Morgunblaðið - 19.09.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1975
17
MYNDIN ER AF BORIS SPASSKY fyrrum heimsmeistara í skák og unnustu
hans, Marinu Stcherbatcheff, einkaritara í franska sendiráðinu í Moskvu. Enn er
allt á huldu um hvort Spassky kvænist Marinu, þvf sovézk stjórnvöld hafa skipað
henni að koma sér úr landi fyrir giftingardaginn, sem var ákveðinn hafði verið 11.
nóvember samkv. leyfi frá yfirvöldum. Þó er nú talið að betur horfi fyrir
hjónaleysin eftir mikil blaðaskrif á Vesturlöndum og ásakanir um að Sovétstjórn-
in sé þegar farin að virða Helsinkisáttmálann að vettugi.
Þyrmir Franco lífi
fimm dauðadæmdra?
Madrid, 18. september. AP
Hussein hafnar
flaugum Fords
Amman, 18. september. AP.
SPÁNSKUR herréttur dæmdi f
dag tvær ungar barnshafandi kon-
ur og þrjá unga karlmenn til
dauða fyrir að myrða lögreglufor-
ingja. Þetta eru fyrstu dómarnir
samkvæmt nýjum lögum um
baráttu gegn hryðjuverkum þar
sem morð á lögreglumönnum er
dauðasök.
Dómunum verður ekki áfrýjað
til æðri herréttar samkvæmt lög-
unum, en Francisco Franco
þjóðarleiðtogi getur þó vægt hin-
um dæmdu. Franco og stjórn
hans fjalla um dómana á fundi á
morgun, en sfðan verður að fram-
fylgja þeim innan tólf klukku-
stunda, nema Franco mildi þá.
Sjötti sakborningurinn var
dæmdur f 20 ára fangelsi. Réttar-
höldin voru hávaðasöm, og réttur-
inn skipaði herforingja til að taka
við störfum fimm verjenda, þar
sem þeir höfðu hávaða i frammi.
Þau fimm sem voru dæmd til
dauða játuðu að hafa verið
félagar í bönnuðum samtökum
„Byltingarfylkingu and-
fastistískra ættjarðarvina
(FRAP) sem stjórnin kallar
„baráttuarm" kommúnisfaflokks
marxista og lenfnista. Sjötti sak-
borningurinn kvaðst hafa samúð
með samtökunum en ekki vera
félagi i þeim.
Liklegt er talið að Franco breyti
dauðadómum kvennanna í ævi-
langt fangelsi, bæði vegna þess að
þær eru barnshafandi og einnig
vegna þess að konur hafa aldrei
verið teknar af lífi á Spáni síðan
Franco kom til valda fyrir 36 ár-
um.
Fimm aðrir dauðadæmdir
fangar sitja í spönskum fangels-
um: tveir Baskar, sem voru
dæmdir f síðasta mánuði, og þrír
félagar úr FRAP, sem voru
dæmdir fyrr í þessum mánuði.
Hins vegar var þeim leyft að
skjóta máli sínu til yfirherréttar,
þar sem nýju lögin náðu ekki til
þeirra.
í Barcelona er talið að dauða-
dóms verði krafizt í réttarhöldum
þar á morgun í máli 21 árs Baska,
Juan Paredes Manot. Hann er
ákærður fyrir að hafa myrt lög-
Framhald á bls. 35
STJÓRN Jórdanfu tilkynnti f dag,
að hún ætlaði ekki að kaupa loft-
varnaeldflaugar af Hawk-gerð af
Bandarfkjamönnum vegna tak-
markana, sem Ford forseti hefur
sett á notkun þeirra. „Jórdanfu-
stjórn telur þéssar takmarkanir
einsdæmi og móðgun við þjóðar-
heiður Jórdaníu," segir f yfirlýs-
ingu frá skrifstofu Zaid Rifai for-
sætisráðherra.
Hussein Jórdaníukonungur
hefur falazt éftir Hawk-eldflagum
að verðmæti 270 milljónir dollara.
Hann hefur þegar tilkynnt, að fái
hann þær ekki muni hann kaupa
loftvarnareldflaugar af Rússum.
Hann hefur sagt, að Jórdaníu-
stjórn sé þess albúin að fá sóvézka
ráðunauta til að þjálfa Bedúína-
her landsins „í takmarkaðan
tíma“, éf hann káupir rússneskar
Sam-flaugar.
I yfirlýsingu Rifais er einkum
vfsað á bug loforði, sem Ford for-
seti hefur gefið bandaríska þing-
inu þess efnis, að Jórdaníumenn
muni aðeins nota eldflaugarnar á
tilteknum stöðum og í varnar-
skyni eingöngu og að Bandaríkja-
menn muni leggja bann við þvf að
eldflaugarnar heyri undir stjórn
herliðs tveggja þjóða eða fleiri
þjóða. Rifai lagði á það áherzlu í
yfirlýsingunni að öll vopn, sem
væru seld til Jórdaníu, „ættu að
vera jórdönsk þegar þau væru
komin til konungsríkisins".
Rifai sagði að Jórdaníumenn
ættu að fá flaugarnar afhentar
jafnskjótt og Jórdaníumenn
hefðu fengið þjálfun í meðferð
þeirra. Hann gagnrýndi þá fyrir-
ætlun Förds að afhenda þrjár
samstæður á þremur síðustu
mánuðum ársins 1976, þrjár í við-
bót á fyrstu þremur mánuðum
ársins 1978 og átta samstæður frá
þeim tíma og til 1979.
Framhald á bls. 35
Geller
sigraði
Middlesborough, 18. september. Reuter.
EFIIW Geller frá Sovétríkjunum
var sigurvegari í Alexander-
skákmótinu í Middlesborough.
Hann hlaut níu og hálfan vinning
og vann fimm skákir en gerði nfu
sinnum jafntefli.
Robert Húbner frá Vestur-
Þýzkalandi fórnaði möguleika
sfnum aó að verða sigurvegari á
mótinu af því hann neitaði að
tefla við Tony Miles frá Bret-
landi. Húbner sagði að hann hefði
ekki fengið tilkynningu urn að
teflt yrði um morguninn en ekki
sfðdegis fyrr en á síðustu stundu.
Smyslov varð annar á mótinu
með 8'A vinning en Húbner lenti í
þriðja til fimmta sæti ásamt Bron-
stein frá Sovétríkjunum og Hort
frá Tékkóslóvakiu. Sax fékk 8
vinninga og Timman 7H vinning.
Friðrik Ólafsson varð í áttunda
til níunda sæti ásamt Kavlek frá
Bandarfkjunum með 7 vinninga.
Gheorghiu og Lombardy fengu 6
vinninga.
ALVARLEGT KOSNINGA-
ÁFALL FYRIR FORD
Gert ráð fyrir 10%
olíuverðshœkkun
OPEC-ríkin fara sér hægt
Vínarborg 18. scplcmbcr Reuter.
NÚ ER talið nær fullvfst, að
olfuframleiðslurfkin f OPEC
samþykki verðhækkun á hrá-
olíu frá 1. október nk. eftir
óbreytt verð frá sl. áramótum.
Olíumálaráðherrar rfkjanna 13
koma saman til fundar f Vfn 24.
þessa mánaðar til að taka
endanlega ákvörðun, en um 40
sérfræðingar frá þessum ríkj-
um hafa undanfarna daga setið
á fundum til að undirbúa málið
fyrir ráðherrana.
Sérfræðingar telja að ekki
verði um mjög verulega hækk-
un að ræða og hallast flestir að
því, að hún verði um 10%, sem
þýðir að olíufat hækkar úr
10,46 dollurum i 11.50 dollara
og þótt sú hækkun muni hafa
erfiðleika í för með sér fyrir
iðnaðarþjóðirnar verður hún
ekki óviðráðanleg.
Leiðtogar OPEC-landanna
halda því nú fram, að olíuverðs-
hækkun sé nú réttlætanleg
vegna þess, að verðbólga á
Vesturlöndum hafi valdið verð-
hækkunum á þeim vörum, sem
olíurikin kaupa frá Vesturlönd-
um, eins og t.d. stáli og hveiti.
Iranskeisari heldur því fram,
að oliuframleiðslurikin hafi
tapað um 30—35% af olíutekj-
um vegna lækkandi gengis
BandaríkjadoIIars og verðbólgu
í heiminum. Heimildir herma,
að Líbýa, Alsír og Irak krefjist
30% hækkunar, en að meiri-
hlutinn innan samtakanna sé
andvígur vegna þess að slfk
hækkun sé óraunsæ og gæti
valdið erfiðleikum.
Olíuverðshækkunin sem orð-
ið hefur frá 1973 hefur haft í
för með sér, að cftirspurn eftir
olíu hefur minnkað til muna og
er talið að dagsframleiðslan hjá
OPEC-ríkjunum sé nú um 7
milljón fötum minni en var
1973. Saudi-Arabía minnkaði
Framhald á bls. 35
Washington 18. september AP.
DEMÖKRATINN John Durkin
sigraði í aukakosningum um
annað öldungadeildarsætið fyrir
New Hampshire í fyrradag og er
sigur hans talinn mikið áfall fyrir
Ford forseta, sem tók persónu-
lega þátt f ksoningabaráttu fram-
bjóðanda repúblíkana, Luis
Wyman. Ronald Reagan fyrrum
rfkisstjóri Kaliforníu kom einnig
fram fyrir hönd Wymans. Er
þetta í fyrsta skipti á 120 árum að
demókratar skipa bæði öldunga-
deildarsætin fyrir New Hamp-
shire. Durkin fékk 54% atkvæða,
en Wyman 43. Frambjóðandi
óháðra fékk 3%.
WILSON FRA
BÚKAREST
Búkarest, 18. september. AP.
ÞRIGGJA daga heimsókn Harolds
Wilsons forsætisráðherra Bret-
lands til Rúmeniu lauk i dag með
þvi að Wilson og Ceausescu for-
seti Rúmeníu undirrituðu
sameiginlega yfirlýsingu um
gagnkvæm loforð um að stórauka
samstarf þjóðanna á sem flestum
sviðum. Þá undirrituðu leið-
togarnir einnig samning um sam-
starf á sviði iðnaðar- og efnahags-
mála, skattasamning og samstarf
um friðsamlega nýtingu
kjarnorku. í tilkynningu
rúmensku fréttastofunnar segir
að viðræðurnar hafi einkennst af
vinsemd og gagnkvæmum
skilningi leiðtoganna.
F I A T
r Sýningarsalurl
Höium oonaö sýningarsa
að sÉ®öia35
— Sýnum nýjar og notaðar Fiat-bifreiðar
Tökum allar notaðar bifreiðar í umboðssölu
FIAT EINKAUMBOÐ A ÍSLANDI,
Davíð Sigurðsson h.f., SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888.