Morgunblaðið - 23.10.1975, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1975
11
Friðrik Sophusson:
Því miður,
Sverrir
fflBaia
— Þjóðhagstofa, Framkvæmda-
stofnun, góðan dag’
— Er Sverrir Hermannsson við?
— Þvf miður, hann er erlendis.
— Er Tómas Árnason við?
— Þvf miður, hann er ekki mætt-
ur.
— Hvenær verður hann við?
— Þvf, miður, ég get ekkert sagt
um það?
O.s.frv..
Eitthvað í þessum dúr voru við-
töl manna við símsvara Fram-
kvæmdastofnunarinnar morgun-
inn eftir að eftirtektarvert viðtal
við Sverri Hermannsson birtist
með mikilli viðhöfn í Morgun-
blaðinu siðastliðinn sunnudag.
Ekki er við símastúlkuna að sak-
ast. Þeir, sem spurt var eftir, hafa
báðir í mörg horn að lita um
þessar mundir.
FORSAGA MÁLSINS
Svo mikið hefur verið rætt og
ritað um hið pólitíska eftirlits-
mannakerfi, sem vinstri stjórnin
síðari kom upp með stofnun
Framkvæmdastofnunar ríkisins,
að það væri að bera í bakkafullan
lækinn að endurtaka það allt hér.
Ritstjóri Morgunblaðsins, sem tók
viðtalið við Sverri, rifjar nokkur
atriði upp í formála viðtalsins, en
við það má bæta, að Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins óskaði
eindregið eftir breytingum í þess-
um efnum og þær öskir voru
nýlega ítrekaðar á þingi Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna.
Það kann að þykja kynlegt,
þegar einhver ætlast til, að stjórn-
málaflokkur sýni á borði það, sem
hann hefur sagt í orði, en ég þyk-
ist tala fyrir munn fjölmargra,
þegar ég læt í Ijós þá skoðun, að
kominn sé tfmi til, að forsætisráð-
herra taki fram lykilinn að skrif-
borðsskúffu sinni og opinberi til-
lögurnar um breytingar á Stofn-
uninni, sem þar hafa legið i heilt
ár samkvæmt sögn Sverris.
ÞINGMENN VIÐ
BÚÐARBORÐIÐ
Mér er ljúft að viðurkenna, að
sjónarmið þau, sem Sverrir held-
ur fram f áðurnefndu viðtali, eru
á margan hátt athyglisverð, ekki
sfzt þar sem hann gerir grein
fyrir ofurvaldi embættismann-
anna. Vilmundur Gylfason ritaði
nýlega grein í Vfsi og spurði þá
m.a. hver hefði kosið Jóhannes
Nordal. öllum ber saman um yfir-
burði Jóhannesar yfir aðrar
mannlegar verur, en einhvern
veginn finnst mér þó, að þjóð-
félagið ætlist til of mikils af
honum. Það einfaldar að vísu
málið við uppbyggingu iðnaðar í
landinu og samhæfir stefnu og
störf þeirra aðila, sem fjalla um
þau mál, þegar Jóhannes Nordal
hjá Stóriðjunefnd þarf að semja
Friðrik Sophusson
við Jóhannes Nordal hjá Lands-
virkjun. Sá hinn sami Jóhannes
getur þá snúið sér til Jóhannesar
Nordal hjá Seðlabankanum um
lánafyrirgreiðslu, og ef ekki fæst
allt þar, getur Jóhannes Nordal
hjá Iðnþróunarsjóði hjálpað upp
á sakirnar og hlaupið undir bagga
a.m.k. um stund.
Sverrir telur greinilega, að
bezta ráðið til að koma i veg fyrir
ofurvald „embættismannaklik-
unnar“ sé, að þingmennirnir taki
upp sams konar vinnubrögð og
bregði sér f hlutverk almáttugra
með því að standa við búðar-
borðið á sama tíma og þeir eiga að
stjórna fyrirtækinu.
í þessum efnum er ég ekki sam-
mála Sverri. Ég tel, að fulltrúar
stjórnmálaflokka eigi að sitja f
kjörnum stjórnum stofnana. Þar
á að leggja línurnar og eftir þeim
forskriftum eiga embættismenn-
irnir að vinna. Sverrir Hermanns-
son þingmaður var kjörinn í
stjórn Framkvæmdastofnunar og
þar á hann að starfa.
....EÐA
A SlNUM STAÐ
Sverrir segir orðrétt í Morgun-
blaðinu: „Hvert einasta smá-
atriði, sem kemur til Fram-
kvæmdastofnunar er Iagt undir
ákvörðunarvald þingkjörinnar
stjórnar þessarar stofnunar". Sé
þetta rétt, þá er sú stjórn eðlileg-
ur staður fyrir hann. Þar getur
hann sinnt köllun sinni án þess að
eyða tíma sfnum við búðarborðið.
Eftir sem áður getur hann setið
hreppsnefndarfundi um allt land
og kynnt sér málin, enda er slíkt
góðra gjalda vert. Sverrir
Hermannsson er á nokkuð sæmi-
legum launum hjá rfkissjóði sem
þingmaður Austfirðinga og
reyndar þjóðarinnar allrar. Slíkt
starf þykir mörgum ærið — jafn-
vel fyrir algóða, alvitra og eðal-
borna menn.
Börnum gefin
endurskinsmerki
ÞRIÐJUDAGINN 7. október
komu félagar úr Kiwanisklúbbn-
um Elliða í Breiðholti í heimsókn
í Hólabrekkuskóla. Færðu þeir
öllum 6 ára börnum endurskins-
merki að gjöf en lögreglukona
ræddi við börnin um mikilvægi
þeirra. Kiwanisfélagar tjáðu mér,
að öll 6 ára börn í Breiðholti
fengju gefin endurskinsmerki
ásamt börnum í Heyrnleysingja-
skólanum, Bjarkarási, Lyngási og
öskjuhlfðarskóla, er hann tekur
til starfa en alls munu þetta vera
rúmlega 600 börn.
Ég vil færa félögum Kiwanis-
klúbbsins Elliða mínar bestu
þakkir fyrir þessar gagnlegu gjaf-
ir og vona að þeim takist að gera
þessar heimsóknir að árlegum
þætti í starfi sínu eins og þeir
hafa fullan hug á.
Ég vil ennfremur þakka þeim
fyrir vorheimsóknir þeirra, en þá
hafa þeir ætið veitt nemendum
verðlaun fyrir góðan námsárang-
ur f móðurmálinu. Fjár til þess-
arar starfsemi aflar Kiwanis-
klúbburirln fyrst og fremst með
jólatréssölu hér f Breiðholti.
Með þökk fyrir birtinguna
Sigurjón Fjeldsted,
skólastjóri.
Heimsþekktar verðlaunavörur tró Finnlandi. Einstakar glervörur, hannaðar af
færustu listamönnum Finnlands. Útlit og gæði littala eru í algerum
sérflokki. — Komið og skoðið úrvalið.
HUSGAGNAVERZLUN
KRISTÍÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavegi 13 Reykjavík sími 25870
Endurminningar
endumýjaðar
Viö önnumst eftir-
tökur og lagfæringar
gamalla mynda.
Stækkum í allar
stæröir frá 13X18 cm
til 2ja fermetra.
AUGLÝSINGA OG
IÐNAÐARLJÓSMYNDUN
HVERFISGÖTU 18,
BAKHÚS
SÍMI 22811