörpuna BREZKI togarinn Ross Resoluti- on fékk síðdegis í gær tundurdufl i vörpuna þegar hann var á tog- veiðum yzt á Kolkugrunni útaf Húnaflóa. Skipverjar innbyrtu duflið en þeim urðu síðan á þau mistök að láta það í hafið aftur. öðrum skipum til viðvörunar skal tekið fram, að staðurinn er á tog- slóð 66 gráður, 34,6 mínútur norður og 20 gráður, 44,8 mínútur vestur. MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Islands samþykkti á fundi sfnum f gær að beina þvf til allra sam- bandsfélaga sinna að þau segðu upp samningum fyrir 1. desem- ber næstkomandi, svo að þeir féllu úr gildi um áramót. Jafn- framt ákvað miðstjórnin að boðað skyldi til kjaramálaráðstefnu aðildarsamtakanna eigi sfðar en f nóvembermánuði og yrði þar gengið frá samræmdri kröfugerð samtakanna. I ályktun ASl segir m.a., að það sé álit miðstjórnar- innar, að verkalýðshreyfingin geti þvf aðeins vænzt árangurs f kkjarabaráttunni, sem framundan er, að hún „mæti atvinnurekend- um og rfkisvaldi sem órjúfandi heild með sameiginlega stefnu og markmið“. Björn Jónsson, forseti ASÍ, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að hann vildi ekki að svo stöddu bæta neinu við þessa ályktun. ASÍ tæki ákvörðun um næstu skref á næstunni. Björn sagði, að síðastliðinn þriðjudag hefðu for- ystumenn ASl setið fund með fulltrúum ríkisstjórnarinnar, þremur ráðherrum og forstöðu- manni Þjóðhagsstofnunar, þar sem þeim var gerð grein fyrir helztu þjóðhagsstærðum á þessu ári og horfum eftir því sem unnt er að gera sér grein fyrir nú. Forseti ASÍ sagði, að ekki hefði verið skipzt á skoðunum á þessum fundi, heldur hefðu þeir, fulltrúar ASÍ, verið að fræðast um ástand og horfur efnahags- mála. Aðspurður um það, hvort horfur væru uggvænlegar, svaraði Björn: „Það er nú flest heldur lakara en gert var ráð fyrir í spánni frá því í maí í vor, en yfirleitt er ekki um stórvægi- lega hluti að ræða. Ástandið er þó heldur lakara.“ Samþykkt miðstjórnar Alþýðu- sambands Islands, sem hún sendi frá sér í gær, fékk samþykki allra stjórnarmanna. Samþykktin er svohljóðandi: „Alþýðusamband íslands beinir því til allra sambandsfélaga sinna að þau segi upp gildandi kjara- samningum fyrir 1. desember næstkomandi, þannig að þeir renni úr giídi á áramótum. Með tilliti til ógnvekjandi verð- bólgu, sem nú hefur brennt allan eða nær allan ávinning, sem náðist I kjarasamningunum fyrr á árinu og enn heldur áfram án þess að nokkurt viðhlítandi við- nám sé veitt af stjórnvöldum, lít- ur miðstjórnin á allsherjarupp- sögn kjarasamninga sem fyrsta skref til þess að mynduð verði öflug samstaða allrar verkalýðs- Framhald á bls. 35 BSRB boðar að krefjast til 53 funda til verkfallsréttar Leynileg könnun gerð á afstöðu félagsmanna til verkfallsréttar og hve langt á að ganga BANDALAG starfsmanna ríkis og bæja undirbýr nú mikil funda- höld f næsta mánuði tíl stuðnings Síld finnst frá Ingólfshöfða allt austur í Berufjarðarál Mikið um kolmunna við SA-land — VIÐ höfum orðið varir við síld á öllu svæðinu frá Ingólfshöfða austur I Berufjarðarál. Að vísu er sfldin dreifð, en síldarmagnið virðist fyllilega koma heirn og saman við þær tölur, sem settar hafa verið fram af Ilafrannsókna- stofnuninni, sagði Jakob Jakohs- son fiskifræðingur og leiðangurs- stjóri á Bjarna Sæmundssyni þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann í gær. Jakob sagði, að þeir á Bjarna hefðu verið í Lónsbugtinni í fyrri- nótt. Þar hefðu þrír reknetabátar verið að veiðum, Gunnar, Snæ- fugl og Sæberg. Þeir hefðu aðeins fengið nokkrar tunnur, en síldin hefði staðið of djúpt fyrir reknet- in. Þá sagði Jakob, að þeir hefðu orðið v'arir við mikinn uppvax- andi kolmunna og virtist hann vera farinh að sækja í ríkara mæli að Islandsströndum en verið hef- ur undanfarin ár, a.m.k. ungviðið. Mikið af þeim lóðningum, sem menn hefðu talið vera síld núnr upp á síðkastið væri ugglaust kol- munni. Sagði Jakob, að þeir hefðu tekið sýni af kolmunnanum og síldinni í flotvörpu. kröfu sinni um verkfalisrétt og afnám Kjaradóms strax á þessu ári. Eru fyrirhugaðir alls 53 fundir víðs vegar um landið dagana 3.—11. október. Að þeim loknum fer fram leynileg skoðanakönnun meðal starfs- manna BSRB, og sagði Kristján Thorlaeius formaður samtakanna f samtali við Mbl. f gær, að þar yrði könnuð afstaða félagsmanna til verkfallsréttar og hve hratt og hve langt ætti að ganga f þeim málum. Kristján Thorlacius sagði við Mbl. að formannaráðstefna BSRB í júlí í sumar hefði sett baráttuna fyrir verkfallsrétti opinberra starfsmanna á oddinn og hefði sérstök verkfallsréttarnefnd unn- ið að þessum málum og m.a. skipulagt fundina sem fram- undan eru. Þeir verða sem fyrr segir 53 talsins og þar af verða fundir á 23 stöðum úti á lands- byggðinni. Sagði Kristján að þetta væru umfangsmestu fundahöld f sögu BSRB og vafalaust þótt víðar væri leitað. BSRB hefur fyrir nokkru skilað kröfum sfnum til rikisins vegna væntanlegra samningaviðræðna og þar er gð finna kröfu um verk- fallsrétt og afnám Kjaradóms þegar á þessu ári. Morgunblaðið spurði Kristján að lokum til hvaða ráða BSRB gripi ef kröf- urnar næðu ekki fram að ganga. Svaraði hann því til að það væri algerlega óákveðið, en hugur félagsmanna BSRB til þessara mála yrði einmitt kannaður í leynilegum skoðanakönnunum sem verða að Ioknum öllum fundunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.