Morgunblaðið - 19.09.1975, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1975
Hanðknattleiksvertíðin að hefjast
FLEIRI kcppendur en nokkru
sinni fyrr verða í Reykjavíkur-
mótinu 1 handknattleik, sem
hefsí n.k. laugardag. Verða
keppendur samtals um 1300, og
munar þar mestu um að nú bætist
við nýr keppnisflokkur, 5.
flokkur karla, og eins að hið unga
Breiðholtsfélag Leiknir sendir nú
keppnislið í alla flokka i mótinu.
Eins og jafnan áður mun aðal-
athyglin beinast að keppni í
meistaraflokki karla, en í honum
taka þátt 9 lið. Keppa þau í
tveimur riðlum. í A-riðli leika 1.
deildar félögin: Fram og Ármann,
og 2. deildar félögin: ÍR, KR
og Leiknir. 1 B-riðli leika svo 1.
deildar félögin Valur, Víkingur
og Þróttur og 2. deildar lið Fylkis.
Liðunum var raðað í riðlana eftir
stöðu sinni í mótinu í fyrra,
þannig að lið sem voru þá nr. 1,3,5
og 7 verða í A-riðli, en í B-
riðlinum leika lið sem urðu nr. 2,
4, 6 og 8 í mótinu í fyrra. Leiknir
sendir nú í fyrsta sinn lið í
meistaraflokk karla og var dregið
um það í hvorum riðlinum liðið
léki.
Keppni í öðrum flokkum hefst
svo 5. október og verður leikið í
tveimur húsum, hinu nýja íþrótta-
húsi við Hagaskólann og i Laugar-
dalshöllinni. Siðasti Ieikdagur
mótsins verður 13. desember.
Sem fyrr greinir verður fyrsti
leikdagur mótsins n.k. laugar-
dagur. Þá leika i meistaraflokki
Kristinn
með Fram
NÝLIÐARNIR I 1 deild.Fram.hafa
nú hafið æfingar af fullum krafti
staðráðnir I þvl að berjast af alefli
fyrir veru sinni I deildinni.
Þegar við ræddum við Jónas
Ketilsson form. Körfuknattleiks-
deildar Fram á dögunum tjáði
hann okkur. að Kristinn Jörunds-
son yrði áfram þjálfari liðsins. En
með Kristni verður maður, sem
hefur mikla reynslu að baki sem
þjálfari, enginn annar en Helgi
Jóhannsson, sem þjálfar nú á ný
eftir nokkurra ára hlé. Helgi var
fengi þjálfari ÍR hér fyrr á árum
og þjálfaði auk þess landsliðið
lengur en nokkur annar. Það er
þvl óhætt að segja að Framarar
verða með góða menn við stjórn-
ina hjá sér I vetur.
gk
karla fyrst Fram og KR og síðan
Þróttur og Fylkir, hefst fyrri
leikurinn kl. 15.30 og seinni
leikurinn kl. 16.45. Leikdagar í
mótinu verða síðan sem hér segir:
Sunnudagur 21. september:
Kl. 14.00: ÍR — Ármann
Kl. 15.15: Víkingur — Fylkir
Sunnudagur 21. september:
Kl. 19.00: Fram — Leiknir
KI. 20.15: Valur — Þróttur
Þriðjudagur 23. september:
Kl. 20.15: KR — Leiknir
Kl. 21.30: Valur — Fylkir
Miðvikudagur 24. scptember:
Kl. 20.15: Fram — Ir
Kl. 21.30: Valur — Víkingur
Sunnudagur 28. september:
Kl. 19.00: Fram — Ármann
Kl. 20.15: Víkingur — Þróttur
Miðvikudagur 1. október:
Kl. 20.15: Ármann — Leiknir
Kl. 21.30: ÍR — KR
Sunnudagur 5. október:
Kl. 19.00: IR — Leiknir
KI. 20.15: Ármann — KR
Þriðjudagur 7. október:
KI. 20.15: Leikið um 7. — 8. sætið
KI. 21.30: Leikið um 3. — 4. sætið
Miðvikudagur 8. október:
Kl. 20.15: Leikið um 5. — 6. sætið
Kl. 21.30: Leikið um 1. —2. sætið.
H S K - leikmennirnir
dreifa sér á félögin
ÞRlR leikmenn sem léku með HSK I 1. deild á s.l. keppnistlmabili hafa nú
tilkynnt félagaskipti. Sem kunnugt er féll HSK niður I 2. deild, og var þá
ákveðið innan félagsins að tefla ekki lengur fram einu liði á vegum HSK,
heldur fleiri liðum frá aðildarfélögum héraðssambandsins. Breiðablik tekur
þvl sæti HSK I 2. deild en lið Selfoss og UMF Laugdæla leika bæði I 3. deild.
Þeir leikmenn sem hafa tilkynnt félagaskipti eru: Stefán Hallgrlmsson til
jS, en með þvl liði lék hann áður fyrr, Gunnar Jóakimsson miðherjinn, fer til
KR, og Þröstur Guðmundsson, sem fer til Vals.
Som vl sá det mod skotterne fornyllgt, kan
^ vores bedste flandshold give hvem som helst
' kamp. Især nár det bliver sammenspillet.
Men vi har for ofte máttet undvære de bed-
ste. Hvordan man fár dem med, kan vi lære
af Sverige — og navnlig af Island.
** k'nad Lundberg
triunrif til I re***-'-
Nýr tónn í skrifum danskra blaöa um íslenzka knattspymu
„VIÐ getum vfst eignast bctra
landslið. Svfþjóð og tsland hafa
sýnt okkur hvernig við eigum að
fara að því.“
Þannig hljóðar fyrirsögn í
danska dagblaðinu „Aktuelt" s.l.
laugardag, og er í grein þessari
mikið fjallað um íslenzka knatt-
spyrnu. Segir þar m.a.:
Ekkert knattspyrnulandslið í
Evrópu hefur komið eins á óvart á
siðasta ári og hið íslenska. Við
veittum því athygli of seint
hversu sterkt íslenzka landsliðið
er. Við mættum því í Álaborg,
þegar það var u.þ.b. að ná hinum
frábæra árangri sínum. Við
vorum heppnir að vinna nauman
sigur, og þá héldum við að við
hefðum leikið illa. En nokkrum
dögum siðar gerði hið íslenzka
landslið jafntefli við A-Þýzkaland
á útivelli.
Síðan hefur íslenzka landsliðið
unnið hvert afrekið öðru betra, og
er þar sízt of sterkt til orða tekið.
Það virðist vera orðin regla hjá
íslenzka Iandsliðinu að tapa að-
eins með einu marki eða gera
jafntefli í landsleikjum sínum og
hafa þeir þó keppt við beztu
Iandslið Evrópu.
Og það sem meira er: Þarna
hefur verið um að ræða mjög þýð-
ingarmikla leiki, m.a. f Evrópu-
bikarkeppni landsliða. Slíkt er
stórkostlegt að þjóð sem er með
svipaða íbúatölu og Árósar skuli
geta látið um sig muna á móti
hinum „stóru“ Evrópuþjóðum í
knattspyrnunni.
Síðasta afrek Islendinganna var
ieikur þeirra í Moskvu fyrir
nokkrum dögum. Sá leikur var
liður í Olympíukeppninni og Is-
lendingar töpuðu aðeins með einu
marki. Það var einmitt í þessari
keppni sem Rúmenarnir
rasskelltu okkur.
Bara úrslitin í þessum leik eru
stórmerkileg. Það er að vísu
sennilegt að Sovétmenn hafi ekki
verið með sitt A-landslið í leikn-
um, þar sem Dynamo Kijev var á
Knapp fær tvö
tilboð að utan
TONY Knapp landsliðsþjálfari f
knattspyrnu skrapp í tveggja
daga Evrópuferð um sfðustu
helgi. Þegar Morgunblaðið innti
Knapp eftir erindinu vildi hann
sem minnst láta eftir sér hafa, en
kvaðst þó hafa verið að kanna
betur tvö þjálfaratilboð sem sér
hefðu borizt frá Evrópuliðum.
„Þessi tilboð fékk ég vegna
góðrar frammistöðu íslenzka
landsliðsins undir minni stjórn,"
sagði Knapp. Hann sagði að
ekkert væri ákveðið hvar hann
yrði næst þjálfari, og þegar hann
var spurður um þjálfarastörf hjá
íslenzkum liðum svaraði hann þvf
til, að hann Jiefði ekkert tilboð
fengið frá íslenzku liði ennþá.
Norðurlandamót
sama tíma að sigra Bayern
Miinchen á útivelli, 1—0. En
Sovétmenn eru alla vega mjög
sterkir. Kijev sem hefur verið
teflt fram sem A-landsliði þeirra,
er ekki svo frammúrskarandi í
Sovétríkjunum eins og liðið er í
Evrópubikarkeppni landsliða og í
bikarkeppni félagsliða.
Og víst er að Sovétmenn hafa
ekki gleymt því að þessi leikur
var liður í Olympíukeppninni.
Þeir notuðu beztu atvinnumenn
sfna, meðan Islendingar urðu að
vera án atvinnumanna sinna, sem
hafa þó mikið að segja fyrir lands-
lið þeirra.
Islendingar hafa staðið sig
miklu betur en Danir í ár. Það
hafa Sviar einnig gert, en við
erum ekkert undrandi á þvf. Það
gera þeir oftast.
En Svíar hafa haft vit á því að
hafa beztu menn sína með í áríð-
andi leikjum. Þegar við töpuðum
fyrir Skotum á heimavelli sigruðu
Svfar Irland á útivelli.
En Sviarnir eiga, eins og Islend-
ingar, mjög samstillt landslið.
Þeir hafa atvinnumenn sína með,
þeir fá leyfi hjá liðum sínum,
þegar sænska knattspyrnusam-
bandið vill nota þá. Sá fyrirvari er
í samningum þeirra, að þeir skuli
fá leyfi þegar Svíþjóð á að leika
landsleiki, og hinn sama fyrirvara
hafa Islendingar einnig sett.
Þetta ér meira en hægt er að
Framhald á bls. 35
FII stúlkurnar á Italfu. Fremrl röð frá vlnstri: Gyða (Jlfarsdðttir, Guðrún Júlfusdðttlr,
Margrðt Brandsdóttir, Anna Lfsa Sigurðardóttir, Sædis Arndal og Erna Flygenring. Aftari
röð: Guðrún II. Guðmundsdóttir, Frla Aradóttir, Guðlaug E. Kristinsdóttir, fararstjóri,
Kristjana Aradóttir, Sigrún SJgurðardóttir, Sigfrfður Sigurgeirsdóttir, Svanhvft Magnús-
dóttir, Katrfn Danivalsdóttir og Helgi Ragnarsson, þjálfari.
JAFNTEFLIHJÁ
Islandsmet í
maraþonhlaupi
Högni Óskarsson hlaupari úr
KR setti nýlega nýtt íslenzkt met
í maraþonhlaupi. Illjóp hann
vegalengdina, 42.195 km, á
3:15,17,0 klst. og bætti metið, sem
Jón Guðlaugsson, HSK, átti, um
rösklega hálfa klukkustund, en
það var 3:51,03 klst. Högni setti
met sitt f Bandarfkjunum, en þar
dvelur hann nú við framhalds-
nám f læknisfræði. Fyrirhugar
hann að taka þátt f fleiri hlaupum
á næstunni, og telur sig eiga góða
möguleika á að bæta hið nýja met
sitt.
unglinga í sundi
haldið í Reykjavík
Á sundþingi Norðurlanda sem
haldið var f Turku í Finnlandi
dagana 22.-24. ágúst s.l. var sam-
þykkt að næsta unglingameistara-
mót Norðurlanda í sundi færi
fram hérlendis dagana 9.—11.
júlí á næsta ári. Nokkur andstaða
var við að halda mótið hér á landi
þar sem hér er engin aðstaða fyrir
éina keppnisgreinina, dýfingar,
en að lokum var ákveðið að sá
hluti mótsins færi fram í Noregi
um sömu helgi og aðalhlutinn fer
•fram í Reykjavík.
FH-STÚLKUNUM
ISLANDSMEISTARAR FH í kvennaknattspyrnu eru nú í keppnis-
ferð á ítalíu og léku þær sinn fyrsta leik þar s.l. laugardag. Mættu
FH-stúlkurnar þá ACF Podenone, Iiði frá Lignano, sem varð
meistari 2. deildar á síðasta keppnistímabili. Lauk leiknum með
jafntefli, 0—0, og koma þau úrslit verulega á óvart, þar sem
kvennaknattspyrna er mjög vinsæl á Italíu og mikið stunduð. Eru
meira að segja komin þar atvinnulið.
FH-stúlkurnar voru betri í leiknum og áttu fleiri hættuleg mark-
tækifæri en ítölsku stúlkurnar. Bezt FH-stúlknanna í leiknum var
Kristjana Aradóttir.
FH-stúlkunum hefur verið tekið mjög vel á Italíu og hafa blöð
þarlendis fjallað töluvert um komu þeirra og eins hafa þær komið
fram í sjónvarpi.