Morgunblaðið - 23.10.1975, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTOBER 1975
Iþróttahöllin
kom sióleiðis
Stór hluti tréboga og
annars í íþróttahöllina sem
er verið að reisa í Eyjum,
kom sjóleiðis til Eyja fyrir
nokkrum dögum. í íþrótta-
höllinni verður bæði sund-
laug og fþróttasalur með
tilheyrandi aðbúnaði.
Lokið er við grunnbygging-
una og verður sundhöllin
tilbúin í vor og iþrótta-
salurinn undir næsta
haust. Danskir og vest-
manneyskir vinna nú við
framkvæmdina af fullum
krafti.
Verið að skipa upp í Eyjum trébogum og öðru efni í
íþrðttahöllina. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir.
Konur fá Súlnasalinn
á kvennafrídaginn
Sportbátar f Reykjavlkurhöfn
Eitt hundrað sportbáta-
eigendur stofna félag
Fyrir nokkru var stofnað
félag sportbátaeigenda f
Reykjavfk og eru félagar þess
um 100. Tilgangurinn með
stofnun félagsins er að sjá um
hagsmunamál sportbátaeig-
enda. Formaður félagsins var
kosinn Hafsteinn Sigurðsson.
1 lögum félagsins segir m.a.,
að tilgangur þess sé að efla
samvinnu sportbátaeigenda ög
vinna að hagsmuna- og öryggis-
málum þeirra og þeim tilgangi
hyggst félagið ná með því:
A) Að beita sér fyrir fullkom-
inni sjósetningar-, geymslu- og
bryggjuaðstöðu í Reykjavík.
B) Að ná fram hagstæðum kjör-
um á tækjum og rekstrarvör-
um.
C) Að stofna öryggismála-
nefnd, er í samráði við féiags-
stjórn efni til námskeiða í
undirstöðuatriðum sjómennsku
og öryggismála, og hvetji
félagsmenn til þess að fara ætíð
eftir settum reglum.
Sérstök einkunnarorð hafa
verið valin félaginu og eru þau
„Samhjálp á sjó“. Ekki hefur
félagið enn haft tök á að setja
upp skrifstofu, en nýir félagar
geta látið innrita sig hjá fyrir-
tækinu Seifur h.f. í Tryggva-
götu 10.
Karlmenn alls-
ráðandi í kvenna-
frísnefndinni í
Siglufirði
Siglufjrði, 17. oktðber.
DAGNÝ landaði hér 20 lestum
af blönduðum fiski f dag, en
skipið er búið að heilfrysta um
borð 65 lestir, sem það siglir
væntanlega með.
Bæjarstjórn hefur nú skipað
framkvæmdanefnd kvennafrí-
dagsins, sem er 24. október, og
eru eftirtaldir skipaðir i nefnd-
ina: Guðný Fanndal, Kristján
Sigurðsson, Björn M. Þorsteins-
son, Gunnar Rafn Sigurbjörns-
son, Anna Lára Herterwig, Jón
Sigurbjörnsson, Kolbeinn Frið-
bjarnarson, Eggert Theódórs-
son og Valey Jónasdóttir. Sem
sagt karlmenn í meirihluta.
— mj.
Bát stolið
STOLIÐ hefur verið frá Iegufær-
um við Ægisgarð trébát, sem er
hvítmálaður að ofan og grænn að
neðan með grænum þóftum. I
bátnum voru árar. Um það bil
vika er frá þvf er báturinn hvarf
frá Ægisgarði, en hann er í eigu
ungs pilts. Þeir, sem gætu gefið
upplýsingar um bátinn, eru vin-
samlegast beðnir að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna í
Reykjavík.
StJLNASALUR Hótel Sögu
stendur konum til boða á
kvennafrídaginn 24. októ-
ber. Konráð Guðmundsson
hótelstjóri hefur boðið
framkvæmdanefnd dags-
ins að lána Súlnasalinn.
Þar munu þær safnast
saman og laga kaffi sjálfar.
Konur munu safnast saman á
fleiri stöðum, í Norræna húsinu,
Nýr bátur frá
Slippstöðinni
SLIPPSTÖÐIN hf. afhenti nýlega
22,5 rúmlesta tréfiskiskip til
Sigurbjörns Kristjánssonar og
Ivars Júlíussonar á Húsavík og
hlaut skipið nafnið Fanney ÞH-
130.
Skipið er búið til línu- og hand-
færaveiða og einnig til snurvoðar-
veiða. Aðalvél er af gerðinni
Gumminns, sem er 235 hö við
1800 snúninga á mínútu. Svefn-
pláss er fyrir 4 menn og skipið er
búið fullkomnustu fiskileitar-
tækjum svo og ratsjá, sjálfstýr-
ingu og örbylgjustöð.
Skipið reyndist vel í reynslu-
ferð og gekk 10 hnúta.
var f notkun á þessu ári. Rauða-
krossdeildin hyggst útbúa snjóbil-
inn til sjúkraflutninga og notk-
unar í neyðartilvikum.
Kaupverð bilsins var um 2,5
millj. króna. Félögin sem að
kaupunum stóðu, voru: Kiwanis-
klúbbur, Lionsklúbbur, Rotary-
klúbbur og slysavarnardeild
kvenna. Söfnuðu þessi félög fé
meðal einstaklinga, félaga og
fyrirtækja, auk eigin framlaga.
Ofurlftið skortir enn á að nægi-
legt fé hafi safnast til kaupanna.
Formaður söfnunarnefndar var
Jónas Egilsson. — Fréttaritari.
Lindarbæ, Lindargötu 9, Hús-
mæðrafélagi Reykjavíkur á
Baldursgötu 9 og verða ofan-
greind hús opin kl. 3—7 e.h.
Einnig á Hallveigarstöðum,
Stokkholti á Skólavörðustíg 12 og
Félagsheimili prentara á Hverfis-
götu 21, og eru þrjú síðasttöldu
húsin opin frá kl. 10 um morgun-
inn.
Dagskrár verða í öllum hús-
unum, og sums staðar geta kon-
urnar lagað kaffi sjálfar.
Gáfu snjóbíl
Húsavík, 8. okt. 1975.
I GÆR afhentu formenn nokk-
urra félagasamtaka á Húsavfk
Húsavfkurdeild Rauða kross ts-
lands snjóbfl til eignar og starf-
rækslu. En Rauðakrossdeildin
hefir s.l. áratug annast sjúkra-
flutninga á Húsavfk og f Þing-
eyjarsýslum og á nú 2 sjúkra-
bifreiðir.
Björgunarsveit slysavarna-
deildarinnar á Húsavík hefur
haft afnot af annarri sjúkrabif-
reiðinni i neyðartilvikum og
samvinna tekist með þessum að-
ilum m.a. um byggingu björg-
unarstöðvar á Húsavík sem tekin
Teiknikennsla í
Grjótaþorpi
EINN morguninn í sl. viku var líflegt í Grjótaþorpinu.
Hópur af skólakrökkum streymdi þangaö gangandi og á
reiðhjólum með kennara sínum. Allur hópurinn dró upp
blöð og teikniáöld og tók að horfa spekingslega á gömlu
byggingarnar og festa á blað. Þarna var kominn Guð-
mundur Magnússon, teiknikennari í Hagaskóla, með 1.
bekk gagnfræðaskóla og þessir 13 ára krakkar kunnu
sýnilega að meta slíka kennslustund.
Kennarinn var þarna að vekja
athygli nemendanna á þessu
svæði, sem nú er mikið umtalað,
þvi það er uppeldisatriði að þau
fylgist með því sem er
að gerast og skoði sjálf, eins
hann sagði. Kennslu-
og hann
if IIII f l itl 111
llflllllliilllllllltlflltfftt!i!
stundin var helguð fjarvfddar-
teikningu og hann kvaðst
vilja hafa það vettvangs-
kennslu, eins og hann hefði oft
gert á undanförnum árum,
einkum í 2. bekk og landsprófi.
T.d. hefði verið farið niður I fjöru
lii
Ljósmynd Sv, Þorm.
Kennarinn leiðbeinir nemendunum, sem dreifðu sér um Grjótaþorpið
og teiknuðu hvar sem þau gátu fundið eitthvað til að teikna á.
miiimtiSHHiiiiHnmiiHiin •ið[-íBi.»t
til grásleppukarlanna og á listsýn-
ingar. En listamennirnir hefðu
verið ákaflega liðlegir með að
leyfa heilum hópum að koma á
sýningar hjá sér. Kæmu oft út úr
þessu skemmtilegar teikningar.
T.d. hefði verið gaman að eiga nú
teikningar skólabarna I einum
bekknum um þorskastríðið fræga.
Sagði Guðmundur að gamla form-
ið á teiknikennslunni væri að
breytast f öllum skólum borgar-
innar, þannig að kennarar væru
að færa kennsluna meira út í um-
hverfið.
Krakkarnir, sem voru að teikna
f Grjótaþorpinu, rissuðu upp það
sem fyrir augu bar, og munu svo
vinna úr þvf f skólanum. Kennar-
inn kvaðst hafa geymt úrklippur
um tillögu að uppbyggingu þarna
og seinna, þegar krakkarnir eru
búnir að skoða og athuga sinn
gang, þá mundi hann hengja þær
upp, svo og myndirnar og leyfa
þeim að ræða málið.
i '2)1 íi.iúrt i.t illíi
znt. ( uui>: